Morgunblaðið - 29.03.2005, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Helgarferð til
Madrid
21. apríl
frá kr. 39.990
Verð kr. 39.990
Flugsæti með sköttum, báðar leiðir.
Verð kr. 54.090
Flug, skattar, gisting í tvíbýli
í 3 nætur á góðu 4ra stjörnu hóteli í
miðbænum, morgunverður
og íslensk fararstjórn. Netbókun.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri á helgarferð til Madrid
21. apríl. Madrid er einstaklega
spennandi borg sem býður upp á
ótrúlega fjölbreytni í skemmtun og
afþreyingu. Ótal söfn, frábært mannlíf,
skemmtileg hverfi og markaðir að
ógleymdum frábærum veitingastöðum.
Þú getur valið um að kaupa eingöngu
flugsæti eða flug og gistingu og þú
ert á góðri leið með að kynnast hinni
heillandi höfuðborg Spánar.
Á LAUGARDAGINN fyrir páska mældist yfir 15
stiga hiti á Norðurlandi, bæði á Dalvík og á Sauða-
nesvita við Siglufjörð. Á páskadag urðu hlýindin
mest í Borgarfirði og varð hitinn hæstur 17,3°C á
Húsafelli. Er það hæsti hiti sem mælst hefur í
marsmánuði í Borgarfirði.
Áður hafði hitinn orðið mestur 15,2°C í Síðumúla
í Hvítársíðu 31. mars 1965. Þann sama dag fór hit-
inn í 17,9°C á Sámsstöðum í Fljótshlíð, sem er
hæsti mældi hiti marsmánaðar hér á landi, a.m.k.
frá árinu 1923. Á Norðurlandi var álíka hlýtt og nú
fyrir tveimur árum, en þ. 27. mars 1948 var heldur
hlýrra norðanlands.
Þó svo að veðrið þessa páska hafi verið lands-
mönnum einkar hagfellt er afar líklegt að á síðustu
áratugum hafi einhvern tímann orðið hlýrra en nú,
ekki síst þau árin sem páskar hafa verið um miðjan
apríl þegar komið er vor samkvæmt almanakinu,
að því er fram kemur í frétt frá Veðurstofunni.
Óvenjuleg hlýindi um páskana
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Það er vorlegt um að litast á Hólmavík þessa dagana.
NOKKUR fjöldi fólks notaði síðasta
dag páskafrísins í gær til útivistar og
lagði leið sína að Esjurótum í þeim til-
gangi að ganga á fjallið. Að sögn við-
mælenda blaðsins völdu enn fleiri að
leggja leið sína á Esjuna á sjálfan
páskadag en í gær og má vafalítið
tengja það því góða veðri sem ríkti á
sunnudaginn var.
Hólmfríður Sigurðardóttir og
Ágúst Þór Gunnarsson sögðu einmitt
kjörið að nota tækifærið nú í
páskafríinu til að fara út og ganga, en
þau voru nýkomin niður af Esjunni
ásamt sonum sínum þegar blaðamað-
ur náði tali af þeim.
Aðspurð sögðust Hólmfríður og
Ágúst ávallt nýta páskana til útiveru,
en auk Esjunnar væru Helgafell,
Keilir og Trölladyngja einnig líklegir
áfangastaðir fjölskyldunnar. Sögðust
þau vera að æfa sig fyrir fjallgöngu
sem áætluð er um miðjan næsta mán-
uð, en þá er stefnan tekin á Þverár-
tindsegg í Suðursveit í fylgd Einars
Sigurðssonar í Hofsnesi.
Aðspurð sögðust þau hjónin hafa
lagt leið sína á Esjuna nokkuð reglu-
lega að undanförnu til að koma sér í
gott form fyrir væntanlega fjall-
göngu.
„Enda eru göngur á Esjunni afar
góð æfing sökum þess að hægt að
fara svo margar ólíkar leiðir, auk þess
sem hér er að finna fínar brekkur,“
sögðu Hólmfríður og Ágúst, en í gær
lá leiðin upp að Steini og tók það að
sögn um tvo og hálfan tíma með nest-
isstoppi. Sögðust þau ekki hafa lagt í
að fara upp að Vörðu að þessu sinni,
bæði sökum þokunnar sem lá yfir
fjallinu í gær en einnig vegna mikillar
bleytu sem stafi af því að frost er að
leysa úr jörðu.
