Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elskulegur tengda-
sonur okkar Guðmund-
ur Árni Jónsson lést að
morgni fimmtudagsins
3. mars aðeins 47 ára
gamall. Hann var ein-
stakur maður, ákveðinn í skoðunum
og vissi nákvæmlega hvernig hann
vildi hafa hlutina.
Honum var margt til lista lagt,
hann hannaði og smíðaði húsgögn,
GUÐMUNDUR ÁRNI
JÓNSSON
✝ Guðmundur ÁrniJónsson fæddist í
Reykjavík 14. júlí
1958. Hann lést 3.
mars síðastliðinn á
gjörgæsludeild
Landspítalans og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 15.
mars.
málaði fallegar myndir,
var fróður um margt,
mjög vandvirkur á allt
sem hann tók sér fyrir
hendur. Guðmundur
gerði ýmislegt um æv-
ina, ferðaðist víða, vann
í tískuverslun, á aug-
lýsingastofum, setti
sjálfur upp verslun og
vann síðan í Stálhús-
gögnum Skúlagötu 61.
Guðmundar er sárt
saknað, við eigum dýr-
mætar minningar um
góðan dreng. Blessuð
sé minning hans.
Elsku Sigga okkar og Stefanía,
Jón, Nína og Gunnar, Kalli, Nína og
fjölskylda, aðrir ættingjar og vinir,
Guð veri með ykkur öllum.
Geirlaug og Árni.
Elsku amma mín.
Ég vil þakka þér fyrir
allar stundirnar sem
við áttum saman. Alla
dagana sem þú varst
hjá okkur í Gautaborg,
þar sem ég kynntist þér í raun best,
þó að dagarnir hafi mestmegnis far-
ið í Lindex-leiðangra og hamborg-
araát á Clock. Öll kvöldin sem við
spiluðum saman kínverska skák og
öll áramótin sem þú sannfærðir
mömmu um að ég mætti alveg fá
AÐALBJÖRG
VALENTÍNUSDÓTTIR
✝ Aðalbjörg Val-entínusdóttir
fæddist á Hellissandi
8. febrúar 1918. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Garðvangi
í Garði 4. mars síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Út-
skálakirkju 11. mars.
Baileys-staup. Ég vona
að ég hafi náð að end-
urgjalda þér brot af
þeirri góðmennsku
sem þú sýndir mér í
gegnum árin með því
að vera til staðar t.d.
þegar Berta og Svana
kvöddu okkur allt of
snemma. Ég get aldrei
ímyndað mér hvernig
þér leið á þeim tíma, en
því sem fór okkar á
milli mun ég aldrei
gleyma. Að hafa þér
kynnst eru forréttindi
og heiður. Hafðu það
sem best þar sem þú ert, því þú átt
það svo sannarlega skilið og kenndu
þessu fólki sem þar er hvernig spila
á kínverska skák.
Ég sé þig seinna, elsku amma mín.
Þinn
Jakob Þór.
myndina að stofnun leikskólans á
Laugarvatni en það var Margrét
Gunnarsdóttir sem bar hitann og
þungann af því starfi fyrstu tutt-
ugu árin.
Frumstæðar aðstæður
Laugardalshreppur var rekstr-
araðili leikskólans frá upphafi í
húsnæði gamla „Húsó“. Við upphaf
rekstrar leikskólans voru aðstæður
frumstæðar, m.a. var sagað undan
borðum til að hafa þau í hæð
barnanna og setið var á plastfötum
fyrsta starfsárið.
Grunnskólinn var tekinn í notkun
haustið 1962. Í Laugardal eins og
víða um land byrjaði kennsla sem
farskóli þar sem kennarar fóru á
bæi en formleg kennsla með fastan
kennslustað hófst fyrst í Svanahlíð,
í kjallara húss Ólafs Ketilssonar.
Einnig var kennt í húsnæði Hér-
aðsskólans og síðar í kjallara í
Mörkinni. Guðmundur Rafnar Val-
týsson var skólastjóri í núverandi
skólahúsnæði frá upphafi í um
fjörutíu ár.
Fundur sveitarstjórnar í apríl
2004 með stofnun vinnuhóps 3. maí
2004 varð upphafið að því sem nú
er að hefjast, sem er nýbygging
leik- og grunnskóla. Ákvörðun um
að ráðast í bygginguna var síðan
formlega tekin 6. júlí 2004. Stefnt
er að því að henni ljúki 1. sept. nk.
Byggingarnefnd skipa Sveinn A.
Sæland, oddviti Bláskógabyggðar,
sem er formaður, Kjartan Lár-
usson sveitarstjórnarmaður og
Tómas Tryggvason bygging-
armeistari. Auk þess hefur Ark-
form, Guðjón Magnússon, séð um
útboðsgögn og veitt ráðgjöf við yf-
irferð teikninga/hugmynda sem
bárust.
Aukið kennslurými
í grunnskólanum
Hér er um að ræða byggingu
sem er boðin út sem alútboð, sem
felur í sér að sá sem lætur teikna
hugmyndina sér einnig um bygg-
inguna og skilar fullbúnu húsnæði.
Alls komu fram fimm tillögur og er
sú tillaga sem hér er byggt eftir sú
sem hlaut flest stig eða þótti
áhugaverðust af hálfu matsnefndar
og skólastjórnenda, sér í lagi innra
skipulag. Nú fá nemendur og kenn-
arar grunnskólans aukið kennslu-
rými og nýtt anddyri en auk þess
er hér um að ræða nýja glæsilega
leikskólabyggingu með tilheyrandi
útileiksvæði. Hönnuður bygging-
arinnar er á stofunni Arkitektar,
byggingaraðili er Þverás og eftir-
litsaðili Tómas Tryggvason.
