Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 35
ÚR VESTURHEIMI
UNDANFARIN áratug hefur verið unnið markvisst að
eflingu sambands Íslendinga við Íslendingabyggðir í
Norður-Ameríku og hefur víða vel verið haldið á mál-
um.
Fyrir skömmu var stúlknakór Grafarvogskirkju á
tónleikaferðalagi í Manitoba og var honum vel tekið.
Stúlkurnar komu meðal annars fram í Árborg og
sungu þar með barna- og ungmennakór Nýja-Íslands.
Ljósmynd/Rosalind Vigfusson
Söngurinn sameinar unga fólkið
HINIR árlegu íslensku dagar í
Spanish Fork í Utah voru viðameiri í
ár en nokkru sinni fyrr og aldrei
hafa fleiri gestir sótt þessa fjögurra
daga hátíð. „Hátíðin gekk mjög vel
og það eru allir ánægðir í Utah,“
sagði David Ashby, talsmaður Fé-
lags Íslendinga í Utah.
Íslenska samfélagið í Utah er
elsta samfélag Íslendinga í Norður-
Ameríku. Íslenskir mormónar sett-
ust fyrst að í Spanish Fork 1855 og
var haldið upp á 150 ára afmæli
landnámsins með veglegum hætti.
Milli fimm og tíu þúsund manns tóku
þátt í hátíðahöldunum og þar af voru
um fimm þúsund manns viðstaddir
vígslu nýs minnismerkis um íslensku
landnemana í Spanish Fork. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
var á meðal rúmlega 100 gesta frá
Íslandi rétt eins og samkór Selfoss
og 38 manna hópur á vegum Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga. „Það hafa
aldrei fleiri tekið þátt í hátíðahöldum
þjóðarbrots í Spanish Fork,“ sagði
David.
„Allir
ánægðir
í Utah“
Morgunblaðið/Steinþór
Minnismerkið samanstendur af vita, vegg með nöfnum landnemanna, átta
upplýsingatöflum um landnámið og steini frá Vestmannaeyjum. David A.
Ashby, talsmaður Félags Íslendinga í Utah, stendur hér við steininn.
MEIRA en 20 umsóknir bárust
vegna Snorraverkefnisins í Vestur-
heimi í sumar en átta umsækjendur
voru valdir úr hópnum og hafa þeir
nú lokið þriðjungi verkefnisins.
Snorraverkefnið vestra, Snorri
West, er hugsað fyrir Íslendinga á
aldrinum 18 til 25+ ára í þeim til-
gangi að veita þeim innsýn í sögu ís-
lenska samfélagsins í Manitoba og
kynnast afkomendum vesturfaranna.
Verkefnið hófst 2001 með þátttöku
tveggja stúlkna en með þessum átta,
sem nú taka þátt í verkefninu, hafa
27 íslensk ungmenni nýtt sér þetta
tilboð.
Verkefnið stendur yfir í sex vikur.
Fyrstu vikuna voru krakkarnir hjá
fjölskyldum í Riverton, um liðna
helgi á Víðinesi, rétt sunnan við
Gimli, og í vikunni voru þeir í Winni-
peg en fóru til ,,fósturforeldra“ sinna
í Gimli, Árborg og Riverton í gær og
búa hjá þeim í fjórar vikur.
,,Aðalatriðið er að krakkarnir
kynnist heimamönnum og myndi
tengsl til framtíðar,“ segir Eric Stef-
anson, fyrrverandi fjármálaráðherra
Manitoba og stjórnarmaður verk-
efnsins. Fyrir tæplega 130 árum
komu Íslendingar fyrst til Víðiness
og þar er minnisvarði til minningar
um fyrstu landnema Nýja-Íslands.
,,Hérna hófst það og íslensku ,,Snorr-
arnir“ eiga eftir að kynnast þessu lífi
betur á næstu vikum,“ bætir Eric við.
Morgunblaðið/Steinþór
Íslensku ,,Snorrarnir“ við minnismerkið. F.v.: Kristín Þóra Jökulsdóttir, Sól-
ey Jónsdóttir, Einar B. Haraldsson, Guðný R. Guðnadóttir, Ásthildur Gunn-
arsdóttir, Þórdís Reynisdóttir, Hjalti Magnússon og Sigríður Magnúsdóttir.
Mikill áhugi á Snorra-
verkefninu vestra
UM sex þúsund manns frá Banda-
ríkjunum, Kanada og Íslandi sóttu
norrænu hátíðina í Fargo – Moor-
head í Norður-Dakota og Minnesota
á dögunum en þessi þriggja daga há-
tíð var helguð Íslandi þetta árið.
Hátíðin hefur verið haldin árlega í
áratugi með áherslu á eitt Norður-
landa hvert ár. Íslendingafélagið á
svæðinu átti stóran þátt í undirbún-
ingnum og þótti vel til takast.
Ljósmynd/David Jón Fuller
Kristín Olafson-Jenkyns frá Kan-
ada kynnti íslenskar matarupp-
skriftir. Nóatún er nafnið á húsi
foreldra hennar í Gimli, Manitoba.
Fjölmenni á
,,íslenskri“
hátíð í Fargo
AÐ loknum fimm umferðum á
júlíútgáfu fyrstu laugardagsmót-
araðarinnar hefur alþjóðlegi
meistarinn Stefán Kristjánsson
(2.459) unnið eina skák, gert
þrjú jafntefli og
setið yfir í einni
umferð.
