Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 11

Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 11 FRÉTTIR FRÁFARANDI skólastjóri Landa- kotsskóla, séra Hjalti Þorkelsson, sem sagði starfi sínu lausu sl. föstu- dag, hefur staðfest að hann muni ekki taka við starfinu aftur þrátt fyr- ir óskir foreldra við skólann sem lýstu einróma yfir stuðningi við hann á fundi í fyrrakvöld. Skoruðu þeir á skólastjórn að ráða Hjalta á ný sem skólastjóra með fullt og óskorað umboð til meðferðar starfs- mannamála. Gerði ekki ráð fyrir að svona færi Í samtali við Morgunblaðið sagði Hjalti að málið liggi þannig fyrir að hann hafi ákveðið að segja upp á föstudaginn var. „Mér þykir leitt að slíkt moldviðri skyldi þyrlast upp í kringum uppsögnina. Ástæðan var einfaldlega sú að ég tel mér ekki fært að vinna með núverandi stjórn.“ Morgunblaðið hefur greint frá því að í aprílmánuði ákvað Reykjavík- urlistinn að hækka fjárframlög til skólans sem þá bjó orðið við erfiðan fjárhag. Rekstrarforminu var þá breytt þannig að skólinn varð sjálfs- eignarstofnun en kaþólska kirkjan sem áður átti hann og rak, útvegar frítt húsnæði. Í kjölfarið, hinn 25. maí, birti blaðið grein um framtíð og starfið í Landakotsskóla þar sem séra Hjalti sagði mörg verkefni fram undan. „Á þeim tíma gerði ég nú ekki ráð fyrir að svona færi enda var ég vongóður um að málin leystust,“ sagði Hjalti í gær en jafnframt kvað hann það óhjákvæmilegt að ljúka störfum í Landakotsskóla við núver- andi aðstæður. Séra Hjalti hefur starfað nánast óslitið sem kennari við skólann frá árinu 1983 en tók við starfi skóla- stjóra fyrir sjö árum. Spurður um hvort rétt sé að hann hverfi nú til annarra starfa á vegum kirkjunnar segir hann að kaþólskir prestar séu alltaf prestar og að þannig hafi hann starfað sem prestur í Hafnarfirði í tíu ár á sama tíma og hann kenndi á Landakoti. Hann muni þó byrja á að taka sér sumarfrí sem hann eigi inni frá 16. júní. Foreldraráð hittir skólastjórn „Stjórnin lendir í erfiðu máli þeg- ar hún er að hefja sína vinnu þar sem upp kom þessi ágreiningur milli stjórnenda skólans,“ sagði formaður foreldraráðs Landakotsskóla, Þór- unn Erhardsdóttir. Hún sagðist trúa að stjórnin væri öll af vilja gerð til að leysa málið farsællega og að verið væri að vinna að lausnum. Þá sagði Gunnar Örn Ólafsson stjórnarfor- maður í gær að boðað hafi verið til fundar skólastjórnar með foreldra- ráði klukkan eitt í dag en að almenn- ur foreldrafundur verði haldinn á morgun. Einnig sagði Gunnar að séra Hjalta hafi vissulega verið boð- ið að taka við starfinu aftur og þá á þeim forsendum að geta bæði ráðið og rekið fólk en þannig að skóla- stjórn hefði aðgang að öllum samn- ingum. „Ákvörðunin tengist ekki öðrum persónum“ Ágreiningur milli Hjalta og skóla- stjórnar komst fyrst í fjölmiðla vegna uppsagnar Bessíar Jóhanns- dóttur aðstoðarskólastjóra. Gunnar Örn segir uppsögnina eingöngu hafa verið af fjárhagslegum toga og að áður hafi þær hugmyndir komið fram að ná fram nauðsynlegri hag- kvæmni í skólastarfinu með aðgerð- um á borð við þessa. Hjalti sagði um það að sér fyndist hann hafa sagt nóg. „Ákvörðun sem ég tók tengist ekki öðrum persónum. Að öðru leyti hef ég ekki meira að segja en óska skólanum gæfu í fram- tíðinni. Það er nóg af hæfu fólki sem getur tekið við því starfi sem ég sinnti,“ sagði Hjalti Þorkelsson. Ágreiningur er á milli stjórnenda Landakotsskóla og skólastjóri hefur sagt starfi sínu lausu Tekur ekki við stöðu skólastjóra á ný Morgunblaðið/Þorkell Landakotsskóla var nýlega breytt í sjálfseignarstofnun í húsnæði kaþólsku kirkjunnar sem áður rak skólann. Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfar- andi yfirlýsing frá stjórn Landakotsskóla ses: „Vegna umfjöllunar fjölmiðla um málefni Landakotsskóla ses vill stjórn skólans koma eftirfarandi á framfæri. Undanfarin ár hefur alvarlegur fjárhags- og stjórnunarvandi steðjað að Landakots- skóla, m.a. vegna mikils kostnaðar við nýaf- staðnar byggingarframkvæmdir á vegum skólans. Svo miklir hafa erfiðleikarnir verið að um tíma leit út fyrir að hætta þyrfti rekstri skólans. Bæði fyrrverandi og núver- andi stjórn skólans hafa þurft að gera marg- víslegar ráðstafanir í því skyni að bjarga rekstrinum. Við blasir að ef ekki hefði verið tekið á vandanum hefði stefnt í algert óefni fyrir skólann, með tilheyrandi óvissu fyrir á annað hundrað nemendur hans og fjölskyld- ur þeirra. Því miður hefur stjórn skólans og skóla- stjóri ekki verið einhuga um leiðir til lausn- ar á vanda skólans. Meðal annars hefur risið ágreiningur um ábyrgð á starfsmannahaldi en samkvæmt samþykktum Landakotsskóla bera skólastjóri og stjórn sameiginlega ábyrgð á því sviði. Hefur skólastjóri nú sagt starfi sínu lausu vegna þess að stjórnin var ekki reiðubúin að fallast á kröfu hans um óskorað umboð til að ráða kennara og annað starfsfólk. Stjórnin harmar að skólastjóri skuli af þessum sökum hafa valið þann kost að láta af skólastjórastarfinu og taka upp nýtt starf innan kirkjunnar. Eru honum þökkuð vel unnin störf í þágu Landakots- skóla. Stjórnin telur að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til muni skila árangri og að tak- ast muni að tryggja grundvöll starfseminnar til framtíðar. Full samstaða ríkir milli stjórnar og kennararáðs Landakotsskóla um að halda áfram því góða og nána fræðslu- starfi sem unnið hefur verið um áratuga skeið innan veggja skólans. Undirbúningur vegna næsta skólaárs er í fullum gangi og mun á næstunni verða auglýst eftir nýjum skólastjóra. Það er von stjórnarinnar að hún muni áfram geta átt gott samstarf við foreldra, kennara og annað starfsfólk skólans með hagsmuni nemenda að leiðarljósi. F.h. stjórnar Landakotsskóla ses. Gunnar Örn Ólafsson formaður.“ Yfirlýsing frá stjórn Landakotsskóla Full samstaða um áframhald skólastarfs VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð hefur sótt um og fengið út- hlutað nýjum listabókstaf, þ.e. bók- stafnum V í stað U, sem hreyfingin hefur haft til þessa. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hreyfingin efndi til í höfuðstöðvum sínum ný- lega. Í máli Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kom fram að tals- vert hafi borið á misskilningi meðal fólks hvaða bókstaf flokkurinn hefði, en flokkurinn hefur notað listabók- stafinn U í tvennum Alþingiskosn- ingum og einum sveitarstjórn- arkosningum. Segir Steingrímur misskilninginn sérstaklega hafa ver- ið áberandi í síðustu Alþingiskosn- ingum þar sem talsvert hafi borið á því að utankjörstaðaatkvæði hefðu verið merkt með V. Ruglingur á milli V og U „Voru slík utankjörstaðaatkvæði úrskurðuð flokknum í sumum kjör- dæmum en öðrum ekki,“ segir Stein- grímur og bendir á að sami rugl- ingur hafi einnig verið uppi á teningnum í sveitarstjórnarkosning- unum 2002. Segir hann þennan rugl- ing milli V og U vafalítið til kominn vegna þess að nafn flokksins byrjar á V, auk þess sem merki flokksins er stílfært V. Þegar Vinstrihreyfingin – grænt framboð var stofnuð árið 1999 var reglum samkvæmt ekki hægt að fá listabókstafinn V þar sem of stutt var þá um liðið síðan bókstafurinn hafði síðast verið notaður í kosn- ingum, en Kvennalistinn bauð fram undir með þeim bókstaf í Alþing- iskosningum árið 1995. Að sögn Steingríms hefur það verið regla að úthluta ekki öðrum aðila listabókstaf fyrr en að minnsta kosti und- angegnum einum kosningum þar sem hann hefur ekki verið notaður. 