Morgunblaðið - 29.03.2005, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Nýjungar hjá Bændaferðum
Á þessu ári hefur Ferðaþjónusta bænda
skipulagt 24 bændaferðir til útlanda, en
seint á sl. ári sameinuðust Ferðaþjón-
usta bænda og Bændaferðir. Fyrsta
ferðin verður farin 21. apríl og endað á
aðventuferð í nóvemberlok. Fyrirtækin
hafa bæði staðið að skipulagningu og
sölu hópferða innanlands sem utan og
var ákveðið við sameininguna að áfram
yrði unnið á svipuðum grunni með því
að búa til fróðlegar og skemmtilegar
ferðir á viðráðanlegu verði fyrir flesta.
Nokkrar ferðir verða þó farnar í ár sem
ólíkar eru fyrri ferðum. Í fyrsta lagi hef-
ur verið skipulögð tólf daga ferð til
Þýskalands, Suður-Frakklands og Spán-
ar undir fararstjórn Hólmfríðar Bjarna-
dóttur 1.–13. maí. Fyrst verður gist í
Alsace-héraðinu í Frakklandi. Þaðan
verður ekið til Arles þar sem gist verð-
ur í tvær nætur. Síðan verður ekið til
Spánar og endað í bænum Lioret de
Mar þar sem áð verður í sex nætur. Far-
ið verður til baka til Frankfurt og gist á
skemmtilegum stöðum í þrjár nætur.
Dagana 17.–24. maí verður farið í æv-
intýraferð til Færeyja undir fararstjórn
Færeyingsins Davíðs Samúelssonar. Ek-
ið verður frá Reykjavík norður í Mý-
vatnssveit þar sem gist verður á Stöng.
Daginn eftir verður haldið til Seyð-
isfjarðar og farið með Norrænu til Fær-
eyja. Þátttakendur verða teknir upp í
rútuna á fyrirfram ákveðnum stöðum,
en bílstjóri verður Jón Árni Sigfússon,
sem einnig er liðtækur harmonikkuleik-
ari. Gist verður í Þórshöfn fyrstu fjórar
næturnar og síðan taka við skoð-
unarferðir um nærliggjandi eyjar.
Bændur og annað heimafólk verður
sótt heim.
Tónlistar- og menningarferð er svo á
dagskránni 5.–12. júlí undir fararstjórn
Hólmfríðar Bjarnadóttur og Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur. Hlustað verður á tónlist
hjá frægum tónlistarmönnum og m.a.
farið í hringleikahúsið í Verona og hlust-
að á óperuflutning auk þess sem gert
er ráð fyrir fleiri tónleikum í Toscana-
héraði.
Heilsudagar á Hótel Geysi
Hótel Geysir í Haukadal gengst fyrir
sérstökum heilsudögum 10.–15. apríl nk.
og er stefnt að slíkum dögum mán-
aðarlega yfir vetrartímann, að sögn
Heiðars Ragnarssonar matreiðslu-
manns sem hafa mun umsjón með dag-
skránni. Hann hefur lært lithimnulestur
hjá Faridu Sharan og bak- og svæða-
nudd hjá Heilsusetri Þórgunnu auk
þess sem hann hefur stúderað fræði
Edgars Cayce árum saman.
Heilsudagar byrja með lithimnulestri til
að greina ástand sálar og líkama. Boðið
verður m.a. upp á nudd, heilsufæði,
fræðslu um ýmislegt tengt heilsu og
mannlegum samskiptum, kvöldvökur,
gönguferðir, heita potta og gistingu í
tveggja manna herbergjum.
Dvölin kostar 36 þúsund krónur fyrir
þrjá daga og 52 þúsund krónur fyrir
fimm daga og munu nokkur stétt-
arfélög taka þátt í kostnaði félags-
manna sinna.
FERÐALÖG
TENGLAR
...................................................
www.hotelgeysir.is
Þeir eru ófáir karlarnir semkoma með skyrturnar sínar íþvott til hennar Hrefnu
Smith sem á og rekur Þvottahús A.
Smith í Bergstaðastrætinu. Sumir
þessara karla hafa sótt skyrturnar
sínar nýþvegnar og straujaðar í
þetta þvottahús svo áratugum skipt-
ir. Hrefna er að vonum ánægð með
hversu margir halda tryggð við
þvottahúsið og segir litrófið fjöl-
breytt. „Viðskiptavinir okkar eru
þverskurður af öllu þjóðfélaginu.
