Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 37

Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 37 DAGBÓK Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm raðhúsi á einni hæð í Fossvogi. Góður afhendingarfrestur. Sterkar greiðslur í boði. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali. RAÐHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm sérhæð á framan- greindum svæðum. Afhendingartími eftir samkomulagi. Sterkar greiðslur í boði. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali. SÉRHÆÐ VIÐ ÆGISÍÐU EÐA Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Út kom á dögunum sérstök útgáfa MeginStoðar, blaðs MS-félags Íslands. Blað-ið hefur verið gefið út í 22 ár og eru aðjafnaði gefin út tvö tölublöð á ári. Aukaútgáfan hefur þá sérstöðu að fjallað er ein- göngu um aðstandendur MS-sjúklinga. Sigurbjörg Ármannsdóttir er formaður MS- félags Íslands: „Með nýjustu útgáfunni brjótum við blað og tökum fyrir málefni aðstandenda og vina, þ.e. þeirra sem standa sjúklingunum næst, og lýsum tilfinningum og upplifunum þeirra. Sjúkdómur eins og MS er ekkert einkamál og öll fjölskyldan verður þátttakandi í aðlögun að breyttu lífsmunstri.“ Í febrúar var haldinn fræðslufundur á vegum MS-félagsins sem eingöngu var ætlaður aðstand- endum sjúklinga þar sem Sverrir Bergmann taugasjúkdómalæknir fjallaði um MS-sjúkdóminn og meðferðarúrræði: „Húsnæði félagsins fylltist og margir þurftu frá að hverfa enda komu heilu fjölskyldurnar og vinahóparnir til fundarins. Við höfðum ekki fyllilega gert okkur grein fyrir hversu mikil þörf væri hjá aðstandendum fyrir aukna fræðslu.“ 29. september næstkomandi kl. 20 verður hald- inn annar aðstandendafundur í húsakynnum fé- lagsins þar sem Finnbogi Jakobsson læknir hefur framsögu. Í nýjasta tölublaðinu fjallar m.a. Margrét Sig- urðardóttir félagsráðgjafi um MS og fjölskylduna. Tekin eru viðtöl við maka, móður, börn MS- sjúklinga og aðra aðstandendur og vini. MS- félagið var stofnuð árið 1968 að frumkvæði Kjart- ans Guðmundssonar taugasjúkdómalæknis með það að markmiði að auka fræðslu um sjúkdóminn og hjálpa þeim sem eru haldnir honum. MS- sjúkdómurinn (e. Multiple Sclerosis) er tauga- sjúkdómur í miðtaugakerfi og greinist einn af hverjum þúsund Íslendingum með sjúkdóminn, oftast á aldrinum 20 til 40 ára. Orsakir sjúkdóms- ins eru óþekktar og birtingarmyndir margvís- legar. Sjúkdómurinn er ólæknandi en með lyfja- meðferð má í mörgum tilvikum hindra framgang hans og tefja eða stöðva fötlun vegna hans. Á vefsíðu MS-félagsins, www.msfelag.is eru upplýsingar og umræðuvefur um sjúkdóminn. Fé- lagið sinnir margskonar fræðslu og býður m.a. ýmis námskeið, þ. á m. helgarlöng námskeið fyrir einstaklinga búsetta úti á landi. Einnig eru starf- ræktir minni stuðningshópar víðsvegar um landið: „MS er tveggja stafa vandamál sem verður föru- nautur okkar í lífinu en á ekki að ráða lífi okkar. Ef við mögulega getum eigum við að einbeita okk- ur að öðru og láta MS-sjúkdóminn trufla daglegt starf okkar eins lítið og hægt er,“ segir Sigur- björg að lokum. Tímarit | Sérblað Megin Stoðar, blaðs MS-félags Íslands Um aðstandendur MS-sjúklinga  Sigurbjörg Ármanns- dóttir fæddist á Norð- firði 1949. Hún lauk landsprófi frá Flens- borgarskóla árið 1964 og hóf nám við Kenn- araskólann 1966 en hvarf frá námi vegna veikinda. 1968 lauk hún námi í snyrtingu og stofnaði 1970 snyrti- vöruverslunina „Hún“ og rak til ársins 1976. Sigurbjörg hefur starfað við MS-félagið frá árinu 1976, var í varastjórn 1983 og svo ritari til ársins 1994 og loks formaður félagsins frá 2003. Jafnframt er Sigurbjörg gjaldkeri Mannverndar. Sigurbjörg er gift Gylfa Sigurðssyni verk- fræðingi og eiga þau soninn Ármann sem er að ljúka doktorsnámi í flugvélaverkfræði. 50 ÁRA afmæli. Í dag, 15. septem-ber, er fimmtug Anna Margrét Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðing- ur, Bankavegi 8, Selfossi. Hún og eig- inmaður hennar, sr. Kristinn Á. Frið- finnsson, og fjölskylda eru að heiman. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Demantsbrúðkaup | 60 ára brúð- kaupsafmæli eiga í dag, 15. september, hjónin Guðrún Sigurjónsdóttir og Guðmundur Gunnarsson, dvalar- heimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli. Fíngerð blekking. Norður ♠G3 ♥64 ♦DG1063 ♣ÁG64 Suður ♠Á105 ♥DG ♦Á842 ♣KD32 Suður spilar þrjú grönd án afskipta mótherjanna af sögnum og útspilið er spaðasexa (fjórða hæsta). Hvað ætti sagnhafa að vera efst í huga? Fyrst og fremst þakklæti fyrir út- spilið – gott að það var ekki hjarta. En þar fyrir er björninn ekki unninn. Ef tígulsvíningin misheppnast, fær vestur annað tækifæri til að spila hjarta og það verður einhvern veginn að reyna að draga úr áhuga hans til þess. Norður ♠G3 ♥64 ♦DG1063 ♣ÁG64 Vestur Austur ♠K8764 ♠D92 ♥K103 ♥Á98752 ♦K9 ♦75 ♣1075 ♣98 Suður ♠Á105 ♥DG ♦Á842 ♣KD32 Leiðin til þess er að stinga upp spaðagosa í borði, sem er auðvitað frá- leitt ef markmiðið er að tvístoppa spað- ann frá báðum mótherjum séð. En í þessu tilviki er það ekkert sjónarmið. Aðeins vestur getur komist að og hann má mjög gjarnan standa í þeirri trú að austur sé með spaðatíu. Sem sagt: spaðagosi upp, drottning og ás. Síðan lauf á ásinn og tíguldrottn- ingu svínað. Vestur fær slaginn og þarf að vera skyggn til að spila einhverju öðru en smáum spaða, því ekki vill hann stífla litinn ef austur á 10x eftir. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Óánægja með strætókerfið ÉG get ekki annað en látið í ljós óánægju mína með þær breytingar á strætókerfinu sem urðu í Foss- vogs- og Smáíbúðahverfi. Það voru felldar niður þrjár strætóleiðir, leið 6, 7 og 3. Einn vagn er eftir, nr. 11, sem gengur á 20 mín. fresti á virkum dögum til kl. 18, eftir það á 30 mín. fresti um kvöld og helgar. Ef við ætlum að fara niður í Skeifu verðum við að ganga í um 30-40 mín. eða taka vagn upp í Mjódd og annan vagn þar niður á Miklubraut. Það þýðir ekki að segja að við getum tekið einhverjar stofnleiðir úr okkar hverfum því þær ganga einfaldlega hvergi nærri okkur. Að fækka ferðum um meira en þriðjung er ekki raunhæft. Það er von að fólki fækki í vögnunum með svona áframhaldi. Íbúi í Fossvogi. Hvar er Sigmund? HVENÆR hressir Sigmund mann við í hausthúminu? Sakna mikið að sjá ekki skopmyndir hans í Morgunblaðinu. Aðdáandi. Villi er týndur VILLI týndist af Hagamel í Reykjavík sl. fimmtudag og er samlega hafið samband í síma 552 1056 eða hafi samband við Kattholt. Henry er týndur HENRY er Svartur köttur með hvíta bringu, loppur og ljós í rófunni. Hann hefur ekki skilað sér heim í Arnar- tanga 43, Mosfells- bæ síðan göstudag- inn 2. sept. Hann ætti að vera með rauða ól með nafni og símanúmeri. Hans er mjög sárt saknað. Þeir sem gætu gefið upplýsingar um Henry hafi samband við Úrsúlu og Páll í síma 566 7092, 697 7092 eða 663 1543. hans sárt saknað. Hann er grá- bröndóttur rétt eins og Whiskas kötturinn og eyrnamerktur „1271“. Þeir sem hafið séð til hans eða vita um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við Sigurlaugu í síma: 662 1045 eða 860 8014. Svartur kettlingur í óskilum LÍTILL, svartur, stálpaður kett- lingur, um 6-8 mánaða, er í van- skilum í Skerja- firði. Hann er með bláa ól og blátt nafnspjald en ekki er hægt að lesa það sem þar stend- ur. Þeir sem kann- ast við köttinn vin- Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is DAGSKRÁIN í kringum sýninguna Hvernig borg má bjóða þér? í Lista- safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi heldur áfram í kvöld kl. 20 en þá verður „Rápað um borgina“ með Ilmi Stefánsdóttur myndlistarkonu. Á meðan á sýningunni stendur verður boðið upp á gönguferðir sem hvetja menn til að velta fyrir sér borgarlífinu og spurningunni: Hvernig borg má bjóða þér? Ilmur Stefánsdóttir leiðir göngu á nokkra valda staði í borginni þar sem notuð verða ýmis hjálpartæki til að skynja og sjá borgina í nýju ljósi. Farsíminn gæti reynst góður ferðafélagi í göng- unni og því er fólk hvatt til að taka hann með. Göngutúrnum lýkur með því að skoða sýninguna í Hafnarhús- inu en þar er einnig skiptistöð fyrir göngutúra þar sem gestum gefst kostur á að krækja sér í eftirlætis göngutúra annarra og skilja eftir sinn eigin. Rápað um borgina HÖRÐUR Torfa heldur sína árlegu hausttónleika í stóra sal Borgarleik- hússins annað kvöld og er þetta 29. árið í röð sem tónleikarnir eru haldnir. Haldnir verða tvennir tónleikar þetta kvöld. Þeir fyrri klukkan 19.30 og þeir seinni klukkan 22.00. Herði til aðstoðar á tónleikunum verða Vilhjálmur Guðjónsson, Halla Vilhjálmsdóttir og Róbert Þórhallsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hausttónleikar Harðar Torfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.