Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 37 DAGBÓK Árnaðheilla dagbók@mbl.is Samtökin Ný dögun standa að fyrirlestrisem fram fer annað kvöld, fimmtudag, íFossvogskirkju kl. 20, þar sem aðGuðný Bjarnadóttir ljósmóðir mun ræða um fósturmissi og andvanafæðingar. Fyrirlestur hennar ber nafnið; „Barnið sem ég kynntist ekki,“ en fyrirlesturinn er öllum opinn. Samtökin Ný dögun voru stofnuð árið 1987 af Guðmundi Árna Stefánssyni fyrrv. alþingis- manni og konu hans Jónu Dóru Karlsdóttur, en fleiri aðilar komu að stofnun félagsins. Sr. Auður Inga Einarsdóttir er talsmaður samtakanna og segir Auður að félagið sé áhuga- mannasamtök sem byggi alla sína vinnu á sjálf- boðastarfi, styrkjum og félagsgjöldum. Helstu markmið Nýrrar dögunar eru að efna til almennra fræðslufunda og samverustunda. Veita upplýsingaþjónustu sem auðið er á hverj- um tíma. Vinna að stofnun stuðningshópa. Greiða fyrir samskiptum stuðningsaðila og syrgjenda. Standa fyrir námskeiðahaldi og þjálfun stuðn- ingsaðila. Efla almenna fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð í fjölmiðlum og sem víðast á opinberum vettvangi. Í hverjum mánuði er haldinn fyrirlestur á veg- um Nýrrar dögunar og hafa þeir verið vel sóttir. „Guðný mun í fyrirlestri sínum vekja athygli á því hve raunveruleg þessi persóna er hjá þeim sem verða fyrir því að missa fóstur eða fæða andvana barn. Að mati okkar í samtökunum hef- ur lítið verið fjallað um þessa hluti og sorgin sem fólk upplifir er oft ekki meðtekin í sam- félaginu og margir eiga erfitt með að setja sig í spor þeirra sem eiga um sárt að binda.“ Auður segir að margir átti sig ekki á því að fólk fer í gegnum sorgarferli engu að síður er það missir barn á meðgöngu og upplifunin sé sú sama og að missa barn. „Það er mikilvægt að fólk fái að syrgja og fái aðstoð í slíkum tilvikum. Ef það fær ekki að gera slíkt getur sorgarferlið skilið eftir sig djúp and- leg sár sem ekki er búið að vinna með.“ Auður er ánægð með þau viðbrögð sem fyrir- lestrar samtakanna hafa fengið en á heimasíðu þeirra, www.sorg.is, er hægt að nálgast hag- nýtar upplýsingar um ýmislegt sem snýr að starfinu og dagskránni sem er framundan. „Við höfum reynt að hafa einn fyrirlestur í mánuði og í byrjun desember, fimmtudaginn 8. desember, mun sr. Sigfinnur Þorleifsson halda fyrirlestur á okkar vegum um sorgina í tengsl- um við jólahátíðina. Það er mikil þörf fyrir slík samtök að okkar mati en það hefur verið þróun- in síðustu ár að æ fleiri kjósa að mæta á fyrir- lestra félagsins án þess að taka þátt í starfi fé- lagsins með formlegum hætti,“ sagði Auður Inga. Fyrirlestur | Samtökin Ný dögun standa að almennri fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð Barnið sem ég kynntist ekki  Sr. Auður Inga Ein- arsdóttir fyrrum sókn- arprestur er talsmaður Nýrrar dögunar sem eru samtök um sorg og sorgarviðbrögð. Auður starfar sem kennari í dag og hefur starfað lengi með samtök- unum. Félagið er öllum opið en starfsemin felst í stuðningi við þá sem eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis ásamt almennri fræðslu og fyrirlestrum um sorg og sorgarviðbrögð. 80 ÁRA afmæli. Í dag, 16. nóvem-ber, er áttræður Jón Kristins- son, (Jóndi), bóndi og listamaður, Lambey í Fljótshlíð. Jón er að heiman í dag. 70 ÁRA afmæli. Í dag, 16. nóvem-ber, er sjötugur Bragi R. Ingv- arsson, fyrrv. matsveinn og fram- reiðslumaður, Sæbólsbraut 24, Kópavogi. Hann er að heiman í dag. Dagur íslenskrar tungu ÖLDRUÐ kona í úthverfi sendi Vel- vakanda eftirfarandi: Menningarfulltrúi talar í sjónvarp í 20 mínútur. Viðfangsefnið er eftir- farandi: Enterteinment bisness. Markaðselement. Abstraktheimur. Pródjekt. Konsept. Pródúsera. Dramatík. Djobb. Dressa upp. Krísa. Gossip. Kommentera. Lífs- ritmi. Rasisti. Eftirmáli: Það er sannarlega búið að dressa upp íslenskuna. Mennt er máttur. Stjórnmálamenn sem spenna greipar UM þessar mundir eru vinsælar bækur eftir höfundinn Alexander McCall Smith, sem er prófessor í „Medical Law“ og mikill heimspek- ingur. Hann skrifar á skemmtilegan og einfaldan hátt og lýsingar hans á fólkinu í Afríku sýna fram á afburða innsæi hans í mannsheilann. Ég gat ekki setið á mér að senda frá mér málsgrein, þar sem hann lætur konu með mikið innsæi og reynslu af mannfólki vera að gera sér grein fyrir persónuleika manns. Lauslega þýtt á íslensku: „Hvað með nýja stjórnmálamanninn, þenn- an sem er nýbúið að gera að aðstoð- arráðherra, skyldi honum vera treystandi, eða hefur hann eingöngu áhuga á sjálfum sér, eða í neyð áhuga á sínu eigin fólki frá sinni borg? Hann hefur efalaust aðeins áhuga á sjálfum sér og sínum, hugs- aði Mma Ramotswe; að sjá hann, bara hvernig hann spennir greipar fyrir framan sig, þegar hann talar? Það er eitt öruggt einkenni, alltaf.“ Ja, hérna. Hverjir af okkar póli- tíkusum skyldu standa frammi fyrir alþjóð og spenna greipar um mag- ann, þegar þeir tala? Almennur kjósandi. Tímaritið Dagrenning og Sjómannablaðið Víkingur ÚR dánarbúi foreldra minna eru í mínum fórum allir árgangar af tíma- ritinu Dagrenningu og af Sjómanna- blaðinu Víkingi frá upphafi fram til 1978. Áður en ég fleygi þessu langar mig til að vita hvort nokkur „grúsk- ari“ hefur áhuga á að þiggja þetta. Uppl. í síma 568 5990 og 862 7926. Týnd Graco-barnakerra GRACO-kerra tapaðist á bílastæð- inu hjá Smárabíói í Smáralind síð- asta föstudag um kl. 18. Skilvís finn- andi vinsamlega hafi samband í síma 861 2616. Gleraugu og armbandsúr í óskilum GLERAUGU, sennilega kven- mannsgleraugu, og armbandsúr fundust á kosningaskrifstofu Kjart- ans Magnússonar um eða rétt fyrir sl. helgi 4.–5. nóv. Upplýsingar í síma 899 5926. