Morgunblaðið - 09.07.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Eflaust hafa einhverjirundrast að hlutabréfa-vísitölur í heiminumskyldu ekki hafa lækkað
jafnmikið og raun ber vitni í kjölfar
hryðjuverkanna í London í fyrra-
dag. Áhrifin á markaði voru ekki
meiri en svo að bandarísku vísitöl-
urnar Dow Jones, Nasdaq og S&P
500 hækkuðu allar seinna um dag-
inn. Í ljósi þess að vísitölur um heim
allan hrundu í kjölfar hryðjuverka-
árásanna á World Trade Center
hinn 11. september 2001 er ekki úr
vegi að spyrja sig hvers vegna sama
þróun átti sér ekki stað að þessu
sinni.
Eðlileg dýfa
Til skamms tíma sveiflast mark-
aðir og er stundum erfitt að gera sér
grein fyrir hver ástæða þessa flökts
er. Gildir þá einu hversu skilvirkir
markaðirnir eru, flökt á sér alltaf
stað. Þróun hlutabréfamarkaða í
Evrópu í kjölfar sprenginganna í
London var alls staðar svipuð, vísi-
tölur lækkuðu hratt um morguninn
en þegar dró nær hádegi tóku þær
að hækka á ný. Það er fullkomlega
eðlilegt að markaðir hafi tekið dýfu í
kjölfar árásanna því verð hlutabréfa
endurspeglar þær upplýsingar sem
markaðsaðilar hafa, um fyrirtæki og
ástandið í heiminum almennt. Í kjöl-
far hryðjuverka ríkir almenn óvissa
um framhaldið. Er þetta bara byrj-
unin eða er von á fleiri slíkum ódæð-
um? Spurningin er hvers vegna
markaðir voru svona fljótir að jafna
sig.
Eins og áður sagði er ekki auðvelt
að drepa fingri á einhverja eina
ástæðu en sennilega er hér um sam-
spil nokkurra þátta að ræða.
Takmörkuð efnahagsleg áhrif
Sérfræðingar sem erlendir fjöl-
miðlar hafa talað við telja flestir að
þessi hryðjuverk muni ekki hafa
langvarandi áhrif á markaði eða
hagkerfi. Máli sínu til stuðnings
benda þeir á þróunina í kjölfar
hryðjuverkanna í Istanbúl 2003 og í
Madríd 2004. Greint er frá þessu í
sænska dagblaðinu Dagens Ny-
heter.
„Spænskur efnahagur varð ekki
fyrir miklu áfalli,“ segir Ethan
Harris, aðalhagfræðingur Lehman
Brothers, í samtali við sænsku
fréttaþjónustuna Direkt en árið
2004 var hagvöxtur á Spáni meiri en
fjögur undangengin ár. Bloomberg
News greinir frá því að ferðaþjón-
ustan á Spáni, sem er ein mikilvæg-
asta tekjulind landsins, hafi jafnað
sig á innan við einum mánuði.
Hryðjuverkin í Istanbúl í nóvem-
ber árið 2003 höfðu ekki heldur nei-
kvæð áhrif á hagkerfið til langs tíma
litið og var hagvöxtur þar í landi
8,9% á síðasta ári samkvæmt DN.
Með þetta í huga segir Aline Schill-
ing, hagfræðingur hjá Fortis Bank í
Amsterdam, við Bloomberg News
að efnahagsleg áhrif hryðjuverk-
anna í London komi til með að vera
takmörkuð. „Yfirleitt bregðast fjár-
málamarkaðirnir umsvifalaust við
en árásirnar í Madríd höfðu ekki
langvarandi áhrif,“ segir hún.
Mikilvægt að loka ekki
Spurningunni hvers vegna við-
brögð markaðarins við þessum síð-
ustu voðaverkum eru svo skamm-
vinn er þó enn ósvarað. Blaðamaður
DN vitnar í Wall Street Journal sem
gerir því skóna að markaðurinn sé
orðinn óþægilega vanur að bregðast
við hryðjuverkum af þessari stærð-
argráðu.
Þetta er rökrétt skýring, sér-
staklega í ljósi þess hver viðbrögðin
urðu við árásunum á Tvíbura-
turnana, sem voru fyrstu árásirnar
af þessu tagi. Þá var kauphöllinni í
New York lokað í fjóra daga, nokkuð
sem jók enn á óvissuna. Ekki skal
hér úrskurðað um hvort þetta voru
mistök en engu síður er mikilvægt
að innviðir samfélagsins haldi áfram
að virka.
