Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Kaupmannahöfn. AFP. | Þingkosningar
fóru fram í Grænlandi í gær og bentu
skoðanakannanir til, að Lýðræðis-
flokkurinn, sem er hægra megin við
miðju, yrði sigurvegari kosninganna.
Að þessu sinni er áherslan ekki á
kröfuna um fullt sjálfstæði eins og
var í kosningunum 2002, heldur á
þau miklu, félagslegu vandamál, sem
hrjá grænlenskt samfélag. Þar ber
hæst drykkjuskapinn og afleiðingar
hans fyrir börnin.
Grænlendingar eru um 57.000
talsins og þar af eru inúítar, frum-
byggjar landsins, um 50.000. Á kjör-
skrá voru 39.000 manns og frambjóð-
endur, sem kepptu um 31 sæti á
Landsþinginu, voru 223.
Í kosningunum fyrir þremur árum
voru sjálfstæðismálin efst á baugi en
nú hefur þeim verið vikið til hliðar,
að minnsta kosti að sinni. Segja
fréttaskýrendur ástæðuna einfald-
lega þá, að stjórnmálamennirnir
komist ekki hjá því að ræða það, sem
helst brenni á grænlensku þjóðinni,
áfengis- og fíkniefnavandann. Hann
er gífurlegur og birtist meðal annars
í því, að fjöldi barna má heita mun-
aðarlaus af hans sökum. Þá eru lang-
ir biðlistar á sjúkrahúsum einnig
mikið deilumál.
Á milli draums
og veruleika
Preben Lang, einn frambjóðenda
Lýðræðisflokksins, sem dönskumæl-
andi Grænlendingar halla sér eink-
um að, segir, að Grænlendingar séu
staddir einhvers staðar mitt á milli
draums og veruleika. Þá dreymi um
sjálfstæði en vandamálin blasi við
hvert sem litið er. Meðal annars
áfengisvandinn og ekki síður hitt, að
þá skorti þá menntun og kunnáttu,
sem er grundvöllur hvers sjálfstæðs
ríkis.
„Við verðum að þjálfa vinnuaflið,
sem nú er að mestu menntunarlaust,
og bæta skólakerfið. Við verðum að
hvetja ungt fólk til dáða svo það geti
tekist á við verkefnin í síbreytilegum
heimi,“ segir Lang í grein, sem hann
skrifaði í dagblaðið GrønlandsPost-
en.
Að fráfarandi stjórn standa tveir
flokkar, Siumut, jafnaðarmenn, og
vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit.
Slitnaði upp úr samstarfinu í sept-
ember síðastliðnum þegar þeir gátu
ekki komið sér saman um fjárlög
næsta árs.
Siumut utan stjórnar?
Síðustu skoðanakannanir bentu
til, að Siumut undir forystu Hans
Enoksens héldi stöðu sinni sem
stærsti flokkurinn en tapaði nokkru
fylgi, fengi 28,3% í stað 29,2% í kosn-
ingunum 2002. Lýðræðisflokknum,
sem rokkstjarnan Per Berthelsen
leiðir, er hins vegar spáð miklum
sigri og fái nú 25,8% atkvæða á móti
16,3% í síðustu kosningum. Gangi
það eftir er hugsanlegt að Siumut
verði ekki innanbúðar í landsstjórn-
inni á næsta kjörtímabíli í fyrsta sinn
í 26 ár.
Áfengisvandinn eitt
helsta kosningamálið
Á Grænlandi var ekki tekist á um sjálfstæðismálin,
heldur afleiðingar drykkjuskapar, einkum fyrir börnin
ÁSTRALSKIR launþegar taka þátt
í mótmælum í borginni Melbourne
gegn lagafrumvarpi stjórnar Johns
Howards forsætisráðherra um at-
vinnumál.
Áströlsk verkalýðssamtök sögðu
að um hálf milljón manna hefði tek-
ið þátt í mótmælagöngum gegn
frumvarpinu í gær, þar af um
150.000 í Melbourne og yfir 40.000 í
Sydney. Samtökin sögðu þetta fjöl-
mennustu mótmæli í sögu Ástralíu.
Kim Beazley, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins, spáði því að
lagafrumvarpið yrði hægristjórn
Howards að falli. Hann kvaðst ætla
að afnema lögin kæmist flokkur
hans til valda.
Frumvarpið dregur úr áhrifum
verkalýðshreyfingarinnar og verð-
ur til þess að vinnustaðasamningar
fá meira vægi. Stjórnin segir að
markmiðið sé að fjölga störfum og
blása nýju lífi í efnahaginn en
stjórnarandstaðan segir aftur á
móti að frumvarpið verði meðal
annars til þess að laun lækki og frí-
dögum fækki.
Neðri deild ástralska þingsins
samþykkti frumvarpið í vikunni
sem leið og gert er ráð fyrir því að
efri deildin afgreiða það síðar í
mánuðinum. Reuters
Fjölmennustu mótmæli í sögu Ástralíu
Bagdad. AP. | Ibrahim al-Jaafari, for-
sætisráðherra Íraks, sagði í gær að
173 vannærðir fangar hefðu fundist í
leynilegu fangelsi innanríkisráðu-
neytisins í Bagdad og að minnsta
kosti nokkrir fanganna bæru þess
merki að hafa verið pyntaðir. Leið-
togi stærsta flokks íraskra súnní-
araba sagði að fangarnir væru allir
súnnítar og að íraska stjórnin, sem
er undir forystu sjíta, hefðu áður virt
að vettugi ásakanir um að fangar
hefðu verið pyntaðir.
