Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ALDARMINNING Ég ætla hér að minnast föður míns í fáeinum orðum núna þegar eitthundrað ár eru liðin frá fæðingu hans. Hann fæddist að Kjalvararstöðum í Reykholtsdal 16. nóv- ember 1905. Foreldr- ar hans voru Halldór Þórðarson, fæddur í Skáneyjarkoti í Reykholtsdal 1867, dáinn 1961, og Guðný Þorsteinsdóttir frá Gróf í Reykholtsdal, fædd 1870, dáin 1951. Bjarni var einn tíu barna þeirra hjóna. Eldri voru Helga, Þórður, Guðríður, Ást- ríður og Þorgerður, yngri þau Ár- mann, Steinunn, Aðalgeir og Helgi. Bjarni ólst upp á Kjalvararstöðum og átti þar heima uns hann fór á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi sjötugur að aldri. Í upphafi síðustu aldar fóru að verða breytingar á híbýlum fólks hér á landi. Farið var að byggja steinhús eða timburhús en torfbæ- ir sem höfðu verið eini valkostur fólks til íveru í margar aldir voru á undanhaldi. Þegar faðir minn fæddist var enn búið í torfbæ. Steinhús var reist tíu árum síðar á Kjalvararstöðum. Búið var í því fram yfir 1970 en það var rifið árið 1990. Torfbæirnir voru eins og gef- ur að skilja illa einangraðir og því kalt í þeim á vetrum en heitt á sumrum. Þegar harðindi gengu yf- ir var reynt að halda börnunum í rúmunum allan sólarhringinn til að halda á þeim hita. Slíkt hefur verið erfitt þar sem börn þrá hreyfingu og því ekki skrýtið þó þau ættu það til að stelast undan sænginni til að leika sér. Þeirri freistingu féll Bjarni stundum fyrir og átti það til að renna sér fótskriðu á ísn- um sem safnaðist á baðstofugólfið. Þeir sem fæddust á þessum árum hafa upplifað mestu byltingu í húsakynnum sem orðið hefur hér á landi nokkurn tíma. Það er varla í frásögur færandi þegar rýnt er á þessa tíma að tala um mannmörg sveitaheimili en á flestum bæjum munu hafa búið um tíu manns. Því getum við gefið okkur að það hafi verið margir í heimili á Kjalvar- BJARNI ÞORSTEINN HALLDÓRSSON arstöðum. Húsbænd- ur, börn og vinnufólk. Einnig um tíma afi og amma þannig að fleiri kynslóðir bjuggu saman. Við þessi skilyrði var tal- ið sjálfsagt að börn tækju til hendinni strax og þau höfðu þroska til. Þannig hefur það einnig ver- ið á Kjalvararstöðum. Vinnusemin var inn- rætt enda urðu systkinin dugnaðar- fólk þegar fram liðu stundir. Ekki var skólagangan löng hjá flestum systkinunum. Farskóli var í sveit- inni sem fluttist á milli bæja með einhverju millibili. Þar hafa börn lært það sem við getum kallað undirstöðuatriði eins og reikning, lestur og skrift. Í skriftarkennsl- unni á þessum tíma þótti það sjálf- sagt að allir skrifuðu með hægri hendinni og voru örvhentir, m.a. faðir minn, neyddir til tileinka sér það. Halldór afi minn stóð fyrir bú- rekstri til sjötíu og fimm ára ald- urs eða til ársins 1942. Naut hann aðstoðar sona sinna Bjarna og Að- algeirs en þetta ár tóku þeir við búinu. Bjarni tók síðan einn við búrekstrinum þegar Aðalgeir stofnaði heimili á Akranesi nokkr- um árum síðar. Um það leyti sem Bjarni tók við búinu kvæntist hann Þórlaugu Margréti Símonardóttur, fæddri 6. mars 1909. Hún var frá Jaðri í Hrunamannahreppi. Bjarni og Þórlaug eignuðust fimm börn. Snorra sem þetta ritar, kennara í Reykjavík, Halldór, trésmíðameist- ara í Borgarnesi, Ármann, bónda á Kjalvararstöðum, Ásdísi, sem þau misstu á ungum aldri, og Guðnýju, ljósmóður í Vestmannaeyjum. Bjarni