Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJÓNVARP
FYRIR nokkrum árum reið
yfir ný bylgja í sjónvarps-
þáttagerð, svokallaðir raun-
veruleikasjónvarpsþættir.
Þar bauðst áhorfendum að
vera fluga á vegg
og fylgjast með
fólki glíma við ýms-
ar aðstæður. Þætt-
irnir eru eins ólíkir
og þeir eru margir
en miða allir að því
að fá að gægjast inn
í tilbúinn veruleika
nokkurra ein-
staklinga. Survivor
varð trúlega vinsæl-
astur þáttanna í
upphafi en svo hafa aðrir sótt
í sig veðrið jafnhliða vinsæld-
um Survivor.
Nú er svo komið að mér
finnst þetta form sjónvarps-
þátta orðið frekar þreytt og
þá sérstaklega endurtekn-
ingar á sömu hugmyndinni að
uppbyggingu þátta. Kannski
er maður búinn að fullnægja
þörfinni fyrir forvitnina um
náungann. Eða kannski er
maður búinn að sjá í gegnum
óraunveruleika þessara þátta
sem gefa sig út fyrir það að
sjónvarpa raunveruleikanum.
Ég hef fylgst með einni
þáttaröð af Survivor, átti
mína uppáhaldskeppendur og
allt. Þegar næsta þáttaröð
hófst ætlaði ég að endurtaka
leikinn en komst þá að því að
ég var búin að sjá þetta allt
áður. Sömu rifrildin, sömu
karakterarnir og sömu að-
stæður sem komu upp. Það er
nefnilega með Survivor eins
og svo marga aðra þætti af
þessari gerð að hafi maður
séð eina þáttaröð, er maður
búinn að sjá þær allar.
America’s Next Top Model
er annað dæmið um skort á
fjölbreytileika, svipaðar týp-
ur berjast að sama markmiði
með tilheyrandi baktali og
grátköstum. The Bachelor/
Bachelorette er sama end-
urtekningin; hópur
íðilfagurra karla
eða kvenna keppast
um hylli ein-
staklings sem þau
vilja öll ólm eyða
ævinni með. Þetta
er alveg merkilega
einhæft sjónvarps-
efni, piparsveinninn
eða daman eru al-
veg öldungis óviss
um lífsförunautinn
fram á síðustu mínútu, en
þegar valið hefur farið fram
hefði viðkomandi ekki getað
hugsað sér neinn annan til að
eyða ævinni með.
Um daginn hófust sýningar
á nýrri raunveruleikaþátta-
röð hér á landi sem nefnist
The Contender. Þar eiga
nokkrir kraftalegir piltar að
keppa um hver þeirra er
besti hnefaleikakappinn. Sýn-
ishorn úr þættinum var byggt
upp þannig að menn áttu um-
svifalaust að verða spenntir
fyrir komandi ósætti og óvin-
skap á milli drengjanna. Það
er nefnilega helsti drif-
kraftur raunveruleikasjón-
varpsþátta, mannlegur
breyskleiki. Ósætti, grátur,
baktal, svik og annað í þeim
dúr er nefnilega það sem
heldur okkur illkvittnum
áhorfendum við skjáinn, ekki
satt?
Það væri ekkert gaman að
horfa á Survivor ef öll dýrin í
skóginum væru vinir og
hjálpuðust að við að byggja
friðsælt samfélag í sátt og
samlyndi úti í auðninni.
Þreyttur
raunveruleiki
LJÓSVAKINN
Birta Björnsdóttir
06.00 Fréttir.
06.05 Árla dags. Umsjón: Vilhelm G. Krist-
insson.
06.50 Bæn. Séra Elínborg Gísladóttir flytur.
07.00 Fréttir.
07.05 Árla dags. Umsjón: Vilhelm G. Krist-
insson.
07.30 Morgunvaktin. Fréttir og fróðleikur.
07.30 Fréttayfirlit.
08.00 Fréttir.
08.30 Fréttayfirlit.
08.30 Árla dags. Umsjón: Vilhelm G. Krist-
insson.
09.00 Fréttir.
09.05 Laufskálinn. Umsjón: Ásgrímur Ingi Arn-
grímsson á Egilsstöðum.
09.40 Úr kvæðum fyrri alda. Umsjón: Gunnar
Stefánsson. (Aftur á sunnudag).
09.50 Morgunleikfimi með Halldóru Björns-
dóttur.
10.00 Fréttir.
10.03 Veðurfregnir.
10.13 Andblær frá Ipanema. Brasilískt bossa
nova. Umsjón: Sigríður Stephensen. (2:3).
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd. Umsjón: Leifur
Hauksson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
12.00 Fréttayfirlit.
12.03 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Dánarfregnir og auglýsingar.
13.00 Sakamálaleikrit Útvarpsleikhússins,
Lesið í snjóinn eftir Peter Höeg. Þýðing: Eygló
Guðmundsdóttir. Útvarpsgerð: Aðalsteinn Ey-
þórsson. Meðal leikara: Guðrún S. Gísladótt-
ir, Kristbjörg Kjeld og Steinunn Ólafsdóttir.
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Hljóðvinnsla:
Grétar Ævarsson. (Frumflutt 1996). (3:14)
13.15 Sumarstef. Þáttur í umsjá Hönnu G.
Sigurðardóttur.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan: Bara stelpa eftir Lise
Nörgaard. Sverrir Hólmarsson þýddi. Ragn-
heiður Elfa Arnardóttir les. (3)
14.30 Miðdegistónar. Lög eftir Ludvig Norman
og August Söderman. Claes-Håkan Ahnsjö,
Pia-Marie Nilsson og Kammerkór Erics Er-
icsons syngja, Alfons Kontarsky og Anders
Kilström leika á píanó.
15.00 Fréttir.
15.03 Tónaljóð. Umsjón: Una Margrét Jóns-
dóttir.
16.00 Fréttir.
16.10 Veðurfregnir.
16.13 Hlaupanótan. Umsjón: Berglind María
Tómasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Víðsjá. Þáttur um menningu og mannlíf.
18.00 Kvöldfréttir.
18.24 Auglýsingar.
18.25 Spegillinn. Fréttatengt efni.
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Los Machucambos og Trio Marakana
leika og syngja.
19.30 Laufskálinn. Umsjón: Ásgrímur Ingi Arn-
grímsson á Egilsstöðum.
20.15 Sáðmenn söngvanna. Hörður Torfason
stiklar á stóru í tónum og tali um mannlífið
hér og þar.
21.15 Myndin af manninum. Umsjón: Pétur
Gunnarsson. (1:5).
21.55 Orð kvöldsins. Valgerður Gísladóttir flyt-
ur.
22.00 Fréttir.
22.10 Veðurfregnir.
22.15 Tónskáldið Sigvaldi Kaldalóns. Umsjón:
Gunnar Stefánsson. (Áður flutt 1999)..
23.00 Fallegast á fóninn. Gestur þáttarins er
Helga Ingólfsdóttir semballeikari. Umsjón:
Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Útvarpað á samtengdum rásum til
morguns.
RÍKISÚTVARPIÐ RÁS 1 FM 92,4/93,5
SJÓNVARPIÐ STÖÐ 2 SÝNSKJÁREINNI
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
17.55 Landsleikur í fót-
bolta Bein útsending frá
leik Íslendinga og Malt-
verja í forkeppni heims-
meistaramótsins.
19.00 Fréttayfirlit
19.05 Landsleikur í fót-
bolta Ísland-Malta, seinni
hálfleikur.
20.00 Fréttir, íþróttir og
veður
20.35 Víkingalottó
20.40 Ed Framhaldsþættir
um ungan lögfræðing sem
rekur keilusal og sinnir
lögmannsstörfum í Ohio.
Aðalhlutverk leika Tom
Cavanagh, Julie Bowen,
Josh Randall, Jana Marie
Hupp og Lesley Boone.
(71:83)
21.25 Í einum grænum
Umsjónarmenn Guðríður
Helgadóttir og Kristinn
H. Þorsteinsson,
Framleiðandi er Sagafilm.
Textað á síðu 888 í Texta-
varpi. (6:8)
22.00 Tíufréttir
22.20 Formúlukvöld Gunn-
laugur Rögnvaldsson hit-
ar upp fyrir kappakst-
urinn í Kanada um
helgina.
22.40 Lífsháski (Lost) Hér
verða endursýndir þættir
7-10 úr þessum vinsæla
myndaflokki um hóp fólks
sem kemst lífs af úr flug-
slysi og neyðist til að
hefja nýtt líf á afskekktri
eyju í Suður-Kyrrahafi
þar sem ýmsar ógnir leyn-
ast. Meðal leikenda eru
Naveen Andrews, Emilie
de Ravin, Matthew Fox,
Jorge Garcia, Maggie
Grace, Dominic Monag-
han og Josh Holloway.
