Morgunblaðið - 09.07.2005, Blaðsíða 18
Á KYNNINGARSPJALDI fyrir framan innganginn að King’s
Cross-lestarstöðinni í London má sjá auglýsingu vegna sýninga
á bandarísku bíómyndinni „Innrásin frá Mars“, sem á ensku
kallast „War of the Worlds“. Og sumir telja að í hinu svokallaða
hryðjuverkastríði samtímans takist einmitt á tveir heimar;
heimur strangtrúaðra og róttækra múslíma annars vegar og
hinn vestræni heimur hins vegar.
En það er ekki að sjá á fólkinu sem blaðamaður Morgunblaðs-
ins tekur tali á King’s Cross í gærmorgun, nákvæmlega sólar-
hring eftir að sprengja sprakk þar í neðanjarðarlest með
hörmulegum afleiðingum, að það telji stríðsástand vara í bresku
höfuðborginni. Flestir virðast staðráðnir í að láta atburði
fimmtudagsins ekki hafa áhrif á líf sitt, dagblaðasalinn fyrir
framan innganginn er mættur á sinn stað eins og venjulega og í
raun eru ekki mikil verksummerki a.m.k. ofanjarðar. Það er
helst að sá aragrúi blaða- og fréttamanna sem kominn er á vett-
vang gefi til kynna að ekki sé allt með felldu.
Fjöldi lögreglumanna er þó auðvitað á staðnum líka og þeir
koma í veg fyrir að nokkur maður fari ofan í neðanjarðarlest-
irnar við King’s Cross; þær ganga ekki í dag. Ekki þarf að efast
um að þar er heldur óhugnanlegt um að litast. Og vitaskuld eru
menn á nálum; í þrígang er gefin út viðvörun á neðanjarðarlest-
arstöðvunum í gær vegna pakka sem þykja grunsamlegir. Á
stöðinni við Liverpool-stræti, þar sem fyrsta sprengjan sprakk í
fyrradag, er öllum sagt að stefna rakleitt að næstu útgönguleið.
Gafst ekki tími til að hugsa
Ray Shields, varðstjóri í Lundúnalögreglunni, segir í samtali
við Morgunblaðið að ofanjarðarlestarkerfið, sem tengir mið-
borg London við úthverfin, gangi eins og venjulega og að vonast
sé til að hægt verði að koma starfsemi neðanjarðarlestanna í
venjulegt horf sem fyrst.
Óhjákvæmilegt sé þó að rannsóknarlögreglan fái að athafna
sig við King’s Cross áður en sú stöð verður opnuð.
Shields var meðal þeirra lögreglumanna sem fyrstir komu á
staðinn á King’s Cross í fyrradag. „Við mættum miklum
straumi fólks sem var að flýta sér upp úr neðanjarðarlestar-
kerfinu. Margir voru þaktir svörtu sóti, sumir voru augljóslega
slasaðir. Flestir voru í mikilli geðshræringu. Við rýmdum lest-
arstöðina sjálfa, í kjölfarið gátum við flutt hina slösuðu til þann-
ig að sjúkraliðar gætu sinnt þeim,“ segir hann.
Shields er spurður að því hvort hann hafi undireins áttað sig á
því að um hryðjuverk væri að ræða. „Ekki fyrr en við komum
niður í neðanjarðarlestarkerfið, þegar við sáum lestina sjálfa og
skaðann sem sprengjan hafði valdið,“ svarar hann.
En komu upp minningar um árásina á Bandaríkin 11. sept-
ember 2001?
„Í sannleika sagt þá var ég aðeins að hugsa um fólkið sem
þarfnaðist aðstoðar okkar,“ svarar hann blaðamanni. „Það var
kannski ekki fyrr en eftir fimm eða sex klukkutíma sem við gáf-
um okkur tíma til að drekka kaffibolla. Fyrst þá fórum við að
velta fyrir okkur hver bæri ábyrgðina og öðrum þess háttar
hlutum.“
Komst ekki heim til sín
Andspænis inngangnum að King’s Cross-lestarstöðinni er lít-
il verslun, þar vinnur Sandra Zambelli. Hún sagðist ekki hafa
fundið fyrir sprengingunni, hins vegar hefði verið gefin við-
vörun um að bilun væri í lestarkerfinu.