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. Rf3 d5 2. c4 e6 3. d4 Rf6 4. Rc3 Be7 5. Bf4 c5 6. dxc5 Ra6 7. cxd5 Rxd5 8. Rxd5 exd5 9. e3 Rxc5 10. Bb5+ Bd7 11. Bxd7+ Dxd7 12. O-O O-O 13. De2 Hac8 14. Be5 a6 15. Bd4 Re4 16. Re5 Df5 17. Hac1 Hxc1 18. Hxc1 Hc8 19. Hxc8+ Dxc8 20. Rd3 Bf6 21. Bxf6 Rxf6 22. Dd2 h6 23. f3 Dc4 24. b3 Dc7 25. Rf4 De5 26. h3 Da1+ 27. Kf2 Db1 28. Re2 h5 29. h4 Dh1 30. Kg3 Db1 31. Rd4 Rd7 32. Dc3 Rf8 33. Kh2 g6 34. a4 Da2 35. Kg3 Da3 36. Dc7 Da1 37. De7 De1+ 38. Kf4 Dd2 Ein af þekktari skákum skáksög- unnar er marséring Nigels Shorts með hvíta kóng sinn, Kg1-Kh2-Kg3- Kf4-Kg5-Kh6, gegn Jan Timman á skákmóti í Tilburg árið 1991 en mars- éringin gerði að verkum að svartur varð óverjandi mát þó að hann hefði alla þungu menn sína á borðinu. Þessa staða er að sumu leyti sam- bærileg en hún kom upp í heims- meistarakeppni landsliða sem lauk fyrir skömmu í Beer-Sheva í Ísrael. Bu Xiangzhi (2637) frá Kína hafði hvítt og nýtti sér veilurnar í svörtu stöðunni gegn Kúbverjanum Lazaro Bruzon (2677) til að koma kóngi sín- um í sóknina. 39. Kg5! Dxg2+ 40. Kh6! Db2 41. f4 og svartur gafst upp þar sem engin haldbær vörn er gegn hótuninni De7-De5-Dg7 mát. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. HALDIÐ verður upp á dag ís- lenskrar tungu í tónlistarhúsinu Laugarborg í kvöld kl. 20.30. Þar mun stíga á svið tenórsöngv- arinn Gunnar Guðbjörnsson. Á efnisskránni eru íslensk sönglög sem samin hafa verið við texta eftir afmælisbarn dagsins Jónas Hallgrímsson en einnig Stein Steinarr og Halldór Laxness. Þá verður sérstök áhersla lögð á texta Davíðs Stefánssonar á 110 ára af- mælinu. Þórarinn Stefánsson leik- ur á píanó. Gunnar flreytti frumraun sína á hjá Íslensku Óperunni 1988 í Don Giovanni eft- ir Mozart. Hlut- verkaskrá hans er mjög fjöl- breytt en hún hefur að geyma öll helstu aðal- hlutverkin í óper- um Mozart en einnig Nemorino í Ástardrykkn- um, Fenton í Fal- staff, Lensky í Eugene Onegin, Quint í óperu Britten Turn of the screw, Almaviva í Rakaranum frá Sevilla, Stýrimanninn í Hollend- ingnum fljúgandi og Rodolfo í La Boheme. Gunnar Guðbjörnsson syngur í Laugarborg Morgunblaðið/Golli Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngv- ari hefur víða komið við á ferlinum. Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi við Boðahlein. Staðgreiðsla í boði. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali. RAÐHÚS VIÐ BOÐAHLEIN ÓSKAST Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Fjögurra herbergja íbúð í Smárahverfi Kópavogsóskast nú þegar til kaups. Góðar greiðslur í boðifyrir réttu eignina. Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson. SMÁRAHVERFI KÓPAVOGS Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Vel staðsett 245 fm raðhús á þremur pöllum með innbyggðum bílskúr og aukaíbúð í kjallara (í leigu fyrir 50 þús. á mán). Húsið skiptist þannig: Á 1. hæð er forstofa, hol, gestasnyrting, eldhús, sjónvarpsherbergi, stofa og borðstofa. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi (voru fjögur) og baðherbergi. Bílskúrinn er með rafm. og hita. Í kjallara er þvottahús og tveggja herbergja aukaíbúð. Gunnar Hansson teiknaði húsið, en innréttingar teiknaði Sveinn Kjarval. V. 45 m. Hvassaleiti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.