Morgunblaðið - 09.07.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í DAG, þann 9. júlí, er merkisdagur í
lífi bahá’ía um heim allan. Þennan dag
komum við saman og minnumst at-
burðar sem átti sér stað fyrir 155 ár-
um í borginni Tabríz í Íran. Ungur
maður, Bábinn að nafni, boðberi
nýrra tíma, var á þessum degi tekinn
af lífi á almenningstorgi í borginni.
Hann var líflátinn fyrir að hafa boðað
að hann hefði verið sendur til að ryðja
brautina fyrir mikinn mannkynsfræð-
ara sem öll helg trúarrit tala um og
sem ætti að opna dyr að nýrri öld
sameiningar, þegar allir menn sam-
einast í einni trú – þeim trúar-
brögðum, sem allir spámenn Guðs
hafa boðað frá aldaöðli. Á þessari
nýju öld myndu allir menn lifa saman
sem bræður. Bábinn kenndi einnig
jafnrétti kynjanna og einingu mann-
kyns. Um 20.000 fylgjendur hans
týndu lífinu í miskunnarlausum of-
sóknum yfirvalda og klerkaveldis á
hendur þeim fyrir þær sakir einar að
fylgja málstað hans. Bábinn hafði
sjálfur á þeim 6 árum sem höfðu liðið
frá boðun hans verið í fangelsum eða í
útlegð og þolað pyntingar og harð-
ræði í höndum íranskra klerka.
Þann 9. júlí 1850 var Bábinn fluttur
í fangelsi í Tabríz-borg á meðan
klerkarnir sem höfðu hann í haldi
reyndu að koma sér saman um hvað
gera ætti við hann. Loks var ákveðið
að leiða hann fyrir aftökusveit skip-
aða 750 hermönnum. Nagli var rekinn
í stoðina milli dyra fangelsisklefanna.
Þetta gerðist utanhúss á her-
skálatorgi borgarinnar og mikill fjöldi
fólks hafði safnast saman á torginu og
húsþökum umhverfis það til að fylgj-
ast með aftökunni. Talið er að um
10.000 áhorfendur hafi verið við-
staddir aftökuna. Reipi voru fest við
nagla við fangaklefa Bábsins, og í
þessi reipi voru Bábinn og unglingur
einn, fylgjandi hans sem einnig hafði
verið fangelsaður, bundnir saman.
Til er opinbert skjal í forn-
bréfasafni breska utanríkisráðuneyt-
isins (merkt F.O. 60/153/88) sem stað-
festir lýsingu persneska
sagnaritarans Nabíls á píslarvætti
Bábsins. Skjal þetta er sendibréf frá
Sir Justin Sheil, sérlegum sendi-
manni Viktoríu drottningar í Teher-
an. Bréfið segir meðal annars: „Leið-
togi sértrúarflokksins (fylgjenda
Bábsins) hefur verið líflátinn í Tabríz.
Hann var skotinn af fótgönguliðum og
dauði hans varpaði ljóma á trúar-
brögð hans og getur orðið til þess að
auka stórum fjölda áhangenda hans.
Þegar kúlnahríðinni linnti og reyk-
urinn og rykið settist, var Bábinn
horfinn og mannfjöldinn hrópaði að
hann hefði stigið til himins. Kúlurnar
höfðu slitið reipið, sem hann var
bundinn með, en hann var fluttur frá
þeim stað, þar sem hann fannst eftir
nokkra leit, og skotinn.“(1)
Líkamsleifar Bábsins og læri-
sveina hans voru lagðar á brún
virkisgrafar fyrir utan borgina í
þeirri von að villidýr mundu leggjast
á þær. Lærisveinum Bábsins tókst
hinsvegar að fjarlægja þær og koma
þeim loks til landsins helga (Ísrael)
og þar hvíla þær nú í fögru og undur-
samlegu grafhýsi í hlíðum Karmel-
fjalls í Haifa í Ísrael.