Hann lagði ung-
verska stórmeistar-
ann Attila Jakab
(2.461) örugglega
að velli í sinni
þriðju skák en þá
fékk hann yfir-
burðatafl með hvítu
eftir hafa svarað
Sikileyjarvörn and-
stæðingsins með
hinum hógværa 2.
c3. Afbrigði þetta
hefur meðal sumra
íslenskra skák-
manna fengið viður-
nefnið skákskóla-
byrjunin en mikið
hefur verið um hana fjallað í
kennslu Skákskóla Íslands und-
anfarin misseri. Stefán teflir það
mikið og oft með prýðilegum
árangri.
Gengi Braga Þorfinnssonar
(2.448) hefur verið skrykkjótt á
mótinu en hann hefur gert þrjú
jafntefli og tapað tveim. Í ann-
arri tapskákinni lenti hann í
klóm serbneska stórmeistarans
Zlatko Ilincic (2.470).
Hvítt: Bragi Þorfinnsson
(2.448)
Svart: Zlatko Ilincic (2470)
1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. Bf4 c5
4. f3 Rf6 5. d5 Rh5 6. Be3 e6 7.
g4 Rf6 8. c4 exd5 9. cxd5 Db6
10. Bc1 h5 11. g5 Db4+ 12. Kf2
Dh4+ 13. Kg2 c4!
Bragi fylgdi í fótspor bróður
síns, Björns, og tefldi Tromp-
owsky gegn serbneska stór-
meistaranum. Hann kom hins
vegar ekki að tómum kofunum
hjá Serbanum sem býður hvítum
nú upp á að þiggja riddara sinn á
f6.
14. d6
14. gxf6 hefði verið svarað
með 14. …gxf6 og við hótuninni
15. …Hg8+ væri ekkert viðun-
andi svar. Þó að hvítur hafi beðið
með að þiggja manninn afréð
hann að gera það á endanum.
14. …b5 15. e4 Bb7 16. gxf6
gxf6 17. Re2 f5 18. Rg3 f4 19.
Dd4 f6 20. e5
Því miður fyrir hvítan gengur
þessi leikur ekki upp eins og
svartur sýnir fram á með glæsi-
legu svari sínu.
20. …Bxf3+! 21. Kg1
Hvítur hefði einnig fengið tap-
að tafl eftir 21. Kxf3 Dg4+ 22.
Ke4 (aðrir leikir hefðu í för með
drottningartap) 22. …fxg3+ 23.
Kd5 De6+ og svartur vinnur.
21. …Rc6 22. Dxf4 Dxf4 23.
Bxf4 fxe5 24. Bg5 h4! 25. Bg2
Bxg2 26. Kxg2 hxg3 og þrátt
fyrir hetjulega baráttu þurfti
Bragi að láta í minni pokann eft-
ir 63 leiki.
Daglega er fylgst með gangi
mótsins á vefsíð-
unni www.skak.is
en einnig gefur
heimasíða mótsins,
http://www.firstsat-
urday.hu, glögga
mynd af keppninni.
Magnus Carlsen
efstur á norska
meistaramótinu
Í úrvalsflokki
norska meistara-
mótsins er undra-
barnið og stór-
meistarinn Magnus
Carlsen efstur eftir
sjö umferðir með
5½ vinning en alls
verða tefldar níu
umferðir. Þjálfari
Magnusar, stórmeistarinn Sim-
en Agdestein (2.571) kemur
næstur með 5 vinninga ásamt
kollega þeirra Leif Erlend Jo-
hannessen (2.557) og Atle Grønn
(2.354).
Alls taka 22 skákmenn þátt í
flokknum og gegn Geir Sune
Tallaksen (2.351) sýndi undra-
barnið heldur betur á sér víg-
tennurnar.
Magnus hafði hvítt þegar
eftirfarandi staða kom upp eftir
23. leik svarts:
24. Rxh6+! gxh6 25. Hxh6
Hvítur hótar nú máti í næsta
leik með 26. Hg5#.
Hann hafði hins vegar þurft
að sjá fyrir að eftirfarandi
kóngsferðalag svarts myndi
leiða til máts.
25. …Kg7 26. Hg5+ Kxh6 27.
Bc1!
Lykilleikur í sókninni. Það er
listrænt hversu hvítu mennirnir
vinna vel saman í atlögu sinni að
svarta kóngnum
27. …cxd4 28. Hg4+ De3 29.
Hh4+ Rh5 30. Hxh5+! Kxh5 31.
Dh7+ Kg4 32. fxe3 Hac8
33. Kg2!
Lokahnykkurinn í sókninni
sem tryggir að svarta kóngnum
eru allar bjargir bannaðar.
33. …Hxc1 34. h3+ Kg5 35.
Dg7+ Kf5 36. g4+ Ke4 37.
Dxd4#. Mótinu lýkur í dag og
hægt er að fylgjast með skákum
þess á Netinu en heimasíða
keppninnar er http://www.roga-
land-sjakk.org.
Stefán byrjar
vel í Búdapest
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson.
SKÁK
Búdapest, Ungverjaland
FYRSTA LAUGARDAGSMÓT
2.–13. júlí 2005
Nær Stefán sínum öðr-
um stórmeistaraáfanga
í Búdapest?