Morgunblaðið - 09.07.2005, Page 28

Morgunblaðið - 09.07.2005, Page 28
28 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Listskreytingasjóður ríkis-ins fékk úthlutað 7,2milljónum króna í síð-asta fjárlagafrumvarpi samkvæmt fjárlagatillögum menntamálaráðherra. Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi barst fjárlaganefnd Alþingis erindi frá Listskreytingasjóði sl. haust, eftir að fjárlagafrumvarpið hafði verið lagt fram, þar sem óskað var eftir auknu framlagi til sjóðsins árið 2005 til þess að sjóðurinn gæti betur uppfyllt þær lagalegu skyld- ur sem hún beri. Eins var í er- indinu bent á að vegna fjárskorts hefði vinna við skráningu í gagna- grunn sem og vinna við heimasíðu legið niðri um nokkurt skeið. Samkvæmt upplýsingum frá Al- þingi fjallaði fjárlaganefnd um er- indið en það hlaut ekki náð fyrir augum nefndarinnar. Ekki aðgeingilegt Haft var eftir Ingibjörgu Gunn- laugsdóttur, framkvæmdastjóra Listskreytingasjóðs, í Morgun- blaðinu á fimmtudag að upplýs- ingar um listaverkaeign sjóðsins væru ekki aðgengilegar þar sem eftir ætti að skrá þær í viðeigandi gagnagrunn. Kom fram að það vanti laun fyrir sérmenntaðan starfsmann í þrjá mánuði til að skrá umræddar upplýsingar. Þegar blaðamaður leitaði við- bragða hjá alþingismönnum við þessum upplýsingum voru þeir allir á einu máli um að ótækt væri að ekki reyndist unnt að skrá listaverkaeign safnsins vegna fjár- skorts og að æskilegt væri að því yrði kippt í liðinn hið allra fyrsta. Viljaleysi og deyfð „Þetta lýsir viljaleysi og deyfð stjórnvalda á hverjum tíma,“ sagði Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, þegar málið var borið undir hana. „Það þarf að fara ofan í saumana á þessu máli, laga það og standa veglega við bakið á markmiðum Listskreyt- ingasjóðs.“ Brýnt að bæta úr þessu Að mati Hjálmars Árnasonar, þingflokksformanns Framsóknar- flokksins, er það „algjörlega ólíð- andi“ að ekki skuli vera búið að skrá listaverkaeign sjóðsins, sem veldur því að ekki er vitað ná- kvæmlega hvar öll verk sjóðsins eru niðurkomin, eins og fram kom í máli framkvæmdastjóra sjóðsins sl. fimmtudag. Segir Hjálmar brýnt að bæta úr þessu og hvetur til þess að menntamálaráðuneytið taki málið til heildarendurskoð- unar. Hér að neðan er rætt við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um málefni Listskreytingasjóðs. Ævintýraheimur nefnist þ stendur í og við nýjan Barn verksins uppfyllti kvaðir u Beiðni um auk veitingu var s Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Fulltrúar stjórnmálaflokkanna bregðast við fregnum af List- skreytingasjóði ríkisins „ÉG TEL fulla ástæðu til að taka þessi mál til gagngerrar endur- skoðunar,“ segir Hjálmar Árna- son, þingflokks- formaður Framsóknar- flokksins og nefndarmaður í menntamála- nefnd. Minnir hann á að með lagabreytingu fyrir nokkrum árum hafi verið gerð sú breyting að vísa list- skreytingum inn í einstakar framkvæmdir og byggingar- nefndir og þeim gert að verja 1% af heildarbyggingarkostnaði til listskreytinga, sem eðlilegs hluta af byggingum. „Því miður þá held að ég sú hafi ekki orðið raunin, af því að menn hafa látið annað hafa forgang,“ segir Hjálmar og vísar þar til upplýs- inga frá forstjóra Framkvæmda- sýslu ríkisins í fimmtudag blaðinu þess efnis að allt af eðlilegri listskreytinga dytti upp fyrir og kæmi a framkvæmda. Segir Hjálmar stóra ve ann varðandi það að færa efnið yfir til einstakra by nefnda og ráðuneyta liggj að þegar verið sé að skilg svonefndan normkostnað reikna út áætlaðan kostn byggingu þá virðist ákvæ listskreytingar gleymast af leiðandi miðist fjárveit aðeins við normkostnaðin hluti eins og steinsteypu, borð. „Ég held því að þessi b hafi ekki verið til góðs og ástæða sé til að taka þett endurskoðunar,“ segir Hj og leggur áherslu á að sj hann mjög fylgjandi því a aðarfull listaverk séu hlu byggingum. „Því að mínu nýrri byggingu ekki fulllo en að viðeigandi listaverk komið þar í kring.