Vön að fara á skíði um páskana
Á bílaplaninu við Esjurætur rakst
blaðamaður á Evu Dögg Péturs-
dóttur og Stefán Inga Svansson þar
sem þau voru að undirbúa uppgöng-
una. Sögðust þau vera að nýta daginn
til útivistar þar sem þetta væri eini
dagurinn í páskafríinu þar sem þau
væru bæði í fríi. Sögðu þau útiveruna
ágætis mótvægi við það hversu vel
hefði verið tekið á bæði í mat og
drykk síðustu daga.
Aðspurð sögðust Eva og Stefán
ekki vön á ganga á Esjuna um
páskana. „Við nýtum páskafríið yf-
irleitt til þess að fara á skíði, en núna
er náttúrlega ekkert færi til þess og
því þarf maður að finna einhverja
aðra leið til þess að ná sér í frískt loft
og hér er einmitt kjörin aðstaða til
útivistar,“ sagði Stefán.
Sömu sögu var að segja af Elínu
Matthildi Andrésdóttur og Kristjáni
Erling Jónssyni, en þau eru líka vön
að fara á skíði um páskana, helst í
Skálafelli. En sökum lélegs skíðafær-
is vildu þau finna eitthvert annað úti-
vistarform og þá var gönguferð eitt-
hvað upp í Esjuna tilvalin hugmynd,
enda stutt að fara úr bænum.
Aðspurð sagði Elín ákjósanlegast
að nota páskafríið til þess að eiga
notalegar fjölskyldustundir, bæði úti í
náttúrunni en einnig yfir góðum mat.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hjónin Ágúst Þór Gunnarsson og Hólmfríður Sigurðardóttir, hér ásamt
sonum sínum, Gunnari og Sigurði (t.h.), nýta ávallt páskana til útiveru.
Eva Dögg Pétursdóttir og Stefán
Svansson voru meðal þeirra sem
lögðu leið sína á Esjuna í gær.
Heilsu-
bótar-
göngutúr
á Esjunni
Elín M. Andrésdóttir og Kristján
Erling Jónsson ásamt sonum sínum,
Hirti Má og Andrési Kára.
BANDARÍSKA dagblaðið The
Washington Post birti leiðara í
gær undir fyrirsögninni Hneisa Ís-
lendinga og gagnrýndi þar harka-
lega Alþingi fyrir að hafa veitt
skákmeistaranum Bobby Fischer
íslenskan ríkisborgararétt. Segir
blaðið daginn sem Alþingi veitti
Fischer ríkisborgararétt hafa ver-
ið „sorgardag fyrir Ísland“ enda
hafi skákmeistarinn fyrir löngu
sagt skilið við alla háttprýði og
siðlega framkomu.
Í leiðaranum er haft eftir Þórði
Ægi Óskarssyni, sendiherra Ís-
lands í Japan, að Fischer sé nú
orðinn „sannur Íslendingur“ og
bætir leiðarahöfundur við að hann
voni að ekki séu til margir sannir
Íslendingar af þessu tagi.
Ekki sé deilt um skákafrek
Fischers og hann sé hetja á Ís-
landi vegna sigursins á Boris
Spasskí í heimsmeistaraeinvíginu
sem fram fór í Reykjavík árið
1972. Fischer hafi þá verið á tind-
inum. Þjóðþing Íslendinga hafi
hins vegar litið framhjá því að eft-
ir að Fischer varð heimsmeistari
hafi hann sokkið djúpt, hann hafi
orðið heiftúðugur gyðingahatari og
brotið gegn viðskiptabanni Sam-
einuðu þjóðanna gegn stjórnvöld-
um í Júgóslavíu gömlu með einvíg-
inu gegn Spasskí 1992 „jafnvel
þótt manndrápin héldu áfram í
Bosníu“.
Ummæli Fischers um
11. september og gyðinga
Kemur einnig fram í leiðaranum
að 11. september árið 2001 hafi
Fischer sagt í viðtali við útvarps-
stöð á Filippseyjum að hryðju-
verkaárásirnar mannskæðu á
Bandaríkin væru „frábærar frétt-
ir“. Þar hafi hann einnig sagt að
hann vonaðist til þess að herinn
tæki við stjórn landsins, bænahús-
um gyðinga yrði lokað, allir gyð-
ingar yrðu handteknir og mörg
hundruð þúsund leiðtogar þeirra
hnepptir í varðhald.