Mig langar að ljúka þessum pistli
með ritningargrein eftir Bábinn:
„Engin paradís er upphafnari, að
mati þeirra sem trúa á himneska ein-
ingu, en sú að hlýðnast boðum Guðs,
og enginn eldur er heitari í augum
þeirra, sem þekkt hafa Guð og tákn
hans, en að brjóta gegn lögum hans
og kúga aðra sál, jafnvel þótt ekki sé
í meira mæli en sem nemur must-
arðskorni.“(2)
Bahá’íar á höfuðborgarsvæðinu
munu hittast á landi Bahá’í-
samfélagsins að Kistufelli kl. 12:00
og minnast þessa atburðar með bæn-
um og ritningalestri.
DAVÍÐ ÓLAFSSON,
Kleppsvegi 10, 105 Reykjavík
Bahá’íar hittast við Kistufell
Frá Davíð Ólafssyni sjúkraliða:
UNDANFARIN ár hefur verið
unnið að því á vettvangi Evrópu-
sambandsins (ESB) að byggja upp
sérfræðistofnanir á
hinum ýmsu málasvið-
um. Líkt og sérstakar
stofnanir samgöngu-
ráðuneytisins, t.d.
Flugmálastjórn Ís-
lands og Siglinga-
stofnun Íslands, hafa
nú verið settar á stofn
bæði Siglingaörygg-
isstofnun Evrópu
(European Maritime
Safety Agency,
EMSA) og Flugörygg-
isstofnun Evrópu
(European Aviation
Safety Agency,
EASA).
En hvernig er að-
koma okkar Íslend-
inga að þessum stofn-
unum? Í þessari
annarri grein minni
um EES og sam-
göngumál ætla ég að
fjalla um Flugörygg-
isstofnun Evrópu,
EASA, og samstarf
okkar við hana. EASA,
sem staðsett er í Köln
í Þýskalandi, tók form-
lega til starfa 28. sept-
ember 2003. Það var
síðan á grundvelli EES samnings-
ins, sem Ísland varð formlega aðili
að stofnuninni þann 9. desember sl.,
þegar tekin var upp í EES samn-
inginn reglugerð er lýtur að stofnun
EASA og skilgreinir þau verkefni
sem stofnuninni eru falin. EASA er
m.a. að hluta til ætlað að taka við
hlutverki Flugöryggissamtaka flug-
málastjórna Evrópu (JAA), sem Ís-
land er fullgildur aðili að. Um þess-
ar mundir er flugmálastjóri,
Þorgeir Pálsson, meðal forystu-
manna í stjórn.
Meginhlutverk stofnunarinnar
(EASA) er að vinna að auknu flug-
öryggi í Evrópu og tryggja sam-
ræmdar öryggiskröfur í flugi á Evr-
ópusvæðinu. Stofnuninni ber að
stuðla að frjálsri og opinni sam-
keppni, skilvirku vottunarferli og
alþjóðlegri samræmingu. Að auki
tekur stofnunin yfir ýmis verkefni
sem hafa verið í höndum JAA.
Stofnuninni hefur einnig verið falið
að sjá um hluta af þeim verkefnum
flugmálastjórna innan EES svæð-
isins sem lúta að útgáfu og viður-
kenningum á tegundarskírteinum
flugvéla og íhluta þeirra. Í þessu
felst að stofnunin sér um hönnunar-
og umhverfisvottun á nýjum teg-
undum flugvéla og flugvélahluta í
samræmi við alþjóð-
legar reglur og staðla
um öryggi slíks bún-
aðar eða staðfestir
vottun ríkja utan
EES.
Aðild að EASA
mikilvæg fyrir sí-
fellt vaxandi at-
vinnugrein
Flugið og flugtengd
starfsemi er atvinnu-
grein sem vex hröðum
skrefum og skiptir ís-
lenskt efnahagslíf og
íslenskan almenning
verulegu máli. Fyrir
okkur Íslendinga eru
talsverðir hagsmunir
bundnir þátttöku Ís-
lands í EASA, jafnt
fyrir flugrekendur og
flugmálayfirvöld. Það
skiptir okkur miklu
máli að búa þessari at-
vinnugrein sem best
starfsskilyrði og eitt
af mikilvægustu atrið-
unum er að regluverk
flugsins hér á landi sé
í samræmi við okkar
helstu viðskiptaþjóðir.
