Morgunblaðið - 12.06.2005, Page 32
32 | 12.6.2005
Margar hendur voru á lofti við lokaundirbúning er pistilskrifara bar að garði,
nokkrum dögum fyrir opnun. Ljósamenn, iðnaðarmenn og rafvirkjar á þönum.
Örar símhringingar og upplímdir minnislistar við herbergin yfir ýmsa þá smáhluti
er enn vantaði þar inn. Kassar á gólfum og gámar utandyra, en ljóst að vandað væri
mjög til í hvívetna.
Hótelið er fjögurra stjarna að sögn Andra Más, búið 70 herbergjum í fjórum
stærðarflokkum. Hann segir hótelinu ætlað að þjóna ört vaxandi hópi ferðamanna
er kjósa sér persónulegan næturstað, málaðan af sögu og andrúmslofti. Segir hann
fyrirtæki sitt Heimsferðir einbeita sér að ferðum manna landa á milli, og því hafi
verið leitað til sérhæfðar þekkingar hótelkeðjunnar Radisson SAS varðandi rekstur
hótelsins. Breytingar og aðlögun hússins að nýju hlutverki hafa staðið yfir um
margra mánaða skeið. Að sögn kom berlega í ljós við framkvæmdirnar hversu vel
var vandað til verks í upphafi og að byggingin henti einkar vel hinu nýja hlutverki.
Og þrátt fyrir umtalsverða aukningu á gistirýmum á höfuðborgarsvæðinu, hafi ver-
ið grundvöllur fyrir frekara framboð.
Veitingastaðurinn Salt tekur 65 manns í sæti og mun ásamt bar sínum þjóna
jafnt utanaðkomandi ferðamönnum sem heimamönnum. Matseðillinn er alþjóð-
legur, en Andri segir umtalsverða yfirlegu, þróun og vangaveltur liggja að baki því
að finna þar hinn rétta tón og samsetningu.
Tréverk handa framtíðinni | Andi samtímans svífur yfir innandyra. Herbergi rúm-
góð, lýsing mild og lofthæðin meiri en almennt gerist hérlendis. Húsgögn og inn-
anstokksmunir ýmist sérvaldir eða sérsmíðaðir í hinum ýmsu heimshornum.
Tæknivæddur nútíminn búinn að koma sér lipurlega fyrir í vistarverum, á meðan
loftlistar, hurðir, gólf og rými varðveita verksummerki eldri sögu og anda.
Fólkslyftan hin fyrsta yfirgaf húsið fyrir nokkrum áratugum síðan, en eftir stend-
ur tignarlegur stigagangur er klífur innviði byggingarinnar hæðanna á milli með
tilheyrandi andrými. Hvað hinn friðaða afgreiðslusal snertir voru uppi hugmyndir
um að taka innréttingarnar niður í heilu lagi og afhenda til varðveislu og sýnis, en
til þess fengust ekki tilskilin leyfi. Tréverkið var því plastað inn og klætt þili. Varð-
veitt á bak við nýja veggi sem leyndarmál er seinni tíma kynslóðir geta afhjúpað og
sótt, ef og þegar löngun er til. Á meðan geta Reykjavíkursálir samtímans notið mat-
ar og drykkjar í fáguðum faðmi hins sögufræga húss og beint sjónum sínum að öðr-
um, tímabærum, en um leið vandmeðförnum, betrumbótum á svæðinu.
| snaefrid@internet.is
Vandaður einfaldleiki
einkennir efnisval og
áferð herbergja um
leið og hin óvenju
mikla lofthæð og
miðbæjarútsýni
gefur líf.
L
jó
sm
yn
di
r:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on