Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 34
34 | 12.6.2005
Veruleikinn er oft lygilegrien skáldskapur og raun-veruleg hótel eru oft upp-
spretta bóksagna. Sögusvið Lost in
Translation eftir Sofiu Coppola er
Park Hyatt í Tókýó, en meginþema
frásagnarinnar er tvær einmana
hótelsálir sem tengjast vináttu-
böndum stutta stund. „Mig hefur
alltaf langað til þess að búa til
kvikmynd í Tókýó, ég þekki um-
gjörðina og man borgina vel frá
því að ég var yngri. Park Hyatt
hótelið er einn af mínum uppá-
haldsstöðum í heiminum. Tókýó er
erilsöm borg en innan veggja hót-
elsins ríkir kyrrð og friður. Hönn-
unin er líka forvitnileg og skrýtið
að hafa New York bar, djass-
söngvara og franskan veitingastað
á hóteli í Japan,“ segir Sofia Cop-
pola.
Á heimasíðu hótelsins (tok-
yo.park.hyatt.com) er vakin athygli
á kvikmyndaferli þess og jafnframt
vísað á heimasíðu Lost in Transla-
tion (lost-in-translation.com). Líf-
ið bendir á listina og öfugt.
Hryllingshótelið minnisstæða
Overlook í The Shining, kvikmynd
Stanleys Kubrick eftir sögu Steph-
ens King, er ekki allt sem það er
séð og reyndar bara til á filmu,
sem slíkt. Sögusviðið er einangrað
fjallahótel í Colorado, en í útisen-
um myndarinnar er bakgrunnur-
inn framhlið Timberline-fjallaskál-
ans, sem til er í raun og veru og
stendur á Hood-fjalli í Oregon-
ríki. Innviðir Overlook-hótelsins ímyndaða voru smíðaðir að fyrirmynd ýmissa
annarra hótela í Bandaríkjunum og bakhliðin var sett saman í kvikmyndaveri
EMI á Englandi, þar sem innisenurnar voru teknar upp. Blóðrauða karlasal-
ernið, þar sem hinn brjálaði Jack Torrance á í hrókasamræðum við framliðinn
læriföður sinn, herra Grady, er eftirmynd af snyrtiherbergi eftir Frank Lloyd
Wright í hóteli í Arizona-ríki, svo dæmi sé tekið. Ekkert limgerðisvölundarhús
er í garðinum við Timberline-skálann og hryllilega herbergið 237, sem vekur
sérstakan ugg í brjósti þeirra sem séð hafa Shining, er heldur ekki til. Í sögu
Stephens King er umrætt herbergi reyndar númer 217, en því var breytt í kvik-
myndinni að ósk eigenda Timberline-fjallaskálans, sem óttuðust að enginn
myndi vilja búa í herbergi 217 eftir að myndin kæmi fyrir almenningssjónir, þótt
hótelið sé gerólíkt Overlook-hótelinu að innanverðu. Ekkert herbergi er númer
237 í Timberline-skálanum. Upphafsatriði myndarinnar, þar sem litla fjöl-
skyldan, Jack, Wendy og Danny, ekur grunlaus á vit hins skelfilega, var tekið
upp í Glacier-þjóðgarðinum í Montana.
Hermt er að Stephen King hafi fengið innblástur að The Shining í herbergi
217 í Stanley-hótelinu í Colorado og segir sagan að stofnendur hótelsins, F.O.
og Flora Stanley gangi þar aftur. Mun herra Stanley leika á flygil í tónlistar-
herberginu annað veifið og koma við reglulega í knattborðsherberginu og lobbí-
inu í sinni draugalegu mynd.
Raunveruleikinn undirstaðan | Rithöfundurinn Arthur Hailey var blaðamaður
hjá tímaritinu Bus and Truck áður en hann náði inn á metsölulista með skrif sín.
Meðal þekktustu verka hans eru Airport og Hotel, sem kom út árið 1965, en
margar af sögum hans urðu bæði að kvikmyndum og framhaldsþáttum. Eitt að-
alsmerkja skáldverka Haileys er traustur grunnur þurra staðreynda og í tilviki
Hotel voru regluleg hótelstarfsemi og barátta við aðsteðjandi ógn hótelkeðj-
unnar þungamiðjan. „Ég hef ekki fundið neitt upp. Þegar fólk kaupir bækur er
það á höttunum eftir kynlífi, ofbeldi
og bláköldum staðreyndum,“ sagði
Hailey. Í kjölfarið var haft eftir Ant-
hony Burgess: „Allt þetta er að finna
í bókum Arthurs Hailey, þar sem
sögupersónurnar ræða vandamál í
hótelrekstri í miðju framhjáhaldi, rétt
áður en þær eru lamdar í spað.“
Í sögu Haileys er hótelið sem allt
snýst um St. Gregory-hótelið í New
Orleans. Fyrirmynd þess mun vera
hið sögufræga Fairmont-hótel í sömu
borg og haft fyrir satt að margir
starfsmanna þess hafi kannast við
persónurnar í bók Haileys þegar hún
kom út. Einnig þykjast margir muna
eftir höfundinum sjálfum á sífelldu
vappi um húsið með minnisblokk í
hendi. Framhlið hótelsins, sem sést í
sjónvarpsþáttaröðinni, er hins vegar
Fairmont-hótelið á Nob Hill í San Francisco og var móttakan smíðuð í kvik-
myndaveri í Hollywood eftir sömu fyrirmynd. Að lokum fylgja upphafssetning-
arnar í margfrægri hótelsögu Haileys:
„Ef hann fengi að ráða, hugsaði Peter McDermott með sér, hefði hann sagt
húslöggunni upp fyrir langalöngu. En hann hafði ekki fengið vilja sínum fram-
gengt og nú var hinn akfeiti fyrrum lögvörður fjarverandi þegar mest á reið,
eina ferðina enn.“ helga@mbl.is
UMGJÖRÐ OG INNBLÁSTUR
KVIKMYNDIR | HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR
Raunveruleg og samsett hótel leika stórt hlutverk í nokkrum þekktum myndum
Sögupersónurnar ræða
vandamál í hótelrekstri í
miðju framhjáhaldi, rétt áður
en þær eru lamdar í spað.
Park Hyatt-hótelið í Tókýó er kyrrlát og friðsæl umgjörð mitt í erli
stórborgarinnar. Bill Murray og Scarlett Johansson í hlutverkum
sínum sem tvær einmana sálir í leit að mannlegri nánd.
James Brolin og Connie Sellecca léku Peter
McDermott og Christine Frances í hótelsápu
Arthurs Hailey fyrir margt löngu.
Jack Nickolson leikur geðbilaðan umsjónarmann sem nær
tengslum við framliðinn forvera sinn, herra Grady, á baðherbergi í
stíl Franks Lloyds Wrights. Timberline-fjallaskálinn í Oregon lék
framhlið hins hryllilega Overlook-hótels.