Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 23

Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 23 MINNINGAR REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARI B. EINARSSON, Haðalandi 9, Reykjavík, lést á Landsspítalanum, Fossvogi að morgni Annars Páskadags, 28. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Aradóttir, Guðrún Aradóttir, Ragnheiður Aradóttir, Jón S. Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, EINAR BRAGI rithöfundur andaðist laugardaginn 26. mars. Borghildur Einarsdóttir, Jón Arnarr Einarsson, og fjölskyldur. Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐNI HANSSON tæknifræðingur, Blönduhlíð 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni páskadags. Guðrún Hansdóttir, Rúnar G. Sigmarsson, Ragnheiður Hansdóttir, Bernharð Haraldsson, Hermann Hansson, Heiðrún Þorsteinsdóttir, Högni Hansson, Karin Loodberg, Sigurður Örn Hansson, Helga Finnsdóttir, Helga Hansdóttir, Erlingur Hansson, Vigdís Hansdóttir, Lars-Peter Sørensen, og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HANNES ALFONSSON, blikksmiður, Hamraborg 30 A, Kópavogi, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar laugar- daginn 26. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Halldóra Kristjánsdóttir, Alfons Hannesson, Bonita L. Hannesson, Valgerður Hannesdóttir, Haraldur Helgason, Svandís Hannesdóttir, Elías B. Árnason, Jóhanna Benný Hannesdóttir, Elfar Eiðsson, barnabörn og barnabarnabarn. Eiginmaður minn, SIGURÐUR SIGURÐSSON, verslunarmaður, Hverfisgötu 55, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 25. mars. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Brynja Helga Kristjánsdóttir. Ástkær systir okkar og frænka, SVANHVÍT JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR, lengst til heimilis að Öldugötu 4, (Gróf), Hafnarfirði, lést á Sólvangi að kvöldi föstudagsins langa. Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 4. apríl kl. 13.00. Ástvinir. Flestar mínar minn- ingar um afa eru frá því ég var lítil. Við bjugg- um þá hjá honum eða hann hjá okkur. Þegar afi var heima á kvöldin var það venja mín að skríða upp í hjá honum og sníkja kvöldlestur. Aldrei man ég eftir að hann segði nei við þessari bón minni en fyrir kom að hann sofn- aði með bókina á andlitinu. Þar sem ég var myrkfælin í meira lagi var það ÞÓRARINN BRYNJÓLFSSON ✝ Þórarinn Brynj-ólfsson fæddist á Lækjarósi í Dýra- firði 10. maí 1911. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 26. febrúar síðastliðinn og var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 4. mars. líka freistandi að sofna í afarúmi. Þar sofnaði ég við hroturnar hans sem vögguðu mér inn í svefninn og mér fannst ég vera örugg. Stundum fékk ég að fylgja afa út á strætó- stöð þegar hann var að fara í vinnu. Þá leiddi hann mig og stóra, hrjúfa, hlýja höndin hans faldi mína og hann gekk stórstígur af stað en ég hljóp við hlið hans, stundum fannst mér ég jafnvel fljúga. Það kom jafnvel fyrir að ég fékk að fara með honum í vinnuna, það var þegar hann var að líta eftir vélunum um helgar. Ekkert fannst mér að gæti verið eins spennandi og ævin- týralegt og það. Þá komum við stundum við í ísbúðinni á leiðinni og fengum okkur eitthvert góðgæti, en ísbúðin og allt hennar góðgæti féll í skuggann fyrir ævintýralegum kof- anum sem vélstjórarnir höfðu fyrir vinnuskúr. Stundum þurfti ég að bíða þar en ég varð ekki smeyk því ég vissi að afi kæmi aftur, vissi að það sem hann sagði var satt og hon- um var hægt að treysta 100%. Dísa mín, Tóta mín, Eva mín, Ásta mín, gætirðu skroppið út í sjoppu fyrir mig? Og auðvitað svaraði Una litla já. Bakatelló skyldi það vera. Ekki datt mér í hug að leiðrétta hann enda fannst mér ég, við þessa upp- talningu, vera orðin ein af dætrum hans og standa honum enn nær. Það var upphefð sem var þess verð að fara út í sjoppu fyrir. Í æsku dáðist ég að þessum stóra, sterka og hljóð- láta manni sem var afi minn. Á full- orðinsárum dáðist ég enn meira að afa og þeirri ótrúlegu þolinmæði sem hann bjó yfir gagnvart mér og öðr- um. Hann stóð eins og klettur í lífi mínu, þangað gat ég leitað skjóls og öryggis, og í minningunni stendur hann þar enn og