Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 18
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Mývatnssveit | Senn fer í hönd
jólakauptíð með ofgnótt alls, en
þó reynist mörgum erfitt að
finna viðeigandi glaðning fyrir
sína nánustu. Fyrr á tíð þótti
sjálfsagt að allir fengju nýja skó
fyrir jólin. Þótt tímar séu breytt-
ir geta fallega bryddaðir sauð-
skinnskór enn hentað ein-
hverjum sem jólagjöf.
Handverksfélagið Dyngjan í
Mývatnssveit verður með mark-
að sinn opinn um helgar fram til
jóla, þar er margt þjóðlegt í boði.
Gerður Benediktsdóttir á Skútu-
stöðum er ein þeirra sem þar
stendur vaktina. Hún er lands-
kunn fyrir að gera framúrskar-
andi fallega sauðskinnsskó og yl-
leppa, líka þeim sem hún heldur
á á þessari mynd. Þó flestir
mundu kjósa að hengja þessar
gersemar upp á vegg hjá sér, þá
henta þeir ágætlega sem inni-
skór á jólum. Í Mývatnssveit
verða annars fjölbreyttar uppá-
komur nú fyrir jólin bæði fyrir
heimamenn og gesti hótelanna
og jólasveinarnir eru að koma
sér fyrir í Dimmuborgum.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Sauðskinnsskór fyrir jólin
Handverk
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ljósmyndir í Slunkaríki | Nýstofnaður
ljósmyndaklúbbur á Ísafirði opnaði sýn-
ingu á verkum sínum í Slunkaríki sl. laug-
ardag. „Það var ofsalega gaman að setja
upp þessa sýningu og við hlökkum til að
gera meira af því í framtíðinni. Við höfum
ákveðið að halda aðra sýningu að ári og
jafnvel að gefa út bók með verkum okkar í
framtíðinni,“ sagði Edda Katrín Ein-
arsdóttir, ein þeirra sem sýna verk sín í
Slunkaríki, í samtali sem birtist á fréttavef
Bæjarins besta á Ísafirði.
Sýningin er liður í námskeiði í svart-
hvítri ljósmyndun sem haldið var í Gamla
apótekinu í síðustu viku. „Við stofnuðum
klúbbinn í framhaldi af námskeiðinu en
þetta er mjög góður hópur og við náðum
öll rosalega vel saman. Við höfðum öll haft
áhuga á ljósmyndun en ekki gert mikið úr
honum,“ segir Edda Katrín meðal annars
við bb.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Gegn reykingum | Um 450 unglingar úr
fjórtán skólum á Vesturlandi hittust á ár-
legu æskulýðsballi í Borgarnesi á dögunum.
Það eru Félagsmiðstöðin Óðal og Nem-
endafélag Grunnskóla Borgarness sem
hafa veg og vanda af undirbúningi þessarar
hátíðar.
Unglingarnir sjálfir ákveða þema sem að
þessu sinni var áróður gegn reykingum.
Áhersla var lögð á að benda á hættu sem
reykingar geta valdið eins og auknar líkur á
krabbameini, að því er fram kemur á vef
Borgarbyggðar. Til að minna rækilega á
þetta var kirkjan í Borgarnesi, kirkjan á
Borg á Mýrum og íþróttamiðstöðin lýst upp
með bleikum ljósum þetta kvöld.
Um þrjátíu unglingar úr Óðali tóku þátt í
að undirbúa og skreyta íþróttamiðstöðina
um daginn og þegar svo um 450 unglingar
mættu á hátíðina var íþróttamiðstöðin
næsta óþekkjanleg.
Dagskrá hófst með dans-, söng- og tón-
listaratriðum frá nemendafélögum skól-
anna. Þar á eftir lék hljómsveitin Í svörtum
fötum fyrir dansi. Tekið er fram að
skemmtunin hafi farið vel fram.
Lagning hjáleiðar | Nú standa yfir fram-
kvæmdir við lokaáfanga hjáleiðar við þétt-
býlið á Reyðarfirði og er vonast til að hún
létti af þungaumferð gegnum bæinn.
Verið er að vinna í kaflanum frá Bark-
inum með fyllingu framan við Valhöll. Hjá-
leiðin tengist síðan inn á Austuveg framan
við húsgagnaverslunina Hólma. Næsta vor
verður gengið frá nýrri tengingu Melgerðis
inn á hjáleiðina.
