Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 www.1928.is Gínur Töskur Tilboð 20% afsláttur Gullfallegar ódýrar gjafavörur Ilmjurtir Ilmpúðar Ný stjórnarskráEvrópusam-bandsins hefur gengið í gegnum miklar hremmingar undanfarna daga, með höfnun Frakka og Hollendinga og frestun á þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi, og segja sumir að í raun sé stjórnarskráin dautt plagg þó að staðfest- ingarferlið hafi haldið áfram í öðrum ríkjum. Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að hann teldi stjórnar- skrána í raun dauðadæmda í nú- verandi mynd, og langan tíma muni taka að átta sig á því hvert framhaldið verður. Það hafi verið mikil bjartsýni að leggja svo flókna stjórnarskrá fyrir um leið og verið er að stækka ESB svo mikið, og ekki verra fyrir sambandið að taka sér lengri tíma til þess að fara yfir málin. „Að mínu mati dregur þetta úr því að menn haldi áfram að vinna að því, að mínu mati óraunhæfa verkefni, að Evrópa verði einhvers konar sambandsríki. Ég tel að þessi niðurstaða sýni að það er ekki stuðningur við það meðal þessara þjóða,“ segir Halldór. „Þess vegna tel ég að það Evrópusamband sem verður til í framhaldi af þessu sé aðgengilegra fyrir lönd eins og Norðurlöndin með sínar lýðræðis- hefðir og sína áherslu á að þjóðrík- in starfi áfram með eðlilegum hætti en deili fullveldi sínu á ákveðnum sviðum.“ Aukið samband við ESB á bið Davíð Oddsson utanríkisráð- herra segir það ekki hafa nein bein áhrif hér á landi þó stjórnarskrá ESB verði ekki að veruleika. „Ég held að það hafi enginn í raunveru- legri alvöru talað um inngöngu Ís- lands í ESB, það dæmi gengur alls ekki upp af mörgum ástæðum. Ekki bara sjávarútveginum, þó það sé augljóst út frá því, heldur jafnframt vegna evrunar og bind- ingar við þá þætti. Við sjáum hvert vandamálið er, við erum að hækka vexti af því að hér er svo mikill uppgangur, en þeir eru að kýla vexti niður í botn af því þeir eru í svo mikilli lægð.“ Hann segir ljóst að á meðan for- svarsmenn ESB taki ekki á sínum innri málum sé öll umræða um vax- andi samband annarra þjóða við ESB í raun komin á bið. Það megi m.a. sjá á afstöðu Norðmanna, en þar hefur Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra sagt að útilokað sé að spurningin um aðild Noregs að ESB komist á dagskrá næstu fjögur árin. Davíð segir stjórnar- skrána úr leik, eins og ljóst hafi verið þegar Frakkland hafnaði henni, og enn betur nú þegar Hol- land hefur einnig hafnað henni, og Bretland frestað atkvæðagreiðsl- unni. Baldur Þórhallsson stjórnmála- fræðingur segir að fljótt á litið hafi sú staða sem stjórnarskráin er komin í ekki mikil áhrif á hugsan- lega aðild Íslands að ESB. Spurn- ingin sé hvað gerist í framhaldinu, hvort þetta hægi á stækkun og dýpkun sambandsins, t.d. því að ríkin taki upp nánari samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála. Ein möguleg áhrif eru þó þau að draga úr áhuga Norðmanna á því að ganga í ESB, sem minnki þá um leið pressu á íslensk stjórnvöld að skoða aðild, þó ekki sé sjálfgefið að Ísland gangi í sambandið þó Norð- menn gerið það. Baldur segir að í stjórnar- skránni sem slíkri hafi ekki verið neinar þær róttæku breytingar sem kallað geti á aukna miðstýr- ingu frá Brussel. Þær breytingar hafi í raun verið þegar komnar með eldra samkomulagi og ESB verði svipað eftir sem áður. „Ég held því að þetta breyti hvorki afstöðu þeirra sem hingað til hafa verið mótfallnir aðild Íslands að ESB né eru henni fylgjandi.“ Yfirlýsingar Evrópusinnaðra stjórnmálamanna undanfarinna daga má túlka á þann hátt að hald- ið verði áfram á sömu braut í stað þess að hlusta á þá sem greiddu at- kvæði gegn stjórnarskránni, að mati Baldurs. Því virðist sem hald- ið verði áfram með Evrópusam- runann, þó finna þurfi aðrar leiðir til þess, og vilji kjósenda í raun hundsaður. Eykur eða dregur úr áhuga? Svo virðist sem staða stjórnar- skrárinnar hafi ekki áhrif á afstöðu þeirra sem annaðhvort eru fylgj- andi aðild Íslands að ESB eða mót- fallnir henni. „Ef eitthvað er þá ætti þetta að auka áhugann, held ég,“ segir Andrés Pétursson, for- maður Evrópusamtakanna, félags áhugamanna um Evrópusam- vinnu. Hann segir höfnun á stjórn- arskránni í raun gera ESB meira aðlaðandi fyrir Íslendinga, sam- bandið verði sveigjanlegra og minna miðstýrt og möguleikar í að- ildarviðræðum meiri. Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæð- issinna í Evrópumálum, er á önd- verðum meiði, og segist ekki í vafa um að neikvæð umræða um stjórn- arskrána hafi þau áhrif að áhugi á aðild hér á landi minnki. Hann bendir á stöðuna í Noregi þar sem stórfelld umskipti hafa orðið í af- stöðu kjósenda til ESB. Fréttaskýring|ESB er vandi á höndum Takmörkuð áhrif á Íslandi Ný stjórnarskrá Evrópusambandsins dauðadæmd í núverandi mynd Franskt nei var upphafið að endinum. Varð rangnefni stjórnar- skrá ESB að falli?  „Einn af þeim þáttum sem ollu því að almenningur snerist gegn nýrri stjórnarskrá ESB er ein- mitt nafnið „stjórnarskrársátt- máli“,“ segir Baldur Þórhallsson. „Það hljómar þannig að það sé verið að koma á ákveðinni stjórnarskrá í Evrópu með þeim róttæku breytingum sem það hefur í för með sér.“ Það sé þó ekki raunin og fyrir vikið hafi málið fengið á sig neikvæðan blæ hjá þeim sem ekki vilja meiri völd til Brussel. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is „SUMARIÐ er oft sá tími sem ungt fólk byrjar að nota tóbak, áfengi eða vímuefni,“ sagði Hildur Haf- stein, fulltrúi Lýðheilsustöðvar í SAMAN-hópnum, á blaðamanna- fundi hópsins á dögunum. SAMAN-hópurinn hefur starfað í nokkur ár en í honum sitja fulltrúar frá 22 stofnunum, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum. Hild- ur lagði áherslu á að viðhalda þeim góða árangri sem hefur náðst í for- varnarstarfi. Nú þurfi að leggja áherslu á aldurshópinn frá 16-18 ára enda breytist margt hjá börn- unum þegar þau fara í framhalds- skóla. „SAMAN-hópurinn vill minna foreldra unglinga á að á sumrin gefst mikill tími til samveru- stunda,“ sagði Hildur og benti á að á sumrin hefðu unglingar meiri frí- tíma, meira fé milli handanna og oft breyttan vinahóp þegar vinnan tek- ur við af skólanum. Samverustundir mikilvægastar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur fundinn og afhenti m.a. viðurkenningar SAM- AN-hópsins fólki sem hefur unnið ötullega að rannsóknum á þessu sviði. Ólafur benti á mikilvægi þess að halda unglingum frá því að reykja eða smakka áfengi til átján ára aldurs. Rannsóknir sýndu að líkurnar á eiturlyfjaneyslu minnk- uðu umtalsvert þeim mun síðar sem reykingar eða áfengisdrykkja hæf- ust. „Tölurnar eru svo sláandi að það er ekki hægt að efast um sam- hengið,“ sagði Ólafur og bætti við: „Mér varð á að segja fyrir nokkrum árum að kannski ættum við að hvetja unglingana til að bíða með að byrja að reykja og drekka þar til þeir fá bílprófið. En mér var bent á að það væri kannski ekki skyn- samlegt samhengi,“ sagði Ólafur og uppskar hlátur viðstaddra. Ólafur sagði samverustundir barna og foreldra mikils virði en að ekki skipti öllu máli hvað gert væri. „Ég held við höfum öll gert þessi mistök að leggja of mikla áherslu á að gera eitthvað sem raunverulega skiptir máli í samverustundum, helst lesa Sturlungu eða eitthvað slíkt. En rannsóknirnar sýna að það skiptir litlu máli hvað við gerum með börnunum. Hvort við spilum boltaleik, eða horfum bara á sjón- varpið. Samverustundirnar skipta mestu máli,“ sagði Ólafur og ítrek- aði að forvarnarstarf hópa eins og SAMAN-hópsins mætti mæla í millj- örðum enda væri kostnaðurinn í heilsugæslunni, réttarkerfinu og fangelsunum vegna vímuefnavand- ans verulegur svo ekki sé talað um fórnarkostnaðinn. Fiktið byrjar oft á sumrin Morgunblaðið/Eyþór Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Sigrúnu Aðalbjarnadóttur viðurkenningu fyrir góð rannsóknarstörf. Einnig fengu viðurkenningu Inga Dóra Sigfúsdóttir, Þórólfur Þórlindsson og Þóroddur Bjarnason. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is BROTIST var inn í fimm bíla á Ak- ureyri í fyrrinótt. Að sögn lögreglu var a.m.k. í einu tilviki stolnum bíl ekið innanbæjar og skilið við hann. Þjófarnir höfðu í einhverjum tilvik- um á brott með sér lausamuni, geisladiska og annað sem fólk geymdi í bílum sínum. Að sögn lögreglu voru dæmi þess að bílar væru ólæstir sem farið var inn í, og vill lögregla brýna fyrir fólki að ganga vel frá bílum sínum. Brotist inn í bíla TIL stendur að slá upp alþjóðlegum búðum við Kárahnjúka síðari hluta júnímánaðar samkvæmt upplýsing- um Elísabetar Jökulsdóttur. Tjald- búðirnar, sem munu standa fram í ágúst/september, eða svo lengi sem veður leyfir, munu verða vettvangur fyrir fólk að koma á framfæri mót- mælum sínum við virkjunarfram- kvæmdunum. Boðið verður upp á fjölbreytta menningardagskrá, fræðslufundi og gönguferðir með leiðsögumönnum. Að búðunum standa engin samtök, heldur fjöldi einstaklinga úr öllum áttum sem láta sig varða framtíð og örlög náttúru- gersema okkar. Öllum er velkomið að taka þátt. Alþjóðlegar búðir við Kárahnjúka ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.