Aðild Íslands að EASA auðveldar
viðurkenningu á þeim viðhalds-
stöðvum sem starfræktar eru hér á
landi. Slíkt mun spara flugiðnað-
inum hér á landi talsvert fé. Þá
skiptir ekki síður máli að með
markvissri þátttöku okkar í stofnun
eins og EASA treystum við enn
frekar það góða orðspor sem fer af
íslenskum flugfyrirtækjum í útrás
þeirra á alþjóðavettvangi. Það er
ekki síst þannig sem stjórnvöld geta
stutt við bakið og ýtt undir vöxt og
viðgang þessarar mikilvægu at-
vinnugreinar sem flugið er. Hluti af
því sem samgönguráðuneytið hefur
gert til þess að styrkja stöðu okkar
á þessum vettvangi er að byggja
upp þekkingu innan ráðuneytisins
til að takast á við þessi vaxandi
verkefni og auðvelda fulltrúa ráðu-
neytisins í Brussel að standa vakt-
ina með því ágæta fólki sem vinnur
þar og tryggir hagsmuni okkar.
Flugöryggis-
stofnun Evrópu
Sturla Böðvarsson fjallar um
samgöngumál og EES
’Meginhlutverkstofnunarinnar
(EASA) er að
vinna að auknu
flugöryggi í Evr-
ópu og tryggja
samræmdar ör-
yggiskröfur í
flugi á Evr-
ópusvæðinu.‘
Sturla Böðvarsson
Höfundur er samgönguráðherra.
Í DAG, 9. júlí, er brotið blað í
menntasögu okkar Íslendinga þegar
útskrifaðir verða fyrstu stúdentarnir
frá Menntaskólanum Hraðbraut eftir
tveggja ára mennta-
skólanám.
Í umræðu um stytt-
ingu framhaldsskóla
sem verið hefur ofar-
lega á baugi und-
anfarnar vikur, ef ekki
mánuði, hef ég saknað
þess verulega hversu
lítið hefur verið fjallað
um þann einstaka val-
möguleika sem ungu
fólki býðst í dag að
klára framhaldsskól-
ann á tveimur árum.
Umræðan hefur aðal-
lega snúist um undir-
búning nemenda upp úr grunnskóla
og þá um breytingu laga til stytt-
ingar á framhaldsskólanámi.
Þeir nemendur sem útskrifast í
dag hófu framhaldsnám sitt í ágúst-
mánuði árið 2003 og setja nú upp
hvíta kolla í júlí tæpum tveimur árum
seinna. Með tilkomu Menntaskólans
Hraðbrautar gefst nemendum kost-
ur á að ljúka námi á tveimur árum án
þess að til hafi komið lagabreyting
um framhaldsskóla.
Menntaskólinn Hraðbraut er góð-
ur skóli. Þar er vandað til allra verka
með það að markmiði
að gera nemendum
kleift að ljúka námi á
tveimur árum. Skóla-
stjórinn, Ólafur H.
Johnson, hefur ásamt
frábærum kennurum
og starfsliði skólans
unnið þrekvirki í
menntamálum okkar
Íslendinga með því að
gera slíkan valmögu-
leika að veruleika.
Kennarar og starfsfólk
skólans er vel menntað,
kennarar eru fagmenn
hver á sínu sviði og búa
þeir yfir mikilli reynslu og færni og
koma námsefninu vel til skila, þannig
að nemendur fara á engan hátt var-
hluta af námskrá menntamálaráðu-
neytisins.
Að sjálfsögðu leggja nemendur
hart að sér í náminu, því þeir hafa
valið að fara þessa leið og nýta sem
flestar stundir til náms. Þrátt fyrir
miklar kröfur í náminu fara nem-
endur ekki á mis við þann félagslega
þroska sem ungu fólki er nauðsyn-
legur, þar sem félagsandinn í skól-
anum er góður og má reyndar taka
sér hann til fyrirmyndar. Við krefj-
andi aðstæður myndast mikil sam-
heldni meðal nemenda sem er í senn
þroskandi fyrir frekari mannleg
samskipti, sem mun nýtast nem-
endum vel í framtíðinni.
Menntaskólinn Hraðbraut
Valgerður Sigurðardóttir
fjallar um menntaskólanám ’Þeir nemendur sem út-skrifast í dag hófu fram-
haldsnám sitt í ágúst-
mánuði árið 2003 og
setja nú upp hvíta kolla í
júlí tæpum tveimur ár-
um seinna. ‘
Valgerður
Sigurðardóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar og nemandi í Mennta-
skólanum Hraðbraut.
