Morgunblaðið - 16.11.2005, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikilli sam-
þjöppun spáð
hjá lággjalda-
flugfélögum
á morgun
FYRIR tíu árum ákvað ríkisstjórnin að fæðingardagur Jónasar
Hallgrímssonar, 16. nóvember, yrði dagur íslenskrar tungu ár
hvert. Menntamálaráðuneytið hefur síðan árlega beitt sér fyrir
sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt
við það, í samstarfi við skóla, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök
og einstaklinga.
Haldið er upp á daginn með margvíslegu móti. Hér verða
nefnd ýmis dæmi um viðburði o.fl. nú í ár.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Á degi íslenskrar tungu verður hátíðardagskrá þar sem
menntamálaráðherra afhendir Verðlaun Jónasar Hallgríms-
sonar 2005 auk tveggja sérstakra viðurkenninga fyrir störf í
þágu íslensks máls. Dagskráin verður í sal Listasafns Reykja-
nesbæjar í Duus-húsum í Reykjanesbæ kl. 16–17. Tónlist-
arflutningur í umsjón Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Upp-
lestur: Elísa Sveinsdóttir og Óli Ragnar Aðalsteinsson,
verðlaunahafar úr Stóru upplestrarkeppninni. Allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Námsgagnastofnun
Námsgagnastofnun hefur útbúið vefsíður helgaðar degi ís-
lenskrar tungu. Undir tenglinum Í dagsins önn er smellt á ten-
gil um ýmsa merkisdaga og þar á meðal er dagur íslenskrar
tungu. Önnur síðan um dag íslenskrar tungu fjallar sérstaklega
um ljóðagerð. Sjá http://namsgagnastofnun.is.
Kennaraháskóli Íslands
Dagskrá verður í Kennaraháskóla Íslands allan daginn.
Verkefni nemenda verða kynnt kl. 8.30–15.
Að þessu sinni verður líka haldið málþing í Bratta og er það
öllum opið. Yfirskrift þingsins er Góð orð finna góðan stað. Í há-
deginu verður dagskráin Þá var ég ungur, flutt í Fjöru, matsal
nemenda.
Bókmenntaþing ungra lesenda
Í ár er bryddað upp á þeirri nýjung að efna til sérstaks bók-
menntaþings sem ætlað er börnum og unglingum á aldrinum
10–16 ára. Að þinginu standa Íslensk málnefnd, Fræðsluskrif-
stofa Reykjanesbæjar og SÍUNG, samtök íslenskra barna- og
unglingabókahöfunda. Þingið
verður haldið í Reykjanesbæ í
dag kl. 10–12. Frummælendur
á þinginu verða börn og ung-
lingar úr Áslandsskóla og Víð-
istaðaskóla í Hafnarfirði,
Grunnskóla Grindavíkur,
Holtaskóla og Myllubakka-
skóla í Keflavík og Njarðvík-
urskóla. Yfirskrift bókmennta-
þings ungra lesenda er Er
gaman að lesa? Ungir lesendur
flytja samtals 10 framsöguer-
indi.
Grunnskólanemar á
Ísafirði með dagskrá
Grunnskólanemendur á Ísa-
firði standa fyrir dagskrá í Ed-
inborgarhúsinu. Nemendur í 10. bekk koma þar fram og lesa
ástarljóð og flytja tónlist. Boðið verður upp á kaffi og veitingar.
Tíu ár eru liðin frá því að fyrst var haldið upp á þennan dag.
Málþing um Grunnavíkur-Jón
Félagið Góðvinir Grunnavíkur-Jóns efnir til málþings í dag
kl. 12.15 í Þjóðminjasafninu en þar hefur nú í haust staðið sýn-
ingin Eldur í Kaupinhafn. Málþingið og sýningin er helguð
minningu Jóns Ólafssonar frá Grunnavík en 16. ágúst sl. voru
liðin 300 ár frá fæðingu hans.
