Morgunblaðið - 15.09.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 41
MENNING
Þegar rithöfundur svararspurningunni um það hversvegna hann skrifi með því
að spyrja á móti hvers vegna mað-
ur dragi andann verður maður
ósjálfrátt hvumsa. Annað gerir
maður af ósjálfráðum hvötum, en
um hitt hélt blaðamaður að maður
tæki meðvitaða ákvörðun um að
gera, og kæmist af, þótt maður
sleppti því, burtséð frá lönguninni
til verknaðarins. Þýski rithöfund-
urinn Thomas Brussig er því beð-
inn um nákvæmara svar þegar við
setjumst niður til að spjalla. Hann
hlær – og dæsir.
„Þegar ég byrjaði að skrifa fyrir
rúmum tuttugu árum, þá fannst
mér ég hafa eitthvað í þetta, og
fann líka, að það var margt sem ég
vildi segja, sem ég hafði hvergi
fundið í bókum annarra. Þetta var
hvatinn. Það var mér mikilvægt að
uppgötva að ég gæti tjáð eitthvað
það sem aðrir höfðu ekki gert. Í
leitinni að þessum hæfileika mín-
um – og ég er viss um að það er
hæfileiki – komst ég að því að ég
vildi verða rithöfundur. En svo
breytist þetta með tímanum. Í dag
segi ég að ég skrifi, vegna þess að
mér líkar einfaldlega það starf.
Mér hugnast það alveg sérstaklega
vel. Það að skrifa er fyrir mér eins
og að sýsla með lífið sjálft. Ég er
stöðugt að hugsa um hvað það er
margt sem býr í mannskepnunni,
og hvernig ég get höndlað það í
skrifum mínum. Ég er viss um að
svo lengi sem mig lystir að skrifa,
þá mun ég hafa augun opin fyrir
lífinu sjálfu. Og það finnst mér
dýrmæt fylgja starfsins.“
Saga Brussigs, Hetjur eins ogvið, er sennilega hans þekkt-
asta, – Brussig var lítið sem ekkert
þekktur heimafyrir þegar hún
kom út og varð metsölubók. Þar
lýsir hann hruni Berlínarmúrsins
og kommúnismans frá sjónarhóli
Austur-Þjóðverja, í gegnum ungan
og heldur einfaldan leynilögreglu-
starfsmann sem hefur meiri áhuga
ákrassandi kynlífsleikjum og perv-
ersjónum en starfi sínu. Thomas
Brussig er sagður fulltrúi þeirrar
kynslóðar rithöfunda eftirstríðs-
áranna sem þorði á ný að takast á
við samtímann algjörlega refja-
laust. Í skrifum hans er húmor, og
hann segir að vinsældir bókar-
innar Hetjur eins og við hafi verið
Þjóðverjum eins og einhvers konar
léttir – gleðilausn, eða comic relief
– frá hádramatískum pólitískum
atburðum. Sjálfur segir hann allar
þær breytingar sem hafi átt sér
stað í Þýskalandi frá því að hann
hóf að skrifa vafalítið horfa öðru-
vísi við rithöfundi heldur en til
dæmis blaðamanni. „Rithöfundur-
inn getur leyft sér að eyða miklum
tíma í að horfa á þessar breytingar
og horfa á stóru myndina. Hann
þarf ekki frekar en hann vill að
bregðast við þeim daglegu málum
sem upp koma í svona ferli, þótt
þau hafi áhrif bæði á hann og
heildarmyndina. Mér finnst það
alltaf kraftaverki líkast þegar ég
dett niður á ákveðið efni í bók. Ef
ég tek dæmi, þá er það ekki þann-
ig að vegna þess að heimurinn
fékk áfall 11. september 2001, þá
hefði ég strax orðið að skrifa um
það. Ég hef mikinn áhuga á heim-
inum og samtíma okkar. En ég get
ekki ákveðið: „Þetta ætla ég að
skrifa um.“ Þetta kraftaverk sem
ég nefndi gerist í tímanum og
rúminu sem rithöfundurinn gefur
sér til að horfa; – og ég á erfitt
með að skilgreina það nánar. Það
sama á við um þær breytingar sem
orðið hafa í Þýskalandi. Ég finn
mig ekki knúinn til að skrifa endi-
lega um þær, – en svo getur verið
að eitthvað spretti úr þeim sem
sest svo að mér, að ég verð bók-
staflega að skrifa um það. Þegar
ég byrja svo að skrifa hef ég það á
tilfinningunni að ég eigi engra
kosta völ – ég verði að gera þetta.
