Morgunblaðið - 12.06.2005, Síða 30
30 | 12.6.2005
Eimskipafélagshúsið svonefnda sem löngum hefur sett svip sinn á miðbæinn,hefur opnað dyr sínar á nýjan leik. Sjórinn sem áður lamdi sjávarkambinnvið Hafnarstrætið hefur hopað fyrir margt löngu síðan. Enginn talar leng-
ur um Hafnarstrætið sem Strandgötuna. Pósthúsbygging sú sem samnefnt stræti
dregur nafn sitt af er komin í annan bæjarhluta. Verslun færst á önnur mið. Og
fyrrum merki Eimskipafélagsins, er síðar minnti óþægilega á alls óskylt herveldi,
hefur nú verið hulið með nýju merki staðarins.
Eimskipafélagshúsið sjálft – sem komist hefur heilsteypt frá breytingum á skipu-
lagi, tískusveiflum og tíðaranda – stillir sér nú upp í tilsniðnum búningi sem gest-
gjafi fyrir þá ferðamenn sem sækja landið heim og kjósa sér vandaðan samastað í
hjarta borgarinnar.
Bæjarstjórnarfundir við höfnina | „Óskabarn þjóðarinnar“, eins og sumir nefndu
Eimskipafélag Íslands, mun strax í upphafi hafa haft augastað á hentugri lóð við
höfnina fyrir starfsemi sína. Samningar gengu að lokum eftir og húsið var byggt á
tveimur lóðum þar sem áður stóðu pakkhús Knudtzons og hús Helga Helgasonar
kaupmanns við hina svokölluðu Bæjarbryggju. Tillögur Guðjóns Samúelssonar að
hinu nýja húsi urðu hlutskarpastar og hin hvíta, fjórlyfta bygging milli Tryggvagötu
og Hafnarstrætis, var reist á árunum 1919–21. Húsið þótti með glæsilegri húsum
bæjarins, og var reyndar stórum dýrara í byggingu en upphaflegar áætlanir gerðu
ráð fyrir.
Innandyra flutti fólkslyfta gesti staðarins hæðanna á milli, en slíkt var nýlunda
hérlendis. Eimskipafélagið hafði í upphafi aðsetur á 2. hæð hússins þar sem af-
greiðslusal félagsins var að finna, prýddan tréskurði Stefáns Eiríkssonar mynd-
skera. Salurinn var síðar friðaður. Aðrar hæðir voru leigðar út í áranna rás, en
merkir fundir og samkundur voru gjarnan haldnar í Kaupþingssalnum svonefnda,
þar sem bæjarstjórnarfundir voru m.a. haldnir um þriggja áratuga skeið. Þrátt fyrir
að byggingin væri stórhýsi á samtíma mælikvarða, var strax í upphafi gert ráð fyrir
viðbyggingu til vesturs, og reis hún árið 1979 eftir teikningu Halldórs H. Jóns-
sonar.
Vandað til verks í upphafi | Radisson SAS 1919 Hótel var opnað nú rétt fyrir helgi
í þessum fyrrum höfuðstöðvum skipafélagsins ásamt veitingastaðnum og setustof-
unni Salti á jarðhæð hússins. Andri Már Ingólfsson og fyrirtæki hans Heimshótel
ehf. festu kaup á húsinu á síðasta ári. Gjaldheimtuhúsið að Tryggvagötu 28 fylgdi
með í kaupunum og er heildarflatarmál hótelsins um fimm þúsund fermetrar.
NÝR GESTGJAFI
Í HÖFUÐBORGINNI
Radisson SAS 1919 Hótel opnar dyr sínar í sögufrægu húsi
zz
zz
z
HÖNNUN | SNÆFRÍÐ ÞORSTEINS
Barinn og veitinga-
staðinn Salt er að finna
á jarðhæð hússins,
en auk augljósrar
tengingar við samnefnt
krydd, vísar nafnið í
fyrri starfsemi
hússins.
Tímalausir stólar
Eames-hjóna prýða þar
gólf, í bland við sófa
Jósefs Hoffmanns frá
1910, gamlar hurðir
og sérsmíðuð
samtímahúsgögn.
Þar sem fólkslyftan var
áður teygir sig nú
stílhreinn stigagangur.
Loftskreytingar eru
arfur fyrri tíma.
Álverur Steinunnar
Þórarinsdóttur prýða
anddyri hótelsins.
L
jó
sm
yn
di
r:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on