Það var ekki fyrr en fólk tók að streyma út af lestarstöðinni,
allir sótugir og rykugir, sem hún áttaði sig á því að eitthvað
slæmt kynni að hafa gerst.
Fréttir af sprengingu á lestarstöðinni við Liverpool-stræti,
sem er talsverða vegalengd í burtu, rímuðu ekki alveg við að
menn væru að koma upp úr King’s Cross-lestarstöðinni þaktir
sóti og ryki.
„Fljótlega áttaði maður sig á því að um fleiri en eina spreng-
ingu var að ræða,“ segir Zambelli. Skömmu síðar voru lögregla
og björgunarsveitir komnar á vettvang. „Þeir stóðu sig mjög
vel, náðu strax tökum á aðstæðum. Ég fæ ekki hrósað þeim nóg-
samlega,“ segir hún.
Zambelli segist ekki hafa getað farið heim um kvöldið, hún
búi í úthverfi Lundúna og samgöngur lágu niðri. Hún gisti því
um nóttina á hóteli við Russell-torg. Hið sama neyddust margir
aðrir til að gera, það var erfitt að fá hótelherbergi í London
þetta kvöld.
Skammt frá King’s Cross er Tavistock-torg, þar sprakk
sprengja um borð í strætisvagni þannig að efri hlutinn þeyttist
af. Í gær var búið að girða nánasta umhverfi af og lögreglan
kom í veg fyrir að hægt væri að nálgast torgið. Brak strætis-
vagnsins var þar enn og unnið var að rannsókn á því. Vangavelt-
ur voru uppi um það hvort um sjálfsmorðsárás hefði verið að
ræða, en engin fordæmi eru fyrir slíku í sprengjutilræði á Bret-
landi. Yfirvöld sögðu í gær að ekkert hefði komið fram sem
benti til þess að um sjálfsmorðsárás hefði verið að ræða en
áfram væri unnið að rannsókninni.
Aðeins íbúar á þessum slóðum fengu aðgang að hverfinu, sem
og fólk sem vinnur í nágrenninu.
Blaðamaður hitti Stephanie Brittan að máli en hún vinnur
skammt frá þeim stað, þar sem strætisvagninn sprakk. Brittan
var að bíða þess að vera hleypt sína leið en var greinilega enn í
talsverðri geðshræringu. „Ég heyrði sprenginguna, hávaðinn
var gífurlegur og byggingin hristist öll,“ segir hún. „Það varð al-
gert öngþveiti,“ bætir hún við.
Rýma þurfti bygginguna sem Brittan starfar í, var fólki vísað
á hótel í nágrenninu og komst hvergi fyrr en síðla dags. „Ég tók
strætisvagninn í vinnuna í dag. Það gekk ágætlega en það var
mjög skrýtið andrúmsloftið. Það voru allir svolítið taugaveikl-
aðir, ég veit að það á líka við um mig,“ sagði hún.
Ætla alls ekki að láta
ódæðið breyta lífi sínu
Íbúar London virtust yfirvegaðir og
ákveðnir í að láta hryðjuverkamenn
ekki raska lífsháttum sínum þegar
Davíð Logi Sigurðsson fór að
árásarstöðunum í gær.
Reuters
Lestarfarþegar lesa blöðin á leið til vinnu sinnar í London í gærmorgun. Lestarsamgöngur komust að mestu leyti aftur á í borg-
inni í gær eftir að hafa verið lagðar niður um tíma vegna árásanna á fimmtudag.
Reuters
Farþegi horfir út um gluggann á strætisvagni á leið 30, við Euston-stöðina í miðborg London í gær. Strætisvagn á leið 30 var
sprengdur í loft upp á fimmtudag og biðu 13 manns bana í sprengingunni auk þess sem fjölmargir til viðbótar slösuðust.
Reuters
Par kyssist bless við Bank-lestarstöðina í gærmorgun. david@mbl.is
18 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hryðjuverk í London