og Þórlaug bjuggu á Kjal- vararstöðum í þrjátíu ár en 1972 lést Þórlaug hinn 3. nóvember eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Stuttu síðar ákvað Bjarni að hætta búskap. Seldi hann búið í hendur Ármanni sem enn stundar búskap á jörðinni og horfir í að dóttir hans taki við innan tíðar. Gangi það eft- ir er fimmta kynslóð sömu fjöl- skyldu að taka þar við búi á eitt- hundrað og tuttugu árum en Þórður Halldórsson afi Bjarna flutti að Kjalvararstöðum árið1885. Á búskapartíma Bjarna urðu miklar breytingar á vinnuumhverfi í landbúnaði. Margs konar verk- færi sem ekki þekktust áður komu til sögunnar. Var Bjarni fljótur til að tileinka sér þær nýjungar eftir því sem þær komu fram. Mjalta- vélar voru komnar í fjós þegar ég man eftir mér og heyvinnsluvélar dregnar af hestum komnar í notk- un. 1951 var keypt dráttarvél og næstu árin komu fleiri vélar tengd- ar henni. Jeppinn kom í hlað 1954. Nýjar jarðvinnsluvélar auðvelduðu alla ræktun og stækkaði Bjarni túnið talsvert á búskapartíma sín- um. Nýtt og stærra fjós var byggt á árunum 1948 til 50. Steypan var hrærð í tunnu sem hestar sneru en flest var samt gert með handafli. Þrátt fyrir aðkeypt vinnuafl gekk faðir minn svo hart að sér við bygginguna að hann veiktist og varð að dvelja á sjúkrahúsi um tíma. Þó að hann kæmist aftur til heilsu náði hann sér aldrei að fullu eftir þetta. Rafmagnslína frá Andakílsár- virkjun var lögð í Reykholt 1952 og tengdust Kjalvararstaðir og nokkrir fleiri bæir í dalnum henni þá um sumarið. Reyndar var búin að vera raflýsing nokkurn tíma. Fyrst frá vindrafstöð og síðar rafli sem knúinn var af mjaltavélarmót- or. Samgöngur að og frá Kjalvar- arstöðum eins og þær voru þegar ég man fyrst eftir mér um 1950 þættu ekki upp á marga fiska í dag. Vegurinn lá yfir Reykjadalsá sem var brúuð og um hlaðið í Nesi að þjóðveginum norðanvert í daln- um. Daglega var farið með mjólk á hestvagni í veg fyrir mjólkurbílinn. Þetta gátu stundum orðið miklar svaðilfarir í slæmum veðrum eða þegar vextir voru í ánni. Einhvern tíma gerðist það hjá föður mínum að vagninn flaut upp í vatns- flaumnum og brúsarnir hurfu í ána. Á árunum sem ég var að alast upp á Kjalvararstöðum var yfir- leitt margt heimilisfólk. Fjölskyld- an taldi sjö manns. Fjögur systk- ini, foreldrarnir og afi var í heimilinu þar til hann lést 1961. Þar að auki voru vetrarmenn og á sumrin kaupafólk við heyskap auk barna og unglinga úr þéttbýli sem voru í ýmsum snúningum og léttari störfum. Einnig var oft mikill gestagangur, einkum á sumrin, oft ættingjar sem komu að heimsækja afa minn eða einhvern í fjölskyld- unni. Þó Bjarni hafi átt heima á Kjal- vararstöðum alla tíð sótti hann vinnu á aðra bæi. Hann var vetr- armaður á Gilsbakka í Hvítársíðu. Minntist hann jafnan veru sinnar þar með ánægju. Einhvern tíma réð hann sig til Bjarna Bjarnason- ar, bónda og organista á Skáney. Ætlaði hann að njóta tilsagnar hans í organleik. Það fór reyndar svo að afi rifti þeim samningi og réð hann til Jóhannesar hrepp- stjóra á Sturlu-Reykjum en þar fékkst hærra kaup en hjá organist- anum. Þetta var viðtekin venja á þessum tíma að forráðamenn ung- menna höfðu með það að gera hvar þeir vistuðu þau, og hirtu síðan kaupið þeirra. Spurning er hvort þessir tímar séu með einhverjum hætti að koma aftur þegar litið er á það sem verið hefur í