Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 21
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Snæfellsnes | Mikill straumur
ferðamanna var á Snæfellsnesi
um helgina. Fóru margir á Snæ-
fellsjökul enda veður með besta
móti og skartaði jökullinn sínu
fegursta um helgina.
Ferðafólkið naut útiverunnar
og náttúrufegurðarinnar. Meðal
þess var ung stúlka sem fór á
jökulinn í fyrsta skipti. Hún fékk
að fljóta með starfsmanni Snjó-
fells sem ók lítinn hring á vél-
sleðanum. Morgunblaðið/Alfons
Í sinni fyrstu
ferð á Snæ-
fellsjökul
Mývatnssveit | Sólveig Illugadóttir
myndlistarkona úr Mývatnssveit
opnaði um helgina málverkasýningu
í Fjallakaffi í Möðrudal. Sýninguna
nefnir hún „Villt dýr í íslenskri nátt-
úru“. Verkin á sýningunni eru öll ný
og mörgum þeirra fylgja örsögur.
Þetta er 25. einkasýning Sólveigar
og verður opin alla daga fram til 15.
september.
Í Möðrudal rekur Vilhjálmur
Vernharðsson myndarlega ferða-
þjónustu. Sérstaka athygli vekja
torfbæir sem hann hefur byggt þar í
alfaraleið. Kaffihúsið er í fallegum
burstabæ, sömuleiðis er gistiaðstaða
í öðrum burstabæ. Góð tjaldstæði
eru fyrir hendi og fjölbreyttar
gönguleiðir hafa verið merktar um
nágrennið. Sumarumferð er töluverð
um gamla þjóðveginn, enda er sú leið
einstaklega skoðunarverð og varla
gefur fallegri sýn til Herðubreiðar
heldur en úr Möðrudal.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Sýning Sólveig Illugadóttir við eina
af myndum sínum í Fjallakaffi.
„Villt dýr“
sýnd í
Fjallakaffi
Sigurlag Hamingjudaga | Sigur-
lagið í lagasamkeppni í tengslum við
Hamingjudaga á Hólmavík er komið
út á geisladiski. Kristján Sigurðsson,
aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla
Hólmavíkur, er höfundur lagsins og
flytjandi en Ásgerður Ingimarsdótt-
ir samdi textann, að því er fram kem-
ur á fréttavefnum strandir.is.
Menningarmálanefnd Hólmavík-
urhrepps hefur ákveðið að halda
bæjarhátíð á Hólmavík í sumar. Há-
tíðin sem hefur hlotið nafnið Ham-
ingjudagar á Hólmavík verður hald-
in helgina 1. til 3. júlí.
Á geisladisknum er sigurlagið í
tveimur útgáfum. Önnur er sungin af
höfundinum sjálfum en hitt er í
karókíútgáfu og fylgir textinn svo
menn geti æft sig fyrir hátíðina.
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
19
1
0
5/
20
05
Nú fæst hinn feikivinsæli RAV4 í sérstakri útfærslu með sportlegu
yfirbragði. Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir. Pakkinn
inniheldur sílsahlíf, krómgrind á afturljós, sportgrill, krómstút á púst,
sílsarör og dráttarbeisli. RAV4 SPORT sameinar því þægindi, kraft,
öryggi, sportlegt útlit og hagstæð kjör, en hann fæst frá aðeins
2.720.000 kr. Komdu og prófaðu RAV4 SPORT í dag.
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
RAV4 SPORT. Fyrir allt sem í þér býr og meira til.
Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir með.
Verð frá 2.720.000 kr.
Jafnt í borg sem til fjalla
RAV4 SPORT
Sportgrill Sílsarör Krómgrind
á afturljós
Sílsahlíf Krómstút
á púst
Dráttarbeisli
Hólar | Hólamannafélagið, hollvina-
samtök Hólaskóla – Háskólans á
Hólum, stendur fyrir Hólmamanna-
viku í ágúst. Þá verða félagsmenn
sem allir eru fyrrverandi nemendur
og starfsmenn skólans, hvattir til að
sækja staðinn heim, kynna sér hvað
er um að vera og áætlanir um fram-
tíðina.
Hólamannafélagið hefur starfað
með hléum frá því 1904. Markmiðið
er meðal annars að tryggja tengsl
fyrrverandi nemenda og starfs-
manna við skólann og Hólastað, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Á Hólamannaviku, dagana 19. til
26. ágúst, verður boðið upp á gist-
ingu og aðra þjónustu á afsláttar-
kjörum og þeim sem sækja staðinn
heim er boðið upp á sérstaka kynn-
ingu á starfi skólans og því sem unn-
ið er að. Þá verða jafnframt kynnt
þau samstarfsverkefni sem skólinn
vinnur að með öðrum aðilum heima
og erlendis.
Hólamanna-
vika verður
haldin í
ágústmánuði