Morgunblaðið - 29.03.2005, Side 30
Risaeðlugrín
© DARGAUD
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI HVAÐ
MÉR LEIÐIST MIKIÐ
EKKI
ÉG
ÉG TRÚI
ÞVÍ ALVEG
AUMINGJA
FUGLINN
HANN Á EFTIR AÐ SJÁ EFTIR
ÞVÍ AÐ HAFA EKKI FARIÐ
SUÐUR YFIR VETURINN...
UM LEIÐ OG ÞAÐ FER AÐ
SNJÓA OG JÖRÐIN FRÝS
VERÐUR MUN ERFIÐARA AÐ
FINNA MAT...
KANNSKI
EKKI SVO
ERFITT
ÁÐUR EN ÉG FER Í
BAÐ...
ÞÁ SET ÉG ALLTAF ÖNDINA
MÍNA FYRST Í VATNIÐ TIL ÞESS AÐ HAFA
FÉLAGSKAP?
NEI, TIL ÞESS
AÐ ATHUGA
MEÐ HÁKARLA
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 29. mars, 88. dagur ársins 2005
Víkverji er áhuga-samur um íslenskt
mál og furðar sig
stundum á því hvað
fagheiti af ýmsu tagi
enda oft á viðskeytinu
„maður“. Tökum starf
Víkverja sem dæmi,
blaðamaður. Það er af-
skaplega ófrumlegt og
dauft orð. Hvers vegna
notum við ekki orðið
„bleðill“ í staðinn?
Auðmótað orð og
gagnsætt. Víkverji er
bleðill á Morgun-
blaðinu. Hljómar ekki
illa. Fréttamaður gæti
þá verið „fréttill“, útvarpsmaður „út-
verpill“ eða „útvarpari“ og sjón-
varpsmaður „sjónverpill“ ellegar
„sjónvarpari“ o.s.frv.
Hvernig myndi þetta virka í list-
um? Við eigum gott orð yfir mann
sem leggur stund á leiklist, leikari.
En svo eru það tónlistarmaður og
myndlistarmaður. Hvers vegna ekki
„tónari“ og „myndari“? Sigrún Eð-
valdsdóttir er afburða tónari og Ólaf-
ur Elíasson er í hópi kunnustu mynd-
ara í heiminum í dag. Hér er Víkverji
ekki alveg viss. Tónari er að vísu fínt
orð en myndari er talsvert síðra.
Kannski „myndlistari“?
x x x
Íþróttir eru ofurseldarþessum „mann-
gangi“. Hvers vegna
tökum við ekki upp
orðið „spyrnir“ í stað-
inn fyrir knatt-
spyrnumaður? Sbr.
snyrtir, sem Heiðar
Jónsson fær lof fyrir að
hafa tekið upp á sínum
tíma. „Snyrtimaður“
eða „snyrtimenni“
hefði líkast til verið val-
kosturinn. Handknatt-
leiksmaður yrði þá
„hendir“. Ólafur Stef-
ánsson er einn fremsti
hendir í heiminum í dag. Hljómar vel.
Svo rammt kveður að þessu í knatt-
spyrnunni að iðulega er talað um
skotmenn – Eiður Smári er frábær
skotmaður – þegar við blasir að nota
þjálla og kraftmeira orð, „skytta“.
Skyttan hefur blessunarlega rutt sér
til rúms í handknattleik. Þar hefur
skrefið þó ekki verið stigið til fulls.
Menn sem leika í horninu eru þannig
kallaðir hornamenn, þegar orðið
„hyrna“ væri mun betra. Guðjón Val-
ur er frábær hyrna. Línumaður yrði
þá „líningur“ og varnarmaður „vern-
ingur“ eða bara „vörður“. Markvörð-
ur er gott orð og gilt.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hlíðaborg | Marga dreymir um að vinna útivinnu í lífinu, sérstaklega þegar
viðrar eins og nú um páskana. Ekki er þó öll útivinna eins ákjósanleg og sú
sem leikskólakrakkar stunda, en þar geta menn verið gröfukarlar og bíl-
stjórar, lögreglumenn og byggingarverkamenn alveg þangað til veðrið verð-
ur leiðinlegt, en þá breytast hlutverkin ört og vinnan færist inn og á svið lista
og mennta.
Morgunblaðið/Sverrir
Besta útivinnan
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir
svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yð-
ur í sig. (Matt. 7, 6.)