Í leiðara The Washington Post
segir ennfremur að Fischer sé
greinilega ekki í jafnvægi og ef til
vill sé ástæða til þess að vorkenna
honum fremur en að hata hann.
Hins vegar sé engin ástæða til
þess að heiðra Fischer „nema hinir
nýju landar hans vilji að þjóðin
skammist sín í hvert sinn sem
skákmaðurinn opnar munninn“.
„Tólf mínútur!“
Fréttamaður AP-fréttastofunnar
segir að ef einhvers staðar í heim-
inum sé land sem geti sætt sig við
jafn erfiðan og óútreiknanlegan
sérvitring og Fischer hljóti það að
vera Ísland. Einangrunin, fámenn-
ið, víðátturnar og furðulegt hraun-
landslagið hafi skapað þjóðar-
karakter sem einkennist af stolti
og sjálfstæði. Vitnað er í Jose Tir-
ado, búddista-prest með banda-
rískar rætur sem búið hafi á Ís-
landi í nær fjögur ár. „Hér er
borin virðing fyrir sjálfstæði ein-
staklingsins,“ segir Tirado. „Á Ís-
landi eru menn svo frjálsir að þeir
geta verið ruddalegir. Þeir [Ís-
lendingar] þola manni allt en það
merkir ekki að þeir séu sammála.“
Fréttamaðurinn ræðir við fleiri
útlendinga og segja sumir þeirra
að það taki langan tíma að hljóta
fulla viðurkenningu meðal inn-
fæddra. Og kuldinn og langur,
dimmur veturinn valdi mörgum
aðlögunarvanda.
Rifjað er upp að Alþingi hafi að-
eins þurft tólf mínútur til að af-
greiða tillöguna um ríkisborgara-
rétt handa Fischer en venjulega
þurfi útlendingar að bíða í mörg
ár. „Tólf mínútur!“ sagði Sheba
Wanjiku, sem vinnur á veitinga-
húsi og fæddist í Kenýa. Hún
hristir höfuðið í vantrú þegar hún
heyrir um heppni Fischers. „Þetta
tekur mig fimm ár.“
„Hneisa Ís-
lendinga“
The Washington Post gagnrýnir
Alþingi harkalega fyrir að veita
Fischer ríkisborgararétt
55 ÁRA íslensk kona fékk nýja lif-
ur grædda í sig á Ríkisspítalanum
í Kaupmannahöfn aðfaranótt ann-
ars páskadags og gekk aðgerðin
mjög vel að sögn eiginmanns
hennar. Aðgerðin tók skamman
tíma miðað við aðrar svipaðar að-
gerðir, eða um 6 klukkustundir,
en að sögn eiginmannsins taka
lifrarskiptaaðgerðir allt upp í 12
klukkustundir.
Konan greindist með lifrar-
sjúkdóminn árið 1998 og var þar
um að ræða ákveðna gerð fæðing-
argalla sem kemur í ljós síðar á
ævinni hjá fólki. Einkennin lýsa
sér m.a. í þróttleysi og gulu
litarafti. Búist er við að hjónin
verði í Kaupmannahöfn næstu vik-
urnar á meðan sjúklingurinn jafn-
ar sig. Batahorfur eru góðar hjá
lifrarþegum að sögn eiginmanns-
ins. Með tilkomu góðra lyfja sé fá-
títt að líkaminn hafni hinu nýja líf-
færi. Árlega eru gerðar um 40
lifrarígræðslur á Ríkisspítalanum í
Kaupmannahöfn og munu 4–5 Ís-
lendingar gangast undir slíkar að-
gerðir þar árlega.
Hlutirnir gengu hratt fyrir sig
því þau hjónin flugu út á páska-
dag þegar kallið kom frá spít-
alanum og var konan sett í að-
gerðina samdægurs. Áður höfðu
hjónin farið í kynningarferð á
spítalann fyrr í vetur.
Fékk grædda í sig lifur í Kaupmannahöfn