fréttum um starfsmannaleigur undanfarið. Þó svona hafi farið tókst Bjarna að afla sér kunnáttu í organleik og eignaðist stofuorgel sem hann lék á sér til ánægju. Þegar Bjarni varð sjötugur flutti hann á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og átti þar heimili þar til hann lést á sjötugasta og níunda aldursári hinn 30. júlí 1984. Af félagslífi sem faðir minn tók þátt í vil ég nefna Ungmennafélag Reykdæla, þar tók hann m.a. þátt í leiksýningum. Í kirkjukór Reyk- holtskirkju söng hann um árabil ásamt móður minni. Hann var einn af stofnendum karlakórsins Söng- bræður sem starfaði um árabil í Borgarfirði undir stjórn Bjarna Bjarnasonar, organista á Skáney. Ég hef hér stiklað á stóru í sögu íslensks alþýðumanns, manns sem tók við búi af föður sínum eins og ætlast var til af mörgum sonum þessa lands alveg frá upphafi vega. Um hugsanir sínar var hann fáorð- ur og dulur. Hvort hugur hans hafi staðið til einhvers annars á tímum tækifæra til margra átta skal ósagt látið. Þessar minningar rifja ég upp hér vegna þess að ég tel þær geta átt erindi til margra, skyldra og óskyldra. Þær varpa ljósi á lífs- kjör og þróun atvinnuhátta og lífs- hætti kynslóðar sem færði okkur inn í nýja öld og báru hita og þunga dagsins á breytingatímum. Blessuð sé minning Bjarna Þor- steins Halldórssonar. Snorri Bjarnason. FYRIR skömmu stóð Taflfélag Reykjavíkur fyrir skákmóti í fjórða skipti sem eingöngu skákmenn með minna en 2.000 skákstig gátu tekið þátt í. Keppni þessi nefnist U-2.000 mótið og að þessu sinni tóku 28 skákmenn þátt. Flestir keppend- anna voru af yngri kynslóðinni og þar af nokkrir Norðurlandameist- arar í liðakeppni í skólaskák. Einn þeirra var Vilhjálmur Pálmason (1.475) sem hóf mótið af miklum krafti og vann fyrstu fjórar skákir sínar. Í fimmtu umferð mætti hann Sverri Þorgeirssyni (1.770) og varð skák þeirra æsispennandi. Henni lyktaði með jafntefli og í næstu umferð gerði Vilhjálmur jafntefli við Matthías Pétursson (1.650) á meðan Sverrir lagði Bjarna Jens Kristinsson (1.660) að velli. Fyrir sjöundu og lokaumferðina voru Vil- hjálmur og Sverrir því jafnir og efstir með 5 vinninga en á hæla þeirra komu Ingþór Stefánsson (1.560) og fyrrnefndur Matthías með 4½ vinning. Vilhjálmur sýndi mikinn taugastyrk með því að bera sigurorð af Ingþóri á meðan Sverr- ir og Matthías skildu jafnir. Vil- hjálmur varð því sigurvegari móts- ins en Sverrir varð að láta sér lynda að lenda í öðru sæti. Loka- staða þeirra sem fengu fleiri en helming vinninga varð þessi: 1. Vilhjálmur Pálmason (1.475) 6 vinninga af 7 mögulegum. 2. Sverrir Þorgeirsson (1.770) 5½ v. 3.–5. Matthías Pétursson (1.650), Ingvar Ásbjörnsson (1.540) og Bjarni Sæmundsson (1.845) 5 v. 6.–7. Ingþór Stefánsson (1.560) og Svanberg Pálsson (1.605) 4½ v. 8–13. Daði Ómarsson (1.635), Helgi Brynjarsson (1.635), Daníel Pétursson (1.680), Aron Ellert Þor- steinsson, Gylfi Davíðsson (1.560) og Arnar Jónsson 4 v. Mótahald af þessu tagi er vel til fundið þar sem þá geta þeir sem búa yfir svipuðum skákstyrkleika tekist á óháð aldri. Það er gott fyr- ir sjálfstraust ungra skákmanna að bera sigur úr býtum á móti sem þessu og vonandi að ungu kemp- urnar á mótinu láti nú kné fylgja kviði á sviði skáklistarinnar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um keppnina á heimasíðu TR, www.skaknet.is. Hjörvar