Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
JÓN SIGTRYGGSSON
fyrrv. aðalbókari,
Árskógum 6,
lést á deild L4 á Landakotsspítala mánudaginn
21. mars. Útförin verður gerð frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 30. mars nk. kl. 13.00.
Halldóra Jónsdóttir,
Sigtryggur Jónsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
EINAR BRANDSSON,
Prestastíg 11,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 18. mars,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 30. mars kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð
hjúkrunarþjónustunnar Karitasar.
Jónína Vigdís Ármannsdóttir,
Sigurjón Á. Einarsson, Steinunn Kristjánsdóttir,
Brandur Einarsson, Lára Ásgeirsdóttir,
Guðni B. Einarsson, Hrönn Hallsdóttir,
Jóndís Einarsdóttir, Guðmundur J. Vilhelmsson,
Hulda B. Rósarsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS ÞÓRÐARSON
frá Stóru-Vatnsleysu,
Lækjarhvammi 20,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 30. mars kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélags Íslands í síma 540 1900.
Guðný Baldursdóttir,
Sigríður Auðbjörg Jónasdóttir, Magnús Arthúrsson,
Þórunn Margrét Jónasdóttir, Óli Vignir Jónsson,
Sólveig Jóna Jónasdóttir, Jón Ingvar Haraldsson,
Þórður Kristinn Jónasson, Hjördís Pálmarsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
DANÍEL G. GUÐMUNDSSON,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Álfhólsvegi 105,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 22. mars.
Hann verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 30. mars kl. 15.00.
Ásta Jónsdóttir,
Þorbjörn Daníelsson Anna Jóna Guðjónsdóttir,
Guðrún Daníelsdóttir, Hörður Reimar Óttarsson,
barnabörn og barnabarnabörn,
Rebekka Guðmundsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN KR. INGVARSDÓTTIR,
Foldahrauni 40,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugardaginn
26. mars.
Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 9.
apríl kl. 14.00.
Ingunn Jónasdóttir, Óli Kristinsson,
Guðrún Jónasdóttir, Steinar Júlíusson,
Sjöfn Jónasdóttir, Halldór Gunnarsson,
Sigureir Jónasson,
Sigurjón Jónasson, Jóhanna Ragnarsdóttir,
Jónas Þór Steinarsson, Þórey Morthens,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tendgamóðir og amma,
BIRNA BJÖRNSDÓTTIR
fv. bankafulltrúi,
Hvassaleiti 14,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 31. mars kl. 13.00.
Sigurður Pétur Harðarson,
Bjarki Harðarson, Þórdís Einarsdóttir,
Dögg Harðardóttir, Fjalar Freyr Einarsson,
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÓLAFUR TORFASON HJALTALÍN,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést laugardaginn 26. mars.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugar-
daginn 9. apríl kl. 14.00.
Vilborg G. Jónsdóttir,
Gunnar Ólafsson, Hrefna Jónsdóttir,
Ingibjörg Ó. Hjaltalín, Þórður H. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
LÁRA BECH ÞÓRARINSDÓTTIR,
Kötlufelli 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
miðvikudaginn 30. mars kl. 15.00.
Þórarinn Bech,
Guðný Bech, Grétar Gústafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hófi mín.
Það var gaman að koma til Ak-
ureyrar og hitta þig og áttum við
skemmtilegar stundir saman, gaman
var að sjá hvað þú áttir fallegt heim-
ili, það var líka gaman að hafa þig hjá
okkur Aldísi í Bólstaðarhlíðinni með-
an þú varst að læra að halda heimili
með honum Óla þínum. Ég trúi ekki
að þú sért farin, guð geymi þig og
gefi Óla styrk til að halda áfram.
Þínir vinir
Stefán og Aldís.
HÓLM-
FRÍÐUR
ÓSK JÓNS-
DÓTTIR
✝ Hólmfríður Ósk Jónsdóttirfæddist á Dalvík 1. október
1952. Hún lést á gjörgæsludeild
FSA 6. mars síðastliðinn og var
útför hennar gerð frá Glerár-
kirkju 11. mars.
Mjök erum tregt
tungu at hræra.
(Egill Skalla-Grímsson.)
Nú hefur góð kona
lagt af stað í nýtt ferða-
lag. Það er við hæfi að
vitna í Egils sögu
Skalla-Grímssonar, þar sem íslensk-
ar fornbókmenntir voru Sigríði alltaf
mjög hugleiknar. Ég held að hún
hafi verið tilbúin til brottfarar um
nokkurt skeið, þar sem hún var orðin
mjög heilsulítil.
Sigríður var góð samstarfskona og
fjölskylduvinur. Hún vann um mið-
bik síðustu aldar með föður mínum,
K. Hauki Pjeturssyni, mælingaverk-
fræðingi, á mælinga-kortagerðar-
deild bæjarverkfræðings í Reykja-
vík. Þegar hann síðan stofnaði eigið
fyrirtæki, verkfræðistofuna Forverk
hf., réðst hún til starfa þar og vann
þar sem tækniteiknari í hartnær 25
ár. Þar sem fjölskyldan öll átti eftir
að vinna í fyrirtækinu á mismunandi
tímaskeiðum, kynntumst við Sigríði
mjög vel og nutum góðs af vináttu
hennar og tryggð við fjölskylduna.
Þar sem fyrirtækið var staðsett í
sama húsi og fjölskyldan bjó í, var ég
ekki hár í loftinu þegar ég leit fyrst í
heimsókn til Sigríðar í kaffistofuna.
SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir
fæddist 9. desember
1917. Hún lést 8.
mars síðastliðinn og
var hún jarðsungin
frá Fossvogskirkju
18. mars.
Þar með hófst vinátta
sem átti eftir að endast
fram á þennan dag.
Alltaf var gaman að
hitta Sigríði hvort sem
var í vinnunni eða utan.
Ekkert var Sigríði
framandi og hún hafði
alltaf eitthvað nýtt og
athyglisvert fram að
færa, fylgdist vel með
og var mjög víðlesin.
Íslandssagan í hinum
ýmsu myndum var
henni hugleikin, og þá
sérstaklega Sturlunga
og Héraðssaga Vestur-
Skaftafellssýslu. Þá hafði hún mik-
inn áhuga á ættfræði. Hugur hennar
var þó ekki eingöngu tengdur landi
og þjóð heldur hafði hún einnig mik-
inn áhuga á evrópskri menningu,
listum og sögu. Ófáar voru þær
stundirnar, sem við ræddum þessi
áhugamál okkar.
Þegar Sigríður lauk gagnfræða-
skóla var henni boðið að fara í
menntaskóla en hún ákvað í staðinn
að gerast tækniteiknari. Ég er viss
um að hún hefði getað orðið frábær
fræðimaður að atvinnu, en hún var í
staðinn fræðimaður af áhuga. Sigríð-
ur hafði þó gaman af vinnu sinni
enda listræn mjög og teikning lá vel
fyrir henni.
Gaman var að hitta Sigríði með
bræðrum sínum og systrum. Í þeim
heimsóknum var sérstakt að fylgjast
með umræðum þeirra í milli, en þær
voru oft fjörugar og húmorinn þá
skammt undan.
Ég og fjölskylda mín viljum minn-
ast Sigríðar með þakklæti fyrir góða
vináttu, hlýhug og ekki síst
skemmtilega samveru. Móðir mín,
Jytte, Björg og Inga systur mínar og
fjölskyldur þeirra senda ásamt mér
samúðarkveðjur til fjölskyldu Sig-
ríðar vegna fráfalls hennar.
Björn Óli Hauksson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningargreinar