Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 19
ÁSTRÖLSKU þjóðinni er mjög
brugðið vegna árásanna í London
og hefur John Howard, forsætis-
ráðherra landsins, sent sex sér-
fræðinga á sviði öryggisgæslu til að
aðstoða við rannsókn breskra yfir-
valda.
Einn Ástrali liggur þungt hald-
inn á sjúkrahúsi í London eftir
árásina og sex aðrir hafa verið
lagðir inn á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar.
Öryggisgæsla við lestarstöðvar í
Ástralíu hefur einnig verið hert og
var greinilegt í miðborg Brisbane í
gær að öryggisvörðum við lestar-
stöðvar hafði verið fjölgað veru-
lega.
Bob Carr, fylkisstjóri Nýja-Suður
Wales, sagði að gripið hefði verið til
viðeigandi ráðstafana í höfuðborg
fylkisins, Sydney, og að viðbúnaður
væri á lestarstöðvum í borginni.
Árásirnar í London hafa einnig
vakið ótta meðal almennings um að
næst muni hryðjuverkamenn al-
Qaeda beina spjótum sínum að
Ástralíu.
Í viðtali við Sydney Morning Her-
ald sagði John Howard að þrátt fyr-
ir að engar leyniþjónustuupplýs-
ingar bentu til að árás
hryðjuverkamanna á Ástralíu væri
yfirvofandi væri ekki hægt að úti-
loka slíka árás í náinni framtíð.
Kim Beazley, leiðtogi Verka-
mannaflokksins og stjórnarand-
stöðunnar, gekk lengra og sagði
Ástralíu vera skotmark hryðju-
verkamanna.
Hann sagði enn fremur að Ástr-
alar hefðu þegar orðið fyrir hryðju-
verkaárásum í Balí og í Jakarta og
að samkvæmt upplýsingum frá ísl-
ömsku öfgasamtökunum Jemaah
Islamiah væri ljóst að Ástralía væri
meðal skotmarka al-Qaeda í Suð-
austur-Asíu.
Fyrir utan afar sterk menning-
arleg tengsl og sameiginlega sögu
eru Ástralía og Bretland mjög nán-
ar þjóðir og eru að öllu jöfnu um
300.000 Ástralar við leik og störf á
Bretlandi og þar af um þriðjungur í
London.
Vegna árásanna í London hafa
deilur blossað upp milli stjórnar-
flokkanna og stjórnarandstöðunnar
um veru ástralskra hermanna í
Írak, einkum eftir að Kim Beazley
lét þau orð falla að Ástralía ætti að
kalla hermenn sína heim úr „kvik-
syndinu“ Írak.
John Howard hafnaði hins vegar
þessari tillögu og sagði að ástralsk-
ir hermenn myndu ekki snúa heim
fyrr en „verkefninu [væri] lokið“.
Öryggisgæsla
hert í Ástralíu
Deilur magnast og almenningur
óttast árás hryðjuverkamanna
Eftir Baldur Arnarson
Höfundur er fréttaritari
Morgunblaðsins í Ástralíu.
Róm. AFP. | Ítalska ríkisstjórnin hef-
ur aukið mjög viðbúnað í landinu
vegna hugsanlegra hryðjuverka og
Silvio Berlusconi forsætisráðherra
hefur varað landa sína við og segir,
að Ítalía sé ofarlega á lista sem
væntanlegt skotmark al-Qaeda.
Þrátt fyrir mikla andstöðu meðal
landsmanna eru um 3.000 ítalskir
hermenn í Írak og vegna þess hefur
lengi verið búist við, að hryðju-
verkamenn létu til skarar skríða í
landinu.
„Ekki þarf að spyrja hvort, heldur
hvenær árásir verða gerðar,“ sagði
Nicolo, lögfræðingur í Mílanó, og
bætti við, að næstu þingkosningar á
Ítalíu gætu orðið nokkuð viðsjár-
verður tími. „Tímasetningarnar eru
engin tilviljun eins og við höfum séð
í Madrid og nú í London.“
Minnti hann á, að hryðjuverkin í
Madrid hefðu ráðið mestu um, að
ríkisstjórn Jose Maria Aznars tap-
aði kosningunum nokkrum dögum
síðar fyrir sósíalistanum Jose Luis
Rodriguez Zapatero, miklum and-
stæðingi Íraksstríðsins.