Málræktarþing Íslenskrar málnefndar og MS
Hið árlega málræktarþing undir merkjum dags íslenskrar
tungu verður haldið á laugardaginn í hátíðasal Háskóla Íslands
kl. 11.00–13.30.
Umræðuefnið er að þessu sinni íslensk málstefna og starf-
semi Íslenskrar málnefndar. Erindi halda Guðrún Kvaran, for-
maður Íslenskrar málnefndar, Jóhann G. Jóhannsson, Íslenskri
málnefnd, Kolbrún Friðriksdóttir, Íslenskri málnefnd, Kristín
Ingólfsdóttir háskólarektor og Örnólfur Thorsson, skrif-
stofustjóri forseta Íslands. Námsstyrkur Mjólkursamsölunnar
verður afhentur en hann nemur 500 þús. kr. og er ætlaður
námsmanni sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál. Af-
hent verður viðurkenning Íslenskrar málnefndar og Nafn-
fræðifélagsins fyrir gott nafn á fyrirtæki. Þá verður sú ný-
breytni að Íslensk málnefnd veitir viðurkenningu fyrir gott
íslenskt mál í auglýsingu. Kvartettinn Iða syngur og sigurveg-
arar úr Stóru upplestrarkeppninni lesa upp. MS býður upp á
veitingar í hléi. Þóra Björk Hjartardóttir verður fundarstjóri.
Allir eru velkomnir.
Leikjavefurinn
Á Leikjavefnum eru margir leikir sem henta vel til notkunar
á degi íslenskrar tungu. Má þar t.d. nefna flokk um orðaleiki,
leiki til að finna málshátt, búa til orð, safna orðum o.s.frv. http://
www.leikjavefurinn.is/
Leikskólar – dæmi
Samverustund á sal í tilefni dagsins. Unnið sérstaklega með
íslenskt mál alla vikuna á undan deginum. Rætt um skáldið
Jónas Hallgrímsson. Börnin læra vísur og söngva og búa til
leikrit út frá ljóðum eða sögum Jónasar. Sérstakur bókadagur
haldinn.
Stóra upplestrarkeppnin
Dagur íslenskrar tungu er formlegur upphafsdagur Stóru
upplestrarkeppninnar á hverju hausti í grunnskólum landsins.
Sýningin Brynjólfur biskup og 17. öldin
Með sýningunni í Landsbókasafni Íslands – háskóla-
bókasafni, Þjóðarbókhlöðu er þess minnst að 14. september sl.
voru liðin 400 ár frá fæðingu Brynjólfs Sveinssonar biskups.
Brynjólfur gegndi mikilvægu hlutverki í sögu Íslands sem leið-
togi kirkjunnar, veraldlegur höfðingi, heimspekingur, fræði-
maður, latínuskáld og frumkvöðull á sviði mennta og kirkju-
stjórnar. Hann hafði forgöngu um að safna handritum og lét
skrifa þau upp.
Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur um víðan völl
Dagurinn helgaður rækt við málið
Vefur dags íslenskrar tungu er: http://www.mrn.stjr.is/
malaflokkar/Menning/dit
Jónas Hallgrímsson
STJÓRN Ægisdyra, samtaka um
að kanna hugsanlega jarðganga-
gerð milli lands og Eyja hefur sent
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Allt frá stofnun Ægisdyra í
byrjun árs 2003 hefur það verið
baráttumál félagsins að farið yrði í
frekari jarðfræðirannsóknir á fyr-
irhugaðri jarðgangaleið milli lands
og Eyja. Í sumar urðu þessar rann-
sóknir að veruleika og niðurstöður
þeirra liggja nú fyrir með skýrslu
þeirri er lögð var fram 8. nóvember
sl.
Stjórn Ægisdyra hefur kynnt sér
vandlega þá skýrslu sem fyrirtækið
Ísor vann fyrir Vegagerðina og lýs-
ir stjórnin yfir ánægju sinni með
þær niðurstöður er þar liggja fyrir.
