Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 35 FRÉTTIR Útkeyrsla/afgreiðsla Óskum eftir starfsmanni í útkeyrslu og afgreiðslustörf sem fyrst. Skemmtileg og góð vinna fyrir frískan einstakling. Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar: „Útkeyrsla/afgreiðslustörf — 17909.“ Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti sóknarprests í Skagastrandarprestakalli, Húnavatns- prófastsdæmi frá 15. desember 2005. Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknar- presta til fimm ára. Óskað er eftir því að umsækjendur geri skrif- lega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsóknarfrestur rennur út 8. desember 2005. Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups- stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um embættið, starfs- kjör, helstu lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 535 1500. Sjá enn- fremur vef Þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is/ biskupsstofa. F.h.b. Þorvaldur Karl Helgason. Vinsamlega hafið samband í síma 569 1440 eða sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is Reykjavík: Seljahverfi Foldir Ásholt Drápuhlíð Árbær Garðabær: Ásahverfi Hraunsholt Ásbúð Hafnarfjörður: Öldugata Blikaás Álftanes: Sjávargata Suðurnes Kópavogur: Álfhólsvegur Þinghólsbraut Kópavogsbraut Huldubraut Mosfellsbær: Hjallahlíð Byggðarholt Félagslíf  Njörður 6005111619 III Hfj.  HELGAFELL 6005111619 VI Erindi  GLITNIR 6005111619 III I.O.O.F. 9  186111681½ FI I.O.O.F. 7  18611167½  BK I.O.O.F.1818611168 Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Raðauglýsingar 569 1100 Íslandsmót kvenna í tvímenningi um helgina Íslandsmót kvenna í tvímenningi fer fram helgina 19.–20. nóvember. Spil- aður er barómeter, allir við alla. Spilamennska hefst klukkan 11.00 stundvíslega báða dagana og lýkur um kvöldmatarleytið á laugardaginn og vel fyrir kvöldmat á sunnudag, en tíma- setningar eru þó háðar þátttöku. Nákvæm dagskrá mótsins liggur fyrir þegar skráningu lýkur. Skráningarfrestur er til klukkan 17.00 föstudaginn 18. nóv- ember. Keppnisgjald er 6.000 krónur á parið. Hinn vinsæli keppnisstjóri, Björgvin Már Kristinsson, er keppnisstjóri á mótinu. Spilað er með skermum og spilað um gullstig í verðlaun fyrir fjögur efstu sætin. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu BSÍ, síma 587 9360. Íslandsmót kvenna verður haldið um næstu helgi en fyrir nokkru var hald- ið mót eldri spilara og er þessi mynd tekin í mótslok af efstu pörunum. Tal- ið frá vinstri Guðmundur Baldursson, Jóhann Stefánsson, Gylfi Bald- ursson, Steinberg Ríkarðsson og sigurvegararnir Sigtryggur Sigurðsson og Hrólfur Hjaltason. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 11. nóvember urðu úrslit þessi í N/S Anton Jónsson – Sigurður Hallgrímsson 194 Kristín Óskarsdóttir – Gróa Þorgeirsd. 193 Sæmundur Björnss. – Albert Þorsteinss. 188 A/V Knútur Björnsson – Elín Björnsdóttir 199 Guðrún Gísladóttir – Sófus Berthelsen 184 Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnsson 183 Bridsfélag Reykjavíkur Fjórtán pör mættu til leiks í föstu- dagsbrids BR 11. nóvember síðast- liðinn og hefðu eflaust verið fleiri ef ekki hefði verið fyrir afmælismót Bridsfélags Hafnarfjarðar sem hald- ið var daginn eftir. Eva Baldursdóttir og Ómar Ol- geirsson unnu næsta sannfærandi sigur með 18 stiga forystu á annað sætið í lokin. Lokastaða efstu para varð þannig: Eva Baldursdóttir – Ómar Olgeirsson 42 Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðars. 24 Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson 16 Guðni Hallgrss. – Hallgrímur Hallgrímss. 15 Björn Svavarsson – Eggert Bergsson 13 Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Annað kvöldið í hraðsveitakeppn- inni fór fram mánudaginn 14. nóv- ember og sveit Örva var í miklu stuði, skoraði 643 stig, en meðalskor var 540. Sveitin hefur náð umtalsverðri forystu fyrir síðasta kvöldið, er með 45 stig á næstu sveit. Spilarar í sveit Örva eru Eðvarð Hallgrímsson, Magnús Sverrisson, Kristinn krist- insson, Halldór Svanbergsson og Jón Stefánsson. Eftirtaldar sveitir náðu hæsta skorinu á öðru spilakvöldinu: Örvi 643 Steypan 585 Anna Guðlaug 551 Uglan 551 Staða efstu sveita er nú þessi: Örvi 1211 Anna Guðlaug 1166 Steypan 1067 Uglan 1054 Gunnar Páll og Guðbrandur sigruðu í Hótel Hafnar mótinu Hótel Hafnar mótinu í brids lauk sunnudaginn 13. nóv. Eftir æsi- spennandi úrslitarkvöld stóðu þeir Gunnar Páll og Guðbrandur uppi sem sigurvegarar. Lokastaðan er því þannig: Guðbrandur Jóhannss. – Gunnar P. Halldórss. með 4.748 stig eða 62% Steinarr Guðmundss. – Þorsteinn Sigjónss. með 4.663 stig eða 61% skor Árni Stefánsson – Sigfinnur Gunn- arsson með 4.341 stig eða 57% skor Staðan síðasta spilakvöldið: Guðbrandur Jóhannss. – Gunnar Páll Halldórss. 1.634 stig eða 58% Steinarr Guðmundss. – Þorsteinn Sigjónsson með 1.593 stig eða 57% Árni Stefánsson – Sigfinnur Gunn- arsson með 1.536 stig eða 55% Næsta sunnudagskvöld (20. nóv.) verður spiluð hraðsveitakeppni og eru bridsspilarar á Hornafirði og ná- grenni hvattir til að mæta. Spilað er í húsnæði Vökuls, Víkurbraut 4 og hefst spilamennska stundvíslega kl. 19.30. Allar nánari upplýsingar gefur Guðbrandur í síma 894 1616. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson STYRKTARSJÓÐUR Tónlistarskóla Ísafjarðar gefur að venju út jólakort með ísfirsku myndefni frá fyrri tíð. Að þessu sinni er á kortinu mynd af málverki eftir listmál- arann Snorra Ar- inbjarnar (1901–1958) og er myndefnið „Bakkarnir“ gömlu eins og Sundstrætið á Ísafirði var kallað áð- ur fyrr. Á málverkinu sést m.a. gamla „Dokkan“, en þar voru skútur geymdar á veturna. Þá sést líka ein af öskubryggj- unum, sem settu svip sinn á Ísafjörð, en bæjarbúar fóru fram á þessar bryggjur á kvöldin eða nóttunni og hentu sorpi og skarni í sjóinn. Málverkið er nú í eigu Vinnuveitendafélags Vestfjarða og birt með góðfúslegu leyfi þess. Að þessu sinni mun ágóði af sölu kortanna renna í flygilsjóð skólans. Jólakortið er til sölu í Bókhlöðunni á Ísafirði og á skrifstofu skólans. Jólakort Tónlistar- skóla Ísafjarðar KAMMERKÓR Rangæinga ásamt söngtríóinu Trillunum verða með tónleika í Hvoli, Hvolsvelli, laug- ardaginn 19. nóvember kl. 20.30. Kammerkór Rangæinga er skip- aður 13 einstaklingum sem allir hafa áralanga reynslu af kórstarfi. Kórinn var stofnaður haustið 2004. Að þessu sinni hefur kórinn fengið til liðs við sig hljóðfæra- leikara, þ.e. ryþmasveit sýslu- mannanna úr Árnesþingi, þá Helga E. Kristjánsson sem leikur á rafmagnsgítar, Smára Krist- jánsson á rafmagnsbassa, Guð- mund Eiríksson á píanó og Gunn- ar Jónsson sem leikur á trommur. Hljóðblöndun annast þeir Ævar Sigurðsson, Ólafur Hjörtur Krist- jánsson og Sverrir Guðmundsson. Efnisskráin spannar vítt svið, allt frá Händel til Bítlanna. Stjórn- andi kórsins er Guðjón Halldór Óskarsson. Söngtríóið Trillurnar skipa þær Ingibjörg Erlingsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Auður Frið- gerður Halldórsdóttir. Undirleik- ari þeirra á gítar er Jens Sigurðs- son. Tónleikar Kammerkórs Rangæinga SÆNSKI barnataugaskurðlæknir- inn Thomas Carlstedt skoðaði á fimmtudag í síðustu viku á annan tug barna á Barnaspítala Hringsins og fóru þrjú þeirra í aðgerð á Borgar- spítalanum sl. föstudag. Vegna fréttar af blaðamannafundi Foreldrafélags barna með axlar- klemmu sem birtist í blaðinu síðustu helgi skal áréttað að axlarklemma verður í fæðingu þegar öxl barnsins klemmist upp að lífbeini móður og barnið kemst þar af leiðandi ekki í heiminn án aðstoðar. Í fréttinni var talað um viðbrögð ljósmæðra þegar axlarklemma verður í fæðingu, en rétt er að árétta að mikilvægi réttra viðbragða á ekki aðeins við um þá stétt heldur allra þeirra sem taka á móti barni. Þrjú börn fóru í aðgerð vegna axlarklemmu SPJÖLL voru unnin á LO-471, ljósgrárri Toyotu Yaris, þar sem hún var á bifreiðastæði við vegamót Grindavíkurvegur og Reykjanesbrautar sunnudagskvöldið 13. nóvember. Vitni gáfu sig fram á vettvangi, kona og karlmaður, á grænni Opel Corsa bifreið. Bæði voru þau rétt rúmlega tví- tug að aldri, dökkhærð, og var karlmaðurinn með dökkt al- skegg. Lögreglan biður umrædd vitni um að gefa sig fram við lögreglu og aðra sem kannast við lýsinguna um að veita nánari upplýsingar. Vinsamlegast hafið samband við 112 eða sýslumannsembættið í Keflavík, sími 420-2400. Lögreglan í Keflavík óskar eftir vitnum KVENFÉLAGIÐ Eining í Holta- og Landsveit ákvað á haustfundi að úthluta Laugalandsskóla 40.000 kr. úr barnasjóði félagsins. Upphæðin er tileinkuð börnum í 1.–3. bekk. Það var formaður Einingar, Guðfinna Þor- valdsdóttir, sem afhenti gjöfina. Í fréttatilkynningu seg- ir að skólinn þakki kvenfélaginu kærlega fyrir þessa gjöf sem eigi eftir að koma sér vel í starfi yngstu grunn- skólabarnanna. Gaf Laugalandsskóla 40 þúsund

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.