Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MIKILVÆGT er að leita leiða við að einfalda skrifræði í tengslum við hjálparstarf er- lendra herja í ríkjum sem orðið hafa illa úti af völdum náttúru- hamfara. Tillaga þessa efnis var borin upp á ráðstefnu um afleið- ingar og uppbyggingu á flóða- svæðunum við Indlandshaf sem fram fór fyrir skömmu á Phuk- et í S-Taílandi. Davíð Á. Gunnarsson, for- maður framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar, sem sat ráðstefnuna, segir að m.a. hafi komið fram að 10 dagar liðu frá því ákvörðun var tekin um að senda banda- rískt flugmóðurskip til Aceh á N-Súmötru þar til áhöfn gat hafið björgunarstarf af fullum krafti. Mikill hluti þess tíma hefði farið í skrif- ræði og annars konar undirbúning. Hann segir að á ráðstefnunni hafi verið rætt um að einfalda ferlið frá því ríki bjóða fram aðstoð herja þar til aðstoðin er þegin og björgunarstarf getur haf- ist. Um 20 þjóðir sendu herlið á flóðasvæðin. Í ræðu sem Davíð hélt á Alþjóðaheilbrigð- isþinginu í Genf spurði hann hvernig stæði á að 300.000 manns hefðu látið lífið í hamförunum þegar fyrir hendi væri góð þekking á björgunar- og forvarnaraðgerðum. Davíð benti á að al- mannavarnakerfi væru almennt hugsuð fyrir hamfarir á minni mælikvarða en áttu sér stað við Indlandshaf og engin leið hefði verið að senda upplýsingar um jarðskjálftana með núverandi fjarskiptakerfum til svæða sem flóðbylgjurnar skullu á. Hann sagði brýna þörf á að koma upp öflugu alþjóðlegu viðvörunar- kerfi fyrir náttúruhamförum. Ástandinu varla með orðum lýst Davíð sagði í samtali við Morg- unblaðið að það hefði ekki verið líkt neinu öðru að heimsækja flóðasvæðin á Phuket. Efnahags- ástandið væri í rúst og engir ferðamenn væru þar lengur. „Menn gleyma oft að í kjölfar stórra hörmunga, hvort sem það eru sjúkdómar eða slys, þá þorir enginn að ferðast þar um lengi á eftir.“ Davíð sagði að á Phuket ætti enn eftir að bera kennsl á um 2.000 lík. Hann hefði heimsótt stöð þar sem unnið væri við kennslarannsóknir m.a. undir stjórn nokkurra Norðurlandaþjóða. Mörg þessara líka hefðu legið lengi á ströndinni þar til þeim var komið fyrir í frystigámum. Um 30 lík væru tekin úr frysti á hverjum degi og sérfræð- ingar reyndu að bera kennsl á þau. Hann sagði að átakanlegt hefði verið að skoða aðstæður og þeim yrði varla með orðum lýst. Sat ráðstefnu um flóðin við Indlandshaf Davíð Á. Gunnarsson Auðvelda þarf starf erlendra herja Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is SAMKOMULAG sem fulltrúar ríkis og borgar undirrituðu fyrir skömmu felur m.a. í sér að Heilsuverndarstöð- in í Reykjavík verður seld á almenn- um markaði og borgin eignast Vörðuskóla. Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri segist mjög ánægð með að samkomulagið sé nú í höfn eftir 15 ára aðdraganda. Samkvæmt upplýsingum aðstoð- armanns borgarstjóra felur sam- komulagið í sér að borgin yfirtekur eignarhald á Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskólabörn. Borgin tekur yfir minni húseignir við Vesturhlíðarskóla, þar sem einnig er rekin eins þjónusta, og Brúarskóla sem er sérskóli fyrir grunnskólabörn með félagslegar og geðrænar rask- anir. Það húsnæði sérskóla sem ekki er nauðsynlegt að nýta fyrir starfsemi slíkra skóla verður selt og andvirðið nýtt til að borga uppbyggingu á nýrri sérdeildarálmu fyrir fatlaða við Fjöl- brautaskólann í Ármúla. Húsnæðið sem hér um ræðir er aðalbygging sem áður hýsti Heyrnleysingjaskól- ann (Vesturhlíðarskóli) en kennsla og þjónusta við heyrnarlaus og -skert grunnskólabörn hefur verið sameinuð á einum stað