ég finn fyrir hlýju og öryggi þegar ég hugsa til hans. Una Rós. Það má ekki minna vera en ég minnist þessarar vinkonu minnar og þakki fyrir öll þau ár sem leið okk- ar lá saman. Þau voru ekki svo fá skiptin sem ég átti með þeim hjónum á heimili þeirra í Hólm- inum. Það bar ekki mikið á henni í hinu daglega lífi, en þeim mun meira hefir hún séð um heimili sitt og börnin. Hún var gift góðum vini mínum gegnum árin, Lárusi Kristni, en við vorum samherjar um langt skeið í Góðtemplarareglunni og Sjálfstæðis- flokknum. Um það mætti rita stóra grein, en það var ekki tilgangur þessarar GUÐMUNDA F. JÓNASDÓTTIR ✝ Guðmunda Frið-semd Jónasdóttir fæddist á Hellissandi 30. október 1921. Hún lést á LSH sunnudaginn 6. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Stykkishólms- kirkju 12. mars. kveðju, heldur að minn- ast hennar og eins að þakka. Hún var seinustu ár og daga hér á Dvalar- heimili aldraðra og þar áttum við góð sam- skipti saman, gáfum okkar tíma til að ræða um liðnar stundir og sérstaklega um Hólm- inn og vöxt hans og vel- gengni, bera saman nú- tíðina við fortíðina og þau kjör sem við lifðum í æsku og hve afkom- endurnir geta nú horft fram á veginn bjartari augum en við. Hún var svo sátt og þakklát fyrir að hafa komið til okkar á Dvalar- heimilið. Þar undi hún vel. Hafði lítið verið meðal fólks, enda þurft að sinna sínu heimili. Það var hennar aðall. Ég veit að umskiptin, þótt þau væru fyrr en ég hafði álitið, eru henni til blessunar og hún trúði einlæglega á lífið framundan og ég veit að hún var södd lífdaga þegar hún kvaddi. Ég enda þessar fáu línur með þökk fyrir samfylgdina og sendi ástvinum hennar kveðjur mínar og bið þeim blessunar Drottins. Guð blessi þig, Munda mín, og varðveiti. Árni Helgason, Stykkishólmi. Vinir mínir – allir, allir, eins og skuggar liðu þeir inní rökkurhljóðar hallir, hallir dauðans, einn og tveir, einn – og – tveir. (Guðm. Guðmundsson.) Þá er vinur minn Jói í glerinu fall- inn frá, einn og einn hverfa þeir út yfir móðuna miklu og torræðu. Við vorum vinnufélagar hjá Agli Vilhjálmssyni h/f, hann sem verk- stjóri í glerinu og ég á réttinga- og yfirbyggingaverkstæðinu. Sam- skipti okkar voru mikil og góð, það JÓHANNES ODDSSON ✝ Jóhannes Odds-son glerskurðar- meistari fæddist í Reykjavík 15. mars 1928. Hann andaðist á LSH Landakoti 26. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogs- kirkju 3. febrúar. var ljúft að ræða við hann og ekki var hann lengi að skera rúður í einn og einn jeppa ef snögglega þurfti á að halda. Það var ekki bara gler sem Jói gat hjálpað manni um, því ef slá þurfti upp veislu þá var gott að leita til hans, öllu gat Jói bjarg- að sem á þurfti að halda í þannig gleðskap. Jói varð fyrir áfalli í haust er leið og missti málið. Hann fór á Grensás í endurhæf- ingu og náði sér að hluta en síðar í vetur kom í ljós að aðrir sjúkdómar voru búnir að heltaka hann og tók hann því af fullkomnu æðruleysi. Hann vissi þá að hverju stefndi, hann var á leið til Lallýjar sinnar. Það var dásamlegt að kynnast þeim hjónum og mannbætandi að heimsækja þau og sjá hvað þau voru samrýnd. Þegar hún svo missti heilsuna og lamaðist að hluta, hvað hann var þá nærgætinn og ljúfur við hana. Hann átti ekki í erfiðleikum með að hugsa um heimilið því kokkur var hann góður og kattþrifinn. Þegar Lallý féll frá var eins og slitnaði taug í hjarta hans, hann bar harm sinn í hljóði. Ég var ekki á landinu er hann lést, hafði farið til Kanarí um miðjan jan. en nokkrum dögum áður en ég fór höfðum við Friðbjörn G. J. heimsótt hann uppi á Landspítala. Þá var auð- séð að hverju dró. Hann var inni á kaffistofu er við komum. Þar rædd- um við saman nokkra stund og þá brá fyrir þessu ljúfa brosi hans ann- að slagið. Við gengum síðan með honum til herbergis hans. Hann lét okkur skrifa í gestabók sína. Hann hafði haft hana á Grensási einnig. Hún var þéttskrifuð svo það var auðséð hve vinamargur hann var. Við gömlu félagarnir frá E. V. h/f minnumst þín og þökkum góða sam- fylgd í hálfa öld. Við hjónin og fé- lagarnir sendum ættingjum hans öll- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ásvaldur Andrésson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.