Morgunblaðið - 16.07.2005, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Bakpokar
-landsins mesta úrval
Deuter Aircontact
50+10SL
Sumartilboð
17.990 kr.
Verð áður 19.990 kr.
GÍSLI Kjartansson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Mýrasýslu, var í vikunni
kjörinn stjórnarformaður Spari-
sjóðs Hólahrepps. Stofnfjárfundur
fór fram hinn 23. júní sl., en sam-
eiginlegur listi var boðinn fram til
stjórnar sjóðsins. Sú stjórn var
kjörin samhljóða, að sögn Gísla.
Þrír nýir stjórnarmenn tóku sæti
í stjórninni, en í henni sitja alls
fimm manns. Gísli segir að fund-
urinn hafi farið fram í mesta bróð-
erni; sátt hafi nú náðst innan sjóðs-
ins.
Gísli Kjartansson
formaður
stjórnar
ARNARFELL átti langlægsta til-
boð í gröft og gangagerð vegna
botnrásar Ufsarstíflu við Kára-
hnjúkavirkjun. Fyrirtækið hefur
að undanförnu unnið við gerð að-
rennslisganga Ufsarveitunnar.
Tilboð Arnarfells var upp á
rúmar 95 milljónir króna, eða 59%
af kostnaðaráætlun Landsvirkj-
unar upp á 163 milljónir. Þrír aðr-
ir verktakar buðu í verkið, Ístak
bauð 135 milljónir, Héraðsverk
167 milljónir og Jarðvélar 232
milljónir króna. Tilboð verða nú
yfirfarin af ráðgjöfum Landsvirkj-
unar.
Arnarfell bauð
langlægst í botn-
rás Ufsarstíflu
FORNLEIFAVERND ríkisins
vinnur nú að því hörðum höndum
að merkja allar fornminjar á
Krísuvíkursvæðinu áður en tökur
á kvikmynd Clints Eastwood hefj-
ast.
Ómar Smári Ármannsson hefur
gagnrýnt þá skráningu sem Forn-
leifavernd byggir á í umsögn
sinni um fyrirhugaða kvikmynda-
töku á svæðinu. Segir hann að í
gönguferð umhverfis Arnarfellið
hafi hann ásamt öðrum gengið
fram á tólf minjar sem ekki sé
getið í fornleifaskránni.
Kristinn Magnússon, hjá Forn-
leifavernd ríkisins, segir að um
leið og fornminjarnar séu merkt-
ar sé svæðið skoðað betur. „Þeg-
ar við fáum svona vísbendingar
fylgjum við því vitanlega eftir.
Við erum að leita af okkur allan
grun en höfum ekki fundið neitt
ennþá.“
Kristinn segir ábendingar Óm-
ars vera óljósar. T.a.m. sé hluti
þeirra minja sem hann nefnir
ekki inni á tökusvæðinu heldur
sunnan við Arnarfellið. „Það er
aðeins hægt að tala um fornleifar
ef þær bera merki um mannanna
verk,“ segir Kristinn og bendir á
að Stínuskúti sem getið er í ör-
nefnalýsingu fyrir Krýsuvík
flokkist ekki undir fornleifar.
Merkja allar
fornminjar á
tökusvæðinu
AÐRA viku sérstaks umferðareft-
irlits á vegum ríkislögreglustjóra
voru 202 ökumenn kærðir fyrir of
hraðan akstur. Er það nokkuð
færri en var fyrstu viku eftirlitsins
sem hófst 28. júní sl. en þá voru 247
ökumenn kærðir fyrir of hraðan
akstur. Auk þeirra 202 sem voru
kærðir fyrir of hraðan akstur síð-
ustu vikuna voru tveir ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur, tvær
kærur voru vegna vanrækslu á
notkun öryggisbelta og kærur
vegna annarra umferðarlagabrota
voru 17.
Hert umferðarlöggæsla á þjóð-
vegum landsins er alla daga vik-
unnar og mun henni áframhaldið til
1. október nk.
Áframhaldandi
hert umferðar-
löggæsla
TALIÐ er að um þrjú þúsund
manns hafi verið við opnun ís-
lenska hluta norræna skálans á
heimssýningunni í Japan í gær,
EXPO 2005. Þjóðardagur Íslend-
inga var þá haldinn en þeir voru
vel á annað hundraðið á svæðinu.
Meðal viðstaddra voru Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra og Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra.
„Við erum afskaplega ánægð
með hvernig til tókst,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson í samtali við
Morgunblaðið en að hans sögn
hafa ekki verið jafnmargir við-
staddir þjóðardaga Norður-
landanna á EXPO og hjá Íslend-
ingum í gær.
„Íslensku listamennirnir stóðu
sig frábærlega og var afar vel tek-
ið, þannig að þessi dagur var mjög
vel heppnaður og mjög góð kynn-
ing fyrir Ísland,“ sagði Halldór,
sem taldi mikilvægt að halda góð-
um samskiptum við Japan. Ekki
væri aðeins um stóra þjóð að ræða
heldur næststærsta efnahagskerfi
heimsins.