í nýrri við- byggingu við Hlíðaskóla. Kaupir hlut ríkis í Vörðuskóla Samkvæmt samkomulaginu kaup- ir borgin eignarhluta ríkisins í Vörðuskóla sem Iðnskólinn í Reykja- vík nýtir nú og verður húsnæðið af- hent þegar Iðnskólinn getur flutt í nýtt húsnæði sem borgin greiðir 40% í. Ríkið og borgin munu selja hús- næði Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík á almennum markaði og verður andvirðinu skipt á milli eig- enda í samræmi við eignarhlutföll. „Þetta hefur verið 15 ára stríð milli ríkis og borgar bæði um sérskóla- málin og Heilsuverndarstöðina. Það er því mjög ánægjulegt að nú skuli vera búið að höggva á þennan hnút,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir. „Fyrir borgina merkir samkomulag- ið að við fáum Vörðuskólann sem við getum nýtt undir Austurbæjarskól- ann sem leysir mesta vandann á næstunni. Það verður byggt við Iðn- skólann sem verður áfram í Reykja- vík á Skólavörðuholtinu. Síðan eru það sérskólamálin þar sem ríki og borg skipta á milli sín eignum, þ.e. Öskjuhlíðarskóla, Vesturhlíðarskóla, Safamýrarskóla og fleiri eignum.“ Steinunn Valdís segir samkomu- lagið endurspegla ákveðinn „kapal“ sem eigi að ganga upp á þann veg að borgin þurfi ekki að hafa af honum mikil útgjöld. „Það sem menn eru að leggja upp með er að aðilar komi út á sléttu. En auðvitað er alltaf einhver kostnaður sem fylgir þessu, s.s. upp- bygging Iðnskólans.“ Undir samkomulagið skrifuðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins. Undirritað hefur verið samkomulag um húsnæðismál ríkisins og Reykjavíkurborgar Heilsuverndarstöðin seld á markaði Morgunblaðið/Golli Ríkið og borgin munu selja húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Bar- ónsstíg á almennum markaði og verður andvirðinu skipt á milli eigenda í samræmi við eignarhlutföll. Í NÝRRI kjarakönnun Félags viðskipta- og hagfræðinga fyrir árið 2005 kemur fram að frá árinu 2003 hafa kvenkyns svarendur bætt við sig um tveimur vinnu- stundum á viku en karlar standa í stað. Jafnframt eykst óútskýrður kynbundinn launamunur. Heildarlaun kvenna hafa hækkað örlít- ið meira en karla, eða um 10,8% á móti 10%, milli mælinga. Karlar fá hins vegar enn 29,6% hærri heildarlaun en konur þótt bilið hafi minnkað um eitt prósentu- stig. Ýmsa þætti þurfi að skoða til að mælingar séu réttar Nanna Ósk Jónsdóttir framkvæmda- stjóri FVH, segir að réttari mælingar á launamun kynjanna fáist ef miðað sé við vinnustundir á viku eða enn fleiri þættir teknir inn. Sé tekið mið af vinnustundum á viku verður launamunur 21,5% en var 17% fyrir tveimur árum. Karlkyns svar- endur vinna nú 46,4 stundir á viku en unnu 46,5 árið 2003. Konurnar bæta hins vegar við sig, úr 41,7 stundum í 43,5 vinnustundir á viku. Þegar tekið er svo mið af ýmsum þátt- um til viðbótar, á borð við menntun, starf, atvinnugrein, aldur, vinnuframlag, mannaforráð og starfsaldur er niðurstað- an sú að óútskýrður kynbundinn launa- munur hjá viðskipta- og hagfræðingum er nú 7,6% en var 6,8% árið 2003. Nanna bendir á að hvor aðferðin sem viðhöfð sé bendi til vaxandi launabils milli karla og kvenna í stéttinni. „Í raun eru konur að vinna meira en launamunur kynjanna að aukast og það er að sjálfsögðu alls ekki gott,“ segir Nanna. Hún bendir á að miðgildi launa, en miðgildi er sú tala sem hefur jafnmargar hærri og lægri tölur sín hvorum megin við sig, gefi besta mynd af launum þar sem nokkrir mjög tekjuháir einstaklingar skekki meðaltal upp á við. Miðgildi heild- arlaunatekna mældist 460 þúsund krón- ur. Laun svarenda hafa hækkað um 5,75% frá 2003 sem er mun minni hækk- un en fyrir