Morgunblaðið - 17.08.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.08.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Í dag er mi›vikudagur ÞORSTEINN Gylfa- son, prófessor í heim- speki við Háskóla Ís- lands, andaðist á Landspítalanum í gær, 63 ára að aldri. Þor- steinn var mikilsmet- inn fræðimaður, mikill listunnandi, skáld og þýðandi. Þorsteinn fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1942. Foreldrar hans eru hjónin dr. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi prófessor og ráðherra, og Guðrún Vilmundar- dóttir húsmóðir. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá MR árið 1961 og BA-prófi í heim- speki frá Harvard University árið 1965. Hann stundaði nám í íslensk- um fræðum við HÍ 1962–1963 og í heimspeki við Háskólann í München 1967. Lagði Þorsteinn stund á fram- haldsnám og rannsóknir í heimspeki við Magdalen College í Oxford á ár- unum 1965–1971. Þorsteinn var kennari í heimspeki við HÍ frá 1971, hann var skipaður lektor árið 1973, dósent 1983 og var prófessor við háskólann frá árinu 1989. Þorsteinn vann um langt ára- bil að vexti og viðgangi heimspek- innar með ritstörfum, þýðingum og kennslu. Hann lét sig einnig varða marg- vísleg önnur málefni og gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum. Hann var m.a formaður tón- leikanefndar HÍ 1974– 1976, ritari í stjórn Ís- lensku óperunnar 1980–1998 og átti sæti í siðanefnd Blaða- mannafélags Íslands frá 1980 og var formað- ur hennar í tíu ár frá 1993. Þá var Þorsteinn forstöðumaður Heim- spekistofnunar HÍ frá 1982 til 1991 og rit- stjóri ritraðarinnar Ís- lensk heimspeki 1982– 1997. Þorsteinn var af- kastamikill við ritstörf á fræðasviði sínu og á sviði lista auk þess að vera mikilvirkur þýðandi. Þá ritaði hann fjölda ritgerða sem birtust bæði í innlendum og erlendum bókum og tímaritum. Þorsteinn hlaut ýmsar viðurkenn- ingar fyrir störf sín, m.a. stílverð- laun Þórbergs Þórðarsonar og Ís- lensku bókmenntaverðlaunin árið 1997. Hann varð heiðursfélagi Fé- lags áhugamanna um heimspeki 2004. Forseti Íslands sæmdi Þor- stein riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994. Þorsteinn var ókvæntur og barn- laus. Bræður Þorsteins voru Vil- mundur, sem lést árið 1983, og Þor- valdur prófessor við HÍ. Við fráfall Þorsteins þakkar Morgunblaðið fyrir mikil og góð samskipti um áratuga skeið. Andlát ÞORSTEINN GYLFASON HIMBRIMI er einn tignarlegasti fugl íslensku fánunnar og er hann hvorki lítillátur né hógvær á varpstað. Him- briminn er einkennisfugl íslenskra fjalla- og silungs- vatna og eru sérkennileg hljóð hans eitt af einkennis- hljóðum íslensku sumarnæturinnar. Gamalt orðtæki segir himbrimann hljóða í fótinn. Ef himbrimi telur sér ógnað, eða óboðinn gestur nálgast hreiður hans eða unga, upphefur hann dans einn tilkomumikinn, með til- heyrandi góli. Hér stígur himbrimi slíkan dans af mikl- um móð. Morgunblaðið/Jóhann Óli Himbriminn hljóðar í fótinn NÚ eru að hefjast framkvæmdir við uppsetningu umferðarljósabrúa á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, og verða þær alls fjórar talsins. Um er að ræða fyrstu mannvirki sinnar tegundar hérlendis, að sögn Dagbjarts Sigur- brandssonar, umsjónarmanns götu- ljósa hjá framkvæmdasviði Reykja- víkurborgar. Um umfangsmikil mannvirki er að ræða. Þau standa í rúmlega 6,2 metra hæð frá jörðu og eru um 20 metra breið, sett saman úr fjórum járneiningum er vega samtals nokk- ur tonn. Efnið er flutt inn en smíða- vinnan sjálf fer fram hérlendis. Úr miðbitanum hanga síðan umferðar- ljósin sjálf. Brýrnar eru fjórar tals- ins sem fyrr segir. „Hérlendis eru nokkrir armar eða gálgar, sem um- ferðarljós hanga á, en engar heilar brýr yfir akbrautir fyrr en nú. Í miðju verður ljós fyrir akstur áfram, og til hliðanna fyrir beygjustefnu,“ segir Dagbjartur. Sjást langt að og eru mjög skýr „Ökumenn erlendis eru mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag umferðarljósa, þau sjást langt að og eru mjög skýr. Umferðarþunginn um þessi gatnamót er gífurlegur og iðulega kemur fyrir að bílar lenda fyrir aftan stóra bíla, jeppa eða flutn- ingabifreiðir, sem varna útsýni á götuljósin. Með ljósabrúm verður þetta vonandi liðin tíð og vonandi að- lagast fólk þessari breytingu fljótt og vel.