Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 53
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar ÁLFABAKKI Sjóðheit og sláandi góð hrollvekja með hinni umdeildu djammstelpu, Paris Hilton, Elisha Cuthert úr Girl Next Door og 24 þáttunum og Chad Michael Murray úr One Tree Hill Þáttunum. Stranglega bönnuð innan 16 ára.  A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 A LOT LIKE LOVE VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 HOUSE OF WAX kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort tveggja. Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá. ashton kutcher RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU amanda peet A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8.15 - 10.30 HOUSE OF WAX kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 WEDDING DATE kl. 8.15 - 10.20 THE WEDDING DATE kl. 4 - 6 - 8.15 - 10.30 CRASH kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 A LOT LIKE LOVE kl. 8 - 10 HOUSE OF WAX kl. 8 - 10 Kingdome Of Heaven kl. 5 - 8 - 10.30 House of Wax kl. 10.30 Star Wars - Episode III kl. 5 - 8 LEYFÐ ÖLLUM ALDURSHÓPUM BRIAN VAN HOLT PARIS HILTON JARED PADALECKI ELISHA CUTHBERT CHAD MICHAEL MURRAY   MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 53 Borgarholtsskóli Innritun nemenda úr grunnskóla á haustönn 2005 stendur yfir og lýkur 14. júní Í boði eru eftirtaldar námsbrautir: Nánari upplýsingar um einstakar námsbrautir eru á heimasíðu. Borgarholtsskóli v/Mosaveg, 112 Reykjavík, sími 535 1700, bréfasími 535 1701. Sjá nánar á heimasíðu: www.bhs.is Bóknám til stúdentsprófs: • Félagsfræðabraut • Málabraut • Náttúrufræðabraut Iðnnám: • Grunndeild bíliðna • Fyrrihlutanám í málmiðnum Listnám: • Margmiðlunarhönnun, grafísk áhersla • Margmiðlunarhönnun, fjölmiðlatækni Annað starfsnám: • Félagsliðabraut, námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum • Verslunarbraut Almenn námsbraut er einnig í boði fyrir þá nemendur sem ekki standast inntökuskilyrði annarra námsbrauta. Við aðstoðum nemendur og forráðamenn þeirra við rafræna innritun vikuna 6.-10. júní frá kl. 9-16. Opið hús verður í skólanum 13. og 14. júní frá kl. 11-18 þar sem kynnt verður það nám sem er í boði. VÆNAR raðir æstra aðdáenda Snoop Dogg mynduðust eldsnemma í gærmorgun fyrir utan sölustaði miða á tónleika rapparans í Egilshöll 17. júlí nk. Miðasalan hófst kl. 10 um morguninn og fór hún að sögn skipuleggj- enda hjá Event ehf. mjög kröftuglega af stað. Áætl- ar Ísleifur Þórhallsson að nú þegar sé búið að selja yfir þrjú þúsund miða. Því sé nærri því helmingur allra miða farinn vegna þess að í boði verða ein- ungis sjö þúsund miðar. Morgunblaðið/Jim Smart Það var góð stemning í röðinni fyrir utan Skífuna á Laugavegi í gærmorgun. Beðið eftir Snoop ÓLAF Jóhannesson kvikmynda- gerðarmann hafði alltaf langað til að gera mynd um fótbolta. Mynd hans Africa United fjallar einmitt um sam- nefnt fótboltalið í þriðju deildinni hérlendis en liðið samanstendur af leikmönnum frá meira en tíu löndum. Eins og greint var frá í blaðinu í gær hefur honum verið boðið að sýna þessa heimildamynd í aðalkeppninni á hinni þekktu kvikmyndahátíð í Karlovy Vary í Tékklandi. „Mig langaði alltaf að gera mynd um fótbolta og í áranna rás hef ég séð margar lélegar myndir um þennan fallega leik. Í staðinn fyrir að taka þá áhættu að auka við eymdina ákváðum við, ég og félagar mínir, Ragnar Santos og Benedikt Jóhann- esson, að finna raunverulegt fót- boltalið og sjá hlutina gerast í alvöru á tjaldinu,“ segir Ólafur. „Fótbolti er birtingarmynd ein- faldleikans en mennirnir gera hann, eins og lífið, flókinn og margbrotinn. Persónurnar í myndinni minni, Afr- ica United, eru komnar á fremsta hlunn með að flækja líf sitt um of. Nálgun þeirra er mjög frábrugðin hinu staðfasta, evrópska hugarfari. Leiði þeir leikinn munu þeir sigra, einu marki undir og þeir eru svo til dæmdir til að tapa. Þá skortir evr- ópska þrautseigju en búa aftur á móti yfir barnslegri einlægni í nálg- un sinni á fótbolta og lífið,“ segir hann. „Meðlimir Africa United eru inn- flytjendur sem vinna við ýmis lág- launastörf í Reykjavík eða eru jafn- vel atvinnulausir. Líf þeirra er mótað af baráttu innflytjenda á nýjum slóð- um; tungumálavandræði, viðureignir við yfirvöld, peningamál, svo ekki sé minnst á íslenska veðráttu,“ útskýrir Ólafur og bætir við að þess vegna sé Africa United miklu meira en fót- boltalið. „Leikmennirnir trúa því og vona að ef þeim gangi vel í fótbolta muni velgengnin speglast inn í líf þeirra, færa þeim virðuleik og sjálfstraust sem hafi aftur í för með sér gott líf,“ segir hann og útskýrir að myndin sé að grunni til einföld saga um von um að ná árangri og njóta virðingar. „Á undanförnum árum hafa marg- ar myndir verið sýndar sem fjalla um innflytjendur í Evrópu. Venjulega er lögð áhersla á hversu erfitt líf þeirra sé. Mig langaði í þessari mynd að ein- blína á jákvæðu hliðarnar og þær eingöngu. Fyrst og fremst á að vera skemmtilegt og hressandi að horfa á myndina. Hlýju og innileik er nefni- lega vel hægt að troða inn um þær dyr,“ segir leikstjórinn. Kvikmyndir | Heimildamyndin Africa United keppir í Karlovy Vary Lífið er fótbolti Atriði úr mynd Ólafs: Arnar Björnsson íþróttafréttamaður undirbýr sig fyrir viðtal við þjálfara knattspyrnuliðsins Africa United, Zico Zakaria. Auglýsingaspjald myndarinnar Africa United hefur vakið athygli enda vel heppnað og grípandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.