Morgunblaðið - 15.09.2005, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 4 og 6 Í þrívíddSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i 10 ára
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
BESTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Sýnd kl. 4 ísl tal
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
kl. 4, 6, 8 og 10
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 6 ísl tal
MEISTARI
HROLLVEKJU
NNAR SNÝR
AFTUR
TIL AÐ
HRÆÐA
ÚR OKKUR
LÍFTÓRUNA
kl. 8 og 10 b.i. 16 ára
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.15
Sýnd kl. 8 og 10.20
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
O.H.H. / DV. . . /
H.J. / Mbl.. . / l.
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
kvikmyndir.comkvik yndir.co
HLJÓMSVEITIN Donna
Mess lofar því að Grand
Rokk muni brenna í kvöld,
þegar sveitin stígur þar á
svið ásamt Mr. Sillu og
plötusnúðunum Gruesome
Twosome, sem halda munu
uppi „svívirðilegri stemn-
ingu“, að því er segir í
fréttatilkynningu. Donna
Mess ætlar, segir Björg
Sveinbjörnsdóttir liðs-
maður, að spila efni af nýrri
breiðskífu sem væntanleg er
frá sveitinni fyrir jól. „Við
erum að ganga frá umslag-
inu og svona þessa dagana,“
segir hún í samtali við Morg-
unblaðið.
Ásamt Björgu eru Iðunn
Andersen og Sara Gunn-
arsdóttir í Donnu Mess.
Hljómsveitin spilar hráa
elektró-rokk- og paunk-
tónlist og „syngur á tælandi
hátt um brjálaða hluti úr
fortíð, nútíð og framtíð“.
Donna Mess syngur á tælandi hátt um brjálaða hluti.
Donna Mess, Mr. Silla og Gruesome Twosome á Grandrokki í
kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og aðgangur kostar kr. 500.
Donna
Mess
brennir
Grand Rokk
í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
7,8 af 10 mögulegum, sem er í
hærra lagi þar á bæ. Sérstaklega
er mælt með plötunni á síðu sem
tileinkuð er góðri nýrri tónlist.
Eins og Yes
Í norska dagblaðinu Aftenposten
DÓMAR um nýju Sigur Rósar-
plötuna, Takk …, hafa verið að
hrannast upp á síðustu dögum, en
hún kom sem kunnugt er út á
mánudaginn. Á vefnum metacritic-
.com, sem tekur saman vegið með-
altal plötudóma, fær hún 83 af 100
mögulegum. Það svarar til „alls-
herjarlofgjarðar“, eða þess sem að-
standendur vefjarins kalla „univer-
sal acclaim“.
Nokkrir miðlar gefa plötunni
fullt hús, meðal annarra E! Online,
sem segir: „Fólk mun Takk-a
[tala] um þessa sannarlega stór-
kostlegu plötu í mörg ár héðan í
frá.“
Entertainment Weekly gefur
Takk … 91 stig af 100 mögulegum.
„Á köflum „rokkar“ Takk … næst-
um því – eins mikið og ískrist-
alsálfar frá ævintýralandinu Narn-
íu geta yfir höfuð rokkað, en
samt,“ segir gagnrýnandi blaðsins
og notar líkingar í þeim stíl sem
algengur er í umfjöllun erlendra
fjölmiðla um sveitina.
Breska blaðið The Guardian gef-
ur plötunni fjórar stjörnur af fimm
og segir: „Loksins hafa svölustu
synir Íslands mölvað jökulinn sem
hélt aftur af þeim,“ segir gagnrýn-
andinn og á við að með Takk …
séu Sigur Rósar-menn loksins
komnir með plötu sem sé líkleg til
vinsælda.
Hljóð frá Guði
New Musical Express gefur
sömu einkunn, 8 af 10. „Ef maður
ímyndar sér hljóðið sem Guð gefur
frá sér rétt áður en hann borðar
ristaða brauðsneið með osti er það
hlutfallslega jafn fullnægjandi og
að hlusta á allar 65 mínútur
Takk … Venjulegt fólk. Stórkost-
leg lög,“ segir í dómnum.