“ Ljósin sem fyrir eru verða tekin niður, utan þess að sérstaurar verða fyrir gönguljós. Fyrsta brúin er komin á staðinn, næsta kemur í dag, miðvikudag, og síðan verða tvær til viðbótar væntanlega komnar á stað- inn fyrir helgi, en þá er allur frá- gangur eftir. Því er ólíklegt talið að ljósabrýrnar verði teknar í gagnið fyrr en undir lok mánaðarins. Dagbjartur kveðst reikna með að fleiri samsvarandi brýr fylgi í kjöl- farið í samgöngukerfi borgarinnar. Fyrstu ljósabrýrnar settar upp í borginni BANDARÍSKA stúlkan sem fannst látin í blokk fyrir varnarliðsmenn á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt mánudags fékk samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins stungusár eftir eggvopn á hnakka, er líklegt þykir að hafi dregið hana til bana. Á líkinu voru einnig aðrir áverkar sem báru merki um að átök hefðu átt sér stað. Hvorki fæst gefið upp hvort morð- vopnið hafi fundist né hvort játning liggi fyrir. 21 árs gamall varnarliðs- maður situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins, grunaður um verknaðinn. Íslensk kona, 29 ára gömul, er verið hefur í tygjum við hinn grunaða, var kölluð aftur til yfirheyrslu í gær, en henni hafði verið sleppt að lokinni fyrstu yfirheyrslu í fyrradag. Verið var að leita skýringa á nýj- um þáttum er fram hafa komið við rannsóknina. Talið er að hún hafi verið á vettvangi brotsins eða í ná- munda við hann. Hermaðurinn var ekki á sakaskrá en sætti rannsókn löggæsluyfirvalda bandaríska hersins vegna hugsan- legra fjársvika og fleiri brota. Sum þessara brota tengdust sambandi hans við hina látnu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Erlendir rannsóknarmenn Fimm menn frá rannsóknardeild bandaríska sjóhersins komu til landsins í gær frá Bretlandi, og ann- ast þeir rannsókn málsins, bæði yf- irheyrslur og tæknilega rannsókn. Embætti sýslumannsins á Kefla- víkurflugvelli veitir aðstoð við rann- sóknina. Stungusár var á hnakka VERIÐ er að taka í notkun öryggisskápa með tímalæsingu í verslunum lyfjaversl- anakeðjunnar Lyfju, og verða ávanabind- andi lyf, sem fíklar sækja í, hér eftir geymd í slíkum skáp- um til að verjast rán- um, sem voru tíð fyrr í sumar. Peningar aðrir en skiptimynt verða einnig geymdir í svip- uðum öryggishólfum í verslununum. Þessi ákvörðun forsvarsmanna lyfjaverslananna kemur í kjölfar tíðra rána í verslununum í sumar, segir Þórbergur Egilsson, rekstr- arstjóri Lyfju. Hann segir tilgang- inn einfaldan; að gera það ómögu- legt fyrir ræningja að nálgast lyf eða peninga og sleppa á brott áður en lögregla og öryggisverðir koma á vettvang. „Við getum komið því þannig fyrir að þetta tefji nánast ekkert af- greiðslu,“ segir Þórbergur, en þá byrjar starfsmaður, sem fær í hend- ur lyfseðil sem vísar á lyf í skápnum, á því að hefja ferilinn við að opna skápinn, og þegar búið er að undir- búa pöntunina er hægt að ná í lyfin í skápinn. „Sá sem kemur með engum fyrir- vara og heimtar það sem hann á ekki rétt á að fá verður þá að bíða í þær tíu mínútur sem tekur að opna skápinn eftir því að fá eitthvað út úr honum,“ segir Þórbergur. Árásarhnappar eru í öllum lyfjaversl- ununum, og miðað við tímamælingar á við- brögðum öryggis- varða og lögreglu líða tæpar tvær mínútur frá því stutt er á hnappinn þar til að- stoð berst, sem er mun skemmri tími en þær tíu mínútur sem tekur að opna skápinn. Ránstilraunir heyra sögunni til Þórbergur segir reynslu annarra verslana af slíku fyrirkomulagi, t.d. 10–11-verslananna, að ránstilraunir heyri sögunni til eftir að slíkt kerfi sé tekið í notkun, og því ekki hætta á að ræningjar sem ekki fá sínu fram- gengt taki reiði sína út á starfsfólki. Það sé enginn tilgangur með því, enda ekki á þeirra valdi að stjórna tímanum. Kostnaður við hvern skáp er ná- lægt 100 þúsund krónum, en Þór- bergur segir verslanakeðjuna ekki hafa neitt val í þessum efnum, ör- yggi starfsfólks í lyfjaverslunum verði að ganga fyrir. Lyfjaverslanir koma sér upp öryggis- skápum fyrir lyf sem fíklar sækja í Tíu mínútur tekur að opna Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.