Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 52
Alber Elbaz: Alþjóðlegur
hönnuður ársins.
ÁHRIFAMIKIÐ fólk úr tískuheiminum var
saman komið í New York á mánudagskvöldið
þegar tískuverðlaun Samtaka fatahönnuða í
Bandaríkjunum, CFDA, voru veitt. Vera Wang
var valin kvenfatahönnuður ársins en stjörn-
urnar hafa oft valið kjóla hennar fyrir rauða
dregilinn. „Ég er mjög upp með mér. Jafnvel á
mínum aldri geta draumar ræst,“ sagði hún.
John Varvatos var valinn herrafatahönnuður
ársins.
Ofurfyrirsætan Kate Moss fékk sérstök verð-
laun fyrir að vera mikill áhrifavaldur í tísku-
heiminum og fetar þar með í háhæla fótspor
Söruh Jessicu Parker og Nicole Kidman.
Enginn annar en David Bowie afhenti Kate
verðlaunin.
„Hún klæðir sig á þann hátt að það þýðir
eitthvað. Það sem Kate klæðist fara aðrir í.
Og það er í alvöru Kate sem velur fötin en
ekki stílisti,“ sagði Peter Arnold, fram-
kvæmdastjóri CFDA.
Diane von Furstenberg var heiðruð fyrir
þriggja áratuga framlag sitt til tískuheims-
ins. „Mér finnst mjög gaman að kollegar mín-
ir heiðri mig. Þetta er mikil samkeppni en við
erum samt sem áður í sama fagi. Við hjálpum
hvert öðru og hvetjum hvert annað áfram,“
sagði hún í samtali við AP.
Af öðrum helstu verðlaunum má nefna að
Marc Jacobs var valinn fylgihlutahönnuður
ársins. „Mér finnst fylgihlutir ekkert annað
en tíska, þetta er sami hluturinn,“ sagði
hann.
Til viðbótar fékk Gilles Bensimon hjá Elle
sérstök verðlaun fyrir að hafa skapað tískuna
sjónrænt. Alber Elbaz, hönnuður Lanvin,
fékk verðlaun sem besti alþjóðlegi hönnuður-
inn. Loks fékk Norma Kamali verðlaun frá
stjórn CFDA en hún játaði að vera ábyrg fyr-
ir axlapúðatískunni undir lok áttunda áratug-
arins.
Þetta var í 24. skipti sem verðlaunin eru
veitt en sigurvegararnir eru valdir af rúm-
lega 450 fulltrúum fatahönnuða, blaða, sölu-
fólks og stílista.
Hjónin Seal og Heidi Klum;
hún ólétt, í Donnu Karan.
Barry Diller með eiginkonunni Diane von Furstenberg, sem
fékk sérstök heiðursverðlaun, hjónin David Bowie og Iman.
Kate Moss heiðruð
sem áhrifavaldur
Tíska | Tískuverðlaun Samtaka fatahönnuða í Bandaríkjunum
A
P
!"
#$
% &
&
'
%"
'
&
(
&
)
52 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í hraða lífsins kemur að því að
við rekumst á hvert annað
lí i í
i
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul
Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og
ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
ROGER EBERT
ROLLING STONE
S.K. DV.
Capone XFM
H.L. MBL.
Ó.H DV
S.K DV
Ó.H.T RÁS 2
A Lot Like Love kl. 6 - 8.15 og 10.30
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 - 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s Guide... kl. 5.45 - 8 - 10.15
The Jacket kl. 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 5.40
aston kutcher amanda peet
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort
tveggja. Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá.
Í hraða lífsins kemur að því að við
rekumst á hvert annað
Debra Messing Dermot Mulroney i t l
Frábær og léttleikandi rómantískgamanmynd með Debra
Messing úr „Will &Grace“ þáttunum
l l i i í
i ill
Fyrsta stórmynd sumarsins
BRIAN
VAN HOLT
PARIS
HILTON
JARED
PADALECKI
ELISHA
CUTHBERT
CHAD MICHAEL
MURRAY
Capone XFM
S.K. DV.
HARÐKJARNA- og rokkhátíðin
MOTU-FEST stendur yfir dagana
8.–11. júní og hafa fjórar erlendar
hljómsveitir staðfest komu sína á há-
tíðina. Þetta er annað árið í röð sem
hátíðin er haldin en hún er stærri en í
fyrra og dreifist á þrjú kvöld, sem
haldin verða í Hellinum, Grandrokki
og gamla Sjónvarpshúsinu.