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi barna. e. (7:23)
01.30 Dagskrárlok
06.58 Ísland í bítið
09.00 Bold and the Beauti-
ful
09.20 Í fínu formi
09.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.20 Neighbours
12.45 Í fínu formi
13.00 Sjálfstætt fólk (Flosi
Ólafsson)
13.40 Hver lífsins þraut
(Gigt) (5:6) (e)
14.10 Að hætti Sigga Hall
(Ítalía: Umbría) (6:12) (e)
14.45 Happy Days (Jamie
Oliver)(3:4)
15.15 Summerland (On
The Last Night Of Sum-
mer) (e)
16.00 Barnatími Stöðvar 2
Mr. Bean, Smá skrítnir
foreldrar, Könnuðurinn
Dóra, Snjóbörnin, Póst-
kort frá Felix
17.53 Neighbours
18.18 Ísland í dag
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag
19.35 Simpsons
20.00 Strákarnir
20.30 Medium (Miðillinn)
Bönnuð börnum. (13:16)
21.15 Kevin Hill (Unex-
pected) (10:22)
21.55 Strong Medicine 3
(Samkvæmt læknisráði 3)
(6:22)
22.40 Oprah Winfrey
23.25 Heroe’s Mountain
(Hetjusaga) Sannsöguleg
sjónvarpsmynd um atburð
sem vakti heimsathygli.
Aðalhlutverk: Craig
McLachlan, Tom Long og
Anthony Hayes. Leik-
stjóri: Peter Andrikidis.
2002.
01.05 Medical Inve-
stigations (Læknagengið)
(8:20)
01.45 Fréttir og Ísland í
dag
03.05 Ísland í bítið
05.05 Tónlistarmyndbönd
07.00 Olíssport
07.30 Olíssport
08.00 Olíssport
08.30 Olíssport
18.45 Olíssport
19.15 David Letterman
20.00 HM 2006 (Finnland -
Holland). Bein útsending
frá leik Finnlands og Hol-
lands í 1. riðli. Hollend-
ingar unnu fyrri leik þjóð-
anna, 3-1, í Amsterdam og
berjast við Tékka um sig-
urinn í riðlinum.
22.00 Olíssport
22.30 David Letterman
23.15 Tiger Woods. Hæfi-
leikar Tigers komu
snemma í ljós en í þáttaröð-
inni fá sjónvarpsáhorf-
endur að kynnast honum
frá ýmsum hliðum. Rætt er
við fjölskyldu og vini Tigers
sem og þekktar stjörnur úr
íþróttunum og skemmt-
anaheiminum. (2:3)
00.10 Olíssport
00.35 HM 2006 (Argentína
- Brasilía). Bein útsending
frá viðureign Argentínu og
Brasilíu.
Stöð 2 20.00 Strákarnir Sveppi, Auddi og Pétur halda
uppteknum hætti í kvöld og bregða á leik eins og þeim
einum er lagið. Það er víst að enginn er óhultur þegar kem-
ur að strákapörum Strákanna.
06.15 The Master of Dis-
guise
08.00 Since You Have
Been Gone
10.00 Uncle Buck
12.00 Trail of the Pink
Panther
14.00 The Master of Dis-
guise
16.00 Since You Have
Been Gone
18.00 Uncle Buck
20.00 Trail of the Pink
Panther
22.00 Relative Values
24.00 Smoke Signals
02.00 Ocean’s Eleven
04.00 Relative Values
RÁS2 FM 90,1/99,9 BYLGJAN FM 98,9
01.00 Fréttir. 01.03 Veðurfregnir. 01.10 Ljúfir
næturtónar. 02.00 Fréttir. 02.03 Næturtónar.
04.30 Veðurfregnir. 04.40 Næturtónar. 05.00
Fréttir. 05.05 Næturtónar. 06.00 Fréttir. 06.05
Einn og hálfur með Magnúsi R. Einarssyni.
07.00 Fréttir 07.05Einn og hálfur með Magnúsi
R. Einarssyni heldur áfram. 07.30 Morgunvaktin.
Fréttir og fróðleikur. 07.30 Fréttayfirlit. 08.00
Fréttir. 08.30 Fréttayfirlit. 08.30 Einn og hálfur
með Gesti Einari Jónassyni. 09.00 Fréttir.
10.00 Fréttir. 10.03 Brot úr degi. Umsjón:
Hrafnhildur Halldórsdóttir. 12.03 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Poppland. Umsjón:
Ólafur Páll Gunnarsson, Guðni Már Henningsson
og Freyr Eyjólfsson. 16.00 Fréttir. 16.10 Dæg-
urmálaútvarp Rásar 2. Starfsmenn dægurmála-
útvarpsins rekja stór og smá mál dagsins. 17.00
Fréttir. 18.00 Kvöldfréttir. 18.05 Fótboltarásin.
Bein útsending frá landsleik Íslands og Möltu.
20.00 Handboltarásin ásamt ásamt Ragnari Páli
Ólafssyni. Bein útsending frá landsleik Íslands og
Svíþjóðar frá Akureyri. 22.00 Fréttir. 22.10
Popp og ról. Tónlist að hætti hússins. 24.00
Fréttir.
05.00-07.00 Reykjavík síðdegis e.