Hingað koma göturónar ekki síður
en ráðherrar með skyrturnar sínar.“
Kann enginn að strauja skyrtur?
Öll þessi karlmannsnöfn á skyrtu-
pökkum í afgreiðslu þvottahússins
leiða hugann að því hvort verið geti
að konur séu alfarið hættar að veita
þá þjónustu sem einhverju sinni
þótti sjálfsögð, að strauja skyrtur
eiginmannanna. Eða eru karlmenn
upp til hópa ófærir um að þvo og
strauja sjálfir sínar flíkur, fyrst þeir
flykkjast með skyrtur í þvottahús?
„Ætli þetta sé ekki fyrst og fremst
vegna þess að fólk hefur lítinn tíma
til að þvo og strauja í erli nútímans.
Konur koma ekkert síður með sínar
eigin skyrtur hingað til mín.“ Og í
þeim töluðu orðum kemur gamal-
reyndur karlkyns viðskiptavinur
með þvottinn sinn í poka og á honum
skellur spurningin um það hvers
vegna hann straui ekki sjálfur sínar
skyrtur. „Af því það er heilmikil
kúnst að strauja skyrtu vel og ég
geri það alls ekki nógu vel sjálfur.
En ég er ágætur í því að strauja bux-
urnar mínar.“ Og stuttu seinna kem-
ur kona að sækja skyrtur og svör
hennar á sama veg. „Við hjónin
kunnum hvorugt að strauja skyrtur,
þess vegna fer ég með allar okkar
skyrtur hingað.“
Við erum ódýr heimilishjálp
En ekki eru aðeins þvegnar skyrt-
ur í þvottahúsi A. Smith, þar er bæði
hægt að leigja og kaupa dúka í öllum
mögulegum stærðum. Þar er líka
þveginn þvottur fyrir veislusali,
gistiheimili, hótel og fleiri fyrirtæki.
Hrefna býður gestum hótela einnig
upp á sérstaka hraðþjónustu. „Þá
sækjum við þvottinn klukkan ellefu á
morgnana og skilum honum klukkan
fimm síðdegis sama dag.“
En í þvottahúsið kemur einnig
fólk með sinn heimilisþvott og eins
eru margir sem koma þangað reglu-
lega með sængurföt heimilisins.
„Enda er það ódýrasta heimilishjálp
sem völ er á að koma með sæng-
urfötin hingað í þvott og straujun,
sérstaklega fyrir stórar fjölskyldur.
Hingað kemur jafnvel þriðja kynslóð
úr sömu fjölskyldu með sængurfötin
sín og það þykir mér vænt um.“
Tvö tonn á dag
Þvottahús A. Smith hefur verið í
eigu sömu fjölskyldu þau 60 ár sem
liðin eru síðan það var stofnað.
Hrefna tilheyrir þessari fjölskyldu
og hún er nánast alin upp í þvotta-
húsinu, en hún keypti það ásamt
manni sínum fyrir 16 árum en hann
féll frá fyrir fjórum árum og sér hún
því ein um reksturinn en nýtur
dyggrar aðstoðar sonar síns. Hrefna
leggur áherslu á að mikill munur sé á
fatahreinsun og þvottahúsi. „Hér er
allt þvegið úr vatni og sápu, rétt eins
og heima hjá fólki en í fatahreinsun
eru flíkurnar þurrhreinsaðar og þar
er notast við kemískt efni sem heitir
perklór, sem er allt annars eðlis.“
Afköstin eru ótrúlega mikil í Berg-
staðastrætinu og þvottageta þvotta-
hússins er rúmlega tvö tonn á dag.
ÞVOTTAHÚS | Sama fjölskyldan hefur rekið A. Smith í sextíu ár
Þriðja kynslóð-
in að koma með
þvottinn sinn
„Við hjónin kunnum hvorugt að strauja skyrtur,
þess vegna fer ég með allar okkar skyrtur hingað,“
segir kona um leið og hún sækir þvottinn sinn til
Hrefnu Smith.
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
„Þennan karl er mjög gott að faðma því hann er alltaf mjúkur og hlýr,“ segir Hrefna um karlinn þar sem skyrt-
urnar eru fylltar heitu lofti áður en þær eru svo straujaðar eftir kúnstarinnar reglum.
Þvottavélar þvottahússins eru í stærri kantinum. Hér setur
Hrefna mikið magn af stórum dúkum í eina þeirra. Nóg að gera við að pakka inn líninu hreina.