Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 37
við í Vin góðs vinar og getum alveg
verið sammála því, svona að mestu
leyti, að það hafi verið 99,9% gáfur
hjá kokkinum en hins vegar var, í það
minnsta og heldur ríflega, sextíu og
sjö prósent, sextíu og sjö prósent,
sextíu og sjö prósent, karma, karma,
karma.
Gestir og starfsfólk Vinjar.
Elsku Gunni minn. Mig langar
með nokkrum línum að kveðja þig.
Langt er síðan ég sá þig fyrst í
kokkajakkanum og vissi ég þá engin
deili á þér.Var þetta á veitingatíma-
bili mínu og fannst mér þú athygl-
isverður ungur maður. Eftir að hafa
spurt um þig var ég viss um að það
sem mér sýndist um þig var sannleik-
anum samkvæmt. Vinnuveitandi
þinn þá talaði um þig sem afbragðs-
matreiðslumann, góðan dreng og bar
þér vel söguna.
Árin liðu og ég kynntist þér ágæt-
lega vegna kunningsskapar við
bræður þína, sérstaklega Óla.
Enn leið tíminn og ég var búinn að
frétta af veikindum þínum í ofanálag
við það að þurfa að glíma við Bakkus.
Og enn leið tíminn. Ég hóf störf fyrir
Samhjálp og mér var falið starf á
stuðningsheimili þar sem leiðir okkar
lágu saman að nýju.
Frá þeirri stundu hef ég alltaf litið
á þig sem einn af mínum vinum.
Sterkur persónuleiki þinn, húmor og
virðingin sem þú barst alltaf fyrir
samferðamönnum þínum voru þín
aðaleinkenni.
Hversu vel þú talaðir um alla, aldr-
ei með nein fúkyrði eða baktal, held-
ur ljúfur og sást betur en margur það
góða sem hver og einn hefur til að
bera.
Þakklæti og kvartanalaust viðhorf
þitt til lífsins dag frá degi segir þeim
sem vilja vita hversu gott var að um-
gangast þig, elsku vinur. Umhyggju-
tal þitt og kærleikur sá sem þú barst
til systkina þinna var þér mikil prýði
og hitaði manni um hjartarætur.
Ég hafði gaman af því hversu vel
þú fylgdist með veðurfréttum til þess
eins að vita alltaf hvernig væri í sjó-
inn hjá Óla þegar hann reri til sjós.
Varst alltaf viss um að Kalla gengi
vel. Talaðir alltaf fallega um hversu
góða systur þú ættir og með kímni
þegar Tryggvi var í umræðunni.
Kærleikurinn var sífellt í orðum
þínum.
Undir yfirborðinu voru djúp sár
vegna fjarlægðar þeirrar sem var á
milli þín og barnanna þinna. Andleg
umhyggja þín, tal og draumar um
þau voru eins og hjá feðrum sem
elska börnin sín.
Þegar ég skrifa þessi fátæklegu
orð, Gunni minn, eru mér minnis-
stæðastar þær stundir þegar ég var á
næturvakt og við vorum að draga
okkur mannakorn og spjalla við Jesú.
Vissa þín að ekki væru mörg árin eft-
ir komu sterkast fram á 49 ára af-
mælinu þínu. Það varð að halda það
og var allt tal þitt um hvernig þú vild-
ir hafa það eins og hjá þeim sem veit
að hann er að fara heim til Drottins.
Ég ætla að láta fylgja þessu sálm-
inn sem Guð hefur gefið okkur og
sem við lásum saman eitt kvöldið.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Ég veit hvar þú ert, sjáumst.
Guð veri með systkinum þínum,
börnum og aðstandendum, styrki
þau og blessi.
Þinn vinur,
Vilhjálmur Svan.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 37
MINNINGAR
Elsku pabbi. Það
kemur svo ótal margt
upp í hugann þegar ég
minnist þín. Þú varst
mér alltaf svo góður
og gerðir allt til að
uppfylla óskir mínar og væntingar.
