Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 31
DAGBÓK
YOGA •YOGA • YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Nýtt í yogastöðinni Heilsubót - KRAFT YOGA
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur
NÝTT! Asthanga Yoga
Fíknin og fjölskyldan
Hjónin Jane Nakken Ed.D. og Craig Nakken M.S.W.
verða með tveggja daga námskeið á Grand Hóteli
í Reykjavík dagana 1. og 2. apríl nk. kl. 9-16 báða dagana.
Craig Nakken er höfundur bókarinnar The Addictive
Personality - Understanding the Addictive Process and
Compulsive Behavior sem nýlega kom út á íslensku undir
nafninu Fíknir.
Námskeiðið fjallar um hvernig fíkn hefur áhrif á samband við
maka og börn. Farið er yfir þroskaferlið og fíkniferlið. Einnig
eru skoðaðar nýjar leiðir til að hjálpa konum og hvernig and-
legar langanir kvenna verða helstu þættir í bata þeirra.
Námskeiðið kostar 24.000 krónur
og bókin Fíknir er innifalin í verðinu.
Skráning á námskeiðið og upplýsingar
eru í síma 553 8800 og stefanjo@xnet.is.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Tilræði við hagsmuni
sumarhúsaeigenda
við Þingvallavatn
EF tillaga sú sem nú liggur fyrir
Alþingi, um að stíflan við útfallið úr
Þingvallavatni verði brotin niður,
verður samþykkt, eykst mý mjög
við vatnið. Við Þingvallavatn hafa
verið byggð mjög mörg sumarhús
eftir að stíflan kom og mýið hvarf.
Ef mýið hefði verið áfram við vatn-
ið hefðu ekki verið byggð svona
mörg sumarhús þar. Komi mýið á
ný er það vegna aðgerða hins op-
inbera og myndi það rýra verðgildi
sumarhúsa við vatnið svo næmi alls
þúsund milljónum króna. Það segir
sig sjálft að þá myndi hið opinbera
verða að greiða eigendum þeirra
skaðabætur sem því næmi, og einn-
ig yrði þjóðarbúið að taka á sig
þann skell að Steingrímsstöð yrði
lögð niður. En hún leggur sig á ná-
lægt fjögur þúsund milljónum
króna. Af öllu þessu sést að hann
yrði þjóðarbúinu dýr hver viðbótar
urriði sem út úr þessu brölti feng-
ist.
Sumarhúsaeigandi
við Þingvallavatn.
Dollarinn hríðfellur
en bíóverð stendur í stað
ÉG tek ofan fyrir bílaumboðunum
sem hafa ákveðið að lækka verð á
nýjum bílum vegna hagstæðs
gengis sem hefur verið und-
anfarið. Dollarinn hefur fallið mik-
ið og evran líka og því ekkert til
fyrirstöðu að gengisbreytingin
skili sér í betra verði til bílaeig-
enda.
Hins vegar er það mér óljóst af
hverju bíóhús landsins hafa ekki
ákveðið að taka bílaumboðin til
fyrirmyndar. Þegar miðaverð í bíó
hækkaði úr 650 kr. í 800 kr. fyrir
nokkrum árum (sem er töluverð
hækkun í einu stökki) var gefin sú
skýring að dollarinn væri svo hár
og þess vegna svo dýrt að kaupa
inn allar bandarísku myndirnar.
Nú finnst mér hins vegar kominn
tími á að miðaverð lækki aftur,
allavega niður í 650 kr., þar sem
dollarinn er orðinn lægri en hann
var fyrir síðustu hækkun, þ.e.
þegar kostaði í bíó 650 kr. Þá var
dollarinn í kringum 70 kr. en er
nú undir 60 kr.
Kvikmyndaáhugamenn, sem og
aðrir sem finnst gaman að njóta
kvikmynda, myndu stökkva hæð
sína af gleði ef bíóhúsin myndu
lækka verðið, sem er töluvert hátt
og er að mínu mati á mörkum
þess að vera okur.
R.F.M.
Morgunblaðið/Golli
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 29. mars, erfimmtug Sjöfn Sigbjörnsdóttir
sjúkraliði, Fífurima 18, Reykjavík.
Hún og eiginmaður hennar, Ólafur
Steinþórson, eru á Kýpur á afmæl-
isdaginn.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6 5.
