Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 8

Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þá gæti nú draumurinn farið að rætast. Alvöruher í alvöruherstöð. Samkvæmt nýjufrumvarpi um Rík-isútvarpið er tryggilega búið um rétt- indi núverandi starfs- manna. Þannig eiga allir þeir starfsmenn Ríkisút- varpsins sem við gildis- töku laganna eru ráðnir ótímabundinni ráðningu eða eru skipaðir rétt á störfum hjá Ríkisútvarp- inu sf. við yfirtöku þess á starfsemi RÚV. Líkt og kom fram í viðtali við Steingrím Sigurgeirsson, aðstoðarmann mennta- málaráðherra, hér í blaðinu, færast flestöll réttindi starfsmanna inn í hið nýja félag. Meðal umræddra réttinda er biðlaunarétturinn. Almenna reglan er sú að bið- launaréttur myndast aðeins þegar starf er lagt niður, samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðu- neytinu. Raunar má reikna með því að biðlaunaréttur almennra starfsmanna ríkisins hverfi með tíð og tíma út af íslenskum vinnu- markaði þar sem rétturinn tak- markast við þá starfsmenn sem hófu störf í þjónustu ríkisins fyrir gildistöku laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem tóku gildi 1. júlí 1996. Samkvæmt starfsmannalögun- um hefur ríkisstarfsmaður með meira en 15 ára starfsaldur rétt á biðlaunum í 12 mánuði, en sé starfsaldurinn skemmri á hann rétt á biðlaunum í 6 mánuði. Fyrir lagasetninguna gátu ein- staklingar sem unnu hjá ríkisfyr- irtækjum, við hlutafélagavæðingu fyrirtækisins, þegið starf hjá nýja félaginu en áttu jafnframt rétt á biðlaunum. Með lögunum frá 1996 var gerð sú breyting að taki ein- staklingur, sem rétt hefur til bið- launa, við öðru starfi eftir að stofnun sem hann vann við hefur verið lögð niður, hvort sem það er hjá nýja hlutafélaginu eða annars staðar áður en biðlaunarétturinn er liðinn þá dragast þau laun frá biðlaunum einstaklingsins. Hvað telst sambærilegt starf? Líkt og fram hefur komið þarf af tæknilegum ástæðum að segja upp öllu starfsfólki Ríkisútvarps- ins og endurráða það þegar Rík- isútvarpið sf. tekur við rekstrin- um. Ef starfsmaður, sem rétt hefur til biðlauna, velur að þiggja ekki sambærilegt starf hjá nýja sameignarfélaginu gæti hann mögulega átt rétt á biðlaunum. Ástæðan er sú að þegar meta á hvort um sambærilegt starf er að ræða hjá nýja hluta- eða sameign- arfélagi, sem áður var ríkisfyrir- tæki, þarf ávallt að fara fram heildarmat. Eftir því sem blaða- maður kemst næst liggja ekki fyr- ir skýr dómafordæmi varðandi þess háttar mat, þ.e. hvað skuli teljast sambærilegt starf eftir gildistöku laganna 1996. Reynslan hefur raunar verið sú að dómstól- ar hafa túlkað ákvæði um sam- bærilegt starf fremur þröngt, þ.e. að það verði að vera um nákvæm- lega sambærilegt starf að ræða að öllu leyti með hliðsjón af bæði verkefnum og kjörum, þeirra á meðal lífeyrisréttinda. Samkvæmt upplýsingum frá Guðbjörgu R. Jónsdóttur, starfs- mannastjóra Ríkisútvarpsins, voru 1. janúar sl. samningsbundn- ir starfsmenn RÚV samtals 321 og þar af voru 37 lausráðnir. Sam- tals falla 129 starfsmenn RÚV undir skilgreiningu um rétt til bið- launa. Afdrif afnotadeildarinnar Verði frumvarp menntamála- ráðherra um Ríkisútvarpið að lög- um mun afnotadeild útvarpsins leggjast af með tíð og tíma, en sem kunnugt er, er gert ráð fyrir að af- notagjöld leggist af í árslok 2007 og að nefskattur verði innheimtur frá og með 1. janúar 2008. Í dag vinna sjö starfsmenn í afnota- deildinni, en gera má ráð fyrir því að þeir verði aðeins þrír í ársbyrj- un 2008 verði frumvarpið að lög- um. Að sögn Bjarna Péturs Magn- ússonar, deildarstjóra afnota- deildar, mun einn starfsmaður deildarinnar láta af störfum á næsta ári sökum aldurs. Tveir starfsmenn deildarinnar eru ekki fastráðnir og því yrði þeim ekki tryggð störf hjá Ríkisútvarpinu eftir sameignarvæðinguna. „Ef frumvarpið verður að lögum verða væntanlega um áramótin 2007–8 einhverjar óinnheimtar tekjur, en þær fyrnast á þremur árum. Þannig að það þarf einhver að halda utan um þetta gamla afnota- gjaldakerfi og ég vænti þess að einn af þessum fjórum fastráðnu sem eftir yrðu haldi því hlut- verki,“ segir Bjarni og bendir á að ávallt sé eitthvað um óinnheimtar tekjur, þ.e. ógreidd afnotagjöld. Nefnir hann sem dæmi að um þessar mundir séu í kringum 200 milljónir í lögfræðiinnheimtu. Að mati Bjarna ætti ekki að vera erfitt að finna störf fyrir þá fastráðnu starfsmenn sem gera má ráð fyrir að verði starfandi við afnotadeildina þegar að því kemur að leggja hana niður. „Þetta eru einstaklingar sem búa yfir það mikilli þekkingu og eru búnir að vinna það lengi hjá stofnuninni að þeir geta nýst við hvaða önnur störf sem er innan stofnunarinn- ar.“ Fréttaskýring | Starfsmannamál hjá RÚV Ekki hefur reynt á ný lög Afnotadeild RÚV hefur aðeins þrjú ár til að innheimta ógreiddar skuldir Rúm 11% starfsmanna RÚV eru lausráðin. Biðlaunaréttur myndast þegar starf er lagt niður  Í ársbyrjun voru samnings- bundnir starfsmenn Ríkis- útvarpsins samtals 321, en þar af eru 37 lausráðnir. Samtals eiga 129 starfsmenn RÚV rétt á bið- launum. Velji starfsmaður að þiggja ekki starf hjá hinu nýja sameignarfélagi gæti hann engu að síður mögulega átt rétt á bið- launum, enda fela orðin um sam- bærilegt starf í sér að það þurfi að vera sambærilegt á öllum sviðum, hvað verkefni, starfssvið og kjör varðar. silja@mbl.is            ! "#$ %& &'&( ) & *  &+,-                     ./ 01. 2            /  2   ./ 31 .1 45.       2// .67 8/1  .6 31  2 91:     2      2   ./ 31      2    7 1   .6 1  .1    18    ./    :9/  ;/        // :  <1 2// /   2;  1 /    =  AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.