Fulltrúar japanskra fjölmiðla
voru fjölmennir við athöfnina og
sagði Halldór það greinilegt að Ís-
land væri mjög vinsælt í Japan.
Það segði sína sögu að Íslendingar
fengju meiri aðsókn á sínum þjóð-
ardegi en hinar Norðurlandaþjóð-
irnar. Dagskráin hefði verið ein-
staklega vel heppnuð og íslensku
listamennirnir náð vel saman.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Halldóri í gær var hann nýkominn
úr móttöku í boði héraðshöfðinga
Nagoyja-héraðs. Alla næstu viku
verður íslensk menningarvika í
vinabæ Íslands á svæðinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Halldór Ásgrímsson fengu góðar móttökur á þjóðardegi Íslands á EXPO.
Um 3.000 manns á þjóðardegi Íslands á heimssýningunni í Japan
„Mjög
góð kynn-
ing fyrir
Ísland“
Þjóðardagurinn | 49
GRÍPA á til róttækra aðgerða til að
auka öryggi starfsmanna Lyfja &
heilsu og viðskiptavina vegna rána,
m.a. í lyfjabúðum, að undanförnu.
Lyf & heilsa mun gera sérstakan
samning við fagaðila um að vera í
viðbragðsstöðu ef upp koma áföll,
slys, rán eða önnur atvik í apótek-
um fyrirtækisins. Þá verður
allur öryggisbúnaður apóteka yf-
irfarinn og nýtt áhættumat gert á
hverjum stað.
Að sögn Hjalta Sölvasonar
rekstrarstjóra fyrirtækisins voru
tildrögin að aðgerðunum hin fjöl-
mörgu bankarán sem framin hafa
verið undanfarin ár. „Þau ollu okk-
ur áhyggjum og því fórum við af
stað með sérstaka fræðslu vegna
vopnaðra rána í síðasta vetur, “
segir Hjalti. „Við höfum einnig ver-
ið að yfirfara öryggisbúnað og vor-
um logandi hrædd um að þetta gæti
lagst á okkar starfsemi. Síðan
verða tvö vopnuð rán í röð. Það þarf
lítið út af að bera til að fólk slasist
en við þökkum viðbrögðum okkar
starfsmanna að ekki fór verr. Það
þýðir þó ekki að treysta alfarið á
það og þess vegna grípum við nú til
aðgerða.“ Meðal þess sem gert
verður er að öll apótek Lyfja &
heilsu, þ.e. Lyf & heilsa og Apótek-
arinn, verða með tímalæstan ör-
yggisskáp sem í verða geymd öll
eftirritunarskyld lyf. Einnig verður
sérhólf í skápnum fyrir peninga-
seðla.
Þá verður farið yfir húsnæði
allra apóteka Lyfja & heilsu með
tilliti til öryggisþátta og gripið til
viðeigandi ráðstafana á hverjum
stað.
Starfsmenn munu taka einnig
þátt í æfingum í sínum apótekum
þar sem sett verður á svið röð at-
vika til að líkja eftir raunverulegu
vopnuðu ráni. Þar læra starfsmenn
að bregðast rétt við og skipta með
sér ábyrgðarverkum í slíkum tilvik-
um.
Sérfræðingur í öryggismálum
mun heimsækja öll apótek fyrir-
tækisins og ræða um viðbrögð við
vopnuðum ránum og svara fyrir-
spurnum.
Þá verður öryggisgæsla hert og
verða apótekin sett í áhættuflokka
eftir afgreiðslutíma og staðsetn-
ingu.
Hafa gripið til aðgerða
vegna ítrekaðra rána
Ákveðin lyf geymd í tíma-
stilltum öryggisskáp
Morgunblaðið/Sverrir
Sviðsett verða rán hjá Lyfi & heilsu til að þjálfa starfsmenn.
„ÉG þurfti að láta senda
mér nýjar fatastærðir þeg-
ar ég var á Höfn í Horna-
firði en ég hef farið niður
um þrjú buxnanúmer,“
segir Jón Eggert Guð-
mundsson, en hann hefur
nú gengið um 700 kíló-
metra til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands.
Jón Eggert ætlar að
ganga strandveginn um Ís-
land á þremur sumrum en
vegalengdin er samtals
3.600 km. Hann ætlaði
upphaflega að fara leiðina
á tveimur sumrum en hef-
ur breytt áætlun sinni. Í sumar ætl-
ar hann að ganga til Egilsstaða og
verða það tæplega eitt þúsund kíló-
metrar samtals. Í gærkvöldi var
hann í Álftafirði og reiknar með að
vera á Djúpavogi á mánudag.
Jón Eggert segist venjulega
ganga 25 kílómetra á dag. Hann
stoppar á fimm kílómetra fresti en
hann er með aðstoðarmann með sér
sem keyrir vistir milli staða. Hljóðið
í Jóni Eggerti er ljómandi gott en
hann segist sofa vel á næturnar enda
fengið nóg af súrefni yfir daginn.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Eggert Guðmundsson gengur hér yfir Jök-
ulsá á Sólheimasandi. Hann hefur nú gengið
um 700 km og lýkur göngunni á Egilsstöðum.
Niður um þrjú buxna-
númer eftir 700 kílómetra