Bg5 0–0 6. e3 Rbd7 7. Hc1 c6 8. cxd5
exd5 9. Bd3 He8 10. 0–0 Rf8 11. Re5
R6d7 12. Bf4 Rxe5 13. Bxe5 Bd6 14. Bg3
He6 15. Re2 Hh6 16. Dc2 Bxg3 17. Rxg3
Dh4 18. h3 g6 19. Hfd1 Re6 20. Kf1 Bd7
21. Re2 He8 22. a3 Hh5 23. Rg1 Df6 24.
Rf3
Staðan kom upp í einstaklingskeppni
Norðurlandamótsins í skólaskák sem
lauk fyrir skömmu í Noregi. Jakob Vang
Glung (2.322) hafði svart gegn Ágústi
Braga Björnssyni (1.790). 24. … Hxh3!
25. gxh3? 25. Re5 hefði veitt meiri mót-
spyrnu. 25. … Dxf3 26. Kg1 Rg5 27.
De2 Dxh3 og hvítur gafst upp enda fátt
til varnar. Jakob þess er danskur og
lenti í þriðja sæti á eftir finnskum skák-
manni sem vann og Guðmundi Kjart-
anssyni. Ágúst Bragi lenti í 5.–8. sæti.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Gigtarfélag Íslands (G.Í.) stendur fyrirsex kvölda sjálfshjálparnámskeiðifyrir fólk með gigt sem hefst í dag,þriðjudaginn 29. mars. Námskeiðið
er ætlað fólki með hvers konar gigtarsjúkdóma
og aðstandendum þess. Þriggja kvölda nám-
skeið fyrir fólk með vefjagigt hefst miðviku-
daginn 30. mars. G.Í. var stofnað 9. október
1976 og í félaginu eru 5.200 félagar. Tilgangur
félagsins er að berjast gegn gigtarsjúkdómum
með því m.a. að stuðla að almennri umræðu
um gigtarsjúkdóma og áhrif þeirra á ein-
staklinga og samfélag og efla forvarnir.
Heimasíða G.Í. er www.gigt.is, en þar er að
finna svör við ýmsum spurningum auk fróð-
leiks um félagið og starfsemina. Svala Björg-
vinsdóttir, verkefnisstjóri hjá G.Í., segir að
boðið hafi verið upp á sjálfshjálparnámskeið
hjá Gigtarfélaginu í meira en 10 ár og þau hafi
ætíð verið vel sótt. „Við bjóðum upp á tvenns
konar námskeið. Annars vegar grunnnámskeið
þar sem gengið er út frá sérstökum gigtar-
sjúkdómum og hins vegar sjálfshjálpar-
námskeiðin sem ætluð eru fólki sem er með
alls kyns gigtarsjúkdóma.“
Út á hvað ganga sjálfshjálparnámskeiðin?
„Á námskeiðinu verður farið í þætti sem
tengjast daglegu lífi með gigtarsjúkdóma og
hvað hægt er að gera til að bæta líðan sína.
Námskeiðið byggist í raun á því að hjálpa fólki
til þess að hjálpa sér sjálft, setja sér markmið
og vinna úr þeim. Oft á tíðum hættir fólki til
þess að setja sér of háleit markmið. Betra er
að byrja rólega og setja sér raunhæf skamm-
tímamarkmið miðað við aðstæður og getu
hverju sinni. Kenndar eru ýmsar leiðir í
verkjastjórnun t.d. slökun. Einnig er farið í
það hvernig skoða má neikvæðar hugsanir og
breyta þeim í jákvæðar því hugurinn hefur
mikið að segja í þessum efnum. Fjallað er um
uppbyggingu þjálfunar, samskipti við lækna,
depurð, gigtarlyf og fleira.“
Sækir fólk fræðslu til Gigtarfélagsins?
„Starfsemi félagsins miðast að miklu leyti
við fræðslu, ráðgjöf auk endurhæfingar. Gigt-
arlínan er einn þáttur í starfsemi félagsins þar
sem fagfólk veitir ráðgjöf og upplýsingar í
gegnum síma. Boðið er upp á hópþjálfun bæði
í sal og í vatni. Haldnir eru fræðslufundir og
starfræktir margir áhugahópar um mismun-
andi sjúkdóma, t.d. áhugahópur ungs fólks
með gigt og hópur foreldra barna með gigt.
