Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 19

Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 19 MINNSTAÐUR Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeið fyrir börn. Taltímar. Einkatímar. Kennum í fyrirtækjum. Frönskunámskeið hefjast 19. september Innritun 5. til 16. september Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: alliance@simnet.is Upplýsingar í síma 552 3870✆ AUSTURLAND Fáskrúðsfjörður | Íbúar á Fá- skrúðsfirði hafa margir hverjir miklar væntingar í tengslum við þær breytingar sem orðið hafa með tilkomu jarðganga milli Fáskrúða- fjarðar og Reyðarfjarðar. Þó er uggur í einstaka manni hvort allt verði til góðs, svo sem hvort verslun helst á staðnum, þar sem svo stutt er nú í þjónustu á Reyðarfirði og yf- ir í Hérað. Fáskrúðsfjarðargöng eru önnur lengstu jarðgöng á Íslandi eða 5,9 km. Þau stytta leiðina frá Fáskrúðs- firði til Reyðarfjarðar úr 50 kíló- metrum í 19 og spila gríðarstóran þátt í að gera Mið-Austurland að einu samfelldu atvinnusvæði. Soffía Lárusdóttir, formaður Sambands sveitarfélaga á Austur- landi sagði við opnun Fáskrúðs- fjarðarganga að samgöngubætur væru eitt allra mikilvægasta byggðamálið. „Þessi samgöngubót eykur tvímælalaust atvinnu- og þjónustusókn og öryggi, sem ekki er síður mikilvægt,“ sagði Soffía. Fáskrúðsfjarðargöng gera Mið-Austurland að einu atvinnu- og þjónustusvæði Íbúarnir sjá fram á miklar breytingar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Göngin samgöngubót Byltingarkennd fyrir nærliggjandi sveitarfélög og skapa öflugra atvinnu- og þjónustusvæði. „JARÐGÖNGIN eiga eflaust eftir að hafa mikil áhrif á svæðinu og sam- skipti munu aukast, en ég geri mér ekki grein fyrir hvaða áhrif þau hafa á verslun og þjónustu í Austurbyggð. Þetta ætti þó að styrkja svæðið með betri og fjölþættari þjónustu“ segir Steinþór Pétursson, sveitarstjóri Austurbyggðar. Hann telur að atvinnulega séð muni svæðið styrkjast með fjöl- breyttari atvinnu og fólk hafi nú meira val um búsetu en áður. „Í heild- ina mun þessi stytting á vegalengd- um hugsanlega geta haft áhrif á sam- einingar sveitarfélaga á svæðinu og eru sameiningarkosningar fyrirhug- aðar. Hægt er að hugsa sér að stjórn- sýslan yrði á einum stað, en í þeim efnum skipta vegalengdir öllu máli.“ Ef ekki verður af sameiningu sveit- arfélaga sér Steinþór ekki miklar breytingar í stjórnsýslu sveitarfé- lagsins frá því sem nú er, en segir að alltaf sé verið skoða hana til hagsbóta fyrir íbúana og samvinna sé mikil og á mörgum sviðum milli sveitarfélag- anna. Steinþór Pétursson Hefur áhrif á sameining- arferlið Á DVALAR- og hjúkrunarheim- ilinu Uppsölum starfa þær Árdís Ei- ríksdóttir hjúkrunarforstjóri og Ósk Bragadóttir rekstrarstjóri. Þær binda miklar vonir við opnun Fáskrúðsfjarðarganga og telja að sú stytting sem varð með tilkomu ganganna geri rekstrarumhverfi Uppsala mun betra. Mikill kostn- aður við flutninga geri reksturinn verri, en nú sé orðið stutt á flugvöll miðað við það sem áður var, sem aftur létti sjúklingum erfiða flutninga. Slíkir flutningar hafi oft verið mjög torveldir að vetri til. Árdís og Ósk segja að aukin sam- vinna geti nú skapast milli sjúkra- stofnana á svæðinu, en nú þegar hafi þeim borist fyrirspurnir frá nærliggjandi stöðum um dval- arpláss á Uppsölum, svo að vega- lengdir skipti greinilega verulega máli hjá þeim sem þessa þjónustu þiggja. Þær hafa og mikla trú á að fólk hyggi í ríkari mæli á búsetu í Fá- skrúðsfirði þegar álverið tekur til starfa árið 2007. Uppsalir litnir hýru auga úr nágrenninu Morgunblaðið/Albert Kemp Breytingar Ósk Bragadóttir og Árdís Eiríksdóttir á hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði segja beiðnir komnar frá nágrannasveitarfélögum. GÍSLI Jónatans- son, fram- kvæmdastjóri Loðnuvinnslunn- ar, segir að göngin hafi mikil jákvæð samfélagsáhrif, bæði hjá fyrir- tækjum og ein- staklingum. „Rekstrarum- hverfi fyrirtækja stækkar og atvinnu- tækifærum fólks fjölgar. Gagnvart Loðnuvinnslunni þýðir öll stytting í vegalengdum minni kostnað og sam- starf á milli fyrirtækja getur aukist frá því sem nú er, þrátt fyrir að sam- starf hafi alltaf verið nokkuð.“ Gísli segir að spennandi tímar séu framundan, þó eflaust geti verið aðrar hliðar á málinu. „Það verður ánægju- legt að fá að takast á við það sem framundan er.“ Gísli Jónatansson Fyrirtækja- samstarf eykst ODDVITI Aust- urbyggðar, Guð- mundur Þor- grímsson, telur að samfara opnun Fáskrúðsfjarðar- ganga muni fara af stað umræða um atvinnuþróun á svæðinu. „Möguleikarnir eru svo miklir og breytingin mikil“ segir Guðmundur. „Ef talað er út frá jarðgöngunum sem slíkum og aðkomu ríkisins hvað varðar inngrip í þróun í at- vinnu- og byggðamálum á Austur- landi, eru göngin það stærsta sem ríkið gat gert þrátt fyrir byggingu álvers á Reyðarfirði og algerlega nauðsynleg fyrir byggðaþróun á Austurlandi.“ Hann telur að heilsteypt atvinnu- og þjónustusvæði skapist í Austur- og Fjarðabyggð og segir að fram- tíðin eigi eftir að leiða það í ljós. „Byltingin hvað okkur varðar á Fá- skrúðsfirði og Stöðvarfirði ásamt Suðurfjörðum, er val um búsetu án þess að vinna sé við húsvegginn. Ef litið er til möguleika sveitarfé- lagsins eru þeir miklir. Hér höfum við mikla kosti, erum með góða þjónustu við fjölskyldufólk og verið er að bæta þá þjónustu með bygg- ingu skólamiðstöðvar. Sundlaugar og íþróttahús eru á báðum stöðum og við teljum að Austurbyggð sé mjög fjölskylduvænt sveitarfélag. Það er von okkar að hér fjölgi og reyndar trúum við því, ef marka má umsóknir um byggingarlóðir í sveit- arfélaginu, en tilbúið er aðalskipu- lag til fjölgunar um helming íbúa í sveitarfélaginu. Fyrir liggur að kjósa um samein- ingu og verði af henni tel ég að til verði eitt öflugasta og mest spenn- andi sveitarfélag á landsbyggðinni. Möguleikarnir eru miklir, nú þegar er annar stærsti hafnarsjóður í landinu í Fjarðarbyggð og í mínum huga eru göngin til að gera hlutina ennþá bjartari á Austurlandi,“ segir Guðmundur. Sveitarfélagið verður spennandi Guðmundur Þorgrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.