Morgunblaðið - 15.09.2005, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 13
FRÉTTIR
makríl, síld, eldisrækju og humri
svo dæmi séu tekin. Það hentar vel
við reykingu á laxi, en er líka notað í
kjöt af ýmsu tagi svo sem af strút-
um, kjúklingum og öndum.
Einn af stærri framleiðendum í
kjúklingum í Evrópu er nýbyrjaður
að note Natural White * tækni, til
að útrýma öllum E-merkingum, sem
þurfti áður við kjúklingaframleiðslu,
vegna notkunar á fosfati og öðrum
kemískum efnum. Natural White *
er náttúrulegt.
Natural White * var fyrst notað
1991 og hefur verið í stöðugri þróun
síðan.
Natural White * er framleitt úr
rósmaríni, salti og vatni.
Sérstakt salt er notað, sem er
mineralríkt.
Natural White ehf. er nýflutt með
alla sína starfsemi í Grófina 18 C,
230 Keflavík.
SEIGLA ehf. og Reimar Vilmund-
arson í Bolungarvík hafa undirritað
samning um kaup Reimars á nýjum
bát, Seigur 1160. Bátinn mun Reim-
ar nota til veiða á veturna en far-
þegasiglinga á sumrin. Þetta mun
vera fyrsti báturinn frá Seiglu sem
fer til Bolungarvíkur. „Þeir hjá
Seiglu voru þeir einu af bátasmiðj-
unum sem voru tilbúnir til að hanna
með mér bát, sem hentaði fyrir
hvort tveggja, veiðar og skemmti-
siglingar. Báturinn verður búinn til
veiða á línu og í net og verður yf-
irbyggður og verður hægt að opna
hann að hluta til fyrir farþegana.
Ég geri ráð fyrir að fá leyfi fyrir 30
farþega en á gamla bátinn gat ég
aðeins tekið 12. Það er of lítið því
hóparnir eru oft stærri og þá vilja
allir úr hópnum komast í sömu
ferðina. Ég er mjög ánægður með
samskiptin við þau hjá Seiglu. Bát-
urinn verður mjög góður og líklega
sá fyrsti í Bolungarvík, sem verður
alveg yfirbyggður,“ segir Reimar.
„Við förum eftir óskum kaup-
enda eins og við getum og er leyfi-
legt samkvæmt íslenzkum lögum
og reglugerðum. Við skoðum allt
sem viðskiptavinurinn biður um og
reynum að leysa úr málum hans,“
segir Hrönn Ásgeirsdóttir hjá
Seiglu. Hún segir að nú sé mest
beðið um smíði á yfirbyggðum bát-
um allt að 15 tonnum að stærð, en
einnig séu menn að spá í stærri
báta eins og Happasæl, sem er 30
tonn og smíðaður hjá Seiglu. „Það
er mikið um að vera hjá okkur og
næg verkefni framundan,“ segir
Hrönn.
Nýr bátur til veiða
og skemmtisiglinga
Morgunblaðið/Golli
Bátar Reimar Vilmundarson og Hrönn Ásgeirsdóttir handsala samning um
bátakaup Reimars hjá Seiglu ehf. Gengið var frá samkomulaginu um borð í
bát frá Seiglu á sjávarútvegssýningunni.
haldin til skiptis í þátttökulönd-
unum en þetta er í fyrsta sinn
sem þingið er haldið hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra
Landmælinga Íslands, hefur fyr-
irtækið verið þátttakandi í starfi
evrópskra kortastofnana síðan
1986, en Fasteignamat ríkisins
hefur verið aðili að samtökunum
síðan 2004.
Væntanleg INSPIRE tilskipun
Evrópusambandsins um uppbygg-
ingu og grunngerð landupplýsinga
í Evrópu er það málefni sem verð-
ur efst á baugi á ársþinginu nú.
„Markmið tilskipunarinnar er að
landfræðileg gögn verði aðgengi-
leg á öllum stjórnsýslustigum inn-
an ESB til þess að fylgja betur
eftir stefnumörkun á ýmsum svið-
um.
Einnig er lögð mikil áhersla á
að samnýting verði innan stjórn-
sýslunnar og að aðgangur almenn-
ings að upplýsingum um umhverf-
ismál verði tryggður,“ segir í
sameiginlegri fréttatilkynningu frá
Landmælingum Íslands og Fast-
eignamati ríkisins.
Að því er þar fram kemur er
starfsemi EuroGeographics mjög
fjölbreytt, allt frá því að vera
samráðsvettvangur landanna á
fagsviðum stofnanana og farvegur
fyrir mikilvægt samstarfsverkefni,
s.s. landmælingar, gæðamál og
höfundarétt, yfir í gerð og vinnslu
stafrænna gagnasafna af Evrópu.
Þess má geta að gögn um Ís-
land eru komin inn í tvö af þrem-
ur megingagnasöfnum EuroGeog-
raphics, SABE sem sýnir
stjórnsýslumörk og EurGlobalMap
sem er stafrænn kortagrunnur í
mælikvarða 1:1.000.000.
Þriðja gagnasafnið EurRegion-
alMap er í vinnslu, en það er gerð
stafræns kortagrunns af allri Evr-
ópu í mælikvarða 1:250.000.
SAMBAND sveitarfélaga á Austur-
landi heldur 39. aðalfund sinn á
Reyðarfirði í dag og á morgun.
Fundurinn hefst kl. 14 í dag og eru
viðfangsefnin, auk hefðbundinna
aðalfundarstarfa, m.a. kynning
Elsu Arnardóttur hjá Fjölmenning-
arsetri um viðhorf innflytjenda á
Austurlandi og Vestfjörðum og ný
skýrsla um mat á samfélagsáhrifum
og arðsemi jarðgangatenginga á
Austurlandi, sem Rannsóknarstofn-
un Háskólans á Akureyri hefur
unnið. Þá fjalla Sigfús I. Sigurðsson
frá iðnaðarráðuneyti og Elvar K.
Valsson hjá Impru – Iðntæknistofn-
un um helstu áherslur í vaxtar-
samningi fyrir Austurland. Á
fimmtudag hefst nefndastarf árla
morguns og í kjölfarið verða mál-
efni fjarskipta og dreifikerfa á
landsbyggðinni tekin fyrir. Þá verð-
ur kynnt sameiginlegt vöktunar-
verkefni Þróunarstofu Austurlands
og Rannsóknarstofnunar Háskól-
ans á Akureyri og að endingu fjalla
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra og Einar Rafn Haraldsson
hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
um heilbrigðisþjónustu og málefni
aldraðra. Áætluð fundarlok eru um
miðjan dag á föstudag, að loknum
nefndarstörfum, afgreiðslu nefnda-
álita og kosningum.
Á aðalfundinum verður jafnframt
kynntur nýr ferðavefur Ferðamála-
samtaka Austurlands og veitt árleg
menningarverðlaun SSA. Formað-
ur SSA er Soffía Lárusdóttir.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi hefst í dag
Rannsóknir verða í
brennidepli á fundinum