FYRSTA skóflustungan að leik-
skólabyggingu sem um leið verður
viðbygging við grunnskólann á
Laugarvatni var tekin nýlega. Það
voru börnin á Leikskólanum Lind
sem munduðu skóflur sínar til að
koma verkinu í gang. Flest börn á
grunn- og leikskólaaldri voru mætt
ásamt starfsfólki til að fagna fram-
kvæmdunum en gert er ráð fyrir
að byggingin verði tilbúin í sept-
ember.
Börnin sungu nokkur lög við
harmoníkuleik Örlygs Atla Guð-
mundssonar tónlistarkennara, m.a.
frumsaminn texta við lagið Á
Sprengisandi:
Mokum, mokum, nú mokum við
upp sandinn
Reisum, byggjum nýtt og betra
hús
Mælum, stikum, minnstur
verður vandinn
Hér rís höll af steypu, möl og
grús …
Skólastjórnendum leikskólans og
grunnskólans voru afhentir blóm-
vendir frá sveitarstjórn Bláskóga-
byggðar, en ljóst er að aðstaða
starfsfólks mun batna verulega
með nýja húsnæðinu.
Jensína Halldórsdóttir, skóla-
stjóri Húsmæðraskólans, átti hug-
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Börnin á Leikskólanum Lind tóku fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við grunnskólann og nýjum leikskóla.
Börnin tóku fyrstu
skóflustunguna
Laugarvatni. Morgunblaðið.
RÆTUR, hefðir og bati fyrir karla og konur er
nafn á námskeiði um fíkniferlið og fjölskylduna sem
Ráðgjafarskólinn stendur að um næstu helgi. Leið-
beinendur verða hjónin Jane og Craig Nakken og
hefur Craig þrisvar áður verið með námskeið hér-
lendis.
Samkvæmt upplýsingum Stefáns Jóhannssonar
fjölskylduráðgjafa hefur Craig Nakken ferðast víða
um heim til námskeiðahalds sl. 15 ár.
Námskeiðið fjallar um hvernig fíkn hefur áhrif á
samband við maka og börn. „Farið er yfir þroska-
ferlið og fíkniferlið.
Einnig eru skoðaðar nýjar leiðir til að hjálpa kon-
um og hvernig andlegar langanir kvenna verða
helstu þættir í bata þeirra,“ segir m.a. í frétt um
námskeiðið.
Námskeiðið fer fram á Grand hóteli í Reykjavík
1. og 2. apríl og kostar 24 þúsund krónur.
Innifalin er bókin Fíknir sem komin er út á ís-
lensku og er eftir Craig Nakken.
Halda námskeið
um fíkniferlið
NÝR sjálfshjálparhópur fyrir fullorðin börn geð-
fatlaðra verður formlega stofnaður í dag, þriðjudag-
inn 29. mars, kl. 19.00 í húsi Geðhjálpar á Túngötu 7
í Reykjavík. Markmiðið er að þátttakendur geti
deilt reynslu sinni og sótt stuðning í hópinn.
Reynt verður að taka fullt tillit til þarfa hvers og
eins, þ.e. þátttakendur munu sjálfir koma með óskir
um það hvað þeir vilji fá út úr starfinu í hópnum.
Hópurinn verður starfræktur í samstarfi við Rauða
kross Íslands en Rauði krossinn hefur hleypt af
stokkunum námskeiðum fyrir aðstandendur geð-
sjúkra um land allt. Vel verður tekið á móti þeim
sem vilja gerast félagar í þessum hópi og nánari
upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Geðhjálpar í
síma 570-1700, segir í fréttatilkynningu.
Sjálfshjálparhóp-
ur fyrir fullorðin
börn geðfatlaðra
FRÉTTIR
Minningargreinar
Morgunblaðið birtir minningargreinar
alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í
fliparöndinni – þá birtist valkosturinn
„Senda inn minningar/afmæli“ ásamt
frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Elsku Gylfi minn,
það er sárt að þurfa að
kveðja þig svona
snemma, en ég get
huggað mig með því að
þú hefur verið kallaður
í annað mikilvægt verkefni sem er
samt svo sárt.
Það er svo mikið af yndislegum
minningum sem ég á um þig og Olgu.
Alltaf þegar var minnst á Reyni-
grundina þá vissi ég að það yrði gam-
an, Jane Fonda og allt það. Maður
brallaði margt þar. Oftar en ekki
tróð ég mér á milli ykkar þegar nótt-
GYLFI
HAUKSSON
✝ Gylfi Haukssonfæddist í Reykja-
vík 13. ágúst 1949.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi
mánudaginn 14.
mars síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Hjallakirkju í
Kópavogi 21. mars.
in skall á og yfirleitt
komst ég upp með það.
Það var þér að þakka.
Svo komu litlu gull-
molarnir í heiminn okk-
ar. Það var pínu erfitt
en ég var fljót að taka
þau í sátt og í dag eru
þau yndislegir vinir
mínir.
Mér þótti vænt um
hvað þið Sigurjón Daði
náðuð vel saman, sátuð
og spjölluðuð. Honum
þótti svo gott að koma
til ykkar.
Það var sama hlýjan
sem hann fann og ég á hans aldri.
Ég kveð þig nú með þessum fáu
orðum þó að mér finnist ég geta
skrifað endalaust af góðum minning-
um um þig, elsku Gylfi minn. Guð
veiti ykkur styrk og huggun, elsku
Olga, Dagný og Stefán.
Sigrún Kristinsdóttir
(Rúna).