Morgunblaðið - 29.03.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 17
MENNING
F l o k k u r Innlausnartímabil
Innlausnarverð*
á kr. 1.000.000,-
1995 1.fl. D 10 ár Gjalddagi 10. apríl 2005 2.198.850kr.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.*
Reykjavík, 29. mars 2005
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Lánasýslu ríkisins að Borgartúni 21, 2. hæð,
hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 og í bönkum og sparisjóðum um land allt.
BÓKASAMSTEYPAN Random
House í Þýskalandi tryggði sér á
dögunum útgáfuréttinn á glæpa-
sögu Ævars Arnar Jósepssonar,
Svörtum englum. Bókin er enn-
fremur tilnefnd
til Norrænu
glæpasagnaverð-
launanna í ár.
Svartir englar
komu út hjá Al-
menna bóka-
félaginu árið
2003 og er þetta
önnur sagan um
rannsóknarlög-
reglumanninn
Árna og félaga
hans. Fyrri bókin, Skítadjobb, kom
út árið 2002.
Í Svörtum englum hverfur kona
sporlaust og óvenju umfangsmikilli
lögreglurannsókn er strax hrundið
af stað. Um er að ræða einstæða,
tveggja barna móður og jafnframt
einn færasta kerfisfræðing lands-
ins. Á ýmsu hefur gengið í einkalífi
hennar en talsverð leynd virðist
hvíla yfir starfi hennar síðustu
mánuðina áður en hún hvarf. Fljót-
lega kemur í ljós að laganna verðir
eru ekki einir um að leita að henni
og fyrr en varir teygir rannsóknin
anga sína bak við tjöldin í stjórn-
sýslunni, inn í leðurklædd skúma-
skot viðskiptalífsins og napran
veruleika hinna verst settu í sam-
félaginu.
Tvær bækur Stellu seldar
Réttindastofa Eddu útgáfu hef-
ur gengið frá samningum við
þýska forlagið btb, forlag í eigu
bókasamsteypunnar Random
House, um sölu á útgáfurétti
tveggja bóka Stellu Blómkvist,
Morðið í Hæstarétti og Morðið í
Alþingishúsinu. Áður hafði btb fest
kaup á réttinum á fyrstu tveimur
bókum Stellu, Morðið í Stjórn-
arráðinu og Morðið í Sjónvarpinu.
Þar með hafa allar bækur Stellu
Blómkvist verið seldar til Þýska-
lands. Þýðandi þeirra á þýsku er
Elena Teuffer. Fyrir skömmu var
ennfremur gengið frá samningum
um sölu á Morðinu í Stjórnar-
ráðinu og Morðinu í Sjónvarpinu
til forlagsins Moba í Tékklandi.
Lífseig ráðgáta er hver búi að
baki höfundarnafninu Stellu Blóm-
kvist. Þrátt fyrir ótaldar eftir-
grennslanir og vangaveltur hefur
útgefendum Stellu, Máli og menn-
ingu, tekist að halda réttu nafni
hennar leyndu og greinilega hefur
Stella sjálf gætt þess vandlega að
ekki sjáist til hennar við skrift-
irnar. Fyrsta bók Stellu, Morðið í
Stjórnarráðinu, kom út árið 1997. Í
kjölfarið fylgdu Morðið í Sjónvarp-
inu (2000), Morðið í Hæstarétti
(2001) og Morðið í Alþingishúsinu
(2002).
Bækur Ævars
og Stellu til
Þýskalands
Ævar Örn
Jósepsson
Ég hef fjallað um það áður áþessum vettvangi hve góðstemmning skapast gjarn-
an á þeim sumartónlistarhátíðum
sem haldnar eru víðs vegar um
landið, þegar sömu gestir sækja
allt að ferna tónleika heila helgi í
sumarblíðu og við kjöraðstæður.
Kringum slíkar hátíðir verður
gjarnan til samfélag tónlistarhá-
hugafólks sem á sinn þátt í því að
gera hátíðirnar vel heppnaðar og
eftirminnileg-
ar. Það skal
játað, að tæp-
ast hefur það
hvarflað að
mér, að slík músíksamfélags-
stemmning gæti skapast við tón-
listarhátíðir á höfuðborgarsvæð-
inu. Nýafstaðin Blúshátíð í
Reykjavík tók þó af öll tvímæli um
að slíkt gæti ekki gerst í höfuð-
borginni. Aðsókn á hátíðina var
gríðarlega góð og stemmningin
einstök.
Þetta er annað árið sem Blúshá-tíð í Reykjavík er haldin, og
nú, eins og í fyrra, með fernum
tónleikum, þar sem fremstu blús-
tónlistarmenn landsins komu
fram ásamt erlendum gestum. Há-
tíð af þessu tagi hlýtur að standa
og falla með því að faglega sé að
málum staðið og vel vandað til
dagskrárinnar. Dagskráin þarf að
bjóða upp á viðburði sem fólk vill
sækja; – vel þekktar stærðir, en
líka eitthvað óvænt og for-
vitnilegt. Á öllum tónleikum há-
tíðarinnar var þessi góða blanda í
heiðri höfð, – þar var eitthvað fyr-
ir alla, og það átti sinn þátt í því
hve gríðargóð stemmning skap-
aðist.
Á þriðjudagskvöldinu voru tón-
leikar á Hótel Borg, og þar léku
blúsbræðurnir Mike og Danny
Pollock fyrir hlé, en Kentár eftir
hlé. Stóra aðdráttaraflið þetta
kvöldið var tvímælalaust gít-
arkempan Björgvin Gíslason, sem
sýndi mörgum kynslóðum aðdá-
enda, að hann er ennþá topp-
maður í blúsnum.