1. ágúst nk. tekur Svandís Svav- arsdóttir við framkvæmdastjóra- starfinu af Kristínu Halldórsdóttur. Greint var frá því á fréttamanna- fundinum að næsti landsfundur flokksins verði haldinn á Grand Hót- eli í Reykjavík helgina 21.–23. októ- ber. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur fengið úthlutað listabókstafnum V í stað U Næsti landsfundur verður haldinn í október Morgunblaðið/Sverrir Steingrímur J. Sigfússon, Kristín Halldórsdóttir og Svandís Svavarsdóttir (lengst t.v.) kampakát með nýja listabókstaf flokksins. EFTIRFARANDI erindi frá lögmanni kaþ- ólsku kirkjunnar hefur borist Morgunblaðinu: „Bréf þetta er ritað fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar sem frá árinu 1896 hefur rekið skóla að Landakoti þar til í maí sl. að fyrir at- beina kirkjunnar var stofnuð sjálfseignar- stofnun til að halda skólastarfinu áfram. Vegna opinberrar umfjöllunar um starfsemi skólans telur kirkjan nauðsynlegt að gera grein fyrir ástæðum þess að rekstrarfyrirkomulagi skól- ans var breytt og skipan stjórnar skólans. Um nokkurra ára skeið hefur skólinn glímt við viðvarandi rekstrarhalla og nema skuldir kirkjunnar vegna Landakotsskóla yfir 100 milljónum króna. Vegna fjárhagsvandans ákvað Kaþólska kirkjan að hætta rekstri skól- ans og gerði kennurum og öðrum velunnurum skólans grein fyrir þeirri ákvörðun. Í kjölfarið fann kirkjan fyrir miklum og góðum hug for- eldra, kennara og stjórnvalda til að leita leiða til að halda skólastarfi áfram að Landakoti. Forsenda þess var að endurskoða fjárhags- legan rekstrargrundvöll starfseminnar. Viðræður við borgaryfirvöld leiddu til hækkunar á fjárframlögum til skólans. Kaþ- ólska kirkjan var tilbúin að styðja við áfram- haldandi skólastarf með því að veita endur- gjaldslaus afnot af skólabyggingum að Landakoti og standa straum af viðhaldi og rekstrarkostnaði mannvirkjana. Á þessum grundvelli var ákveðið að stofna sjálfstætt fé- lag um reksturinn, sjálfseignarstofnunina Landakotsskóli ses. Það félag tæki síðan ákvörðun um og bæri ábyrgð á áframhaldandi skólahaldi. Kaþólska kirkjan sá um að stofna félagið og lagði til stofnfjárframlag lögum samkvæmt. Ennfremur skipaði kirkjan fyrstu stjórn fé- lagsins og valdi til þess grandvart fólk sem komið hafði að málefnum skólans um árabil. Ennfremur var ákveðið að framkvæmdastjór- ar félagsins yrðu tveir. Annars vegar Hjalti Þorkelsson sem skólastjóri og hins vegar sér- stakur fjármálastjóri til að treysta öruggan rekstrargrundvöll skólans. Ber kirkjan fullt traust til stjórnar skólans. Kaþólska kirkjan vonar að þessar upplýs- ingar varpi ljósi á málið og séu til þess fallnar að allir þeir sem bera hagsmuni og velferð skólans fyrir brjósti snúi bökum saman og varði veg hans til framtíðar. Virðingarfyllst, Friðjón Örn Friðjónsson, hrl. og lögmaður Kaþólsku kirkjunnar.“ Erindi frá lögmanni kaþólsku kirkjunnar Aðdragandi að stofnun Landakotsskóla ses.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.