“ Að mati Hjálmars þurf urðarsjónarmiðin og listr sjónarmiðin að fá aukið v umræðunni og skipa vegl sess. „Þetta er alltaf spur forgangsröðun, en ég tel eigum að hafa þann listræ metnað sem þjóð að auka gjöldin til þessa máls og þróunin hafi verið í öfuga segir Hjálmar og vísar þa þess að framlög hins opin Listskreytingasjóðs hafi l umliðnum árum. „Varðan að ekki skuli vera búið að listaverkaeignina og ná e lega utan um það hvar þe eignir almennings eru þá náttúrlega algjörlega ólíð þarf að bæta úr því,“ seg Hjálmar og telur næsta s vera að menntamálaráðun taki málið til heildarendu skoðunar. Hjálmar Árnason Kallar á heildarend- urskoðun „ÉG FAGNA umræðunni um List- skreytingasjóð því það hefur fram undir þetta vantað að vakin væri at- hygli á starfsemi sjóðsins og fjár- þörf,“ segir Margrét Frí- mannsdóttir, þingflokks- formaður Sam- fylkingarinnar. Segir hún List- skreytingasjóð hingað til ekki hafa verið vinsælt umræðuefni inni á þingi þar sem menn hafa ekki litið á þetta sem forgangsatriði. „Sem stafar ef til vill af því að allir hafa reiknað með að lögunum væri fram- fylgt,“ segir Margrét. „Staða sjóðsins eins og hann er í dag er algjörlega óþolandi bæði fyrir þá sem reka sjóðinn og eins fyrir þá listamenn sem myndu vilja nýta sér hann,“ segir Margrét og bendir á að hefði sjóðurinn þann status sem hann ætti að hafa og ef skráningin á listaverkaeign hans væri í lagi þá væru kannski einnig líkur til þess að framkvæmdin af hálfu ráðuneytanna væri eins og skyldi og að þeir fjármunir sem skila ættu sér til listskreytinga gerðu það í raun. Varðandi þær upplýsingar forstjóra Fram- kvæmdasýslu ríkisins að allt að 30% af eðlilegri listskreytingakvöð komi aldrei til framkvæmda segir Margrét bagalegt að svo sé, enda séu lög sett með það að markmiði að farið sé eftir þeim. „Það er kominn tími til að endur- skoða stöðu sjóðsins. Ef menn vilja ekki hafa löggjöfina eins og hún er þá verður auðvitað að breyta henni, en ef staðan er sú að menn vilja framfylgja lögunum þá á auðvitað að sjá til þess að það sé gert. Mín persónulega afstaða er sú að þær reglur sem gilda í dag eru góðar og það eigi að framfylgja þeim. Það þarf hins vegar greinilega að taka þessa umræðu upp. Einnig er alveg ljóst að fjárþörf sjóðsins er þannig að framlög til sjóðsins hefðu þurft að fylgja verðlagi, þó ekki væri til annars en að koma gagnagrunn- inum í lag,“ segir Margrét og legg- ur áherslu á að skrásetning lista- verkaeignar sjóðsins sé ein meginforsenda þess að verkin nýt- ist sem skyldi. Margrét Frímannsdóttir Staða sjóðs- ins óþolandi JAFNRÉTTI TIL NÁMS Þröstur Brynjarsson, varafor-maður Félags leikskólakenn-ara, skrifaði bréf hér í blaðið í fyrradag í tilefni af þeirri ákvörðun Súðvíkinga að bjóða börnum í sveit- arfélaginu leikskólavist án greiðslu frá 1. september nk. Í bréfi sínu segir Þröstur m.a.: „Árið 2000 setti FL (Félag leik- skólakennara - innskot Mbl.) fyrst fram opinberlega í skólastefnu sinni hugmyndir um að fyrsta skólastigið, leikskólinn, yrði foreldrum að kostn- aðarlausu líkt og önnur skólastig á landinu. Mörgum þótti þessi hug- mynd allróttæk og að þetta væri svo óraunhæft að fávizka væri að leggja hana fram. Gjaldfrír leikskóli jafnar stöðu barna og er því mikið hagsmunamál. Börn eiga að njóta jafnréttis til náms burtséð frá efnahag foreldra eða mis- munandi aðstöðu. Hvers eiga þau börn að gjalda, sem búa við þær að- stæður, að fjárhagur foreldra er þröngur, t.d. vegna atvinnuleysis, veikinda eða lágra launa foreldra? Þess eru mýmörg dæmi að þegar þrengir að er ein fyrsta ráðstöfun sem foreldrar grípa til að taka barnið úr leikskólanum. Með ákvörðun sinni um niðurfellingu skólagjalda í leik- skóla Súðvíkinga hafa sveitarstjórn- armenn í Súðavík stigið mikið fram- faraskref í átt að jafnrétti til náms.