tveimur árum þegar launin hækkuðu um 13,9% og fyrir fjórum árum þegar þau hækkuðu um 19% á tveggja ára bili. Þetta segir Nanna að útskýrist af hækkandi hlutfalli ungra, nýútskrif- aðra viðskipta- og hagfræðinga auk þess sem konum fari fjölgandi í stéttinni. Endanlegt úrtak í könnuninni var 2661, svör bárust frá 1072 og svarhlutfall því 40,2%. Í ár voru nokkru fleiri konur með- al svarenda en í mælingunum fyrir tveim- ur árum og hlutfall yngra fólks er tals- vert hærra. Skýringuna má m.a. finna í breytingum sem eru að verða á hópi við- skipta- og hagfræðinga þar sem árlega útskrifast mun fleiri en áður og í þeim hópi eru konur í meirihluta, að sögn Nönnu. „Með samstöðu kvenna næst árangur“ „Af kjarakönnun þessari má ráða að launamunur kynjanna er að aukast á sama tíma og hann ætti í raun að vera að minnka,“ segir Soffía Theódóra Tryggva- dóttir sem er formaður Mágusar, félags viðskiptafræðinema við HÍ. „Mér finnst að konur eigi að vera harðari af sér í launabaráttunni og meta sig að verð- leikum. Ég tel að konur þurfi að sækja meira fram, sérstaklega í stjórnunarstöð- ur og þegar þangað er komið að standa með konum. Þróunin í viðskiptadeild Há- skóla Íslands er að konum fjölgar hlut- fallslega ár frá ári og láta þær til sín taka á sífellt fleiri sviðum.“ Gott dæmi um það er að á síðasta ári var stjórn Mágusar einungis skipuð konum í fyrsta skipti í 60 ára sögu félagsins. „Með samstöðu kvenna næst árangur,“ segir Soffía. Launamunur milli kynjanna er að aukast Ný kjarakönnun Félags viðskipta- og hagfræðinga Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is SJÓMANNADAGSRÁÐ Siglufjarðar heiðraði á sjómannadaginn Gylfa Ægisson fyrir störf hans, lög, texta og málverk í þágu íslenskrar sjómannastéttar. Gylfi sem er fæddur og uppalinn á Siglu- firði var boðaður á sínar æskuslóðir undir því yfirskini að þar ætti hann að spila og syngja fyrir bæjarbúa. Honum var með öllu ókunnugt um að til stóð að heiðra hann og hafði sjómannadagsráð gætt þess vandlega að ekkert um hinn fyrirhugaða heiður spyrð- ist út. Það kom því Gylfa í opna skjöldu þegar 200 gestir á kvöldsamkomu í Siglufjarð- arkirkju risu upp úr sætum sínum og fögnuðu með lófataki þessu framtaki sjómannadags- ráðs. Hér festir María Sveinsdóttir heiðursmerkið á Gylfa Ægisson. Fyrir miðju stendur Sveinn Björnsson, formaður Sjómannadagsráðs Siglufjarðar. Gylfi Ægisson heiðraður FLUTNINGASKIPIÐ Sunny Jane, sem tók við afla frá skipi sem hefur veitt án leyfis og kvóta á Reykjaneshrygg, fékk ekki að landa afla sínum í Hollandi og fékk enga þjónustu í landinu. Samkvæmt reglum Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) fær það hvergi að landa aflanum í aðild- arríkjum nefndarinnar. Landhelgisgæslan hefur undanfarið fylgst með fiskveiðistjórnunarsvæði NEAFC á Reykjaneshrygg en þar hafa m.a. svonefnd sjóræningjaskip, þ.e. skip sem hvorki hafa veiðileyfi né kvóta, verið að veiðum. Þann 27. maí tók áhöfn flugvélar Landhelgisgæsl- unnar, TF-SYN, mynd af flutningaskipinu Sunny Jane taka við fiski frá togaranum Ok- hotino sem skráður er í Dóminíska lýðveld- inu. Okhotino hefur ekki leyfi til að veiða á svæðinu og var atvikið því tilkynnt til stjórnar NEAFC. Þegar Sunny Jane kom til hafnar í Hol- landi var skipinu neitað um að landa að afl- anum og við rannsókn hollenskra yfirvalda kom í ljós að Sunny Jane hafði auk þess tek- ið við afla frá skipunum Orlik, Olchano, Ostor, Oyra og Olchan. Tvö síðastnefndu skipin eru á svörtum lista NEAFC yfir sjó- ræningjaskip. Fær ekki að landa óleyfilegum afla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.