Opið hús varí Héraðs-skjala-
safni Skagfirð-
inga á Norræna
skjaladeginum
sem minnst var
um síðustu helgi.
Gerðu margir sér
erindi að hitta
skjalavörðinn,
Unnar Ingvars-
son, og skoða í
leiðinni ýmsar
gersemar sem
leynast á þessu
safni eins og öðr-
um, en eru ekki
að öllu jöfnu fyr-
ir augum gesta.
Gömul kosn-
ingablöð frá síðustu öld sýna að ekki
síður þá en nú hefur verið hart tekist
á um hin ýmsu málefni og oft ekki
spöruð stóru orðin. Gjafabréf, gjörða-
bækur og ótölulegur fjöldi ljósmynda
frá því í gamla daga, ásamt ýmsu
öðru forvitnilegu gladdi augu gest-
anna.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Gluggað í gömul blöð Erlendur Hansen, Unnar Ingvarsson
skjalavörður á Sauðárkróki, Jón Eiríksson og Jón Ormar Orms-
son litu inn á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga um helgina.
Gersemar í Skjalasafni Skagfirðinga
Rúnar Kristjánssonsá mynd í Morg-unblaðinu af Dav-
íð Hjálmari Haraldssyni
hagyrðingi að moka snjó.
Rúnar yrkir:
Sumir vinna á vísum spjöll,
vart þar kostum bruðla.
En Davíð Hjálmar mokar mjöll
milli ríms og stuðla.
Stillt mér virðist stökumanns
stjarna að heilladísum.
Skeytluvæn er skóflan hans,
skilar snjó og vísum!
Rúnar lætur ekki þar
við sitja:
Má nú sjá í margri sveit
að margt í verkum bilar.
Eftirleitar eftirleit
ótal kindum skilar!
Loks yrkir Rúnar:
Stjórnaröflin áttavillt
útrásinni hæla.
Þó hún teljist tilraun spillt
til að nota þræla!
Af skáldinu
með skófluna
pebl@mbl.is
Skagaströnd | Það er ekki á hverjum
degi sem laumufarþegi finnst um borð í
frystitogara. Það gerðist þó um borð í
Arnari HU 1 frá Skagaströnd á dög-
unum þar sem skipið var á veiðum á
Glettinganesflaki fyrir austan land.
Skipverjar um borð voru hinir ánægð-
ustu með gestinn og þó að eitthvað færu
borðsiðir hans fyrir brjóstið á þeim dafn-
aði gesturinn vel og var hinn sprækasti
þegar í land var komið. Laumufarþeginn
sem er reyndar eyrugla var blaut og
hrakin undan norðan áhlaupi þegar hún
settist um borð. Var uglunni bjargað inn
í hlýjuna og hún þvegin og þurrkuð.
Kunni hún björgunarmönnum sínum
engar þakkir fyrir og gerði sitt ýtrasta
til að höggva í þá með hárbeittum
goggnum. Ekki virtist uglan hafa lært
mikið í mannasiðum þegar fréttaritari
var að ljósmynda hana því hún bæði
hvæsti á ljósmyndarann og skellti ótt og
títt í góm.
Að sögn Finns Kristinssonar, yfirvél-
stjóra á Arnari, var uglan alin á hráu
kjöti og fiski, sem hún át allt með bestu
lyst. Einu sinni var henni gefinn lifandi
skógarþröstur en eftir að skipverjar
höfðu séð hvernig hún tætti þröstinn í
sig hættu þeir að reyna að færa henni
lifandi bráð. Til stóð að uglan fengi lög-
heimili í Húsdýragarðinum í Reykjavík
en þegar málið var skoðað nánar þá er
víst ekki leyfilegt að vista hana þar því
ekkert virðist ama að henni og eyruglur
eru alfriðaðar hér á landi.
Eftir heimsókn í skólann, þar sem
börnunum verður leyft að skoða ugluna
verður farið með hana í náttúrufræði-
stofuna á Sauðárkróki þar sem ákvörðun
verður tekin um örlög hennar.
Laumufar-
þegi um borð
í skuttogara
♦♦♦
Kaffihús í Varmahlíð | Skipulags- og
byggingarnefnd Skagafjarðar hefur tekið
jákvætt í umsókn Óttars Bjarkan Bjarna-
sonar, bakarameistara á Sauðárkróki, um
lóð í Varmahlíð. Þar hyggst hann byggja
kaffihús og bakarí. Nefndin fól skipulags-
og byggingarfulltrúa að vinna málið frekar
með umsækjanda.