Morgunblaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 17
ERLENT
Jerúsalem. AFP, AP. | Ísraelar og Pal-
estínumenn náðu í gær samkomulagi
um að opna landamæri Gaza-svæð-
isins eftir næturlangan samninga-
fund í Jerúsalem fyrir milligöngu
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Heimastjórn Palest-
ínumanna fagnaði samkomulaginu
og sagði það mikilvægt skref í þá átt
að bæta lífskjör fátækra íbúa Gaza-
svæðisins.
Um 1,3 milljónir manna búa á
Gaza-svæðinu og heimastjórnin
hafði lýst því sem risastóru fangelsi.
„Þetta er mjög, mjög mikilvægur
samningur. Það hefur tekið langan
tíma að ganga frá honum,“ sagði Jav-
ier Solana, æðsti embættismaður
Evrópusambandsins í utanríkismál-
um, en hann hafði einnig milligöngu
um samkomulagið ásamt James
Wolfensohn, fyrrverandi yfirmanni
Alþjóðabankans.
Rafah-landamærastöðin opnuð
Samkvæmt samkomulaginu á að
opna Rafah-landamærastöðina milli
Egyptalands og Gaza-svæðisins á
föstudaginn í næstu viku. Samkomu-
lagið kveður einnig á um að halda
beri landamærastöðvum milli Ísr-
aels og Gaza-svæðisins opnum og
Ísraelar heimila útflutning á öllum
landbúnaðarafurðum svæðisins.
Ísraelar samþykktu að heimila
ferðir rútna milli Gaza-svæðisins og
Vesturbakkans ekki síðar en 15. des-
ember og ferðir vöruflutningabíla
ekki síðar en 15. janúar. Ennfremur
verður samin áætlun um aðgerðir til
að auðvelda fólki að ferðast milli
staða á Vesturbakkanum.
Samningurinn kveður á um að
hafnarframkvæmdir geti hafist á
Gaza-svæðinu og haldið verði áfram
samningaviðræðum um flugvöll.
Með samkomulaginu fá Palestínu-
menn í fyrsta skipti yfirráð yfir
landamærunum að Egyptalandi og
vonast er til að það blási lífi í bágan
efnahag Gaza-svæðisins. Samkomu-
lagið styrkir einnig stöðu Mahmouds
Abbas, leiðtoga Palestínumanna,
fyrir þingkosningar 25. janúar.
Samningamenn Ísraela og Palest-
ínumanna náðu samkomulaginu eftir
næturlangan fund í svítu Rice á hót-
eli í Jerúsalem. Hermt er að utanrík-
isráðherrann hafi gengið á milli
samningamannanna með fartölvu og
farið sjálf yfir hvert orð og hverja
kommu samningsdraganna þar til
samkomulagið náðist loks um morg-
uninn.
Reuters
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sýnir afmæliskort
sem fréttamenn afhentu henni eftir blaðamannafund í Jerúsalem í gær. Á
kortinu er mynd af Rice á forsíðu tímaritsins Time.
Samkomulag
næst um að opna
landamæri Gaza
Tókýó. AFP. | Sayako Japansprins-
essa, einkadóttir keisarans, hefur
stigið niður af hinum guðlega tróni
og er nú hvorki konungleg né keis-
araleg. Það gerðist í gær þegar hún
gekk að eiga óbreyttan alþýðumann
en að vísu í góðum álnum.
Sayako, sem er 36 ára, giftist
Yoshiki Kuroda, fertugum skipulags-
fræðingi, og voru þau vígð frammi
fyrir shinto-altari á einu glæsilegasta
hóteli Tókýóborgar. Voru þau bæði
klædd upp á vestræna vísu og skál-
uðu í sake-víni að vígslu lokinni.
Sayako játaði í gær fyrir blaða-
mönnum, að hún vissi í raun ekki
margt um líf venjulegs millistéttar-
fólks og ætti því margt ólært.
Þótt hjónavígslan sjálf hafi verið
fremur einföld, var veislan á eftir
mjög glæsileg og hafði enginn orð á,
að prinsessan hefði tekið niður fyrir
sig. Sóttu hana keisarahjónin, for-
eldrar brúðarinnar, þau Akihito og
Michiko, og veislustjóri var Shintaro
Ishihara, ríkisstjóri í Tókýó, yfir-
maður og vinnuveitandi brúðgum-
ans.
Rætt um að breyta
lögum um ríkiserfðir
„Þið munuð brátt eignast barn og
þú, Yoshiki, munt ná langt með hjálp
konu þinnar,“ sagði Ishihara, sem er
mikill þjóðernissinni og hefur hvatt
til aukinna barneigna í Japan. Í veisl-
unni var boðið upp á kálfakjöt, hum-
ar og kavíar.
Masako, mágkona Sayako, var
meðal gesta en hún er slæm á taug-
um og hefur haft sig lítt í frammi
undanfarin tvö ár. Má rekja það til
þeirra væntinga landa hennar, að
hún eignist son og þar með erfingja
að krúnunni en líklega er orðið útséð
um það. Hennar eina barn er Aiko,
þriggja ára stúlka, en gildandi lög
banna henni að setjast í hásæti
tryggðablómsins eins og það er kall-
að. Í japönsku keisarafjölskyldunni
hefur enginn drengur litið dagsins
ljós frá 1965 og því er nú komin af
stað umræða um að breyta erfðalög-
unum.
Prinsessan varð óbreytt húsfrú
Reuters
Frú Sayako Kuroda og Yoshiki, maður hennar, að hjónavígslunni lokinni.
Mexíkóborg. AFP. | Stjórnvöld í
Mexíkó og Venesúela kölluðu í
gær heim sendiherra sína í hvoru
landinu en fátt er nú með forsetum
þeirra, þeim Vicente Fox í Mexíkó
og Hugo Chavez í Venesúela. Er
ástæða sú, að sá síðarnefndi kall-
aði þann fyrrnefnda „kjölturakka“
Bandaríkjastjórnar.
Deilan hófst með því, að Fox
gagnrýndi Chavez harðlega á
fundi Ameríkuríkja í Argentínu í
síðustu viku en Fox styður þá
stefnu Bandaríkjanna, að Ameríka
öll verði eitt fríverslunarsvæði en
Chavez er því andvígur. Svaraði
Chavez gagnrýninni með því að
saka Fox um „svik“ og kallaði
hann „kjölturakka keisarans“. Átti
hann þá við Bandaríkin.
Chavez herti svo enn á yfirlýs-
ingum sínum á sunnudag og þá
krafðist Mexíkóstjórn þess, að
hann bæðist afsökunar. Að öðrum
kosti yrði mexíkóski sendiherrann
kallaður heim. Venesúelastjórn
svaraði kröfunni með því að kalla
heim sendiherra sinn og beið þá
Mexíkóstjórn ekki boðanna með
að kalla heim sinn sendiherra.
Kölluðu sendiherrana heim