Það skiptir miklu máli að félag sem þetta sé til
staðar og veiti stuðning og fræðslu. Starfsemi
félagsins er í miklum vexti og sífellt er unnið
að því að ná til fólks. Fimmti hver Íslendingur
þjáist af gigt og því mikilvægt að fólk viti af
hinni fjölbreyttu þjónustu Gigtarfélagsins.“
Námskeið | Gigtarfélag Íslands stendur fyrir sjálfshjálparnámskeiði
Svala Björgvins-
dóttir er fædd árið
1952 í Reykjavík. Hún
útskrifaðist úr Fjöl-
brautaskóla Suður-
nesja 1978. Svala er fé-
lagsráðgjafi að mennt
og starfaði hjá hjá
Gigtarfélagi Svíþjóðar
og á gigtardeild Karól-
ínska sjúkrahússins í
Stokkhólmi frá árinu
1993 til ársins 1999
þegar hún hóf störf hjá Gigtarfélagi Íslands.
Maki Svölu er Baldur Kristjánsson og eiga þau
þrjú börn.
Vitneskja um Gigtarfélagið mikilvæg
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Postulínsmálning
kl. 13, vinnustofa og jóga kl. 9, línu-
dans kl. 11, baðþjónusta fyrir hádegi
alla daga.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, vefnaður,
boccia, fótaaðgerð.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð sunnudaginn 3.
apríl. Kaffiveitingar, allir velkomnir.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
11 samverustund, kl. 11.15–12.15 mat-
ur, 14–16 félagsvist, 14.30–15.30
kaffi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar, m.a. perlu-
saumur án leiðsagnar, og gler-
skurður, kl. 10.30 létt ganga um ná-
grennið, frá hádegi spilasalur opinn,
vist, brids, skák. Fimmtudaginn 31.
mars kl. 13.15 kynslóðir saman í
Breiðholti, félagsvist í samstarfi við
Seljaskóla, allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns-
málun, glerskurður, hárgreiðsla, kl.
10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 há-
degismatur, kl. 12.15 Bónus, kl. 13
myndlist, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 kortagerð o.fl. í um-
sjón Sigrúnar, boccia kl. 9.30–10.30,
helgistund kl. 13.30 í umsjón séra
Ólafs Jóhannssonar. Böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Lista-
smiðja 9–16: Handverk og út-
skurður. Bónus kl. 12.40. Bókabíll kl.
14.15. Hárgreiðslustofa 568 3139.
Fótaaðgerðarstofa 897 9801. Mýr-
arljós í Þjóðleikhúsinu 1. apríl –
Stóra sviðið. Örfáir miðar eftir.
Uppl. í síma 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Aðalfundur
Korpúlfa, samtaka eldri borgara í
Grafarvogi verður haldinn í Mið-
garði á morgun, miðvikudag, kl. 10.
Gestur fundarins verður Vilhjálmur
Vilhjálmsson borgarfulltrúi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.15–16 postulíns-
málun, kl. 10.15–11.45 enska, kl.
11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16
bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl.
13–14.30 leshringur, kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 8.45, handmennt og hárgreiðsla
kl. 9, morgunstund og fótaaðgerðir
kl. 9.30, leikfimi kl. 10, félagsvist kl.
14.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10, Bónus kl. 12, Bóka-
bíllinn kl. 16.45.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur
kl. 9.
Biblíuskólinn við Holtaveg | Bibl-
íuskólinn við Holtaveg býður til
fræðslukvölds fyrir almenning um
Jóhannesarguðspjall, fimmtudag-
inn 31. mars kl. 20 í húsi KFUM og
K við Holtaveg. Ragnar Snær Karls-
son mun fjalla um guðspjallið en
markmiðið er að auðvelda fólki
lestur þess. Aðgangur er ókeypis
og öllum opinn.
Digraneskirkja | 10–12 ára starf
KFUM&K kl. 17–18.15, á neðri hæð.
Bænastund kl. 17.30. Alfa námskeið
kl. 19. www.digraneskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir
fullorðna er í Fella– og Hólakirkju á
þriðjudögum kl. 13–16. Spilað, upp-
lestur, kaffi, helgistund í lokin.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir
eldri borgara, kl. 13.30–16. Helgi-
stund, handavinna, spil og spjall.
Kaffiveitingar og alltaf eitthvað
gott með kaffinu. Kirkjukrakkar fyr-
ir 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–
18.30. Æskulýðsfélag Grafarvogs-
kirkju kl. 19.30, fyrir 8. bekk.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Starf með öldr-
uðum alla þriðjudaga og föstudaga
kl. 11–15. Súpa, leikfimi, kaffi og
spjall.
Hjallakirkja | Bæna– og kyrrð-
arstundir eru hvern þriðjudag í
Hjallakirkju kl. 18.