Steinn varð hlutskarpastur á Fjölnismótinu Laugardaginn 12. nóvember efndi skákdeild Fjölni til skákmóts fyrir grunnskólanemendur á Torg- inu í Grafarvogi. Alls tóku 28 krakkar þátt en ekki voru þeir allir í grunnskóla þar sem yngsti kepp- andinn, Friðgeir Óskarsson, 5 ára gengur enn í leikskóla. Aðstaða á skákstað var til fyrirmyndar og veittu verslunareigendur við Torgið veglega og fjölbreytta vinninga til mótsins. Fjöldi viðskiptavina við Hverafold í Grafarvogi gáfu sér tíma til að fylgjast með skáksnilld krakkanna samhliða því sem Foldaskáli bauð öllum þátttak- endum og foreldrum þeirra upp á girnilegar veitingar. Í keppninni sjálfri varð Hjörvar Steinn Grét- arsson hlutskarpastur en hann fékk 4½ vinning af 5 mögulegum. Næst- ir á eftir Hjörvari í 2.–5. sæti urðu Hörður Aron Hauksson, Dagur Andri Friðgeirsson, Svanberg Már Pálsson og Eiríkur Örn Brynj- arsson allir með fjóra vinninga. Stúlknaverðlaunin hrepptu þær Sigríður Björg Helgadóttir, Júlía Rós Hafþórsdóttir og Hrund Hauksdóttir. Björn Ívar sigraði á Akureyrarmótinu í atskák Eyjamaðurinn Björn Ívar Karls- son vann öruggan sigur á Akureyr- armótinu í atskák en hann hlaut 6½ vinning af 7 mögulegum. Sig- urður Eiríksson og Gylfi Þórhalls- son urðu jafnir í 2.–3. sæti en þeir munu heyja einvígi um Akureyr- armeistaratitilinn þar sem Björn Ívar á ekki lögheimili á Akureyri. Í 4.–5. sæti lentu þeir Smári Ólafs- son og Tómas Veigar Sigurðarson með 4½ vinning. Vilhjálmur sigursæll Verðlaunahafar á Fjölnismótinu. Ungir Eyjamenn. Vilhjálmur Pálmason, t.h., vann U-2000 mótið. daggi@internet.is SKÁK Taflfélag Reykjavíkur 30. október–11. nóvember 2005 HELGI ÁSS GRÉTARSSON FRÉTTIR NÁTTÚRLÆKNINGAFÉLAG Reykjavíkur verður með mat- reiðslunámskeið laugardaginn 19. nóvember nk. Að þessu sinni hefur félagið feng- ið til liðs við sig Dóru Svav- arsdóttur matreiðslumeistara frá veitingahúsinu Á næstu grösum. Námskeiðið verður haldið í Hús- stjórnarskólanum á Sólvallagötu 12, 101 Rvk. laugardaginn 19. nóv- ember nk og stendur yfir frá kl. 11:00 til 17:00. Kenndar verðar grunnaðferðir við vinnslu á græn- meti og baunum þar sem fjölbreyti- leikinn er hafður í fyrirrúmi og eld- aðir gómsætir grænmetisréttir. Dóra Svarsdóttir er meistari frá Hótel- og veitingaskóla Íslands og hefur nú nýlokið námi í San Franc- isco þar sem hún sérhæfði sig í hrá- fæði. Matreiðslunám- skeið Náttúru- lækningafélagsins Í DAG, miðvikudaginn 16. nóv- ember kl. 20.00 mun Astma- og of- næmisskólinn halda rabbfund á vegum Astma- og ofnæmisfélagsins í Síðumúla 6 í húsakynnum SÍBS. Michael V. Clausen, barnalæknir og sérfræðingur í ofnæm- issjúkdómum barna, fjallar um frjó- kornaofnæmi og svarar fyr- irspurnum. Fundurinn er öllum opinn. Astma- og ofnæmisskólinn FAGSTJÓRAFUNDUR þýskukenn- ara haldinn í Reykjavík 4. nóv. 2005 lýsir yfir andstöðu við fyrirhugaða styttingu náms til stúdents- prófs.„Það þjónar ekki hagsmunum nemenda að svipta þá þeim náms- og starfsmöguleikum sem kunnátta í þriðja erlenda tungumáli hefur fram að þessu gefið. Í ljósi sívax- andi samskipta við lönd utan enska málsvæðisins, t.d. varðandi ferða- þjónustu, verslun og framhalds- nám, er slík skerðing óviðunandi,“ og er skorað á ráðherra að endur- skoða afstöðu sína til málsins. Yfirlýsing frá Félagi þýzku- kennara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.