Þetta hefur reynslan kennt mark-
aðsaðilum sem, eins og áður sagði,
eru farnir að verða vanir voðaverk-
um af þessu tagi. Þetta kom berlega
í ljóst þegar líða tók á daginn í fyrra-
dag og evrópskar hlutabréfavísitölur
tóku að jafna sig eftir fyrsta áfallið.
Jákvæð þróun að undanförnu
Annað sem eflaust hefur áhrif er
sú staðreynd að hlutabréfamarkaðir
hafa þróast mjög jákvætt á undan-
förnum misserum, sérstaklega í
Evrópu. FTSE 100-vísitalan hefur
t.d. hækkað um 22% frá því í ágúst í
fyrra og CAC 40-vísitalan í París
hefur hækkað um 23%.
Þegar ráðist var á Tvíbura-
turnana í september 2001 var mark-
aðurinn á hraðri niðurleið eftir að
tæknibólan sprakk. Áfallið sem kom
á markaði í kjölfarið og hin mikla
óvissa sem ríkti varð einungis til
þess að dýpka lægðina.
Reuters
Kona gengur til vinnu sinnar eftir Queen Victoria Street í miðborg London.
Óþægilega
vanur markaður
Fréttaskýring | Áhrif hryðjuverkanna í Lond-
on á hlutabréfamarkaði voru skammvinn. Guð-
mundur Sverrir Þór veltir ástæðunni fyrir sér.
sverrirth@mbl.is
FJÖLMIÐLAR víða um heim brugð-
ust í gær við hryllingnum í London
með því að minna á, að hryðjuverkin
væru ógn, sem ekki væri bundin við
Bretland eitt, heldur beindist hún
gegn öllum hinum frjálsa heimi. Sum-
ir nefndu þó einnig, að hið svokallaða
„heimsstríð“ George W. Bush Banda-
ríkjaforseta gegn hryðjuverkum virt-
ist ekki hafa borið mikinn árangur.
„Hryðjuverkamennirnir eru mitt á
meðal okkar. Þeir taka þátt í ráð-
stefnum og koma jafnvel að undir-
búningi Ólympíuleikanna og það
minnir okkur á, að við eigum öll í
stríði,“ sagði rússneska blaðið Vrem-
ya Novostei og í hinu þýska Bild
sagði, að hryðjuverkaógnin hefði
færst nær og hér eftir gæti enginn
verið öruggur.
Hernaður ekki
rétt viðbrögð
„Hvenær verður það næsta?“
spurði tékkneska blaðið Mlada
Fronta Dnes og sagði, að heimurinn,
og ekki aðeins vestræn ríki, ætti eftir
að upplifa margan 11. september.
Þýska blaðið Die Welt sagði, að
hryðjuverkin hefðu ekki beinst gegn
bresku „krossfararíkisstjórninni“,
heldur almennt gegn þeim, sem ekki
væru múslímar, en önnur blöð, til
dæmis Gazeta Wyborcza í Póllandi og
Tagesspiegel í Þýskalandi, sögðu, að
ekki væri hægt að líta á hryðjuverkin
nema sem hefnd fyrir stuðning
bresku ríkisstjórnarinnar við þá
bandarísku í Írak og Afganistan.
Í danska blaðinu Politiken var var-
að við frekari hernaði í hryðjuver-
kastríðinu: „Nú skiptir mestu fyrir
vestræna leiðtoga að lægja öldurnar.
Að bregðast nú við með hernaði
myndi hafa alvarlegar afleiðingar.
Vestræn ríki verða að endurskoða að-
ferðir sínar í hryðjuverkastríðinu.“
Í mörgum evrópskum dagblöðum
var Bretum og íbúum London hrósað
fyrir æðruleysi frammi fyrir hörm-
ungunum í fyrradag og það sagt
minna helst á þrautseigju þeirra í síð-
asta stríði. „Enn einu sinni eiga Bret-
ar aðdáun okkar skilda,“ sagði hol-
lenska blaðið De Volkskrant.
Óttast aukna
andúð á múslímum
Fjölmiðlar í löndum múslíma for-
dæmdu í gær hryðjuverkamennina
sem huglausa aumingja en víða kom
fram nokkur ótti við, að múslímar al-
mennt, ekki síst í Evrópu, yrðu látnir
gjalda voðaverkanna.
