Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 15

Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF LÍFI‹ Í SAMHENGI Mán. 17. okt og þri. 18. okt. kl. 8:30–17:00Kynntu flér máli› og skrá›u flig á endurmenntun.is NÁMSKEI‹ UM FORTÍ‹, NÚTÍ‹ OG FRAMTÍ‹ FYRIR KONUR Á MI‹JUM ALDRI ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kaup- hallar Íslands náði nýjum hæðum í gær þegar hún fór í fyrsta skipti upp fyrir 4.800 stig. Lokagildi henn- ar var 4.801,99 stig en hæsta gildi dagsins var 4.806,55 stig. Mikil viðskipti voru með hlutabréf í Kauphöllinni í gær en velta hluta- bréfaviðskipta var nær 18,6 millj- arðar króna. Heildarviðskipti voru um 31,4 milljarðar. Mest viðskipti voru með hlutabréf bankanna fjög- urra, þar af fyrir ríflega 8,2 milljarða með bréf KB banka. 4,2 milljarða króna viðskipti voru með bréf Ís- landsbanka, 2,6 milljarða viðskipti með Landsbanka og 2 milljarða við- skipti með Straum-Burðarás. Mest hækkun varð á bréfum Hampiðjunnar, 3,6%, en mest lækkun varð á bréfum Mosaic, 0,6%. Úrvalsvísitalan yfir 4.800 stig ● LAGT hefur verið til að Jóhannes Kristinsson taki sæti í stjórn sænska lággjaldaflugfélagsins Fly Me en hann er annar eigenda Fons eignarhaldsfélags sem er stærsti hluthafinn í Fly Me. Haldinn verður hluthafafundur í Fly Me hinn 13. des- ember næstkomandi og þá mun Jó- hannes væntanlega taka sæti í stjórninni. Einar Þór Sverrisson er fyrir í stjórn Fly Me. Í tilkynningu frá Fly Me er haft eftir Jóhannesi að hann sé mjög bjart- sýnn á framtíð félagsins. Jóhannes í stjórn Fly Me LANDSBANKINN undirritaði í Dublin í gær samning um kaup á írska verðbréfafyrirtækinu Merrion Capital Group. Um er að ræða 50% hlut í fyrstu en samið var um að bankinn myndi eignast afganginn á næstu þremur árum. Verðmæti fyr- irtækisins, sem er meðal helstu verð- bréfafyrirtækja á Írlandi, er um 55 milljónir evra, eða um fjórir millj- arðar íslenskra króna. Verðviðmiðun í síðari hluta fjárfestingarinnar ræðst af árangri Merrion í rekstr- inum. Reiknað er með að kaupin verði endanlega frá gengin í næsta mánuði, að lokinni umfjöllun eftir- litsaðila, niðurstöðum áreiðanleika- könnunar og frágangi samninga- gerðar. Engar breytingar verða á yfir- stjórn fyrirtækisins en fulltrúar Landsbankans munu væntanlega taka sæti í stjórn þess. Starfsmenn eru í dag 75 og með auknum verk- efnum gæti þeim átt eftir að fjölga á næstunni. Með kaupunum í gær bættist við ellefta landið sem Lands- bankinn fer inn á með verðbréfa- miðlun og fyrirtækjaráðgjöf, í gegn- um dóttur- og hlutdeildarfélög. Landsbankinn einnig í Kanada Með kaupum á 80% hlut í Kepler Equities opnaðist leið inn í sjö lönd í Evrópu og Írland var nú það átt- unda. Starfsmenn Landsbankans og dótturfélaga eru nú um 1.700 og þar af eru um 540 utan Íslands á starfs- stöðvum víða um heim. Á blaða- mannafundi í Dyflinni í gær, sem setinn var af mörgum helstu fjöl- miðlum Bretlands, var svo tilkynnt að bankinn myndi opna í dag starfs- stöð í Kanada. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, sagði við Morgunblaðið að með Kepler og eignarhaldi á Teather & Greenwood í London væri kominn góður grunn- ur að frekari sókn á verðbréfamark- aði í Evrópu. Þar væru mörg tæki- færi fyrir bankann og undir þetta tók kollegi hans, Sigurjón Þ. Árna- son, er Morgunblaðið ræddi við þá í Dublin í gær. Bankinn mætti með fjölmennan hóp starfsmanna til Dyflinnar til að ganga frá kaupun- um, en hluti þeirra kom beint frá París þar sem gengið var endanlega frá kaupunum á Kepler. Þessi þrjú dótturfélög, Teather & Greenwood, Kepler og Merrion, fylgjast með og greina yfir 665 hlutafélög og hafa viðskiptasambönd við yfir 900 fag- fjárfesta. Sigurjón sagði Landsbankann hafa farið að skoða írska markaðinn af alvöru fyrir rúmu ári. Álitleg fyr- irtæki hefðu verið könnuð og að sjálfsögðu þau sem væru möguleikar á að eignast stóra hluti í. Fljótlega hefðu sjónir manna beinst að Merr- ion, sem hefði verið í mjög góðum rekstri allt frá upphafi fyrir sex ár- um. Fyrirtækið væri að sinna spræk- um og fjársterkum einstaklingum og frumkvöðlahugsun væri fyrirferðar- mikil. Starfsemi og umhverfi Lands- bankans og Merrion væri einnig um margt svipað. Mörg spennandi verk- efni hefðu verið í gangi hjá fyrirtæk- inu, m.a. einkavæðing írska flug- félagsins Aer Lingus og ráðgjöf fyrir írska Símann, Eircom. Halldór sagði markmiðið að byggja upp fjárfestingabanka í Evr- ópu sem sérhæfðu sig í þjónustu fyr- ir meðalstór fyrirtæki. Til að ná ár- angri á þeim vettvangi þyrftu fyrirtækin að vinna sem mest og best saman. Fyrirtækin hefðu verið keypt á mismunandi hátt og því yrðu þau rekin sjálfstætt. Hvort Lands- bankinn myndi sameina starfsemina á meginlandi Evrópu við Bretlands- eyjar taldi Halldór það ólíklegt í ná- inni framtíð. Þó yrði stefnt að auk- inni samþættingu. Þennan styrk hefðu samstarfsaðilarnir strax séð. ,,Þó að fyrirtækin séu sjálfstæð að hluta munu þau starfa saman sem mjög sterk heild,“ sagði Halldór. Báðum líkaði það sem þeir sáu John Conray, forstjóri Merrion Capital, sagði við Morgunblaðið að viðbrögð starfsfólksins við tíðindun- um í gær hefðu verið mjög góð. Hann sagði alla samvinnu við Landsbank- ann og stjórnendur hans hafa gengið afar vel. Margt væri líkt með fyr- irtækjaumhverfinu á Íslandi og Ír- landi, auk hinnar menningarsögu tengsla og nálægðar sem löndin nytu. ,,Við skoðuðum Landsbankann vel og þeir tóku út okkar starfsemi. Ég tel að báðum aðilum hafi líkað mjög vel það sem þeir sáu. Við hrifumst af stefnu og framtíðarsýn Landsbank- ans á alþjóðamarkaði og hvernig bankinn hefur þróað verðbréfastarf- semina í Evrópu. Þar eru mörg tæki- færi fyrir okkur og við bindum mikl- ar vonir við samstarfið við Landsbankann,“ sagði John Conray en eftir kaupin munu stjórnendur og starfsmenn í fyrstu eiga 37% hlut og bandaríska fyrirtækið Allen & Co. 13%. Landsbankinn með verð- bréfafyrirtæki í 11 löndum Eftir Björn Jóhann Björnsson í Dyflinni bjb@mbl.is Góð samvinna Sigurjón Árnason, John Conray og Halldór J. Kristjánsson. Morgunblaðið/Björn Jóhann Björnsson INDUSTRIA ehf. hefur sam- ið við Magnet Networks á Ír- landi um uppbyggingu staf- ræns dreifikerfis fyrir sjón- varp, síma og netsamskipti, byggðu á ADSL2+-tækni. Samningurinn felur í sér tengingu við allt að 65% af heimilum á Írlandi og netið verður hið fyrsta sinnar teg- undar þar á landi. Miðað við núverandi áætlanir hljóðar samningurinn upp á um 4 milljarða íslenskra króna. Magnet Networks er dóttur- félag CVC á Íslandi ehf., fé- lags í eigu Kenneth Peterson. Breiðbandsnet Magnet Networks mun gera fyrirtækinu kleift að bjóða stafræna símaþjónustu, gagnvirkt sjónvarp