Morgunblaðið - 15.09.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 15
ERLENT
Manila. AFP. | Fólk frá
þróunarlöndunum, sem
starfar í auðugum
löndum, á að giska 125
milljónir manna, sendir
árlega alls um 200
milljarða dollara til
ættingja í heimalönd-
unum, að sögn Donalds
Terrys, yfirmanns fjár-
festingasjóðs Inter-
American bankans í
Bandaríkjunum. Er
um að ræða meira fé en
samanlögð fjárhags-
aðstoð og bein fjárfest-
ing auðugra þjóða í
þróunarríkjunum nem-
ur.
Fram kom á ráðstefnu í Manila á
Filippseyjum á mánudag að fjár-
hæðin sem send væri heim á hverju
ári hefði verið vanmetin og hún gæti
jafnvel verið enn hærri. Sagði Terry
að opinbera talan sem nefnd hefði
verið, 126 milljarðar dollara, væri
greinilega allt of lág ágiskun. Allar
kannanir sýndu að geysimiklu fé
væri miðlað til heimalandanna fyrir
atbeina óskráðra stofnana og fyrir-
tækja. Robert Bestani, einn af yfir-
mönnum Þróunarbanka Asíu, sagði
að þetta fjárstreymi hefði að miklu
leyti verið falið vegna þess að fjár-
málastofnanir hefðu ekki gert sér
grein fyrir heildar-
umfanginu í heiminum.
Og peningasending-
arnar væru auk þess
mjög umdeildar.
„Það er svo indælt
að ræða um frjálst
flæði milli landa á
vörum en ekki indælt
að tala um frjálst flæði
fólks,“ sagði Bastani.
Hann bætti við að um-
fangið gæti aukist enn
vegna þess að á ríkum
svæðum eins og í Evr-
ópu og Japan væri
skortur á ungu fólki og
því gæti erlendum
starfsmönnum frá þróunarlöndum
fjölgað.
Bastani sagði að af þróunarlönd-
um fengju Indland, Mexíkó og Fil-
ippseyjar mest fé sent heim frá
borgurum er störfuðu í auðugum
löndum. Þótt féð kæmi sér vel og
nýttist ekki síst fátækasta hluta
fólksins í þróunarlöndunum, þyrftu
fjármálafyrirtæki að benda því á
leiðir til að fjárfesta peningana
þannig að þeir bæru meiri ávöxt og
draga úr kostnaði við sendingarnar.
Sérfræðingar vara þó ríkisstjórnir
við að reyna að skattleggja greiðsl-
urnar eða þvinga fólk til að nota pen-
ingana á einn hátt fremur en annan.
Spara og
senda heim
Fátækt, erlent verkafólk sendir
mun meira fé heim til sín en nemur
samanlagðri þróunaraðstoð
Skynsemin segir
þér hvað er rétt
að gera
410 4000 | landsbanki.is
Launavernd
Ertu búinn að tryggja þér og fjölskyldunni
áframhaldandi laun komi til tekjumissis vegna
fráfalls, sjúkdóma eða starfsloka vegna aldurs?
Skynsemin segir þér hvað er rétt að gera.
Ekki hugsa málið – kláraðu það!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
28
24
9
0
9/
20
05
!
"
!
!
#
" $!
%
&$
'
&!!!
!
!
%
()
*
(
!
+
*
))
'!"
)(
*
),
'!"
)-
*
()
'!" (
*
% !"#!
$
-
*
))
%
%&# '