“ Allt er þetta rétt hjá Þresti Brynj- arssyni. Það eru einfaldlega engin rök fyrir því að taka há skólagjöld á þessu fyrsta stigi skólagöngu barna. Þetta kerfi á að heyra til liðinni tíð. Stuðningur við gjaldfría leikskóla er að aukast á hinum pólitíska vett- vangi. Vinstri grænir höfðu forystu um slíka stefnumörkun og aðrir flokkar eru að byrja að fylgja í kjölfar þeirra. Það er rétt hjá varaformanni Fé- lags leikskólakennara, að Súðvíking- ar hafa stigið mikið framfaraspor með ákvörðun sinni. Ástæða er til að hvetja önnur sveitarfélög til að fylgja í fótspor Súðvíkinga í þessum efnum. HVAÐ VARÐ UM VERÐLÆKKANIR? Í Morgunblaðinu í fyrradag birtistfrétt þess efnis, að verðlækkanir undanfarinna mánaða í lágvöru- verðsverzlunum hefðu gengið til baka. Heimildin fyrir þessu er verð- lagseftirlit ASÍ, sem segir, að frá því í maímánuði sl. hafi verð í Bónusverzlunum hækkað um 8,4%, í Krónunni um 6% og í Kaskó um 3,2%. Hvað veldur? Var það misskiln- ingur að matvörukeðjurnar hefðu einsett sér að lækka vöruverð í land- inu enn frekar? Var það misskiln- ingur að matvöruverð í verzlunum Baugs mundi lækka vegna fjárfest- inga félagsins í matvörugeiranum í Bretlandi og hagstæðari innkaupa af þeim sökum, sem mundu skila sér til íslenzkra neytenda? Var verðstríðið, sem skall á í vetur bara leikur, sem nú hefur gengið til baka? Ef svo er mun það valda íslenzk- um neytendum miklum vonbrigðum. Almenningur hefur lengi átt erfitt með að skilja hvers vegna matvæla- verð er til muna hærra hér en í ná- lægum löndum. Þegar Krónan hóf verðlækkun í vetur og Bónus fylgdi í kjölfarið, svo og Kaskó var það trú margra að betri tíð væri í vændum og lágvöruverðsverzlanir mundu nú tryggja neytendum mun hagstæðara verð á matvöru en hér hefði þekkzt áður. Verðlækkanirnar höfðu heilsu- samleg áhrif á vísitöluna og skulda- summa landsmanna lækkaði í stað þess að hækka. Var þetta bara skammgóður vermir? Neytendur munu ekki taka því vel ef sú verður raunin. Talsmenn mat- vöruverzlana kepptust um það í vet- ur og vor að segja fólki að þeir mundu halda áfram verðlækkunar- stefnu sinni. Voru það orðin tóm? Þetta dugar ekki. Verðlækkanir í lágvöruverðsverzlunum gáfu neyt- endum vísbendingu um, að verðlag hér gæti a.m.k. nálgast verðlag í ná- grannalöndum. Ýmsar algengar neyzluvörur var allt í einu hægt að fá á skikkanlegu verði. Eiga neyt- endur að láta sér nægja reykinn af réttunum? Lágvöruverðsverzlanirnar geta ekki leikið sér að fólki með þessum hætti. Krafan um að þær haldi sér við þá verðstefnu, sem upp var tekin í vetur á eftir að verða hávær. EITT ATVINNUVEGARÁÐUNEYTI Ingibjörg Jónsdóttir stjórnsýslu-fræðingur skrifar grein í Morg- unblaðið í gær um sameiningu at- vinnuvegaráðuneyta í eitt ráðu- neyti og segir: „Hin langa töf, sem orðin er á sameiningu atvinnuvegaráðuneyta skýrist einkum af tvennu. Í fyrsta lagi eru ráðuneyti hér mörg og smá. Sterkir hagsmunaaðilar hafa viljað halda í sérráðuneyti. Þetta veikir ráðuneytin og fámennið leið- ir til vandkvæða, sem stafa af því, að hlutföll milli þess sem stjórnar og þeirra, sem stjórnað er eru skekkt og ráðuneyti því ekki í stakk búin til þess að sinna yfir- stjórnunarhlutverki sínu á full- nægjandi hátt. Þessi veika staða stjórnsýslunnar hefur svo leitt til þess að hún stendur ekki eins traustum fótum gagnvart áhrifum hagsmunaaðila.“ Þetta er rétt. Það er tímabært að sameina atvinnuvegaráðuneyti í eitt öflugt ráðuneyti, sem mun stuðla að því, að stjórnkerfið geti tekizt á við ný vandamál og við- fangsefni á vettvangi atvinnuveg- anna, sem það er augljóslega van- máttugt til um þessar mundir eins og dæmin sanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.