Morgunblaðið - 09.07.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 7
FRÉTTIR
M
IX
A
•
fít •
5
0
7
6
5
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Sumarið er okkar tími!
Tilvalið að líta inn
Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Végarður í Fljótsdal
Kynnið ykkur Kárahnjúkavirkjun og
allt sem henni viðkemur í Végarði.
Tilvalið að koma þar við áður en
haldið er upp að Kárahnjúkum.
Sultartangastöð
ofan Þjórsárdals
„Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð
sýning um mannlífið í Þjórsárdal
í 1100 ár.
Blöndustöð í Húnaþingi
Þorir þú 200 metra niður í jörðina?
Hvað verður í göngum Blöndustöðvar
í sumar? Magnaður viðkomustaður.
Kröflustöð í Mývatnssveit
Allt um Kröfluelda í Gestastofu.
Kynnist eldsumbrotunum sem urðu
í nágrenni Kröflustöðvar 1975-1984.
„Hreindýr og dvergar“
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
sýnir magnaða tréskúlptúra
í Laxársstöð í sumar.
„Hvað er með Ásum?“
Frábær sýning Hallsteins
Sigurðssonar, sem hlotið
hefur einróma lof.
Ljósafosstöð í Soginu
„Ár og kýr“ Jóns Eiríkssonar komnar
suður. 365 kúamyndir sem hlotið hafa
verðskuldaða athygli.
Einnig ljósmyndasýning Guðmundar frá
Efri-Brú „Oft er í holti heyrandi nær“.
Hvernig verður rafmagn til?
Hvers vegna er rafmagn á Íslandi umhverfisvænna
en hjá öðrum þjóðum?
Laxárstöðvar í Aðaldal
Heimsókn til Landsvirkjunar er upplýsandi og skemmtileg
Á FUNDI skipulags- og byggingar-
ráðs Hafnafjarðarbæjar í síðustu
viku var samþykkt einróma að
heimila tökur á kvikmynd Clints
Eastwoods í Krýsuvík.
Ákvörðuninni var mótmælt af
stjórn Reykjanesfólkvangs, sem
frétti af málinu í gegnum fjölmiðla,
og umhverfisnefnd Hafnarfjarðar.
Ómar Smári Ármannsson, náttúru-
unnandi og áhugamaður um sögu
Reykjaness, segir að ekki hafi verið
farið að settum reglum um fólk-
vanga við leyfisveitinguna.
Vísar hann til auglýsingar um
Reykjanesfólkvang frá 1. janúar
1975, en þar stendur: „Samvinnu-
nefnd sveitarfélaganna fer með
stjórn fólkvangsins og er hún skipuð
einum fulltrúa frá hverju sveitarfé-
lagi.“ Ómar segir ljóst að sveitar-
félögin sem sameinuðust um
Reykjanesfólkvang á sínum tíma
hafi falið ráðstöfun hans stjórn fólk-
vangsins. „Samþykkt stjórnar
Reykjanesfólkvangs lá hins vegar
ekki fyrir þegar ákveðið var að veita
leyfi fyrir kvikmyndatökunum og
því var ekki farið eftir settum
reglum.“
Nýting fólkvangsins
Fólkvangur er friðlýst landsvæði
sem ætlað er til útivistar og almenn-
ingsnota. Heimilt er þó að nýta
landið skv. samvinnusamningi sem
sveitarfélög setja sér um starfsemi
fólkvangsins. Í auglýsingunni um
Reykjanesfólkvang segir t.d. að allt
jarðrask sé bannað en undanskilin
er hagnýting jarðhita og nýting til
búrekstrar.
„Þegar nýta á landið á annan hátt
en kveður á um í samvinnusamn-
ingnum á að láta stjórn samvinnu-
nefndar fólkvangsins vita svo hún
geti metið hvort nýtingin samræm-
ist upphaflegum markmiðum fólk-
vangsins,“ segir Ómar Smári.
Hrefna Sigurjónsdóttir, formaður
stjórnar Reykjanesfólkvangs, segir
hins vegar að nefndinni hafi ekki
verið kunnugt um fyrirhugaðar
kvikmyndatökur fyrr en fjölmiðlar
hófu að flytja fréttir um málið. „Við
mótmæltum þessum vinnubrögðum.
Þegar við fengum fregnir af málinu
lá álit Umhverfisstofnunar fyrir og
málið virtist frágengið af hálfu
bæjarstjórnarinnar,“ segir Hrefna.
Gildi friðlýsingarinnar
Ómar Smári segir ákvörðun og
vinnubrögð bæjaryfirvalda vekja
spurningar um markmið og starf-
semi fólkvanganna. „Ef friðlýst land
og fólkvangar eiga að hafa raun-
verulegt gildi umfram orðanna
hljóðan verður að sýna það í verki.
Þegar gengið er framhjá stjórn fólk-
vangsins þegar nýting landsins er
ákveðin, eins og gert var í þessu til-
felli, er ástæða til að efast um að
gildi landsins séu höfð að leiðarljósi.
Núna, á þrjátíu ára afmæli Reykja-
nesfólkvangsins, er ástæða til að
staldra við og meta nýtingu hans og
þeirra verðmæta sem hann hefur
upp á að bjóða til framtíðar,“ segir
Ómar Smári og hyggst hann bjóða
áhugasömum í göngu- og kynnisferð
upp Arnarfell á næstunni.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Ómar Smári Ármannsson fyrir miðju ásamt Kristjáni Pálssyni og Sigríði
Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra í gönguferð um Reykjanesskaga.
Segir leyfi fyrir kvik-
myndatöku ekki
samkvæmt reglum
Arnarfell við Krýsuvík.
GREEN Globe 21, hin alþjóðlegu fé-
laga- og vottunarsamtök á sviði
sjálfbærrar ferðaþjónustu, hafa
veitt Guðrúnu Bergmann viður-
kenningu fyrir starf sitt á sviði um-
hverfismála innan ferðaþjónustu og
Green Globe 21. Guðrún hefur unn-
ið ötullega að umhverfisvænni
ferðaþjónustu hér á landi og í því
sambandi má nefna eigið fyrirtæki,
Hótel Hellna, vinnu að Green Globe
21-vottun fimm sveitarfélaga og
þjóðgarðs á Snæfellsnesi og sam-
starf við Ferðaþjónustu bænda á
þessu sviði.
Þá hefur hún
einnig kynnt Ís-
land og Green
Globe 21-
verkefnið á er-
lendri grundu.
Þess má geta að
fyrr á þessu ári
var hún kosin
ferðamálafröm-
uður ársins af út-
gáfufélaginu Heimi, segir í frétta-
tilkynningu.
Fær viðurkenningu
frá Green Globe
Guðrún
Bergmann
Guðrún Bergmann á Hellnum