Morgunblaðið - 12.06.2005, Side 26
26 | 12.6.2005
H ótel Mamma á Hofteigi 10 er rótgróiðhótel. Það hefur verið rekið í þrjátíu ár.Tveir hótelgestir hafa tékkað sig út eneinn er eftir. Í raun ætti Hótel Mamma á
Hofteignum að vera Hótel Foreldrar, en móðirin er
framkvæmdastjóri heimilisins og allt í öllu. Hún er hót-
elstjórinn, það leikur enginn vafi á því, og kannski eðli-
legt að kenna hótelið við hana.
Frí áfylling á gæðahóteli | Á bak við margra ára hótelrekstur hljóta að vera gæði, væri
hann ekki annars löngu farinn á hausinn og gesturinn búinn að koma sér annað?
„Jú, veistu, þetta er gæðahótel. Það er til dæmis ákaflega góð þvottaþjónusta
hérna. Hún er sjálfvirk. Óhreinn þvottur hverfur hreinlega og skilar sér aftur sam-
anbrotinn og fínn,“ segir Auður Ásgeirsdóttir, yngsta barn foreldra sinna, og glott-
ir. Síðan fer hún að hlæja og segist reyndar oft þvo sjálf. Grínlaust. Að minnsta kosti
stundum. Hún setji alla vega þvottinn inn í vélina.
„Og svo gleymirðu honum þar og hann kemur samanbrotinn upp úr þvottahús-
inu,“ botnar móðirin Auður Ólafsdóttir og mæðgurnar hlæja báðar.
Hótel Mamma á Hofteignum býður ekki einungis upp á þvottaþjónustu og fata-
hreinsun, heldur er hægt að panta morgunmat og snæða á veitingastaðnum sem
býður upp á staðgóðan heimilismat. Hótelstjórinn virðist hafa hæfileika til að lesa
hugsanir gestsins og vita hvað hann vill.
„Það galdrast inn í ísskápinn það sem vitað er að mér finnst gott,“ viðurkennir
Auður yngri og segir áfyllinguna meira að segja fría. „Þessa dagana eru sérlega vin-
sæl skyr, ávextir og frosin ber sem síðan er blandað saman. Þá er þetta keypt,“ segir
Auður eldri eins og ekkert sé sjálfsagðara. „Guð, er ég svona dekruð?“ spyr Auður
yngri hins vegar hlæjandi. Hún hefur lengi haft íbúðarkaup í bígerð en ákvað í sam-
ráði við þróunarráð og gæðasvið hótelsins að ljúka fyrst háskólanámi.
„Ef ég tala um að yfirgefa hótelið draga foreldrarnir úr mér og benda á að það sé
hagstæðara að vera hér og safna fyrir innborgun á íbúð. Þegar seinasti gesturinn fer
verður húsið líka endanlega orðið of stórt.“
Leigubíll og lesefni | Eins og á alvöru hóteli er leigubíll í seilingarfjarlægð og mögu-
leiki er á bílaleigu. Reyndar þarf ekki að leigja bílinn, heldur má fá hann lánaðan.
Startgjaldið í leigubílinn er líka fellt niður. Það þarf ekki að borga fyrir farið. „Þau
eru voðalega oft til í að skutla mér,“ segir hótelgesturinn og bætir við að aðgangur
að bíl sé mikilvægur á hóteli sem þessu. Staðsetning gististaðarins skipti einnig
máli.
„Ætli ég væri hér nokkuð enn ef við ættum heima í Grafarvogi eða Kópavogi?
Þurfa ekki svona hótel að vera miðsvæðis? Héðan get ég
gengið bæði í skóla og vinnu á sumrin, þess vegna er nú
svo hentugt að vera hérna. Svo er aðbúnaðurinn líka svo
góður,“ segir Auður og blikkar hótelstjórann.
Góður aðbúnaður, já. Hótel eru metin eftir ákveðnu
flokkunarkerfi. Er aðgangur að síma á Hóteli Mömmu á
Hofteignum? Svarið er játandi. Er hægt að nálgast dag-
blöð og annað lesefni? Mæðgurnar kinka kolli. Er hægt
að láta vekja sig á morgnana? Hótelgesturinn fer að hlæja og segir vissulega mögu-
leika á slíku. Gestir komast líka inn og út allan sólarhringinn, aðgangur að tölvu og
Netinu er í boði og herbergisþjónusta er til staðar. Hvað með míníbar, er hann á
staðnum?
„Kannski ekki í stofunni en að minnsta kosti í mínu herbergi. Einmitt eins og á
alvöru hóteli!“ segir Auður yngri. Móðirin segir að þótt hún geri margt fylli hún
hins vegar ekki á barinn. Það verði gesturinn að sjá um sjálfur. „Það væri nú gott ef
hann fylltist sjálfkrafa,“ segir gesturinn hins vegar einungis og lítur glottandi á stjór-
ann.
Ást og hlýja | Á stærri hótelum er skóburstunarvél gjarnan á einum af göngunum.
Slíkt er ekki til staðar hér en möguleiki er á að komast bæði í skóbursta og feiti. Á
hótelinu er ekki lyfta en þar er bæði dyrasími og ákaflega vinaleg móttaka. Hót-
elherbergið sjálft er rúmgott og salernið nánast við dyrnar. Á baðherberginu eru
kynstrin öll af handklæðum og inni á herbergi sjónvarp með fjarstýringu – rétt eins
og á margra stjörnu hóteli. Í garðinum er ekki sundlaug en Laugardalslaugin er rétt
hjá. Það hlýtur að skipta máli. Hvernig er það, er aðgangur að hárþurrku á baðher-
berginu?
„Jú, jú, en ég á hana sjálf,“ segir Auður yngri. Hótelstjórinn lítur pollrólegur á
hana og spyr hver hafi gefið henni þurrkuna. Auður fer að hlæja og bendir vinsam-
lega á að þurrkan hafi verið fermingargjöf sem aldrei var gefin. Hún hafi dagað
uppi á heimilinu og endað sem afmælisgjöf hennar sjálfrar.
Hótel Mamma hefur augljóslega upp á margt að bjóða. Það er ekki að ástæðu-
lausu að útibú þess um borg og bý eru vinsæl meðal íslenskra ungmenna. En hvern-
ig er með greiðslufyrirkomulagið?
„Borgar maður ekki með ást og hlýju?“ spyr Auður yngri brosandi. Aðspurð seg-
ir hótelstýran kankvís að gesturinn standi yfirleitt í skilum. Sambúðin og hótelrekst-
urinn gangi ljómandi vel. Af syni fyrrverandi hótelgests, sem skottast um stofuna,
má ætla að töluverðar líkur séu á að Hótel Mamma verði í framtíðinni Hótel
Amma. | sigridurv@mbl.is
L
jó
sm
yn
d:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on
HERBERGISÞJÓNUSTA Á HÓTEL MÖMMU
HÓTEL MAMMA ER EF TIL VILL
VINSÆLASTA HÓTELIÐ AF ÖLL-
UM. EN ER ÞVOTTAÞJÓNUSTA Á
HÓTELINU, HANDKLÆÐI OG
HÁRÞURRKA? FYLGIR MORG-
UNMATUR? MÆÐGURNAR AUÐ-
UR ÓLAFSDÓTTIR OG AUÐUR ÁS-
GEIRSDÓTTIR RÆDDU MÁLIN.
Auður Ólafsdóttir
hótelstjóri horfir á Auði
Ásgeirsdóttur hótelgest
snæða morgunverð.