Taka því sem
að höndum ber
Þrátt fyrir viðvaranir um yfirvof-
andi hættu virðist ítalskur almenn-
ingur taka öllu með stökustu ró og á
Termini-lestarstöðinni í Róm, sem
bráðum verður heitin eftir Jóhann-
esi Páli II páfa, var allt með sínum
venjulega brag í gær.
„Ég verð að koma mér í vinnuna.
Það er ekki um annað að ræða,“
sagði Chiara, afgreiðslustúlka í stór-
verslun. „Hættan er alltaf fyrir
hendi og hefur verið það í nokkur
ár.“
Marco, starfsmaður á lestarstöð-
inni, kvaðst ekki hafa orðið var við
aukna gæslu þrátt fyrir yfirlýsingar
yfirvalda. „Ekki nema allt úi og grúi
af óeinkennisklæddum lögreglu-
mönnum.“
Margir sögðu, að ekki væri um
annað að gera en taka því, sem að
höndum bæri. Lestirnar væru lífæð
borganna og fólk gæti ekki hætt að
lifa sínu lífi vegna hótana glæpa-
manna.
Fækkað í herliði í september?
Silvio Berlusconi greindi frá því í
gær að Ítalir hygðust hefja heim-
kvaðningu hermanna í Írak í sept-
embermánuði. Stefnt væri að því að
300 menn yrðu þá kallaðir heim.
Lokaákvörðun hefði þó ekki verið
tekin og lagt yrði mat á aðstæður í
landinu áður en til hennar kæmi.
„Ekki hvort,
heldur hvenær“
Ítalir óttast að verða skotmark hryðjuverkamanna
Reuters
Öryggisverðir kanna innihaldið í töskum ferðamanna áður en þeir fá inngöngu í dómkirkjuna í Mílanó.
Kaupmannahöfn. AFP. |Danir, sem eru ein helsta banda-
lagsþjóð Bandaríkjanna í stríðrekstrinum í Írak, hertu í
gær öryggisráðstafanir vegna hugsanlegra hryðjuverka-
árása eftir að hátt í 40 manns létu lífið og mörg hundruð
manns særðust í árásum í London. „Þetta er ekki spurn-
ing um hvort Danmörk verði fyrir árás hryðjuverka-
manna heldur hvenær,“ sagði Mikkel Vedby Rasmussen,
sérfræðingur í öryggismálum við Kaupmannahafnar-
háskóla, í samtali við AFP-fréttastofuna.
„Ég hef auðvitað enga kristalskúlu til þess að líta í og
segja til um framtíðina en þetta virðist nú óumflýjanlegt
og við verðum að fara að búa okkur undir þennan mögu-
leika,“ bætti hann við.
Hópur, sem kallar sig Leynilegu samtökin – al-Qaeda í
Evrópu, og áður var óþekktur, birti á fimmtudag yfirlýs-
ingu á íslamskri vefsíðu og sagðist þar bera ábyrgð á
sprengjuárásunum í London. Þar var hótað árásum í
öðrum ríkjum „Krossfaranna“, ríkja sem hafa hermenn í
Írak og Afganistan en Danir eru þar á meðal. Í yfirlýs-
ingu hópsins, sem birtist á Netinu, voru ríkisstjórnir
Danmerkur, Ítalíu og annarra ríkja sem stutt hafa inn-
rásirnar í Afganistan og Írak varaðar við. Ekki er vitað
um áreiðanleika yfirlýsingarinnar og sumir sérfróðir
hafa dregið hana í efa.
Um 530 danskir hermenn eru í Írak en þeir eru stað-
settir í Basra í suðurhluta landsins og lúta breskri her-
stjórn. Dönsk yfirvöld hafa ítrekað að þau muni ekki
senda herliðið á brott þrátt fyrir hótanirnar.
Sérstök öryggisnefnd á vegum danskra stjórnvalda
hefur hins vegar fyrirskipað að lögregla og leyniþjónusta
landsins hækki viðbúnaðarstig á flugvöllum, í höfnum,
lestarstöðvum, ferjuhöfnum, verslunarmiðstöðvum,
íþróttaleikvöngum og öðrum opinberum stöðum.
Nørreport-lestarstöðin í Kaupmannahöfn var rýmd í
gærmorgun þegar grunsamlegur poki sást liggja þar.
Um var að ræða tösku, sem blaðberar nota, og var hún
sprengd í varúðarskyni. Taskan reyndist hins vegar að-
eins innihalda gömul dagblöð.
Segir árás á Danmörku
„óumflýjanlega“