„Blóðugur jarðskjálfti skekur
London“ var aðalfyrirsögnin í Al-
Khaleej, dagblaði, sem gefið er út í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um. Þar sagði, að glæpirnir í London
væru „svívirða“ en jafnframt, að flest-
ir Evrópubúar og margir vestrænir
leiðtogar hefðu varað við innrásinni í
Írak og sagt hana óréttlætanlega.
Samt hefðu nokkur ríki ráðist í hana
með blóðugum afleiðingum, sem ekki
sæi fyrir endann á.
Í Sádi-Arabíu sagði Saudi Gazette,
að ekki væri hægt að segja, að hryðju-
verkin í London hefðu komið á óvart.
Með þeim væri hins vegar líka verið
að sverta ímynd íslams og múslíma
um allan heim. Al-Sharq í Qatar
kvaðst óttast hefndaraðgerðir gegn
múslímum í Evrópu en að ekki væri
unnt að skilja alveg á milli „glæpa-
verka al-Qaeda“ og atburða í heimi
múslíma:
„Þegar stórveldi á borð við Banda-
ríkin ræðst inn í önnur ríki og hersit-
ur þau, þá verður það alltaf til að
kynda undir hatri og ofstæki.“
„Hvenær
verður það
næsta?“
Fjölmiðlar í Evrópu og múslíma-
löndum fordæma voðaverkin
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Reuters
Sádí-arabísk kona les fréttir af árásunum í London á heimili sínu í Riyadh í gær.
Tókýó. AFP. | Á degi hverjum fara
milljónir manna með neðanjarðar-
lestum í öllum helstu stórborgum
heimsins en sérfræðingar segja, að
það sé næstum útilokað að koma í
veg fyrir, að þau verði vettvangur
hryðjuverka á borð við þau, sem unn-
in voru í London í fyrradag.
Tilgangur hryðjuverkamanna með
því að ráðast á almenningsfarartæki
er að valda sem mestri skelfingu
enda eiga flestir ekki um annan
ferðamáta að velja. Þannig var það í
London í fyrradag og þannig var það
í Madrid á Spáni fyrir rúmu ári. Þá
týndi alls 191 maður lífi.
„Helstu skotmörk hryðjuverka-
manna nú eru samgöngufyrirtæki og
einkafyrirtæki, ekki stjórnarbygg-
ingar eða herstöðvar enda svo miklu
erfiðara að koma höggi á þær,“ segir
Myles Newlove, framkvæmdastjóri
Aurora Intelligence, stofnunar, sem
fæst við alþjóðlegt hættumat og við-
búnað og er með aðsetur í Ástralíu.
„Miklu skiptir, að fólk, sem notar
lestir eða strætisvagna, hafi augun
hjá sér og láti strax vita af öllu grun-
samlegu.“
Neðanjarðarlestakerfið í Tókýó er
það fjölfarnasta í heimi og þar hefur
gæsla verið stóraukin vegna hryðju-
verkanna í London. Hefur hún raun-
ar verið mjög ströng síðan í mars
1995 þegar liðsmenn sértrúarsafnað-
ar slepptu út taugagasi í yfirfullri
lest og drápu 12 manns.
Á síðasta ári stóðu alsírskir öfga-
menn fyrir nokkrum árásum í neð-
anjarðarlestinni í París, drápu alls
átta manns, og í einni árás þar 1996
féllu fjórir.
Óvinnandi verk
að skoða farangur
Í Tókýó og víðar hefur verið gripið
til þess að fjarlægja allar ruslafötur
en yfirmenn öryggismála segja, að
útilokað sé að fylgjast með farangri
farþeganna, þeirra 5,69 milljóna
manna, sem daglega fara með neðan-
jarðarlestinni í höfuðborg Japans.
Japanir eins og Bretar eru banda-
menn Bandaríkjanna í Írak þar sem
600 japanskir hermenn taka þátt í
ýmsu uppbyggingarstarfi en ekki í
neinum hernaðaraðgerðum. Yoshit-
aka Murata, yfirmaður almanna-
varnaráðsins í Japan, segir, að vitað
sé, að Japan og japanskir hagsmunir
séu á lista al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna yfir væntanleg skot-
mörk. Með það í huga megi aldrei
slaka á árvekninni.
Lestirnar auðvelt skotmark
Hryðjuverk í London