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sagði að banda-
rískir hermenn hefðu ráðist inn í
fangelsisbyggingu í Bagdad á sunnu-
daginn var vegna gruns um að ekki
væri allt með felldu þar.
Forsætisráðherrann sagði að
rannsókn væri hafin á því hvort
starfsmenn innanríkisráðuneytisins
hefðu pyntað fanga sem handteknir
voru í aðgerðum gegn uppreisnar-
mönnum.
„Mér var skýrt frá því að 173 fang-
ar hefðu fundist í fangelsi innanrík-
isráðuneytisins og að þeir virtust
vannærðir. Sagt er líka að þeir hafi
verið pyntaðir með einhverjum
hætti,“ sagði al-Jaafari. Hann bætti
við að fangarnir hefðu verið fluttir á
betri stað og fengju aðhlynningu
lækna.
Sættu hundruð
fanga pyntingum?
Mohsen Abdul-Hamid, leiðtogi
stærsta stjórnmálaflokks súnní-
araba, Íslamska flokksins, sagðist
sjálfur hafa rætt við embættismenn
írösku stjórnarinnar, meðal annars
forsætisráðherrann, og kvartað yfir
pyntingum í fangelsum innanríkis-
ráðuneytisins. Embættismennirnir
hefðu hins vegar alltaf virt kvartanir
hans að vettugi.
Innanríkisráðuneytið er undir
stjórn sjíta. Leiðtogar súnní-araba
hafa sakað öryggissveitir ráðuneyt-
isins um að hafa tekið til fanga
hundruð súnníta, pyntað þá og drep-
ið.
Mannréttindasamtökin Amnestry
International fögnuðu þeirri ákvörð-
un al-Jaafaris að fyrirskipa rann-
sókn á málinu. Samtökin hvöttu for-
sætisráðherrann til að láta rannsaka
allar ásakanir um pyntingar í fang-
elsum landsins.
Íraskar öryggissveitir
sakaðar um pyntingar
Yfir 170 vannærðir fangar hafa fundist í leynilegu fangelsi í Bagdad
Karlsruhe. AFP. | Matthias Platzeck
var í gær kjörinn formaður þýska
Jafnaðarmannaflokksins (SPD).
Platzeck, sem er 51 árs, tekur við
embættinu af Franz Müntefering,
sem sagði af sér í liðnum mánuði
eftir mikla ólgu innan flokksins.
Platzeck hlaut 99,4% greiddra at-
kvæða á þingi SPD í Karlsruhe og
gantaðist hann með að sú niður-
staða væri í anda þess sem ein-
kennt hefði stjórnmál í Austur-
Þýskalandi er kommúnistar réðu
þar ríkjum. Sjálfur er hann frá
austurhlutanum.
Platzeck er forsætisráðherra
Brandenburg og háttar því þá
þannig til í þýskum stjórnmálum að
formenn beggja stóru flokkanna í
þýskum stórnmálum koma úr aust-
urhlutanum. Formaðurinn nýi hef-
ur löngum verið dyggur stuðnings-
maður Gerhards Schröders
fráfarandi kanslara.
Reuters
Matthias Platzeck fagnar eftir að hann var kjörinn formaður SPD í gær.
Nýr formaður SPD
Tel Aviv. AFP. | Omri Sharon, sonur
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, hefur játað sig sekan um að
hafa falsað vitnisburði og skjöl í sam-
bandi við kosningabaráttu föður síns
1999. Þá sóttist
faðir hans eftir
leiðtogaembætt-
inu í Likud-
flokknum og
hreppti það.
Omri hefur
ekki enn verið
dæmdur en játn-
ingin þýðir, að
hann verður að
segja af sér þing-
mennsku. Geta brotin varðað sjö ára
fangelsi en búist er þó við, að dóm-
urinn verði öllu vægari.
Ariel Sharon var einnig yfirheyrð-
ur en hann kvaðst ekkert um fjáröfl-
unaraðferðirnar hafa vitað, þær
hefðu alfarið verið á hendi sonar
síns.
Mörg spillingarmál hafa komið
upp í stjórn Sharons á síðustu árum
og í skýrslu ísraelska ríkisendur-
skoðandans frá því í maí er varað við
því, að spillingin sé farin að ógna inn-
viðum ríkisins. Segir þar, að hún sé
hættulegri en nokkur önnur ógn við
Ísraelsríki.
Sonur Sharons
játar sekt
Omri Sharon
UM 80 íbúðir skemmdust eða
eyðilögðust í bruna í blokka-
samstæðu í Amager í Kaup-
mannahöfn í fyrrakvöld.
Um 200 íbúar í átta stiga-
göngum voru fluttir úr fjöl-
býlishúsunum og dvöldu á hót-
elum. Aðeins einn maður
slasaðist og talið er að eldurinn
hafi kviknað í íbúð hans. Elds-
upptök voru þó enn ókunn í
gær, að sögn danskra fjölmiðla
sem sögðu þetta einn mesta
eldsvoða í Kaupmannahöfn á
síðustu árum.
Slökkvistarfið gekk erfiðlega
í fyrstu vegna mikils vinds en
slökkviliðinu tókst þó að hefta
útbreiðslu eldsins. Óttast var
að veggur eins fjölbýlishúsanna
myndi hrynja, að sögn frétta-
vefjar Jyllands-Posten.
Stórbruni
í Kaup-
mannahöfn