Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 53
SÖNGKONAN Emilíana
Torrini heldur ferna tón-
leika hér á landi síðar í
mánuðinum, eins og greint
hefur verið frá, en miða-
sala á fyrstu tónleikana
hefst í dag.
Áhugasamir geta farið í
verslun 12 Tóna við Skóla-
vörðustíg, verslunina BT á
Akureyri eða inn á vefsíðuna midi.is og fjár-
fest í miðum á tónleika söngkonunnar á Nasa
21. júlí og í Ketilhúsinu 24. júlí.
Miðaverð er 2.500 krónur.
Miðasala á tón-
leika Emilíönu
LEIKRITIÐ Örlagaeggin eftir Mikhaíl Búlgakov var frumsýnt á
Litla sviði Borgarleikhússins síðastliðinn fimmtudag að við-
stöddu fjölmenni.
Það eru Leikskólinn og Reykvíska listaleikhúsið sem standa
að sýningunni en Bergur Þór Ingólfsson er leikstjóri verksins.
Höfundur leikgerðar er Höskuldur Ólafsson sem jafnframt
samdi tónlistina ásamt Pétri Þór Benediktssyni.
Örlagaeggin voru sett á svið af sama hópi fyrir sjö árum en í
allt annarri leikgerð.
Leikhópurinn er mannaður bæði atvinnuleikurum sem og leik-
listarnemum en aðalhlutverk eru í höndum þeirra Ilmar Krist-
jánsdóttur, Stefáns Halls Stefánssonar og Sveins Ólafs Gunn-
arssonar.
Leikmyndin er í höndum Elmu Backman og sjónræn hönnun
er eftir Hlyn Magnússon.
Það var ekki annað að sjá á frumsýningargestum en þeir væru
ánægðir með það sem fyrir augu bar á Litla sviðinu á fimmtu-
dagskvöldið. Örlagaeggin verða sýnd út júlímánuð.
Leikhús | Örlagaeggin frumsýnd á Litla sviðinu
Búlgakov í Borgarleikhúsinu
Magga Stína Blöndal, Axel Pétur Ásgeirsson og Auður
Eggertsdóttir voru glöð og kát á frumsýningunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ólafur Höskuldsson og Tryggvi Gíslason.
Ilmur Kristjánsdóttir fer með að-
alhlutverkið í Örlagaeggjunum.
DINDILL er hugsað sem eins konar vefrit
stílað inn á ungt hugsandi fólk. Þarna verður
samfélagsleg gagnrýni í bland við léttara efni
og aðra fræðandi og skemmtilega hluti,“ seg-
ir Halldór Ásgeirsson, einn af umsjónar-
mönnum nýs vefseturs sem var opnað í sein-
ustu viku. Á síðunni stendur að ætlunin sé
ekki sú að „upplýsa gesti um einkalíf er-
lendra poppstirna, kvikmyndahetja eða ríkra
hóteleigenda, né heldur að birta myndir af
sólbrenndum skemmtanafíklum; fremur að
næra mannsandann á mun djúpstæðari hátt
og veita lesendum innsýn í ókannaðar lendur
eigin huga“.
„Við vorum nokkrir félagarnir komnir með
ákveðinn leiða á þessum popp-síðum og í
stað þess að kvarta yfir því á kaffihúsum
ákváðum við að láta verkin tala. Við erum
samt alls ekki að vega að þvílíkum síðum,
mun fremur fannst okkur hitt bara vanta.“
Halldór segist vona að fólk hafi einhvern
áhuga á að lesa það sem verður á síðunni en
af fyrstu viðbrögðum virðist svo vera því
gestafjöldinn hafi aukist mjög lógaritmískt
síðustu daga.
„Við höfum líka flestir verið að skrifa smá-
sögur og leikrit og von er á fyrsta net-
leikritinu á síðuna fljótlega.“ Ritstjórn Dindils.com í hátíðarskapi.
Fyrir ungt hugsandi fólk
Veraldarvefur | Vefsíðan www. dindill.com opnuð á vefnum
EINS OG greint hef-
ur verið frá fer Inni-
púkinn 2005 fram á
Nasa dagana 30. og
31. júlí næstkom-
andi.
Nú er miðasala
hafin á þessa tónlist-
arhátíð í hjarta
Reykjavíkur.
Þeir listamenn
sem fram koma á
Innipúkanum eru
Jonathan Richman,
Cat Power, Apparat,
Mugison, Kimano, Vonbrigði, Donna Mess,
Tonik, Úlpa, Rass, Helgi Valur, Bob Justman,
Dj. Slimbuck, Ampop, Dr. Gunni, Reykjavík!,
Brim, Singapore Sling, Raveonettes, Blonde
Redhead, Trabant, Dr. Spock, Hjálmar, Skát-
ar, Hudson Wayne, Nine Elevens, Þórir,
Helvar, Bacon, Dj KGB, Dýrðin, Lake Trout,
Norton og Lára.
Áhugasamir geta nálgast aðgöngumiða í
12 Tónum við Skólavörðustíg, í verslun Hive
við Grensásveg og á hive.is.
Miðaverð er 3.900 krónur fyrir báða dag-
ana en 2.900 krónur fyrir annan daginn.
Miðasala hafin
á Innipúkann
Chan Marshall, eða Cat
Power, treður upp á Inni-
púkanum.
TENGLAR
...................................................................
www.innipukinn.com
WAR OF THE WORLDS kl. 3 - 5.30 - 8 og 10.30
MONSTER IN LAW kl. 5.50 og 10.30
BATMAN BEGINS kl. 3 - 8
WHO´S YOUR DADDY kl. 6 - 8 - 10
BATMAN BEGINS kl. 5.30 - 8 - 10.30
AKUREYRIKRINGLAN KEFLAVÍK
MYND EFTIR
Steven spielberg
I N N R Á S I N E R H A F I N !
T O M C R U I S E
„Innrásin er
girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI -
23.000 GESTIR
Kvikmyndir.is
Gleymdu hinum.
Þetta er alvöru Batman
Ó.Ö.H / DV
Gleymið öllum hinum
Batman myndunum.
Þessi er málið
Andri Capone / X-FM 91,9
Þórarinn Þ / FBL
H.B. / SIRKUS
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
“Einn af stærstu
smellum ársins.”
B.B. Blaðið
Loksins, Loksins
M.M.M / Xfm 91,9
Nýr og miklu betri
leðurblökumaður.
H.L. / Mbl.
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
i /
i / - ,
. . / I
D.Ö.J. / Kvik yndir.co
“ i af st rst
s ell ársi s.”
B.B. Blaðið
WHO´S YOUR DADDY kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 14 ára.
BATMAN BEGINS kl. 3.30 - 5.10 - 6.30 - 8.10 - 10 B.i. 12 ára.
SVAMPUR SVEINSSON kl. 3.30 m/ísl.tali.
HÁDEGISBÍÓ ALLAR MYNDIR KL. 12 SUNNUDAG Í SAMBÍÓNUM KRINGLUNNI
„HOLLYWOOD í ESSINU SÍNU“
-Blaðið