ÁRNI Finnsson framkvæmda-
stjóri Náttúrusamtaka Íslands
vænir mig um ósannindi í grein
minni í Morgunblaðinu í fyrradag.
Hann hvetur mig til að kynna mér
staðreyndir máls áður en ég set
fram fullyrðingar og gagnrýni á þá
sem mér eru ósammála í hvalveiði-
málinu.
Í fyrsta lagi þá virði ég alfarið
skoðanir þeirra sem andvígir eru
hvalveiðum. Ég geri einfaldlega þá
kröfu að þeir komi fram með sann-
ar fullyrðingar í málflutningi sín-
um en ekki augljósan andáróður.
Í Morgunblaðinu 25. júní hélt
Árni því fram að ríki á vestur-
strönd Afríku hefðu greitt atkvæði
gegn Japan, Íslandi og öðrum
þeim þjóðum sem vilja sjálfbæra
nýtingu hvalastofna. Í blaðinu í
gær segir hann að þau hafi greitt
þessi atkvæði með fjarveru sinni. Í
mínum huga greiða menn atkvæði
með eða á móti eða sitja hjá. Þeir
sem eru fjarverandi greiða að
ríki fylgjandi sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda og því sammála
Íslandi, Japan, Noregi og fleirum
innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. En
það er mikil einföldun að halda því
fram að þau hafi greitt atkvæði
gegn málstaðnum með fjarveru
sinni. Fulltrúar Indlands voru
ekki fyrstu dagana á fundinum og
þegar fulltrúi þeirra kom var hann
ekki með umboð til að greiða at-
kvæði. Indland er eitt þeirra landa
sem ákaft hafa fylgt þeim þjóðum
sem ekki vilja sjálfbærar veiðar.
Mér dettur ekki í hug að halda því
fram að stefna þeirra hafi eitthvað
breyst.
Sannleikanum er hver sárreið-
astur og ég vil hvetja Náttúru-
verndarsamtök Íslands til að
vanda sinn málflutning í framtíð-
inni.
sjálfsögðu ekki atkvæði. Hann tel-
ur upp Gambíu, Kamerún og Togo.
Frá Vestur-Afríku eru eftirtalin
ríki í Alþjóðahvalveiðiráðinu: Ben-
ín, Kamerún, Fílabeinsströndin,
Gabon, Gambía, Gínea, Malí, Már-
itanía, Marokkó, S-Afríka og
Togo. Það rétta er að af þessum
ríkjum mættu ekki Gambía (gekk í
ráðið 17/5 sl.) og Togo (gekk í ráðið
15/6 sl.). Fulltrúar Kamerún, sem
Árni heldur fram að hafi ekki
mætt, voru á fundinum og greiddu
atkvæði með Íslandi, Japan og
Noregi og fleirum í öllum at-
kvæðagreiðslum. Öll ríki Vestur-
Afríku nema Malí eiga land að sjó
og öll eru þau fylgjandi sjálfbær-
um veiðum og styðja okkar mál-
stað nema S-Afríka.
Af hverju Gambía og Togo
mættu ekki á fundinn má að öllum
líkindum rekja til þess að um er að
ræða fátæk ríki sem hafa ekki fjár-
ráð til að sækja alla fundi sem þau
gjarnan vilja. Líklega eru þessi
Jón Gunnarsson
Menn greiða ekki
atkvæði með fjarveru sinni
Höfundur á sæti í nefnd Íslands
sem sat fundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins í Kóreu.
Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu
naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu
trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf
fyrirheit um.
Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004
sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar.
Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra
opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppnislög, hvern vanda þær
eiga við að glíma og leitar lausna á honum.
Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með
heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með
hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heimilisofbeldi og
kortleggjum þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa lands-
menn að fyrirbyggja að það gerist. Forvarnir gerast með fræðslu al-
mennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræðisþróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt,
verið til fyrirmyndar og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur
eru ekki í neinu samræmi við áður gefnar yfirlýsingar framkvæmda-
valdsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar