Morgunblaðið - 12.06.2005, Síða 6
6 | 12.6.2005
Gestir á Hótel Jörð lenda oft í undarlegum ferðalögumí tilveru sinni. Sumir þeirra drepa niður faraldsfætisínum og gista á hótelum, þar sem þeir eiga tíma-
bundið heimili. Þá getur reynst happadrjúgt að fara á hót-
elbarinn, fá sér heimsborgaralegan mojito kokkteil eða þurran
martíní:
Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða.
Flugan tyllti sér við barborðið á 101 hótel, allsendis ókvíðin
en full af þrá, og lét sig dreyma um að hún væri stödd á hinum
minningarhlaðna gististað Memory Motel á Þjóðvegi 66 í
Bandaríkjunum. Hugurinn hvarflaði líka um stund aftur í tímann á Harry’s Bar á
Hyatt Regency í Honolulu á Hawaí … Hundraðogeinn er hipp hótel, eiginlega A little
Trip to Heaven. Afgerandi rakspíra- og ilmvatnslykt, í dýrari kantinum, liggur í læðingi
og atvinnumannslegir barþjónar þjóna gestum af stakri stimamýkt. Barinn er frekar
bjartur en flauelsmjúkt myrkur er þó yfirleitt algjört „möst“ á svona stöðum. Sam-
anber settið í kvikmyndinni Lost in Translation, sællar minningar.
Hótelbarir, hvar sem er í heiminum, eiga flestir sameiginlegt að hafa annaðhvort
rómantískt yfirbragð eða eru mjög stílhreinir og avant garde. Svo getur verið frekar
fyndið að bregða sér á hótelbari á gististöðum úti á landi eins og í sveit Kristjáns Jó-
hannssonar, Skagafirðinum, þar sem bændur eru stundum stórtenórar í
hjáverkum og þenja brjóstkassa og raddbönd fyrir sveitunga sína og
snobbaða gesti úr höfuðborginni.
Niðurstaða Flugu á gagnsemi hótelbara: Upplagðir staðir til
veiða fyrir lausar og liðugar flugustelpur. Á hótelbarina koma
oft spennandi gestir til að fá sér drykk að loknum vel lukk-
uðum ráðstefnum eða fundahöldum. Ef þessir staðir eru
stundaðir er ekki ósennilegt að detta í lukkupottinn og
rekast á fræga ameríska leikara sem eru á höttunum eftir
kraftmiklu skemmtanalífi í Reykjavík. Það er heldur ekki
slæmt að dreypa á köldum kokkteil á hótelbarnum að ný-
lokinni ráðstefnu einhleypra eldflaugaverkfræðinga eða
ársfundi samtaka sjarmerandi sjentilmanna. Gestaflóran
er síblómstrandi og fjölbreytileg eða eins og Tómas kvað:
En það er margt um manninn á svona stað,
og meðal gestanna sífelldur þys og læti.
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.
Þvílík bjútifúl bongóblíða var þessa helgi að varla hélst nokkur
manneskja innandyra, hvorki á hótelbörum né annars staðar. Há-
tíð hafsins var í fullum gangi og höfuðborgin sneisafull af sól-
brúnu fólki. Sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll sat alsæll fyrir utan
stappfullt Kaffi Reykjavík með sinni undurfögru konu; Stein-
unni Þórarinsdóttur, myndlistamanni. Í Pósthússtræti hnaut
Flugustelpan um mjúka, hvíta bóm-
ullarhnoðra sem límdir voru við
gangstéttina og vísuðu veginn í
Gallerí Tugt. Þar stóð yfir opnun
hinna bráðungu og einstaklega efni-
legu myndlistamanna; Steinunnar
Harðardóttur og Sæmundar Þórs
Helgasonar. Flugan slúttaði svo
helginni með því að mingla á Mím-
isbar, hinum eina sanna hótel-
bar …| flugan@mbl.is
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Sigríður Freyja Ingimarsdóttir
og Snæbjörg Snæbjarnardóttir.
Happadrjúgir hótelbarir
og undarleg ferðalög …
FLUGAN
TÓNLEIKAR Anne Sofie
von Otter á Listahátíð
fóru fram í Háskólabíói.
ARKITEKTASTOFAN KOLLGÁTA
var opnuð á nýjum stað, í gömlu
kartöflugeymslunum á Akureyri.
Sigurður
Guðmundsson
og Daði
Hrafnkelsson.
Sigríður Theodóra
Guðmundsdóttir og
Guðbjörg Pálmadóttir.
MEGASUKK, Megas
og Súkkat, léku og
sungu á Grand Rokk.
Jean Ómarsdóttir og Lára Guðnadóttir.
Einvarður
Jóhannsson,
Eyþór Jósepsson
og Ingólfur
Guðmundsson.
Sif Knudsen
og Sibylle Köll.
Árni Árnason
og Bjarni
Reykjalín. L
jó
sm
yn
di
r:
S
ka
pt
i H
al
lg
rí
m
ss
on
Hallgrímur Ingólfsson
og Finnur Birgisson.
Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Hreiðar Ingi Þorsteinsson.
Sif Sigurðardóttir, Atli
Heimir Sveinsson og Ragn-
hildur Benediktsdóttir.
Jónína Herdís
Ólafsdóttir
og Truusje
Goetschalckx.
Edda Jónsdóttir
og Lára Martin.
... afgerandi rakspíra- og ilmvatnslykt, í dýrari kantinum, liggur í læðingi ...
Anna Katrín
Guðbrandsdóttir
og Inga
Árnadóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t