Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÍTÖK Björgólfs Thors Björgólfs- sonar í finnskum fjarskiptamark- aði hafa aukist verulega eftir að finnska símafélagið Elisa Corpor- ation tilkynnti að Saunalahti Group yrði tekið yfir í samræmi við yfirtökutilboð sem sett var fram í sumar. Novator Finland, fjárfestingar- félag undir forystu Björgólfs Thors, hefur í samræmi við sam- komulag sem gert var 7. júlí hafist handa við að skipta hlutabréfum sínum í Saunalahti í hlutabréf í El- isa. Samtals mun Novator eignast tæplega 16,8 milljónir hluta í El- isa. Lokagengi félagsins í kaup- höllinni í Helsinki í gær var 15 evrur/hlut, og er markaðsvirði hlutar Novator því um 18,2 millj- arðar króna. Alls ræður Novator um 10,1% af heildarhlutafé í Elisa og er félagið því langstærsti hluthafi en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er hlutur næststærsta hluthafa innan við 2%. Elisa er næststærsta fjarskipta- fyrirtæki Finnlands á eftir Telia Sonera. Félagið var stofnað árið 1882 og velti tæplega 1,4 millj- örðum evra, 98,7 milljörðum króna, á síðasta ári. Björgólfur Thor á 10,1% í Elisa Í FLJÓTU bragði gæti virst sem flugvélin væri að lenda á þaki fjölbýlishússins við Þorragötuna við Skerjafjörð en svo var þó ekki heldur sveif hún réttilega og léttilega inn á eina flugbraut Reykjavíkurvallar. Vélin er á bandarísku skrán- ingarmerki en þar sem Íslendingar hafa eignast hana verður hún væntanlega komin með ís- lenska einkennisstafi þegar nauðsynleg skilyrði hafa verið uppfyllt. Morgunblaðið/RAX Mjúk lending í blíðviðrinu RÚMLEGA tvö þúsund Íslending- ar sem eru orðnir 40 ára eða eldri stunduðu nám við dagskóla á framhalds- og háskólastigi á sein- asta ári. Fjölgaði nokkuð í þessum aldurshópi í framhalds- og háskól- um frá árinu á undan. Skiptist hópurinn þannig að 1.462 voru við nám á sérskóla- og háskólastigi, 544 á framhaldsskólastigi og 77 voru við nám erlendis. Þessar upplýsingar koma fram í tölfræðiriti Hagstofunnar Lands- hagir 2005, sem er nýkomið út. Fram kemur í tölum Hagstof- unnar að alls voru 34.502 við nám í framhalds- og háskólum á seinasta ári og hafði fjölgað um rúmlega 700 frá árinu á undan. Um 400 lögðu stund á tungu- mála- eða mannvísindanám 65 einstaklingar á aldrinum 17 til 19 ára voru við nám á sérskóla- eða háskólastigi, 5.775 í aldurs- hópnum 20–24 ára, 3.181 í aldurs- hópnum 25 til 29 ára og 2.221 30 til 39 ára voru við sérskóla- eða há- skólanám á seinasta ári. Sé litið á elsta aldurshóp náms- manna, 40 ára og eldri, kemur í ljós að 405 einstaklingar á þeim aldri voru við tungumála- eða mannvísindanám, 16 við listnám, 275 lögðu stund á uppeldisfræði, íþróttir eða kennaranám, 228 við- skipta- og hagfræðinám, 25 á tæknigreinar eða verkfræði og 155 á lækningar eða aðrar heilbrigð- isgreinar. Alls voru 2.175 Íslendingar við nám erlendis á seinasta ári. Stærsti hópurinn eða 495 lagði stund á nám í tæknigreinum eða verkfræði og 433 voru við listnám. Fjölmargir yfir fer- tugu í háskólanámi LANDSBANKINN opnaði í gærstarfstöð í Kanada. Þetta kom framá blaðamannafundi bankans í Dyfl-inni á Írlandi í gær en þá var und- irritaður samningur um kaup Landsbankans á helmingshlut í írska verðbréfafyrirtækinu Merr- ion Capital Group. Ekki kom frekar fram hvar þessi kanadíska starfs- töð er eða innan hvaða sviðs bank- ans hún starfar. Merrion verður þriðja dótt- urfélag Landsbanka sem sérhæfir sig í verðbréfaviðskiptum en fyrir á bankinn Teather & Greenwood og Kepler Equities. Heildarverðmæti fyrirtækisins er um 55 milljónir evra, fjórir milljarðar íslenskra króna, en formlegt kaupverð hefur ekki verið gefið upp. | 15 Landsbanki kaup- ir í írsku verð- bréfafyrirtæki LEIKTÆKIÐ dvd-kids, sem fram- leitt er af íslenska fyrirtækinu 3- PLUS hf., hlaut nýmiðlunarverð- laun Sameinuðu þjóðanna (World Summit Awards) sem eru veitt fyrir framúrskarandi margmiðlunar- og upplýsingatækni. Verðlaunin verða afhent í kvöld í tengslum við seinni fundalotu aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um upplýsingasamfélagið sem fram fer í Túnis. Hlutu 40 að- ilar slík verðlaun að þessu sinni, fimm í hverjum flokki. Tækið hlaut verðlaun í afþreyingarflokki. Tæk- ið er þráðlaust leiktæki sem breytir venjulegum DVD-spilara í leikjavél fyrir börn frá þriggja ára aldri. Dvd-kids var eina verkefnið frá Norðurlöndunum sem hlaut náð fyrir augum dómnefndarinnar. Hlaut ný- miðlunar- verðlaun SÞ „VIÐ ERUM sífellt að horfa á ný tækifæri til að auka nýtingu. Árið 1997 var framleiðslan um 12 til 14 kíló á manntíma, en nú um 34–35 kíló. Margt kemur þar til, auk meiri tækni innan frystihússins, er hráefnið betra, enda með- höndlun um borð í skipunum með öðrum og betri hætti en var og nýtingin er mun meiri en áður. Hún er nú um 51% en var um 38% fyrir 30 árum,“ segir Gunnar Aðalbjörnsson, rekstr- arstjóri frystihúss Samherja á Dalvík. Allur fiskur er nú skorinn í vélum, en fyrir fáum árum var þó nokkur flokkur manna, 12 manns í allt, í því að skera fiskinn. Nú segir Gunnar að einblínt sé á beinatínslu og er í gangi þróunarvinna á þeim vettvangi. „Beina- tínslan er tímafrekasta verkið sem unnið er í frystihúsum og það er líka erfiðasta vinnan. Það yrði því mikill ávinningur og hagræði að því að finna aðferð sem gerði kleift að breyta vinnsluferlinu.“ Gunnar bendir á að 1% aukning í nýtingu auki verðmætið um 50 milljónir á ári. „Þannig að það er til nokkurs að vinna. Lykilatriðið er að fá sem mest út úr afurðinni,“ segir Gunnar. Áætlanir gera ráð fyrir að á þessu ári verði unnið úr um 11 þúsund tonnum af fiski. „Við höfum smám saman verið að fikra okkur upp á við,“ segir hann. Á liðnu ári var unnið úr um 10 þúsund tonnum, en fyrir fáum árum var að jafnaði unnið úr 4–5 þúsund tonnum. Stærsta breytingin í vinnslunni er að æ meira er unnið af ferskum afurðum. „Það eru fjögur ár liðin frá því við hófum slíka vinnslu, þá var magnið um 250 tonn, en nú horfum við til þess að það verði allt að 1.200 tonnum í ár, segir Gunnar Aðalbjörnsson. Hvert 1% í nýtingu skilar 50 milljónum Morgunblaðið/Kristján Þétt setinn bekkurinn við vinnslulínuna í land- vinnslu Samherja á Dalvík.  Veruleg | B2 ♦♦♦ MARGIR unglingar hefja reyk- ingar, drekka sig fulla eða reykja hass í fyrsta skipti sumarið eftir að þeir ljúka námi í grunnskóla. Þetta er sérstakur áhættutími fyrir ung- lingana eins og ný rannsókn hefur leitt í ljós. Þegar bornir voru saman nemendur í 10. bekk grunnskóla vorið 2004 og sami árgangur í fyrsta bekk framhaldsskóla um haustið kom í ljós að hlutfall þeirra sem reykja daglega hafði farið úr 11,7% í rúmlega 15%, hlutfall þeirra sem höfðu orðið ölvaðir í mánuðinum á undan hafði aukist úr 26% í 53% og þeim sem höfðu próf- að hass hafði fjölgað úr 9% í 12,7%. Bjór var langalgengasti áfengi drykkur framhaldsskólanema, hvort sem var hjá stúlkum eða pilt- um. Áfengir gosdrykkir nutu hins vegar mun meiri vinsælda hjá stúlkum en piltum. | 11 Glapstigur að loknum grunnskóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.