Morgunblaðið - 12.06.2005, Síða 29
Eins og gefur að skilja fylgir flokkuninni mikið landshornaflakk. „Ég fer á alla
gististaðina sem eru með í kerfinu og það eru alltaf einhverjir í hverjum lands-
hluta þannig að sumarið hjá mér er svolítið undirlagt af þessu. Það ætti a.m.k. að
bæta verulega landafræðikunnáttuna,“ segir Alda og skellir upp úr. „Í raun
finnst mér mjög gott að komast út af skrifstofunni því með þessu finnst mér ég
vera í betri tengslum við greinina sjálfa og það er ofsalega gaman að sjá öll þessi
hótel. Svo hittir maður mikið af sérstökum karakterum og stundum hittir maður
sömu hótelstjórana á mismunandi stöðum því sá sem var í Neskaupstað í fyrra er
kannski kominn að Stóru-Tjörnum í ár.“
Hún neitar því ekki að starfið gefi henni góða yfirsýn yfir gististaði á landinu
en hvernig skyldu íslensk hótel vera í samanburði við erlend? „Í raun finnst mér
standardinn hærri hérna en t.d. í Danmörku þaðan sem kerfið er upprunnið. Við
erum ströng á flokkunarskilyrðunum og íslensk hótel standa sig almennt mjög
vel í að fylgja þeim eftir.“ Alda ætti að vita hvað hún syngur því þegar hún fer til
útlanda í fríum á hún erfitt með að skilja stjörnugleraugun sín eftir heima. „Ég
er alltaf að líta í kringum mig og athuga hvernig gardínurnar séu og hvort það sé
ryk á rúmgaflinum,“ segir hún kankvís. „Maðurinn minn er eiginlega hættur að
nenna að fara með mér því ég er alltaf að tékka á listanum!“ | ben@mbl.is
„Það hefur aldrei komið
til þess að hótel hafi
misst stjörnu,“ segir
Alda Þrastardóttir,
verkefnastjóri
hjá Ferðamálaráði.
Handlaug á öllum herbergjum, eitt sal-
erni á hver 10 herbergi. Morgunmatur í
boði og alltaf hægt að komast inn og út.
Til viðbótar er bar eða afgreiðsla með
léttum veitingum auk veitingasalar fyrir
morgunmat.
Að auki er bað á herbergjum, sjón-
varp, útvarp og skrifborð. Afgreiðsla opin á
daginn og hægt að kaupa smávöru, lestr-
arefni o.fl. Tekið við greiðslukortum og
lyfta ef hæðir eru þrjár eða fleiri.
Að auki eru hægindastólar, sjón-
varp með fjarstýringu, gervihnattarásum og
kvikmynda– eða vídeórás. Herbergisþjón-
usta allan sólarhringinn, „a la carte“-veit-
ingastaður og hægt að fá morgunmat á her-
bergið. Lyfta ef hæðir eru tvær eða fleiri.
Að auki eru lúxusinnréttingar, ör-
yggishólf í herbergjum, lyfta ef hæðir eru
fleiri en ein og hægt er að fá sendan mat á
herbergi til kl. 23. Ritaraþjónusta í boði,
innisundlaug eða líkamsræktaraðstaða
með fagfólki, verslun með gjafavörur og
boðið upp á flutning á farangri upp í her-
bergi. Ekkert íslenskt hótel í kerfinu upp-
fyllir kröfur fyrir fimm stjörnu gististað.
Sjá nánar á www.ferdamalarad.is.
FLOKKARNIR FIMM