Það er erfitt að lýsa þér í fáeinum
orðum en þú varst stoltið mitt, allt-
af svo akkúrat. Mikill húmoristi,
virðulegur og blíður maður. Ég
fann alltaf hvað þér þótti vænt um
mig. Mér eru svo minnisstæðar
stundirnar í Fljótshlíðinni, þegar
við fórum í Deild og Múlakot og
gengum upp á Stóra og Litla Dím-
on til að tína ber.
Vænt þykir mér um stundirnar
sem við áttum saman í Sunnuhlíð-
inni. Þá gátum við gefið okkur næg-
an tíma til að ræða um lífið og til-
veruna. Þú varst alltaf svo glaður
að sjá mig og ég mun sakna
orðanna: ,,Ertu komin, elsku rósin
mín?“
Elsku pabbi minn, nú veit ég að
þér líður vel og þú ert kominn til
dóttur minnar og bróður. Megi góð-
ur Guð geyma þig.
Þín dóttir,
Arnþrúður.
Nú er ástkær afi okkar farinn
fyrir fullt og allt og hans verður
sárt saknað. Það er sárt að hugsa
til þess að finna ekki sterka pípu-
lyktina þegar við komum inn í
Vogatunguna og geta ekki tekið ut-
an um afa okkar þar sem hann sat
með pípuna sína. Það er sárt að
hugsa til þess að geta ekki setið
með honum í eldhúsinu, hlusta á
sögur úr Fljótshlíðinni eða heyra
KRISTJÁN BELLÓ
GÍSLASON
✝ Kristján BellóGíslason fæddist
í Vestmannaeyjum 1.
febrúar 1912. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð
31. maí síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Kópavogskirkju
7. júní.
hans frægu „fimm
aura“ brandara sem
hann sagði okkur með
því að undirstrika end-
inn með því að kinka
kolli og reka út úr sér
tunguna. Nú er enginn
lengur til að spyrja
okkur hver sé bestur,
en þú varst alltaf best-
ur, afi, og munt alltaf
vera. Við munum alltaf
muna eftir afa okkar í
stólnum í eldhúsinu,
alltaf í stuði og hlýleg-
ur og góður við alla
sem honum voru
nærri.
Elsku afi, blessuð sé minning þín.
Þín barnabörn,
Halldóra Kristín,
Eiríkur og Ívar.
Elsku afi. Hver er bestur? Þú að
sjálfsögðu. Þessi orð hljóma hjá
okkur þegar við hugsum til þín. Við
hlökkuðum alltaf til að koma í heim-
sókn til ykkar á Hátröðina. Þú
tókst á móti okkur með þínum
skemmtilega hætti og lúmska húm-
or, eins og þér einum var lagið. Þú
varst virðulegur, hár og myndarleg-
ur maður sem við vorum mjög stolt-
ar af. Það var ekki langt í brosið
þegar við systurnar settumst niður
og fórum að minnast þín. Þú varst
svo mikill karakter og húmoristi að
brandarar þínir og persónutöfrar
skinu í gegnum minningarnar um
þig. Eftir hvert grín glottir þú út í
annað og gafst þar með brandaran-
um meira gildi. Þó söknuðurinn
verði alltaf til staðar vitum við að
þér líður miklu betur núna. Þú ert
kominn á þann stað sem bíður okk-
ar allra og við vitum að Erna systir
hefur tekið vel á móti þér.
Elsku amma, mamma, Gulla,
Þröstur, Stebbi og aðrir aðstand-
endur, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
Guð veri með ykkur öllum.
Soffía Heiða, Kristín Halla,
Haddý Anna og Eva Dögg.
Kveðja frá Golf-
klúbbi Vest-
mannaeyja
Við viljum í fáum
orðum minnast okkar
góða félaga Marteins
Guðjónssonar sem
lést hinn 30. maí sl.