Þeirri tilfinningu fylgir bæði gleði
og sú tilhlökkun að sjá söguna
mótast, allt til enda, – gleði yfir
því að ég skuli hafa getað sökkt
mér í viðfangsefnið og í framhald-
inu sagt það sem segja þurfti með
mínum orðum.“
Orð Brussigs um að hann séaustur-þýskur rithöfundur,
ekki þýskur rithöfundur, og að
sameining Þýskalands verði ekki
fullkomnuð fyrr en hann geti kall-
að sig þýskan rithöfund urðu á sín-
um tíma fleyg. Hann segir að enn í
dag sé talað um þýska rithöfunda
og austur-þýska rithöfunda, en
aldrei um vestur-þýska rithöfunda.
„Þetta á þó bara við um Þýska-
land. Erlendis er talað um mig sem
þýskan rithöfund. Það virðist enn
greypt í huga margra Þjóðverja að
Þýskaland nái austur að Saxelfi,
og þar hefjist Austur-Þýskaland. Í
Þýskalandi er líka talað um rithöf-
unda og „blakka rithöfunda“ og
jafnvel „blakka kvenrithöfunda“.
Á meðan fólk er fast í svona skil-
greiningum er ég austur-þýskur
rithöfundur.“
Brussig nefndi léttinn sem les-
endur hans heimafyrir upplifðu
við að lesa fyndna bók um fall
múrsins, og segir að í framhaldinu
hafi hann stundum upplifað sig
sem „fyndna rithöfundinn“. „Ég
hef það á tilfinningunni að heima
sé ég talinn fyndinn, en kannski
ekkert meira, þótt bækur mínar
hafi orðið ótrúlega vinsælar.
Gagnrýnendur alls staðar annars
staðar hafa tekið bókum mínum á
allt annan hátt, og þess vegna hef
ég freistast til að halda að kannski
væri ég vanmetinn heima. Bæk-
urnar mínar hafa verið þýddar á
28 tungumál og það gleður mig
innilega. Þó finnst mér leitt að
engin þeirra skuli enn hafa komið
út á íslensku. Fyrir ári, þegar ég
fékk boð um að koma á hátíðina,
sendi ég tveimur útgefendum á Ís-
landi bækur og kynningarefni um
mig, í þeirri von að þeir hefðu
áhuga á að hafa eitthvað tilbúið
núna á hátíðinni. En ég heyrði
aldrei neitt frá þeim; – hvorug-
um.“
Í kvöld er þó tækifæri til að
kynnast Thomas Brussig og sögum
hans betur. Hann les úr verkum
sínum ásamt fleiri gestum hátíðar-
innar í Iðnó kl. 20.
Ég á engra kosta völ
’Í Þýskalandi er talaðum rithöfunda og
„blakka rithöfunda“ og
jafnvel „blakka kvenrit-
höfunda“. Á meðan fólk
er fast í svona skilgrein-
ingum er ég austur-
þýskur rithöfundur.‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Thomas Brussig segir að enn í dag sé talað um þýska rithöfunda og austur-
þýska rithöfunda, en aldrei um vestur-þýska rithöfunda.
begga@mbl.is
LEIÐIN
HEIM
Kvartett
Sigurðar
Flosasonar
í kvöld kl. 20.30
Fimmtudagur 15. september
12.00 Hádegisspjall í Norræna
húsinu. Hanan al-Shakyh, Nick
Hornby, Kristján B. Jónasson.
15.00 Eftirmiðdagsspjall í Nor-
ræna húsinu. Hanne Vibeke
Holst, Soffía Auður Birgis-
dóttir, Siri Hustvedt, Þóra
Arnórsdóttir.
20.00 Upplestur í Iðnó. Thomas
Brussig, Hanne Vibeke Holst,
Antonio Tabucchi, Kristín
Eiríksdóttir, Paul Auster.
Bókmenntahátíð
RITHÖFUNDURINN Paul
Auster, sem er gestur á Bók-
menntahátíð í Reykjavík 2005,
mun árita bækur sínar í Bóka-
búð Máls og menningar við
Laugaveg í dag kl. 16.30.
Hann mun koma fram í dag-
skrá í Iðnó í kvöld þar sem
hann les úr verkum sínum auk
þess sem hann situr á spjalli
við Torfa Tulinius í Norræna
húsinu á föstudag.
Paul Auster
áritar bækur