Þar er ekki annað að sjá en að nið-
urstöðurnar séu mjög jákvæðar
varðandi framhaldið t.d. varðandi
aðstæður við Kross í A-Landeyjum.
Almennt eru niðurstöður í skýrsl-
unni áhugaverðar og virðist sem
þær séu í samræmi við það sem
kom m.a. fram úr rannsóknum inn-
lendra og erlendra vísindamanna
undir stjórn dr. Ármanns Hösk-
uldssonar sumarið 2004.
Því er það mat stjórnarinnar að
niðurstöðurnar styrki enn áfram-
hald málsins og að jarðgöng milli
lands og Eyja séu enn vænlegasti
framtíðarkostur í samgöngum milli
lands og Eyja.
Vegagerðin hefur í framhaldi
þessarar skýrslu falið tveimur
þrautreyndum aðilum á sviði jarð-
gangagerðar hérlendis og erlendis
að fara yfir niðurstöðurnar og meta
þær fyrir jarðgangagerð og vænt-
anlegan framkvæmdakostnað við
þau. Er miðað við að vinna þeirra
liggi fyrir um miðjan desember.
Einnig eru forsvarsmenn skandin-
avíska fyrirtækisins NCC að fara
yfir þessar niðurstöður og meta
þær miðað við þeirra reynslu af
jarðgangagerð. Einnig mun stjórn-
in keppast við að fá sem víðtækasta
samvinnu aðila er hafa reynslu af
verkefnum sem þessum, því áfram-
haldandi fagleg vinnubrögð eru það
sem skila mestum árangri.
Varðandi fréttaflutning og um-
fjöllun í fjölmiðlum um efni og nið-
urstöður skýrslunnar er Ísor vann,
lýsir stjórn Ægisdyra yfir von-
brigðum með þá umfjöllun er
skýrslan hefur fengið. Einnig telur
stjórnin það vera frumhlaup hjá
þeim aðilum sem hafa verið að
túlka niðurstöður neikvætt fyrir
framhald málsins í fjölmiðlum und-
anfarna daga. Þeir aðilar virðast
ekki hafa kynnt sér efni skýrsl-
unnar nægjanlega vel og um leið
túlkað niðurstöður einhliða og rang-
lega að mati stjórnar Ægisdyra.
T.d. hefur það alltaf legið ljóst fyrir
að þær rannsóknir sem fram-
kvæmdin myndi útheimta myndu
kosta um 200–300 m.kr. enda er
það ekki stór kostnaður í fram-
kvæmd sem hljóðar upp á 20–25
ma.kr.. Einnig hefur jarðfræði
Heimaeyjarsvæðisins verið vel
þekkt og að jarðlög þar séu yngri
en landmegin og því lekt í jarð-
lögum mögulega meiri. Rannsóknir
þær sem hafa farið fram til þessa
gera það að verkum að hægt er
með betri vissu að greina áhættu-
þátt og kostnað framkvæmdarinn-
ar.
Stjórn Ægisdyra vill koma því
skýrt til skila að líkur á jarðganga-
gerð milli lands og Eyja eru
óbreyttar og skýrsla Ísor er mik-
ilvæg fyrir jákvætt framhald máls-
ins. Stjórnin stefnir einnig á að
koma á kynningarfundi hér í Eyj-
um sem allra fyrst og þar verði
skýrsluhöfundar, aðilar frá Vega-
gerðinni sem og aðrir vísindamenn
er hafa komið að málinu á sl. tveim-
ur árum.
Jarðgöng milli lands og Eyja eru
áfram fyrsti möguleiki varðandi
framtíðarlausn í samgöngum
Eyjanna.“
Yfirlýsing frá Ægisdyrum vegna skýrslu Ísor
Telja jarðgöng fyrstu mögu-
legu framtíðarlausnina
Morgunblaðið/Sigurgeir