Hátíðin hefst í kvöld með tón-
leikum bandarísku sveitarinnar Paint
It Black og fleiri sveita í Hellinum og
er þeim fylgt fast eftir á föstudags-
kvöldinu með tónleikum dönsku met-
alsveitarinnar Urkraft og fleiri
knárra sveita. Lokaspretturinn verð-
ur svo á laugardaginn þegar dönsku
sveitirnar Lack, Urkraft og frönsku
metalrisarnir í Scarve gera allt
snælduvitlaust ásamt rjómanum af
harðkjarna- og metalböndum Ís-
lands.
Jóhann Ingi Sigurðsson hlakkar til
hátíðarinnar en hann er einn skipu-
leggjenda hennar. „Þetta er stærsti
viðburður ársins fyrir þennan hóp,“
segir hann.
Á laugardeginum verður hægt að
kaupa ýmsan varning af hljómsveit-
unum, einnig mat og drykk og verða
einhver samtök og hópar með kynn-
ingar af á starfsemi sinni. „Dýra-
verndunarsinnar verða með bás
þarna og ég á líka von á því að græn-
metisætur verði með kynningu á
sinni starfsemi,“ segir hann.
Armbönd verða til sölu sem gilda á
öll kvöldin, samtals sautján hljóm-
sveitir, og kosta þau 3.500 krónur.
Forsala er hafin í Smekkleysu Plötu-
búð. „Það er nálægt helmingur arm-
banda búinn þannig að þetta er fljótt
að fara,“ segir Jóhann Ingi. Einnig er
selt á einstaka viðburði en armbönd
hafa forgang ef stefnir í húsfylli.
Hátíðin hefur vakið töluverða at-
hygli erlendis fyrir fjölbreytta og
ferska dagskrá, segir Jóhann Ingi en
hvað er það sem þykir vera öðru vísi?
„Yfirleitt er þetta flokkað í metalsen-
ur annars vegar og hins vegar í harð-
kjarnasenur. Þessum tónlistar-
stefnum er hvergi blandað saman í
sama mæli og hérna. Ísland er svo lít-
ið og þetta er ekki það stór hópur sem
hlustar á hvort fyrir sig,“ segir hann
og bætir við að það sé kostur. „Þetta
kemur í veg fyrir þröngsýni.“
Stærsta hljómsveitin í ár er fyrr-
nefnd frönsk metalsveit, Scarve.
„Þeir koma beint af tónleikaferðalagi
með hljómsveit sem heitir Mes-
huggah og er mjög stór innan þess-
arar senu. Það er ákveðinn gæða-
stimpill,“ segir hann.
Jóhann Ingi segir marga erlenda
blaðamenn hafa sýnt áhuga á hátíð-
inni og á jafnvel von á því að ein-
hverjir þeirra komi til landsins. Há-
tíðin hefur líka verið á lista vefsíðna
sem halda utan um hátíðir af þessu
tagi þannig að hún hefur spurst vel út.
Skipulagning tónleikanna er í sjálf-
boðavinnu. „Þetta er gert á öðrum
grundvelli en með stærri tónleika.
Allir sem vinna að þessu gera það í
sjálfboðavinnu. Ef það verður einhver
gróði af hátíðinni í ár fer hann bara í
hátíðina á næsta ári. Við viljum fá sér-
stök bönd hingað, það er það sem
drífur okkur áfram, bönd sem yrðu
annars ekki fengin hingað.“
Morgunblaðið/Golli
Jóhann Ingi Sigurðsson er einn skipuleggjenda hátíðarinnar en hann segir
hana vera stærsta viðburð ársins fyrir metal- og harðkjarnaaðdáendur.
Franska metalsveitin Scarve spilar
á hátíðinni en hún kemur beint af
tónleikaferðalagi með Meshuggah.
Kemur í veg fyrir þröngsýni
Tónlist | Harðkjarna- og rokkhátíðin MOTU-FEST 8.–11. júní
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Hátíðin hefst í Hellinum, Hólma-
slóð 2, kl. 19.30 í kvöld. Ekkert
aldurstakmark. Aðgangseyrir
1.000 kr. Fram koma Paint It Black,
Myra, Isidor og Mania Locus.
www.motu-fest.org
Kate Moss tók á
móti verðlaun-
unum í hátísku-
kjól frá Dior.
smáauglýsingar
mbl.is