Andy Kellman hjá All Music,
einum yfirgripsmesta tónlist-
arvefnum, gefur plötunni fjórar
stjörnur og segir að hún beri öll
einkenni sveitarinnar, þrátt fyrir
að vera aðgengilegri en fyrri verk
hennar. Gagnrýnandi Billboard
gefur sömu einkunn og segir:
„Þótt sveitin komi ekki á óvart
með nýrri tækni eða aðferðum hef-
ur Sigur Rós tekist að gera
óhemju fallega plötu.“
The New York Times gefur fjór-
ar stjörnur og Pitchfork-vefurinn
fær platan 5 í einkunn af 6 mögu-
legum. Þar er Sigur Rós líkt við
bresku „prog-rokkarana“ í Yes.
„Það er ekki bara falsettusöngur
Jónsa Birgissonar sem minnir á
Yes. Lag eins og hið tíu mínútna
langa „Mílanó“ á ýmislegt sameig-
inlegt með bestu verkum bresku
prog-rokkaranna,“ segir frændi
okkar á Aftenposten. Gagnrýnandi
hins danska Jyllands-Posten er
ekki alveg eins hrifinn, en gefur
Takk … engu að síður fjórar
stjörnur af sex mögulegum.
Ljósmynd/Helen Woods
„Loksins hafa svölustu synir Íslands mölvað jökulinn sem hélt aftur af þeim,“ segir í einni rýninni.
„Eins og ískristalsálfar frá Narníu“
Tónlist | Lofsamlegir dómar hafa verið að birtast um nýja plötu Sigur Rósar Takk …
Knattspyrnuáhugamenn
kunna að vera þeirrar
skoðunar að David Beck-
ham hafi í raun og veru
gert kraftaverk – á knatt-
spyrnuvellinum, það er að
segja – en skoskur fé-
lagsfræðiprófessor heldur
því fram í erindi sem hann
heldur á ráðstefnu í dag að
Beckham kunni að fara
næst því að vera eins konar
frelsari í bresku nútíma-
samfélagi.
„Vörumerkið Beckham
snýst allt um hjálpræði,
endurlausn og jafnvel upp-
risu,“ segir Carlton Brick,
sem kennir við stjórnmála-
og félagsfræðideild Há-
skólans í Paisley í Skot-
landi. „Það er ekki ég sem
er að halda því fram að hann sé eins konar
Krists-ímynd heldur er sú mynd einfaldlega
oft dregin upp af honum og hann hefur sjálfur
gefið þá mynd af sér.“
Í erindi Bricks á ráðstefnu um dægurhetjur,
sem haldin er í Paisleyháskóla, kemur fram að
fjölmiðlar hafi fjallað um knattspyrnuferil
Beckhams eins og dæmisögu um Krist. Þetta
hafi byrjað í HM í Frakklandi 1998 þegar hann
var rekinn af velli í leik við Argentínumenn og
mörg bresk blöð kenndu honum um að
England skyldi tapa leiknum.
En síðan hafi Beckham hlot-
ið endurlausn. „Það var meira
að segja birt af honum mynd í
tímariti þar sem hann var eins
og Jesús í hvítri skyrtu undir
fyrirsögninni „Endurlausn“,“
segir Brick. Upp frá því hafi
frægð hans vaxið og aðdáunin á
honum aukist.
„Síðan var þess vænst að
hann kæmi eins og frelsari inn í
enska knattspyrnu. The Sun
birti mynd af brotnum fætinum
á honum og bað lesendur að
leggja hönd á myndina til heil-
unar,“ segir Brick. Beckham sé
auk þessa með róðukrosstattó
og hafi skírt son sinn Cruz,
sem er spænska og þýðir kross.
Og um jólin voru myndir af
Beckham og konu hans, Vikt-
oríu, í hlutverkum Jesú og Maríu á Madame
Tussaud-vaxmyndasafninu í London.
En Brick segir að þessi samlíking sé í raun
út í hött. „Það má vel vera að Beckham sé guð-
inn í neyslumenningu heimsins – óháð kyni og
kynþætti – en þegar allt kemur til alls er hann
bara fótboltamaður. Hann getur ekki fært
heimsbyggðinni frið og hamingju og það er
eitthvað alvarlega rangt við það að nota hálf-
gerðar helgimyndir til að gefa í skyn að hann
geti það,“ segir hann.
Fólk folk@mbl.is