og hröðustu breiðbands- tenginu sem völ er á á Írlandi. Netið mun ná til allt að 2,6 milljóna not- enda, og með ljósleiðaraneti Magnet sem hafist var handa um uppbygginu á í lok síðasta árs, gæti fyrirtækið orðið næst-stærsti bjóðandi breið- bandslausna á Írlandi þegar netið er fullbyggt. Samningurinn felur í sér að Industria annist hönnun og upp- byggingu á bakneti og afhendingu á ADSL2+-búnaði og tilheyrandi hug- búnaði. Magnet hefur í dag útsendingar- rétt á um 100 sjónvarpsstöðvum á dreifikerfi sínu, þar á meðal tilrauna- útsendingum á háskerpusjón- varpi, HDTV. Magnet hefur nýlega gert samning við bresku sjónvarpsstöðina Sky um dreifingu á sjónvarpsefni Sky um IP-dreifinet, og er þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar sem Sky ger- ir utan Bretlands. Þá hefur Magnet einnig gert samning við Microsoft um að veita gagnvirka leikjaþjónustu sína, Xbox live, yfir hina nýju háhraðatengingu frá Magnet. Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri Industria, segir að í samningnum felist fyrst og fremst viðurkenning á getu Industria til að leysa flókin verkefni, löguð að þörf- um viðskiptavinarins. „Eftir því sem Magnet Networks vex fiskur um hrygg vonast Industria eftir áfram- haldandi samvinnu við fyrirtækið um gangsetningu nýrra þjónustuþátta til írskra neytenda, á þessum hratt vaxandi markaði,“ segir Guðjón Már. Industria gerir 4 milljarða samning Morgunblaðið/Golli 2,6 milljónir notenda Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri Industria, ræðir við Kenneth Peterson. OG Vodafone hefur innan skamms sölu á Simply farsímum frá Voda- fone Global Plc. Símarnir eru sér- staklega hannaðir með þarfir þeirra í huga sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu við tal og SMS. „Fjölmargir viðskiptavinir okkar hafa áhuga á nýjustu símtækjunum sem búa yfir ýmiss konar aukabún- aði. Hins vegar er stór hópur við- skiptavina sem kýs einfaldari sím- tæki og hefur aðeins áhuga á að hringja, taka á móti símtölum og sýsla með SMS. Nú hefur Og Voda- fone komið með svarið fyrir slíkan hóp sem gerir honum kleift að vera í góðu sambandi við fjölskyldu og vini með einföldum hætti,“ segir Gísli Þor- steinsson, upp- lýsingafulltrúi Og Vodafone. Hann segir að jafnframt verði í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply notendur sem feli í sér eitt verð hvort sem hringt er í GSM eða fastlínu innan og utan kerfis. Vodafone Simply er með íslenskri valmynd en Og Vodafone lét þýða símtækið sérstaklega fyrir íslenska notendur. Einfalt með Simply    !"#$  .+ ,    .+  ) 1  2          %&$ '"( ) *& '"( ) +  '"( ) +, '"( ) * '- ) .$ -$! ) /#!" ) 0(1 * ) 0 ) ,-$! .$ -$ ) 2 ) 3.+ ) 34*#5$ +65! ) 7$$ )   ! "#  " '"( ) +$4# .$ -$ ) 4(#6 ) 8% -% '"( ) 2"$% +$)"$ ) 9:) 6 ) ;$!< ) =>+  % = " 4 4#$# ) $ $# ) $ %#&'# ( ) +$ - ?66# ) 3 5@  3# -$ $& AA ) (*+ ,# 8B?C 3D#$ &#$& #                           *  5  &#$& #                      E FG E FG E  FG E FG  E FG  E  FG  E FG E FG  E FG E FG   E FG  E FG  E  FG          -&#$( -$$  !"# D " -$ 0( 3                                                                                  #$( D 1<$   H ) $ +6 - &#$(                     9$-I 3J=     F F + 3? ; K     F F B B  L2K    F F L2K 0) 9   F F 8B?K ;"M /" $   F F

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.