Marteinn gerðist félagi í Golf-
klúbbi Vestmannaeyja á sjöunda
áratugnum, á þeim tímum er
vinna við hirðu og rekstur vall-
arins var að mestu unnin í sjálf-
boðavinnu af klúbbfélögum. Mar-
teinn var klúbbnum mikill
happafengur og eru ófáar vinnu-
stundirnar sem hann lagði fram í
sjálfboðavinnu við að gera golf-
völlinn okkar í Herjólfsdal jafn
fallegan og raun ber vitni. Véla-
kostur var ekki alltaf sá full-
komnasti en Marteinn lagði mikla
vinnu í að halda vélum við og er
ekki á nokkurn hallað er sagt er
hann hafi verið manna snjallastur
að láta vélar ganga og með dug-
legri mönnum í hirðu golfvallar-
ins. Marteinn tók virkan þátt í því
að hreinsa völlinn eftir gos og var
hann forkólfur þess að gera
bráðabirgðagolfvöll uppi við Sæ-
fell meðan hann og aðrir félagar í
Golfklúbbnum unnu það þrekvirki
MARTEINN
GUÐJÓNSSON
✝ Marteinn Guð-jónsson fæddist í
Vestmannaeyjum 7.
maí 1924. Hann lést
30. maí síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Landa-
kirkju 3. júní.
að hreinsa völlinn í
Herjólfsdal undan
vikri eftir gos á
Heimaey árið 1973.
Marteinn tók upp-
hafshöggið á „Sæ-
fellsvellinum“ hinn
11. apríl 1974. Mar-
teinn var formaður
klúbbsins á árunum
1974 og 1980. Mar-
teinn náði fljótt góð-
um tökum á golfinu
og var ágætur kylf-
ingur og náði meðal
annars að komast í
íslenska öldunga-
landsliðið og keppti fyrir Íslands
hönd. Marteinn spilaði golf af
kappi þar til hann veiktist alvar-
lega árið 1999, þá 75 ára að aldri.
Ekki er hægt að fjalla um Mar-
tein án þess að minnast á hans
hægri hönd, konu hans Kristínu
Einarsdóttur, Stínu, en hún var
honum stoð og stytta alla ævi. Til
marks um hug Marteins og Stínu
til klúbbsins þá tóku þau aldrei
annað í mál eftir veikindi Mar-
teins en að greiða félagsgjöld til
klúbbsins og hafa gert alveg til
dagsins í dag.
Um leið og við kveðjum Mar-
tein og þökkum góðar samveru-
stundir og fórnfúst starf á Golf-
vellinum í Herjólfsdal vottum við
Kristínu og fjölskyldu okkar
dýpstu samúð, minningin um góð-
an félaga lifir á golfvellinum í
Herjólfsdal.
F.h. Golfklúbbs Vestmanna-
eyja,
Haraldur Óskarsson.
Elsku Heiðar. Með
þessum orðum langar
mig að þakka þér fyrir
allt sem þú hefur gert
fyrir mig.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
HEIÐAR
ALBERTSSON
✝ Heiðar Alberts-son fæddist í
Skrúð í Skerjafirði 4.
mars 1948. Hann lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 4.
maí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Háteigskirkju 12.
maí.
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Bið að heilsa Krissa
á Englavegi 7.
Þín
Helga Sif.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HÓLMFRÍÐUR ANDRÉSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður til heimilis
á Flókagötu 19 í Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 9. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins, síma 543 3724.
Andrés Svanbjörnsson, Björk Timmermann,
Sigríður Halldóra Svanbjörnsdóttir, Ásgeir Thoroddsen,
Agnar Fr. Svanbjörnsson, Ásta Sigríður Hrólfsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför el-
skulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
JÓHANNESAR PÁLSSONAR,
Grundargerði 3c,
Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
heimahlynningar og lyfjadeildar II á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigfríð Dóra Vigfúsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HANS A. ÞORSTEINSSON
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 10. júní kl. 13.
Sigurbergur Hansson, Valdís Hansdóttir,
Þorsteinn Hansson, Óskar Hansson,
Elís Hansson, Lára Hansdóttir,
Lúðvík Hansson, Erla Elín Hansdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Fósturfaðir okkar og bróðir,
GÍSLI JÓSEFSSON
málarameistari,
lést á heimili sínu mánudaginn 6. júní.
Útförin auglýst síðar.
Matthildur Hafsteinsdóttir,
Sævar Hafsteinsson,
Magnús Jósefsson,
Ragnheiður Jósefsdóttir.