07.00-09.00 Ísland í bítið
09.00-12.00 Ívar Guðmundsson
12.00-12.20 Hádegisfréttir
12.20-13.00 Óskalaga hádegi
13.00-16.00 Bjarni Arason
16.00-18.30 Reykjavík síðdegis
18.30-19.30 Fréttir Stöðvar 2 og Ísland í dag.
19.30 Bragi Guðmundsson
Fréttir: Alltaf á heila tímanum kl. 9.00-17.00
Sumarstef á
Rás 1
Rás 1 13.15 Undanfarin sumur
hefur Hanna G. Sigurðardóttir séð
um þáttinn Sumarstef á Rás 1. Í takt
við árstímann er þátturinn í léttum
sumartakti, jafnt fyrir fólk við sín dag-
legu störf og hina sem eru í fríi. Sum-
arstef er á dagskrá alla virka daga að
loknu hádegisleikriti, með rabbi, frá-
sögnum og tónlist, og fugli dagsins.
ÚTVARP Í DAG
07.00 Meiri músík
20.00 Game TV
20.30 Sjáðu
21.00 Tvíhöfði (e)
21.30 Real World: San
Diego. Raunveru-
leikaþáttur sem sýndur er
á þriðjudögum á PoppTíví.
7 einstaklingar sem þekkj-
ast ekkert: heimski Kan-
inn, svarti menntagaurinn,
kóreski innflytjandinn,
góða saklausa ljóskan, há-
fleygi listamaðurinn,
pönkrokk-stelpan og stór-
brjósta stelpan.
22.00 Meiri músík
Popp Tíví
17.55 Cheers - 3. þáttaröð
18.20 Brúðkaupsþátturinn
Já (e)
19.15 Þak yfir höfuðið (e)
19.30 Þak yfir höfuðið
19.45 Sjáumst með Silvíu
Nótt - (e)
20.10 Jack & Bobby
21.00 Providence
22.00 Law & Order Banda-
rískur þáttur um störf
rannsóknarlögreglumanna
og saksóknara í New York.
Rannsókn á dauða skokk-
ara sem var drepin af
grimmum hundi leiðir lög-
regluna á spor fanga í
Attica, lögmanna hans og
hóps sem efnir til hunda-
bardaga.
22.45 Jay Leno
23.30 CSI: Miami (e)
00.15 Cheers - 3. þáttaröð
Aðalsöguhetjan er fyrrum
hafnaboltastjarnan og bar-
eigandinn Sam Malone,
snilldarlega leikinn af Ted
Danson. Þátturinn gerist á
barnum og fylgst er með
fastagestum og starfsfólki
í gegnum súrt og sætt.
Þátturinn var vinsælasti
gamanþáttur í BNA 7 ár í
röð og fjöldi stórleikara
prýddi þættina. Þar má
nefna Woody Harrelson,
Rhea Perlman, Kirstie All-
ey og Kelsey Grammer en
persóna hans, Frasier,
kom einmitt fyrst fram á
Staupasteini. (e)
00.40 Boston Public
Bandarísk þáttaröð um líf
og störf kennara og nem-
enda í miðskólanum Wins-
low High í Boston.
01.20 John Doe Er John
Doe er að ráða fram úr
mjög ofsafengnum glæp
frömdun í listasafni kemst
hann að því að aðstoð-
arkona hans, Karen, er
viðriðin málið.
02.05 Óstöðvandi tónlist
Landsleikur Íslands og Möltu í Sjónvarpinu í kvöld
NÚ er undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í
knattspyrnu hafin og íslenska landsliðið tekur þátt
í baráttunni sem endranær.
Í dag mæta „strákarnir okkar“ Maltverjum í
forkeppni heimsmeistaramótsins á Laugardals-
velli.
Þetta er slagur neðstu liðanna í riðlinum en þau
gerðu markalaust jafntefli á Möltu í fyrra. Það má
ætla að íslenska landsliðið ætli sér stærri hluti í
þessum leik og eiga þeir eflaust eftir að standa sig
vel með dyggum stuðningi íslensku þjóðarinnar.
Leikurinn hefst klukkan 18.05. Fréttaágrip er
flutt í leikhléi klukkan 19, en fréttir eru svo klukk-
an 20 að leik loknum.
Morgunblaðið/Golli
Það er vonandi að íslenska landsliðið
fagni líkt og á þessari mynd sem tek-
in var í leik Íslendinga og Ungverja á
dögunum.
Ísland-Malta er í Sjónvarpinu í kvöld
klukkan 17.55.
Áfram Ísland
FM 95,7 LINDIN FM 102,9 RADÍÓ REYKJAVÍK 104,5 ÚTVARP SAGA FM 99,4 LÉTT FM 96,7 ÚTVARP BOÐUN FM 105,5 KISS FM 89,5 ÚTVARP LATIBÆR FM 102,2 XFM 91,9 TALSTÖÐIN 90.9
STÖÐ 2 BÍÓ