Miðvikudagskvöld á Borginni
léku blúsarar af yngri kynslóðinni
fyrir hlé, – Mood, Hot Damn! og
þeir bráðefnilegu Jón Ingiberg og
Danni, en eftir hlé var komið að
KK og Þorleifi Guðjónssyni með
gamla bandið sitt Grinders, sem
hafði ekki spilað hér á landi sam-
an í sextán ár, og ekki leikið sam-
an í rúman áratug. Það var stór-
kostleg upplifun að sjá þá Derrick
„Big“ Walker og Professor
Washboard á sviði að nýju með
KK og Þorleifi. Það hefði mátt
ætla að eitthvað hefði gleymst eða
ryðgað allan þann tíma sem hljóð-
færaleikararnir fjórir hafa ekki
einu sinni hist, hvað þá meira, –
en það var engu líkara en fjór-
menningarnir hefðu verið að
linnulaust allan þennan tíma. Ef-
laust hafa þó fjarlægðin og tíminn
sem liðinn er átt sinn þátt í þeirri
miklu spilagleði og innilega fögn-
uði sem streymdi frá Grinders
þetta kvöld á Borginni.
Þriðju tónleikarnir voru haldnir
í sal Nordica-hótelsins, sem tekur
talsvert fleiri í sæti en Borgin.
Salur Nordica kom á óvart – hátt
til lofts og vítt til veggja, – dekk-
uð borð, og sviðið hátt, þannig að
allir sáu vel og heyrðu vel. Vanda-
málið var eingöngu það sama og á
tónleikunum kvöldin áður á Borg-
inni; – salurinn var hreinlega of
lítill, – slíkt var fjölmennið. Blús-
menn Andreu áttu leik fyrir hlé,
og verður að segjast eins og er, –
að Andrea er án nokkurs vafa
besta blússöngkona sem þessi þjóð
hefur eignast. Eftir hlé söng
Deitra Farr, blúsdrottning frá
Chicago, með Vinum Dóra, og
þótt stór hluti þeirra prógramms
væri frumsamið efni hennar
sjálfrar var ekki að heyra að fólk
kynni síður að meta það en gömlu
góðu standardana.
Hátíðinni lauk í afar innilegri
og einlægri stemmningu í Frí-
kirkjunni í Reykjavík að kvöldi
föstudagsins langa, þar sem blús-
drottningarnar tvær sungu negra-
sálma með Kammerkór Hafn-
arfjarðar og tríói. Þar, eins og
fyrri kvöldin, var aðsóknin engu
lík, – og strax komin örtröð fólks
Blúshátíð í Reykjavík – fagleg
og á fleygiferð inn í framtíðina
’Borgin ætti að sjá hagsinn í því að Blúshátíð
eflist; – því þótt ung sé
hefur hún rammfest sig
í sessi, og ljóst að hún
getur ekkert nema
stækkað og dafnað
miðað við gríðarlegan
áhugann.‘AF LISTUMBergþóra Jónsdóttirbegga@mbl.is
fyrir utan kirkju, að bíða eftir
miðum, þremur stundarfjórð-
ungum fyrir tónleika.
Blúshátíð í Reykjavík 2005heppnaðist frábærlega vel.
Þar sást sama fólk kvöld eftir
kvöld; einstök stemmning skap-
aðist, og undirtónninn var sér-
staklega jákvæður og bjartur. Það
var athyglisvert hve aldurshópur
tónleikagesta var breiður, – allt
frá börnum upp í settlega eldri
borgara. Það var líka eftirtekt-
arvert að ferðamenn virðast hafa
verið vel upplýstir um hátíðina.
Hollenskir ferðamenn sem hér
voru staddir í fyrra og sóttu
Blúshátíð fyrir tilviljun komu
hingað aftur í ár, gagngert til að
missa ekki af þessari annarri
Blúshátíð í Reykjavík.
Svo virðist sem allt hafi þettatekist svo vel sem raunin
varð, með samstilltu átaki þeirra
sem skipulögðu hátíðina, og
þeirra fjölmörgu sem unna þess-
ari tónlist og vilja sækja blústón-
leika. Styrktaraðilar voru sóttir í
atvinnulífið, og kemur á óvart að
hvorki ríki né borg skuli hafa séð
ástæðu til að vera í þeim flokki.
Borgin ætti að sjá hag sinn í því
að Blúshátíð eflist; – því þótt ung
sé hefur hún rammfest sig í sessi,
og ljóst að hún getur ekki neitt
nema stækkað og dafnað miðað
við gríðarlegan áhugann. Áhugi
landsbyggðarfólks og erlendra
ferðamanna á Blúshátíð er borg-
inni í hag, – og menningar-
viðburður af þessu tagi á árstíma
sem stendur utan mesta ferða-
mannatíma getur ekki verið nema
til góðs.
Það sem höfuðmáli skipti þó var
hve músíkstandard hátíðarinnar
var góður. Tengsl hátíðarinnar
við Ameríku og blúsborgina
Chicago voru treyst í sessi með
komu Deitru Farr, og að sögn að-
standenda hátíðarinnar hefur
Farr samþykkt að vera í ráðgjaf-
arnefnd hátíðarinnar sem leggur
listrænum stjórnanda, Halldóri
Bragasyni, lið. Tengsl við Norð-
urlöndin og Evrópu voru efld með
komu Grinders, og hljóta vonir
aðstandenda hátíðarinnar að
standa til þess að hún öðlist sess
sem ein af athyglisverðustu al-
þjóðlegu blúshátíðunum í okkar
horni heimsins. Til þess hefur
Blúshátíð í Reykjavík sannarlega
alla burði.
Ljósmynd/Júlíus Valsson
Dóri og Deitra Farr í heitum ham. Andrea Gylfadóttir er blúsdrottning Íslands.
Fréttasíminn 904 1100