Morgunblaðið - 15.09.2005, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
„VIÐ erum búnir að þróa aðferð
til að geyma fisk eftir að hann kem-
ur að landi og þar til hann fer í
vinnslu. Við erum að vinna þar á
eins konar gráu svæði, vegna þess
að fiskur er að tapa 7% til 15% af
þyngd sinni frá því honum er landað
og þar til hann fer í fiskvinnsluvél.
Við komum í veg fyrir þetta vökva-
tap og bætum gæði og geymsluþol
fisksins að auki,“ segir Jóhannes
Arason, framkvæmda-stjóri Natural
White.
„Þetta tap er vökvatap, sem flest-
ir áætla að sé vatn, en svo er ekki.
Þetta er prótein. Eins og staðið er
að verki nú, er verið að tapa gæðum
auk vigtar og því hafa menn einfald-
lega ekki efni á. Kínverjar eru
komnir inn á markaðinn með þokka-
legan fisk fyrir litla peninga. Ef við
ætlum að skara fram úr og halda
áfram að selja okkar fisk á því verði
sem við-þurfum að fá fyrir hann,
verðum við að vera beztir. Við ger-
um það hins vegar ekki með því að
missa niður gæði frá því fiskinum er
landað og þar til hann er unninn.
Meðferðin er góð um borð í skipinu
og góð eftir að fiskurinn kemur úr
vélunum. En það er miklu ábótavant
í móttökunni.
Við erum komnir með mjög stóra
viðskiptavini, sem eru að vinna allt
að 100 tonnum á dag. Þeir hafa síð-
astliðið eitt ár geymt fiskinn í mót-
tökunni í sérstakri ísblöndu með
Natural White * /NW Ice * Hún
heldur fiskinum þannig að nýting í
honum sem hráefni er 12 til 14%
hærri en ella og flakanýting eykst
um 7% til 10%. Allt er þetta gert á
náttúrulegan hátt, engin kemísk
efni notuð. Við notum rósmarin í
blönduna, en í því er náttúrulegt an-
doxunarefni sem kemur í veg fyrir
þránun og vökvatap.
11% betri flakanýting
Þetta er blanda sem hægt er að
nota við þau ískerfi sem menn eru
með fyrir og er kælingin í kringum
núll gráður. Því er fjárfesting í
þessu mjög lítil, eða innan við eina
milljón íslenzkra króna. Þetta er
búnaður sem byggist á sjálfvirkri
blöndun og er því enginn flöskuháls
í móttökunni.
Með þessu móti er flakanýtingin
hjá þessu stóra fyrirtæki orðin 11%
meiri en hún var fyrir ári og það
munar svo sannarlega um minna.
Auk þess eykur þessi meðferð
geymsluþol á fiski um að minnsta
kosti þrjá til fjóra daga. Því er þetta
ekki síður góður kostur fyrir fersk-
fiskvinnslurnar. Ríkisstjórnin getur
ekki hækkað dollarinn en við getum
komið honum upp í 75 krónur með
þessu,“ segir Jóhannes Arason.
Natural White * er notað í vinnslu
á frystum og ferskum fiski, saltfiski,
Auka nýtingu, geymsluþol og gæði
Morgunblaðið/Golli
Fiskvinnsla Jóhannes Arason
kynnti náttúruvæna íblöndunar-
efnið Natural White á Íslenzku sjáv-
arútvegssýningunni.
ÁRSÞING samtaka korta- og fast-
eignastofnana í Evrópu, Euro-
Geographics, var haldið á Hótel
Nordica í Reykjavík fyrri hluta
vikunnar.
Þingið sóttu um hundrað þátt-
takendur frá flestum löndum Evr-
ópu, en í samtökunum eru hátt á
fimmta tug kortastofnana og
stofnana sem sjá um skráningu
fasteigna í löndum Evrópu.
Ársþing EuroGeographics eru
Áhersla á
samnýtingu og
tryggt aðgengi
almennings
Morgunblaðið/Golli