Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 19
Ósló. AFP. AP. | Vegleg hátíðahöld voru víða
í Noregi í gær í tilefni þess að 100 ár eru
liðin frá því að Noregur sleit ríkja-
sambandi við Svíþjóð og öðlaðist fullt sjálf-
stæði. Í Ósló var haldin hátíðleg athöfn í
þinghúsinu þar sem þingmenn og meðlimir
konungsfjölskyldunnar minntust atburð-
anna sem leiddu til þess að Noregur og
Svíþjóð slitu sambandi sín á milli á frið-
samlegan hátt.
Haraldur Noregskonungur tók þátt í há-
tíðahöldunum, og tók þannig aftur við
embættisskyldum sínum eftir að hafa verið
frá vegna veikinda undanfarna tvo mánuði.
Þúsundir manna stóðu meðfram götum í
miðborg Óslóar og fylgdust með bílalest
konungs þegar hún ók í átt að þinghúsinu.
Sex úr hópi vegfarenda gerðu tilraun til
að stöðva bílalestina með því að hlaupa
framhjá hermönnum sem stóðu örygg-
isvörð og leggjast á götuna, en lögreglu
tókst að stöðva fólkið án þess að til trufl-
ana kæmi. Að sögn dagblaðsins Aftenpost-
en ætlaði fólkið með þessum gjörningi að
mótmæla komu Donalds Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, til Noregs,
en hann flaug í gær til Stavanger til fund-
ar með Kristin Krohn Devold, varnar-
málaráðherra Noregs.
Eftir hádegi var svo hersýning haldin á
götum Óslóar og norski sjóherinn fyllti
höfnina með bátum sínum og öðrum bún-
aði. Í gærkvöldi spiluðu helstu tónlist-
armenn landsins í Tónlistarhúsi Óslóar-
borgar og á stórum útitónleikum fyrir
framan ráðhús borgarinnar.
Öld síðan Noregur fékk sjálfstæði
Reuters
Sambandsslita Noregs og Svíþjóðar var minnst á hátíðarsamkomu í norska þinginu.
Haraldur Noregskonungur tók þátt í hátíða-
höldunum og tók þannig aftur við embætt-
isskyldum sínum eftir að hafa verið frá vegna
veikinda undanfarna tvo mánuði.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 19
ERLENT
Sumarhappdrætti
Krabbameinsfélagsins www.krabb.is
Vertu með og styrktu gott málefni!
Dregið 17. júní 2005
vinningar:
Glæsilegir
900kr.
Uppl‡singar um vinningsnúmer í
símum 540 1918 (símsvari) og
540 1900 og á vefsí›unni
krabbameinsfelagid.is/happ
Honda CR-V ES
Ver›mæti 2.995.000 kr.
Bifrei› e›a grei›sla
upp í íbú›
Ver›mæti 1.000.000 kr.
Úttekt hjá fer›askrifstofu
e›a verslun
Hver a› ver›mæti 100.000 kr.
148
skattfrjálsir vinningar
að verðmæti
150
18.795.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
16
5
6
1
Moskvu. AFP. | Rússar ætla innan skamms
að hefja útsendingar fréttasjónvarpsstöðv-
ar um gervihnött, í því skyni að miðla af-
stöðu stjórnvalda í Moskvu til heimsmála
og bæta ímynd landsins erlendis, að því er
rússneskir fjölmiðlar greindu frá.
Sjónvarpsstöðin mun flytja allt efni sitt
á ensku og ganga undir nafninu Rússland í
dag (RTTV). Stöðin á að „endurspegla
rússneska afstöðu til heimsmála og al-
þjóðastjórnmála“ og „upplýsa áhorfendur
um atburði og fyrirbæri í daglegu lífi í
Rússlandi,“ hefur blaðið Vedomosti eftir
RIA-Novosti ríkisfréttastofunni sem er
helsti bakhjarl nýju stöðvarinnar.
Rússland í dag mun senda út allan sólar-
hringinn og nást útsendingar stöðvarinnar
í Bandaríkjunum, Evrópu, nokkrum Asíu-
löndum og flestum fyrrverandi Sovétlýð-
veldum. Stefnt er að því að útsendingar
hefjist í haust og verða starfsmenn stöðv-
arinnar 500, þar á meðal 200 fréttamenn.
Ráðgjafar Pútíns meðal stofnenda
Meðal þeirra sem eiga þátt í að stofna
stöðina eru Míkhaíl Lesín, ráðgjafi Pútíns
Rússlandsforseta, og Alexei Gromov,
blaðafulltrúi Pútíns. Hafa fréttaskýrendur
lýst efasemdum um að hin „rússneska
CNN“, eigi eftir að láta til sín taka á al-
þjóðlegum fjölmiðlamarkaði. „Allir vita að
um stranga ritskoðun verður að ræða,“
sagði Alexei Volín, fyrrverandi blaða-
fulltrúi rússneskra stjórnvalda.
Rússnesk
afstaða til
heimsmála
Rússar stofna gervi-
hnattasjónvarpsstöð sem
flytur fréttir á ensku